Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 18

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 Brúðkaup Karls prins og lafði Díönu: Aðdáendur hafa tjaldað fyrir utan dómkirkjuna Díana féll saman og grét vegna ágangs almennings og blaðamanna Þaö vakti mikla athygli um helg- ina, að lafði Díana féll saman og grét vegna athygli og ágegni fólks á laugardag. Lafði Díana fylgdist með pólóleik milli brezka hersins og sjóhersins í Tidsworth. Meðal kepp- enda var Karl prins. Koma hennar vakti mikla athygli og allra augu beindust að henni. Blaðamenn gerð- ust of ágengir og lafðin þoldi ekki spennuna og féll saman. Karl prins huggaði hana og fylgdi henni á braut, Siðan brá kappinn sér á hestbak og skoraði sigurmark leiks- ins fyrir sjóherinn. „Hún þoldi ekki álagið,” sagði Karl prins við fréttamenn eftir atvikið. JHún grét og var greinilega í miklu uppnámi. Ég held að athygli fólksins hafði verið henni um megn,“ sagði kona nokkur, sem varð vitni að atvikinu. Að sjálfsögðu gerðu brezku blöðin mikið út atviki þessu og í flestum þeirra birtust myndir þar sem Karl prins var að hugga brúði sína. Karl prins tók til við pólóleik með enska landsliðinu á sunnudag og lafði Díana mætti þá til að fylgjast með honum í leik. í viðtali við lafði Díðnu, sem tekin var fyrir atvikið í Tidsworth, sagð- ist hún eiga í erfiðleikum með að laga sig að breyttum aðstæðum; ' allri þeirri athygli sem hún vekur hvar sem hún fer en „mér líður eins og öllum ungum konum, sem eru að ganga í hjónaband,“ sagði hún. Nancy Reagan neitar að hneigja sig Þá slógu blöðin því upp með miklum fyrirgangi, að Nancy Reag- an, sem verður fulltrúi Ronalds Reagans, forseta Bandaríkjanna, myndi ekki hneigja sig þegar hún hittir Eiísabetu drottningu. Heldur muni forsetafrúin aðeins taka í hendi drottningar. „Nancy er bandarískur þegn. ekki brezkur og því sé ég enga ástæðu fyrir hana til að hneigja sig,“ sagði ritari forseta- frúarinnar við fréttamenn. Britannía farin áleiðis til Gíbraltar Snekkja konungsfjölskyldunnar, Britannía, hélt í dag áleiðis til Gíbraltar. Þar mun snekkjan bíða l.undunum. 27. jáli. AP. ÁKAFIR aðdáendur brezku konungsfjolskyldunnar hófu I dag að tjalda fyrir utan Sánkti Paul's dómkirkjuna i Lundúnum en Karl Bretaprins og lafði Díana Spencer verða gefin saman i kirkjunni á miðvikudag. Lögreglan gerði mikla leit i dag á leiðinni frá Buckinghamhóll til dómkirkjunnar. Lögreglan notaði meðal annars sérþjálfaða lögreglu- hunda til að leita að hugsanlegum sprengjum. Ekkert grunsamlegt fannst en logreglan hefur mikinn viðbúnað vegna brúðkaupsins. Mikið tilstand er nú i heimsborginni. Talið er að um 900 fréttamenn viðs vegar að úr heiminum muni fylgjast með brúðkaupinu og að minnsta kosti 600 milljónir manna um allan heim muni fylgjast með beinum sjónvarpsútsendingum. Karl prins og lafði Díana voru i dag viðstödd skírn dóttur önnu prínsessu i Buckinghamhöll. jiO ■■■■>}*• Simamynd AP. Brezka konungssnekkjau lætur úr höfn i Portsmouth i gær og heldur áleiðis til Gibraltar þar sem Karl príns og lafði Diana hefja siglingu um Miðjarðarhaf í tilefni hrúðkaupsins. Sú ákvörðun að hefja brúðkaups- ferðina í Gibraltar hefur valdið mikilli reiði á Spáni og hefur spa'nska konungsfjölskyldan hætt við að koma til brúðkaupsins. brúðhjónanna, sem væntanleg eru til nýlendunnar á laugardag. Juan Carlos, Spánarkonungur neitaði að vera viðstaddur brúðkaup Karls prins og lafði Díönu vegna ákvörð- unar prinsins um að koma við á Gíbraltar. Mál þetta hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og á Spáni. Þingmenn úr brezka íhaldsflokkn- um báru fram þingsályktunartillögu fyrir helgina, þar sem lýst var „óbeit“ á þeirri ákvörðun Spánar- konungs og drottningar hans að mæta ekki við brúðkaup Karls pins og lafði Díönu vegna deilunnar um Gíbraltar. Sir Ian Gilmour, aðstoðarutanrík- isráðherra sagði fyrir helgi, að brezka stjórnin mundi ekki leggja til, að sú breyting yrði gerð á brúðkaupsferð Karls prins og lafði Díönu, að þau hættu við að koma til Gíbraltar í upphafi ferðarinnar. Hann sagði, að enginn mætti eða gæti skipt sér af brúðkaupsferð þeirra. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins í Madríd sagði, að fyrirhuguð Gíbraltarheimsókn væri „ótímabær og óréttlætanleg". Talið er að Juan Carlos vilji ekki styggja hægrimenn og þjóðernissinna í kjölfar bylt- ingartilraunarinnar í vetur með því að mæta við brúðkaupið. Viðræður standa yifir milli Breta og Spánverja um Gíbraltarmálið og brezka ríkisstjórnin vildi lítið gera úr málinu. Margrét Thatcher, for- sætisráðherra, kvaðst fyrir helgi harma ákvörðun Spánarkonungs. íbúar Gíbraltar samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðar- atkvæðagreiðslu árið 1967 að verða áfram undir stjórn Breta. Mikið tilstand varð í Sánkti Paul’skirkju á laugardag þegar dúfa nokkur flaug inn um glugga kirkj- unnar og vildi helst ekki út aftur. Loks eftir klukkutima eltingarleik um kirkjuna tókst að fanga dúfuna og koma henni út. Brúðarhringurinn úr welsku gulli Hringurinn, sem Karl prins mun Sextán líflátnir Beirút. 27. iólí. AP. MOHAMMAD ALI RAJAI sigrradi i forsetakosningunum I fran með 88,12 af hundraöi atkvæða. en frestaði formlegri yfirlýsingu sem annar þjóðkjörni þjóðhöfðingi landsins eftir 25 alda konungs- stjórn. þar til talningu utankjör staðaratkvæða lyki. Fjölmiðlar sögðu jafnframt að 16 vinstrisinnaðir andstæðingar stjórn- arinnar hefðu verið teknir af lífi í ýmsum hlutum landsins i miskunn- arlausri herferð gegn veraldlegum andstæðingum harðlínuklerka. Meðal hinna líflátnu var Mo- hammad Reza Saadati, valdamikill fulltrúi í miðstjórn islamska marx- istaflokksins Mujahedeen Khalq, sem var aðaldriffjöður skæruhem- aðarins er hafinn var til að mótmæla brottvikningu Abolhassans Bani- Sadr fv. forseta. Fram kom fram í réttarhöldunum að Saadati var handtekinn fyrír um tveimur árum og dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir njósnir í þágu Rússa. Því var haldið fram að fanganum hefði tekizt að halda uppi sambandi við aðila utan fangelsismúranna og haldið áfram njósnum. Síðan hefði hann heilaþvegið fangavörð til þess að myrða annan fangavörð í síðasta mánuði, sama daginn og sprengja sprakk í aðalstóðvum Islamska lýð- veldisflokksins i Teheran er rúmlega 70 ráðamenn biðu bana. Alls voru 22 milljónir á kjörskrá í forsetakosningunum og atkvæði greiddu 15 milljónir þrátt fyrir sprengjuherferð vinstrisinna, sem vildu hræða kjósendur til að koma í veg fyrir að þeir kysu. Samkvæmt síðustu tölum fengu andstæðingar Islamska lýðveldis- flokksins innan við eina milljón atkvæða hver. Dr. Abbas Sheibani fv. landbúnaðarráðherra hlaut 4,26% atkvæða, Ali Akbart Parvar- esh þingforsetri 2,75% og Habibol- lah Asghar þingmaður 1,72% at- kvæða. ............... Vopnaskortur hefur háð skæruliðum i Afghanistan frá upphafi baráttu þeirra, en síðustu bardagarnir í landinu benda til þess að andspyrnuhreyfing þeirra sé vel skipulógð og ráði yfir talsverðum hergögnum. Stór hluti þeirra hefur trúlega verið tekinn herfangi af Rússum eins og sovézki Kalashnikow-riffillinn sem skæruliðinn á myndinni miðar á lest sovézkra herflutningabila. Palestínumenn rufu vopnahléið Tri Avtr, 27. )«lt. AP. PALESTÍNSKIR skæruliðar gerðu árás með eldflaugum og léttu skórskotaliði á svæði krístinna manna i Suður-Libanon i dag og rufu hið ótrygga vopnahlé á norð- urlandamærum fsraels. Um mann- fail er ekki vitað. Israelsmenn og kristnir stuðn- ingsmenn þeirra svöruðu ekki skot- hríðinni. Palestínumenn gerðu árás- ina frá Nabatiyah í Mið-Líbanon á kristnu þorpin vestur af samyrkju- búinu Misgav Am, þar sem kona nokkur féll fyrir palestínskir eld- flaug i siðustu viku. Engin eldflaug féll á israelskt iand og lífið i landamærabæjunum er að færast í eðiilegt horf. mundu halda áfram könnunarflugi yfir Líbanon og teldu það ekki vera brot á vopnahlénu. Hann kvaðst telja að Bandarikjamönnum væri kunnugt um afstöðu ísraelsmanna Liverpool, 27. júll. AP. LEIÐTOGAR hlökkumanna kenndu „stöðugrí áreitni lögregl- unnar“ um óeirðir sem brutust út f nótt í Toxtcth-hverfinu i Liverpool, en yfirvöld visuðu ásökuninni á bug. til könnunarflugsins. Palestínskir skæruliðar skutu af loftvarnabyssum þegar ísraelskar þotur rufu hljóðmúrinn yfir Beirút tvívegis í dag. Þótt Frelsissamtök réðust á lögregluna í hverfinu og létu rigna yfir hana benzínsprengj- um, grjóti og múrsteinum og kveikt var í nokkrum bílum. Tveir leigubílstjórar slösuðust, annar þeirra alvarlega, þegar leigu- bíll var grýttur með þeim afleiðing- um að ökumaðurinn missti stjórn á bílnum og ók á tré. Sjónarvottar segja að leigubíistjórinn hafi verið Palestinu, PLO, segi flugið brot á vopnahléinu hafa þau tekið fram að ferðir flugvélanna muni ekki verða til þess að skæruliðar brjóti vopna- hléð í Suður-Líbanon. dreginn út úr brakinu og múgurinn hafi haldið áfram að kasta steinum í hann þar sem hann lá á götunni. Leiðtogar hverfisbúa neita því að leigubílstjórar séu lagðir í einelti vegna frétta um að þeir hafi ekið lögreglunni á óróastaði í fyrri upp- þotum. Félag leigubílstjóra sagði að litið yrði á hverfið sem einskis- ma’nnslands. Menachem Begin forsætisráð- (jm 70 unglingar, aðallega af herra ■sagði- f-dag 'SÍr Israelsfmenn— aTfíSKúm'ógveslúr-índískúm^æftum, Enn óeirðir í Liverpool

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.