Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 21 • Evrópumeistaramóti unglinga i golfi lauk á sunnudagskvöld á Grafarholtsvelli. Þá var giæsilegt lokahóf í golfskálanum. Lið Spánar sigraði i keppninni. A myndinni hér að ofan er írinn McHenry að slá annað högg sitt úr sandgryfju á 17. braut. Kúlan endaði einn metra frá holu. McHenry mistókst hinsvegar púttið og þar með töpuðu írar. Sjá bls. 24 og 25. Ljósm. óskar Sæm. Diðrik er efstur NÚ ERU 12 umferðir búnar á íslandsmeistaramótinu i knatt- spyrnu og þvi ærin ástæða komin til að lita öðru sinni á stöðuna i einkunnagjöf Morgunblaðsins. Taka verður þó með i reikninginn er á meðfylgjandi lista er litið. að einkunnir leikmanna i leik Vais og FH eru ekki með i útreikningunum, en sá leikur fór fram i gærkvöldi. Sá leikmaður sem hæsta hefur meðaleinkunnina að móti loknu telst leikmaður íslandsmótsins frá sjónarhóli iþrótta- fréttamanna Mbl. Hlýtur hann vegleg verðlaun fyrir afrekið, svo og markakóngur mótsins, en þar er ekki siður hart barist. 18 umferðir eru i íslandsmótinu og verða leikmenn að vera með i minnst 16 leikjum til þess að teljast gjaldgengir, enda hiýtur sá ieikmaður sem hæsta hefur meðaleinkunnina eftir flesta leikina að teljast best að sigrinum kominn. Hér kemur svo iisti yfir efstu menn, fyrsta taian fyrir aftan hvert nafn er sá stigafjöldi sem hver leikmaður hefur rakað saman, siðan kemur leikjafjöldi hvers manns, loks meðaleikunnin. Dlðrik ÓlafsKon Vlk. Ólafur BjörnxNon IIBK UruK (luðmundsNon Vik. Sigurður Láruaxon f A UelKÍ BentHHon UBK Marteinn GeirnHon Fram Jón AlfreðHHon lA 73-11 6.63 66-10 6.60 78-12 6,50 77-12 6.41 77-12 6.41 64-10 6.40 76-12 6.33 Olafur Björnsson Bjarni SÍKurðHHon IA Sifcurður llalldóraHon lA Saevar JónnHon Val Guðmundur BalduraH. Fram Helid Heixaaon Vik. Valdemar ValdemaraHon UBK Jóhann GrétaraHon UBK SÍKurlás ÞorleifHHon fBV Þóröur MareÍHHon Vik. Stefán JóhannHHon KR AðaÍHteinn JóhannHHon KA Eirikur EirikaHon Wr llreKKviður ÁKÚHtHHon FH Árni Sveinsaon IA Erlinicur KrÍHtjánHaon KA Páll Pálmaaon IBV Ómar Torfaaon Vik. Þórður IlallicrimHHon lBV Haraldur HaraldKHon KA Jón EinarHHon UBK MaKnÚH ÞorvaldHHon Vlk. Guðjón Þórðaraon |A 76-12 6.33 76-12 6,33 63-10 6,30 75-12 6.25 75-12 6.25 75-12 6,25 62-10 6.20 74-12 6.16 74-12 6.16 74-12 6.16 74-12 6,16 74-12 6.16 67-11 6.09 67-11 6.09 73-12 6,08 73-12 6.08 60-10 6.00 66-11 6,00 72-12 6,00 72-12 6,00 72-12 6,00 72-12 6.00 Tveir leikmenn nem voru ofarleKa á hlaði. NlðaHt er vfirlit var blrt. þeir Valþór SÍKþórHHon tBV ok Dýri GuAmundHHon Val, hafa nú mÍHHt úr of marxa leiki til aÖ teljast KjaldRenKÍr i nlaKnum. Dýri hefur reyndar enn harntu meöaleinkunnina. 6,75, en hann heíur mÍHHt úr 3 lelki. Valþór hefur aöeina leikiö 8 leiki og hefur meöaleinkunnina 6,50. — Kff Knattspyrna) Diðrik ólafsson Lárus Guðmundsson Hver veröur markakóngur? Sigurlás Þorleifsson MIKIL rimma stendur nú yfir um markakóngstitilinn i 1. deildinni i knattspyrnu. bar eru nokkrir kallaðir en aðeins einn útvalinn. Þrír leikmenn skera sig nú nokkuð frá öðrum, Sigurlás Þorleifsson, tBV, Lár- us Guðmundsson Vikingi og Þorsteinn Sigurðsson Val. En margt getur gerst áður en að upp verður staðið i haust. Markhæstu leikmenn deildar- innar eru sem hér segur: Sigurlás Þorleifsson IBV 8 Lárus Guðmundsson Vík. 8 Þorsteinn Sigurðsson Val 7 Guðmundur Torfason Fram 5 Kári Þorleifsson ÍBV 4 Guðbjörn Tryggvason ÍA 4 Óskar Ingimundarson KR 4 Njáll Eiðsson Val 4 Sigurjón Kristjánsson UBK 4 Jón Einarsson UBK 4 Ingi Björn Albertsson FH 3 Pálmi Jónsson FH 3 Ómar Jóhannsson ÍBV 3 Gunnar Gíslason KA 3 Ásbjörn Björnsson KA 3 Guðmundur Skarphéðinsson Þór3 Menn geta vælt sig inn í Valsliðið í leikskrá Vals, sem gefin var út í gærkvöldi á leik liðsins gegn FH, er mjög athyglisvert viðtal við Þorgrím Þráinsson og jafn- framt opinskátt. Þar kemur meðal annars fram að menn geti vælt sig inn í Valsliðið. Hér á eftir fer kafli úr viðtalinu úr leikskránni: — Hverju kennirðu um? „Ég er einfaldlega ekki i náðinni og er mjög óhress, en það þýðir ekki annað en að herða upp hugann og berjast áfram. Eg hélt ekki að það þekktist i 1. deildinni, að menn gætu vælt sig inn i lið eins og því miður hefur gerzt hjá okkur Valsmönnum i sumar. Það er hart að þjálfari skuli ekki velja liðið hverju sinni eftir getu leikmanna heldur eftir bend- ingum og óskum stjórnar- manna. Það er lika skrýtið, að menn skuli labba inn i lið eftir aðeins 2—3 æfingar og þetta hefur eðlilega slæm áhrif á „móralinn“. Við leikmennirnir höfum haldið fund um þessi mál. menn hafa talað út og hreinsað andrúmsloftið. í hópn- um sjálfum er andrúmsloftið því orðið mjög gott, þar er að finna marga frábæra félaga og við höldum mikið hópinn.* — Ertu með þessu að kvarta undan þjálfaranum? „Ég neita þvi ekki að mér og fleirum hafa fundist æfingarn- ar i sumar heldur slappar. Við ræddum þetta á fundi fyrir tveimur vikum og fórum fram á það leikmennirnir, að meiri kraftur yrði settur i æfingarn- ar, eitthvað yrði gert. Þessari bendingu okkar var vel tekið og æfingarnar hafa gjörbreytzt siðan. Fjörutíu tóku þátt í hjólreiðakeppninni TÆPLEGA 40 hjólreiðamenn mættu til leiks i hjólreiða- keppninni sem fram fór á milli Reykjavíkur og Keflavikur á sunnudagsmorgun. Hörð og spennandi keppni var i karla- flokki allt þar til að tveir kilómetrar voru eftir, en þá tók Einar Jóhannsson forystu og sigraði örugglega. Einnig var hörð keppni í flokki 15 til 16 ára, þar sem ein sekúnda skildi fyrstu tvo menn að. Vegalengd- in sem hjóluð var, er um 39 kilómetrar, sem þýðir að meðal- hraði fyrstu manna var 45 km/klst. öllum keppendum var startað samtimis. Einar Jóhannsson hlaut 52:03,21 mín. í karlaflokki, Haf- steinn Óskarsson varð annar á 52:15,16 mín. og Helgi Geir- harðsson þriðji á 52:19,21 mín. og Ágúst Ásgeirsson var tveimur sekúndum á eftir honum í mark. Tími var þó aðeins tekinn á fyrstu þremur mönnum í hverj- um flokki, og olli það flestum keppendanna talsverðum von- brigðum, þar sem auðvelt er að Einar Jóhannsson kemur i mark og fagnar sigri framkvæma tímatöku af því tagi, jafnvel á eina skeiðklukku. Þá vakti það athygli að keppend- ur báru engin keppnisnúmer, og lá því alls ekki á hreinu númer hvað hinir ýmsu hjólreiðamenn komu í mark. Voru aðstandend- ur keppninnar jafnvel að spyrja ýmsa hjólreiðamenn númer hvað þeir hefðu komið í mark, en ekki er hægt að ætlast til þess, að keppendur geti fylgst fyllilega með því hvar þeir eru í röðinni. Þá vakti það undrun margra keppenda, að í fréttum um keppnina kom aldrei fram að um íslandsmeistaramót væri að ræða, en í blaðaauglýsingu á keppnisdag auglýsti einn af skemmtistöðum borgarinnar að svo væri, og að verðlaunaafhend- ing færi þar fram. Ljóst er af þessu öllu, að vanda verður meira til framkvæmdar og skipulags hjólreiðakeppna, því áhugi fyrir keppnum af þessu tagi er að aukast, og fjölmargir farnir að æfa sig sérstaklega með keppni fyrir augum. Það vakti mikla athygli meðal keppenda og annarra og þótti til fyrirmyndar, hversu jákvæða af- stöðu lögreglan í Keflavík sýndi. Stjórnaði hún umferðinni á allri keppnisleiðinni, þannig að hjól- reiðamönnum stafaði engin hætta af bifreiðastjórum og öfugt. Var frammistaða lögregl- unnar til fyrirmyndar og róm- uðu keppendur og aðstandendur hana. Elvar Erlingsson sigraði í flokki 15 til 16 ára á 53:48,16 mín., annar varð Sigurjón Hall- dórsson á 53:49,34 og þriðji Hilmar Skúlason á 54:00,14 mín. Ólafur Ólafsson sigraði í flokki 13-14 ára á 55:49,00, annar varð Magnús R. Guð- mundsson á 60:05,12 mín. og þriðji Viktor Kjartansson á 60:12,38 mín. Einn kvenmaður tók þátt í keppninni, Björg Erlingsdóttir, sem hjólaði á 60:07,25 mín. Svipmynd úr hjólreiðakeppninni. Fjórir hjólreiðakappar fylgjast að og hafa gætur hver með öðrum. uúhbi. Ámi Svbtnc.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.