Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
13
ins, sem hafa verðgildin 14p og
25p og verða með mynd af
brúðhjónunum, sem Snowdon lá-
varður hefur tekið. Gert er ráð
fyrir, að þessi frímerki seljist
milljónum saman og muni
hressa mjög upp á fjárhag
brezku póststjórnarinnar. Hjá
þeirri stofnun hafa þó margir
áhyggjur af því, að sum lönd
innan samveldisins hyggjast
gefa út ein 5 frímerki í tilefni
brúðkaupsins og það í stóru
upplagi. — Það er ekkert, sem
við getum gert til þess að hindra
þetta, er haft eftir háttsettum
manni innan brezku póststjórn-
arinnar. Þetta bitnar á frí-
merkjamarkaðinum í heild
sinni. Því eru takmörk sett, hvað
hagnast má á frímerkjasöfnur-
um.
Það er kannski ekki heldur
nema von, að sumum blöskri, því
að sum „lönd“ innan samveldis-
ins, sem vart eru annað en lítt
byggðar eyjar, hyggjast gefa út
myndarleg upplög af frímerkj-
um með brúðhjónunum. Á meðal
þeirra má nefna Tristan da
Cunha, þar sem íbúarnir eru
rúmlega 100 og Pitcairn-eyjar
um um 60 íbúum.
Ekki eru allar myndirnar eins
af brúðhjónunum á þeim frí-
merkjum, sem út eiga að koma.
Þannig verður eitt merkið á
eynni Barbados með mynd af
prinsinum, þar sem hann er að
spila póló klæddur T-skyrtu. Á
merki á Fiji-eyjum er hann
klæddur eins og sjómaður og á
öðru í Sierra Leone verður hann
í búningi þyrluflugmanns.
Brezka útvarpið (BBC), sem
sér um sjónvarpsútsendingu á
brúðkaupinu fyrir mestan hluta
heims, þykist hins vegar hafið
yfir gróðafíknina. Þar sem hér
er um atburð að ræða, sem fram
fer á vegum ríkisins, þá er BBC
ekki leyft að gera sér hann að
féþúfu. Atburðinum verður hins
vegar sjónvarpað út um víða
veröld og það ekki síður til
fjarlægra landa eins og Thai-
lands og Suður-Kóreu. Áf stóru
löndunum eru það aðeins Sovét-
ríkin, sem ekki hafa sýnt neinn
áhuga.
i inTi
vekja máls á þessum leiðinlegu
mistökum, eða hvað á að kalla það. í
ræðu minni dró ég í efa, að umrætt
málverk væri sjálfsmynd Þorvaldar
Skúlasonar, því hún væri ekkert lík
honum og efast jafnvel um að hún sé
eftir hann, a.m.k. er hún ekki einasta
sjálfsmyndin.
Mér varð nokkuð tíðrætt um
skyldur listamanna að því leyti að
segja rétt til um verk sín og einnig
þá spurningu, hvort listamaður gæti
lagt bann við því, mörgum árum
eftir að hann hafi látið verk frá sér,
að því verði gefið safni eða opinber-
um aðiljum. Engum andmælum var
hreyft við þessum ábendingum mín-
um.
Ýmsir höfðu orð á því við mig, að
þeim þætti þetta athyglisverðar
upplýsingar, að komið væri fram, að
til væru hér á landi a.m.k. tvær
aðrar sjálfsmyndir þessa „nestors"
ísl. myndlistar í dag og að fróðlegt
væri að fá að sjá þetta verk.
Þar sem þessar upplýsingar lágu
fyrir, mátti ætla, að forsvars-
mönnum sýningar þeirrar á verkum
Þorvaldar Skúlasonar, sem nú stend-
ur yfir í Norræna húsinu, væri í mun
að fá þetta verk að láni til saman-
burðar, almenningi til fróðleiks.
Engin tilraun var gerð í þá átt, en
fyrrgreind „sjálfsmynd“ Þorvaldar
Skúlasonar sýnd þar sem slík, líkt og
ekkert hefði í skorist. Vafalaust
hefði það aukið aðsóknina að sýning-
unni og ekki munu þessar ábend-
ingar draga úr aðsókn að þessari
annars ágætu sýningu, þar sem
verkin frá því fyrir 1953 bera þó af.
Mér þykir hins vegar skylt, ekki
síst vegna Háskóla Islands, sem á
umrætt verk og á að hafa að
leiðarljósi að leita sannleikans i
hverju máli, að láta þetta koma fram
og birta myndir af umræddum
málverkum, svo það er sannara
reynist megi koma fram.
Sjúkraflug
til Irlands
ELÍESER Jónsson hjá Flugstöó-
inni hf. sótti í gær sjúka íslenzka
konu til írlands, en hún þjáðist
af illkynjuðum lungnasjúkdómi.
Að sögn Elíesers var þetta
lengsta sjúkraflug, sem hann hef-
ur flogið til útlanda, en alls tók
ferðin á hinni nýju vél hans,
Rockwell Turbo Commander, rúm-
ar sjö klukkustundir, en leiðin sem
flogin var er um 800 mílur og er
svo langt sjúkraflug fremur sjald-
gæft. Sagði hann að ferðin hefði í
alla staði gengið með ágætum,
þrátt fyrir vegalengdina. Vélin
hefði flugþol til allt að 1.500
sjómílna flugs án þess að taka
eldsneyti svo hún væri fyllilega
fær um svo langt flug sem þetta
og allt að helmingi lengra.
þeir verðo í stöðugu
SQmbondi
og öryggi að geta náð
í þýðingciinikla menn á stundinni I
Eftirlitsmaður
Flestir kannast eitthvað við Multitone taekin, sem hafa lengi verið í notkun á spítölum, og hanga í
vösum eða sloppum lækna, en þessi tæki koma sér vel víða annarsstaðar.
Með tali eða tón er hægt að senda skilaboð langa vegu, og er mikil hagkvæmni í því að geta haft
samband við þýðingamikla menn hvar sem er og hvenær sem er.
Hægt er að hafa samband við marga í einu, eða velja bara einn úr.
Leitið upplýsinga um þessi nauðsynlegu tæki, og kynnist kostum þeirra.
Ot) Radíóstofan ht
Þórsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131