Morgunblaðið - 28.07.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
17
Höfundur ritar hér
um bókina „Marg-
ar hlýjar hendur“,
sögu Kvenfélaga-
sambands íslands í
hálfa öld
einhlítt. En Sigríður er gædd þeim
sleitulausa dugnaði, sem til þarf
að leysa slíkt verk af hendi, og því
málskyni sem hvergi bregst í
þessu mikla verki. Á hún það
skammt að sækja til beggja ætta.
Verk sem þetta hlýtur með nokkr-
um hætti að verða skýrslugerðar-
legt, en í öllu þessu mikla máli
bregður hvergi af því, að höfundur
riti yfirlætislaust, áreynslulaust
mannamái, en stofnanaíslensku,
tyrfni eða tilgerð er hvergi að
finna. Fer vel á því, þar sem ekki
hefur alltjent verið blásið í lúðra
kringum hið hljóðláta, fórnfúsa
mannúðar- og menningarstarf
sem „margar hlýjar hendur" ís-
lenskra kvenna hafa unnið. Þar
hefur hugsjónin löngum verið sett
ofar framavon eða löngun til
umbunar. Góð verk hafa gildi sitt
í sjálfum sér, og sannast það best
af þessari sögu.
Höfundi þessarar umsagnar
miklast mest hversu víða samtök
íslenskra kvenna hafa komið við
sögu landsins, en hitt þekkir hann
betur, hversu merkilegt starf hin
einstöku kvenfélög unnu fyrr og
síðar á sínu sviði og svæði. Þykir
honum nú enn betra eftir en áður
að hafa verið ólatur léttadrengur
á kvenfélagssamkomum sveitar
sinnar á árum áður. Var það að
vísu mest gert sér sjálfum til
gamans, en lestur þessa verks
vekur upp þá hégómlegu hugsun,
að sinnt hafi verið um leið merki-
legu starfi öðrum til gagns og þá
helst þeim sem með einhverjum
hætti stóðu höllum fæti í samfé-
laginu.
Þetta mikla verk, saga Kvenfé-
lagasambands íslands, er drjúgt
framlag til þjóðarsögunnar í heild
og dýrmætt að hafa þarna á
einum stað þessar óvefengjanlegu
heimildir. Bók þessi er hvorki
meira né minna en hálft sjötta
hundrað þéttprentaðra síðna,
stundum svo þétt og samanþjapp-
að að ekki má tæpara standa, að
komi niður á listrænum frágangi.
En það, sem þar kann á að skorta,
vinnst upp með fallegri ytri gerð,
einkum mjög smekklegu bandi og
bókarkili.
Þessi bók er hafsjór af fróðleik,
og má nærri geta, að undirritaður
er ekki dómbær um hvaðeina. En
þar sem hann þekkir best til, veit
hann að rétt er með farið, og
prentvillur sárafáar. Bók af þessu
tagi verður og aldrei alveg villu-
laus. Slíkt er blátt áfram ekki
mennskt. En við höfum í höndum
ótrúlegt þrekvirki, unnið af
smekkvísi, kunnáttu og frábærum
dugnaði. Við lestur þessarar bókar
hljóta menn að skiljast með þökk
og aðdáun.
15.7.’81,
RAFRITVÉLIN MONICA
Þetta er nýja rafdrifna ritvélin frá Olympia sem sökum nýrrar
tækni er nú fáanleg ótrúlega fyrirferðalítil, ódýr og í þremur
mismunandi litum.
Hálft stafabil, 44 lyklar, 3 blek
bandsstillingar o.fl.
sem aðeins er á stærri
geróum ritvéla.
*
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
»
Olympia
Intemational
IMlÆ^tMy© KJARAN HF
ÁRMÚLI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022
Solignum
architectural
á allt tréverk
-ogþú hlœrð að veðrinu.
Það er sama á hverju gengur, — Solignum architectural verndar allt
tréverk — fæst í 13 litum sem allir hafa mikiö veörunarþol og flagnar
ekki af viðnum.
Solignum architectural viöarvörn veitir varanlega vernd gegn
vatni og veörun.
Þú færö Solignum architectural í 5 og
1 lítra dósum
-ogþú hlœrð að veðrinu.
Solignum
architectural
VlÐSJÁ
*mí6