Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 23

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 23 w Sagt eftir leikinn Eigum góða möguleika nú „ÉG ER mjöjí ánægður með þennan leik, þetta verður alltaf betra og betra hjá okkur eftir þvi sem leikjunum fjölgar og nú höfum við lagt ÍBK í bikarnum og Breiðablik og Viking i deild- inni,“ sagði Marteinn Geirsson fyrirliði Fram. _Ég tel okkur þvi eiga nokkuð góða möguleika á sigri i deildinni þó það sé alltaf erfitt að berjast á tvennum vig- stöðvum i einu, þó við Framarar séum raunar vanir þvi. Við eigum leik við Þór á Akureyri á mið- vikudaginn og förum síðan i æfingabúðir til undirbúnings fyrir lokaátökin. Þetta er allt að smella saman hjá okkur eftir dapra byrjun og nú höfum við unnið 5 leiki i röð, svo við erum greinilega á réttri leið,“ sagði Marteinn. Verðum áfram efstir _ÉG HELD að mestu mistökin i þessum leik hafi verið þau að ég tók ákvörðun um að spila hann. Ég taldi mig orðinn nægiiega góðan af meiðslunum, en svo var ekki og þau háðu mér i útspörk- um og úthlaupum i háu boltana. Annars er þetta enginn heims- endir þó við töpum leik, við erum enn efstir og verðum það áfram,“ sagði Diðrik ólafsson, markvörð- ur og fyrirliði Vikings. „Borðleggjandi víti“ - sagði Sævar dómari _Þetta var okkar besti leikur i sumar,“ sagði Árni Njálsson þjálfari Þórs. Það var góður baráttuandi i liðinu og strákarn- ir léku vel saman. Við munum selja okkur dýrt í næstu leikjum okkar. Annað dugar ekki ef við ætlum okkar að halda sæti okkar í 1. deild. Botnbaráttan verður hörð. Nú það hefur ekki gengið of vel að skora i sumar og þetta er fyrsti leikur okkar i deildinni þar sem við skorum meira en eitt mark. Vonandi verður áframhald á þvi. Eftir leikinn sagði Sævar dóm- ari er hann var inntur eftir vítaspyrnudómnum. Þetta voru borðleggjandi vítaspyrnur. í fyrra skiptið var sparkað aftan í hæla Sigurjóns og hann felldur. Og Guðjón var nú hreinlega lagður á sniðglímu. Það var ekki hægt að dæma neitt annað en víti, í báðum tilfellum. - Þr. v# Ungur og bráðefnilegur knattspyrnumaður í Fram, Viðar Þorkelsson (nr. 8) stekkur hátt upp og skallar boltann. Viðar átti stórleik gegn Viking og skoraði tvö glæsileg mörk. Ljó.sm. Guðjón. Fram sigraói Víking í bezta leik sumarsins Héraösmót USAH Birna og Kristinn urðu stigahæst FRAM sigraði Víking með 3 mörkum gegn 1 í opnum og skemmtilegum leik á Laugardalsvellinum síðastliðið sunnudagskvöld eftir að hafa verið yfir í leikhléi, 2:0. Fram lék að þessu sinni sinn bezta leik í sumar og hefur nú unnið 5 leiki í röð og með þessum sigri aukast möguleikar liðsins á íslandsmeistaratitlinum verulega. Víkingar voru á hinn bóginn venju fremur daufir og skáru upp eftir því, en hafa þó enn 2 stiga forskot í 1. deildinni. Héraðsmót USAH i frjálsum iþróttum var haldið á Skaga- strönd um síðustu helgi (18.—19. júlí). Keppendur voru um 60 frá 4 ungmennafélögum. Veður var sæmilegt fyrri dag keppninnar svo og framan af þeim seinni en kólnaði þá snögglega með norð- anátt og þoku. Hlaupa- og stökk- brautir voru nokkuð lausar og kom það heldur niður á árangri keppenda. Urslit urðu þau að UMF Fram, Skagaströnd sigraði með nokkrum yfirburðum og hlaut alls 263,5 stig, UMF Hvöt, Blönduósi var í öðru sæti með 14814 stig. Stigahæstu einstaklingar urðu Birna Guðmundsdóttir, Hvöt, og Kristinn Guðmundsson, Fram. Besta afrek karla vann Helgi Þór Helgason, Geislum, er hann kast- aði kringlu 50,81 m sem jafnframt er nýtt héraðsmet. Besta afrek kvenna unnu Guðrún Berndsen, Fram, og Þórhalla Guðbjartsdótt- ir, Hvöt, er þær stuttu 1,40 m í hástökki. Verðlaun gáfu Kaupfélag Hún- vetninga, Búnaðarbankinn Blönduósi og Sparisjóðurinn Skagaströnd. Mótstóri var Guðmundur H. Sigurðsson varaformaður USAH. Þess má til gamans geta, að í liði Fram vour 6 systkini og eru þau á aldrinum 10—26 ára. Þau hlutu alls 120 stig í keppninni og má mikið vera ef þetta er er ekki fágætt. 100 m sek. 1. Berglind Stefánsdóttir, Fram 13,8 2. Birna Gudmundsdóttir, Hvöt 13,9 3. -4. Birna Sveinsdóttir, Fram 14,3 Ingibjörg örlygsdóttir, Hvöt 14,3 200 m 1. Birna Sveinsdóttir, Fram 29,6 2. Birna Guðmundsdóttir, Hvöt 29,7 3. Soffía Gkuömundadóttir, Fram 31,1 400m 1. Birna Sveiiwdóttir, Fram 67,5 2. Birna GuÖmundNdóttir, Hvöt 67,6 3. Ingibjörg örlygHdóttir, Hvöt 68,9 800 m min. 1. Birna Sveinadóttir, Fram 2.50,7 2. Birna Guðmundadóttir, Hvöt 2.59,2 3. Soffía Guömundsdóttir, Fram 2.59,7 4x100 m Hek. 1. Sveit Fram 57,9 2. Sveit Hvatar 59,5 Langstökk m Birna Guömundsdóttir, Hvöt 4,23 2. GuÖrún Berndsen, Fram 4,17 3. Þórhalla GuÖbjartsdóttir, Hvöt 4,05 Ilántökk 1. Guörún Berndsen, Fram 1,40 2. Þórhalla GuÖbjartsdóttir, Hvöt 1,40 3. Birna Guðmundsdóttir, Hvöt 1,30 Kúluvarp 1. Kolbrún Viggósdóttir, Fram 9,60 héraösmet 2. Sigríöur Gestsdóttir, Fram 9,20 3. Kolbrún Hauksdóttir, Hvöt 8,56 Kringlukant 1. Sigríöur Gestsdóttir, Fram 27,51 2. Kolbrún Hauksdóttir, Hvöt 25,86 3. Guðbjörg Gylfadóttir, Fram 23,36 Spjótkant 1. Þórunn Ragnarsdóttir, Hvöt 28,62 2. GuÖbjörg Gylfadóttir, Fram 26,57 3. Soffía Guömundsdóttir, Fram 18,68 100 m Hek. 1. Hjörtur Guömundsson, Fram 12,0 2. Lárus Æ. Guömundsson, Fram 12,2 3. Kristinn GuÖmundsson, Fram 12,4 200 m 1. Kristinn GuÖmundsson, Fram 25,2 2. Hjörtur Guömundsson, Fram 25,4 3. Lárus Æ. Guömundsson, Fram 25,6 400 m 1. Kristinn GuÖmundsson, Fram 57,1 2. Hjörtur Guðmundsson, Fram 57,3 3. Þorsteinn Sigurðsson, Hvöt 57,7 1500 m min. 1. Sigurður Guömundsson, Fram 4.54,1 2. Guðmundur Sveinsson, Hvöt 5.02,9 3. Kristinn Guðmundson, Fram 5.09,4 300 m 1. Siguröur GuÖmundsson, Fram, 10.28,3 2. Kristinn GuÖmundsson, Fram 10.31,2 3. Guðmundur Sveinsson, Hvöt 10.32,2 4x100 m Hek. 1. Sveit Hvatar 51,5 2. Sveit Fram 51,6 l^angntökk m 1. Karl Lúövíksson, Geislar 5,52 2. Lárus Æ. Guömundsson, Fram 5,46 3. Kristinn GuÖmundson, Fram 5,44 Þrintökk 1. Karl Lúðvíksson, Geislar 11,65 2. Hjörtur GuÖmundsson, Fram 11,46 3. Kristinn Guömundsson, Fram 11,14 Hántökk 1. Karl Lúövíksson, Geislar 1,65 2. Stefán ólafsson, UMFB 1,65 3. Guðmundur Sveinsson, Hvöt 1,65 Stangarstökk 1. Karl Lúövíksson, Geislar 3,10 2. Lárus Æ. GuÖmundsson, Fram 3,00 3. Jón Arason, Hvöt 2,50 Kúluvarp 1. Helgi Þór Helgason, Geislar 14,78 2. Þorleifur Arason, Hvöt 11,20 3. Guðgeir Gunnarsson, Hvöt 10,90 Kringlukant 1. Helgi Þór Helgason, Geislar 50,81 héraösmet 2. Þorleifur Arason, Hvöt 33,91 3. Helgi Björnsson, Fram 33,43 Spjótkant 1. Snorri Jóelsson, Geislar 54,50 2. Haraldur Árnason, Fram 48,82 3. Guðgeir Gunnarsson, Hvöt 47,82 Leikurinn fór fremur rólega af stað og var þá nokkurt jafnræði með liðunum fyrsta stundarfjórð- unginn án þess að þeim tækist að skapa sér veruleg marktækifæri. En á 14. mínútu leiksins skoraði Viðar Þorkelsson fallegt mark, fékk knöttinn óvaldaður í víta- teignum eftir að Diðrik hafði misst hann frá sér er hann hugðist komast inn í fyrirgjöf. Viðar lagði knöttinn fyrir sig og sendi hnit- miðað skot efst í markvinkilinn yfir 2 Víkinga, sem stóðu á marklínunni. Við þetta efldust Framarar verulega og léku mjög fallega knattspyrnu og réðu lögum og lofum á vellinum. Á 25. mínútu nær Halldór Arason knettinum á miðjum vallarhelmingi Víkinga eftir að Diðrik hafði misheppnast að kasta honum frá marki. Hall- dór lék á mikilli ferð að marki Víkings án þess að varnarmenn liðsins kæmu vörnum við og á vítateigslínunni skaut hann þrumuskoti efst upp í markhornið án þess að Diðrik ætti möguleika á að verja. Þremur mínútum síðar sleppti góður dómari leiksins að því er virtist augljósri vítaspyrnu á Víkinga er þeir felldu Guðmund Steinsson innan vítateigs. Næsta færi var svo Víkinga, er Lárus komst einn inn fyrir vörn Fram- ara eftir laglega sendingu frá Heimi, en hann skaut beint í fangið á Guðmundi markverði Fram. Á 35. mínútu galopnaðist Víkingsvörnin og Pétur Ormslev varð skyndilega frír í vítateignum, en Diðrik bjargaði vel með út- hlaupi. Á 43. mínútu fengu Vík- ingar aukaspyrnu rétt utan víta- teigshorns Framara, Heimir sendi knöttinn til Helga Helgsonar, sem lyfti honum yfir varnarmenn Fram og í átt að markinu, en Guðmundi tókst að slá knöttinn í horn. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins komst Guðmundur Steinsson einn inn fyrir vörn Víkinga eftir laglega sendingu frá Ágústi Haukssyni, en Diðrik bjargaði vel með úthlaupi. Fram- arar mættu ákveðnir til leiks eftir leikhléið og á 49. mínútu varði Diðrik glæsilega fallegan skalla frá Halldóri eftir aukaspyrnu Trausta. En aðeins 3 mínútum síðar tókst Héimi að minnka muninn fyrir Víking er hann fékk knöttinn frír í vítateig Framara eftir aukaspyrnu og sendi hann með þrumuskoti í netið út við stöng. En Framarar voru ekkert á því að gefa sig og 4 mínútum síðar skoruðu þeir enn. Viðar Þorkels- son skallaði knöttinn þá glæsilega efst í markhornið eftir auka- spyrnu Péturs Ormslev. 1 mínútu síðar komst Guðmundur Steinsson inn fyrir Víkingsvörnina eftir fallegan samleik Framara, en skaut rétt framhjá úr þröngu færi. Á 64. mínútu sendi Halldór knött- inn til Guðmundar Steinssonar eftir að hfa náð honum af varnar- mönnum Víkings. Guðmundur var í ágætu færi við vítateigslínuna, en skot hans var misheppnað og Diðrik varði auðveldlega. Á 69. mínútu kom löng sending inn á vallarhelming Fram, Heimir elti, en áður en hann náði knettinum kom Guðmundur markvörður út á Lárus Guðmundsson lék mjög vel og gerði mikinn usla i vörn Fram. Hér er hann í baráttu við hinn leikreynda kappa Gunnar Guðmundsson. Víkingur - Fram laO völlinn og bægði hættunni frá. A 71. mínútu komst Lárus einn inn fyrir Framvörnina en skot hans fór yfir markið. Á 79. mínútu sendi Hafþór knöttinn þvert fyrir mark Víkings, Halldór skallaði knöttinn beint fyrir fæturna á Guðmundi Steinssyni, en hann skaut yfir. Mínútu síðar átti Aðalsteinn lúmskt skot að Fram- markinu utan af kanti, en rétt yfir og 2 mínútum síðar komst Lárus enn einn inn fyrir vörn Fram en Guðmundur kom vel út á móti honum og varði skot hans vel. Lárus var enn á ferðinni aðeins 3 mínútum síðar er hann komst inn fyrir vörn Fram, lék á Guðmund markvörð og upp að endalínunni og sendi knöttinn fyrir markið, en þar var enginn Víkingur nálægur, svo Framarar náðu að bægja hættunni frá. Enn fékk Lárus þokkalegt færi á 86. mínútu en skot hans frá vítateig var mis- heppnað og olli Guðmundi engum vandræðum. Er 3 mínútur voru til leiksloka varði Diðrik svo vel gott skot Péturs Ormslev eftir laglegan samleik. Þetta var fjörugur og vel leikinn leikur einkum af hálfu Fram, en Víkingar áttu einnig sín færi og hefðu bæði liðin nýtt færi sín betur hefði leikurinn allt eins getað endað með Framsigri 7 mörk gegn 4. Allir leikmenn Fram áttu góðan dag, en mest bar á þeim Marteini, Guðmundi markverði, Halldóri og Viðari. Víkingsliðið var óvenju dauft að þessu sinni og voru það helzt Lárus og Heimir, sem reyndu eitthvað að berjast. Diðrik varði oft vel og átti þokkalegan leik, þó ef til vill megi rekja tvö markanna til mistaka hans. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild Víkingur 1 Fram 3. Mörk Fram: Viðar Þorkelsson á 14. og 56. mínútu og Halldór Arason á 25. mínútu. Áminningar: Marteinn Geirsson Fram og Jóhann Þorvarðarson Víkingi fengu gula spjaldið. Dómari: Róbert Jonsson. Áhorfendur: 2.057. — HG I Knatlspyrna ]

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.