Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 26

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 Gróska í blakinu Að loknu starfsári hjá blakmönnum BLAK ER ÖRT vaxandi iþróttagrein hér á landi. Þetta kom fram á ársþingi Blaksambands Islands (BLÍ), sem haldið var að loknu vetrarstarfi blakmanna nú í júnimánuði. 108 fulltrúar frá 22 iþrótta- og ungmennasamböndum áttu rétt til setu á þinginu. Á síðustu 10 árum hefur blakiðkendum fjölgað um 2000, og það ánægjulegasta við þróunina er. aAáhugi barna og ágætu íþrótt. * í ársskýrslu stjórnar BLÍ er margt fróðlegt að finna um blak- starfið. Hér skulum við líta á eitt stærsta starfssviðið, en það eru Islandsmótin. Það var árið 1978, að íslandsmót í yngri aldursflokk- um voru fyrst háð hér á landi, og nú árið 1981 fór keppni fram í öllum yngri flokkum karla og kvenna að undanskildum þeim yngstu, þ.e. 5. fl. karla og kvenna. Þetta er hröð og góð uppbygging sem lofar góðu um framtíðina. Eftirfarandi töflur eiga að sýna hverjir eru lengst komnir í blaki á íslandi. Tafla I sýnir, að Keykjavik hefur afgerandi frumkvæði í meistaraflokkum en ekki í yngri flokkum. Undanfarin ár hafa góð- ir blakmenn víða að af landinu leitað til Reykjavíkur, en þjálfun þeirra yngri hefur að mestu leyti farið fram utan Reykjavíkur. Reykjavíkurfélögin Þróttur og Víkingur hafa nú bjargað orðstír Reykjavíkur hvað varðar þjálfun yngri flokka eins og tafla I sýnir. Tafla II sýnir, að fyrir utan SV-horn landsins er blak mjög rótgróin íþrótt á NA-horni lands- ins. Það er athyglisvert, að Kópa- vogur er í 1. sæti, á undan Reykjavík! Siglfirðingar eru engir nýliðar í biaki, en vonandi verða þeir meira með á komandi árum, sérstaklega í yngri flokkum. glinga er að vakna fyrir þessari Vestmannaeyjar voru aftur á móti fyrst með í fyrra. Þar er gróskumikið unglingastarf, svo að óhætt er að reikna með þeim í framtíðinni. Suðurland er ekki með lið í verðlaunasæti í ár, en eitt aðalvígi blakíþróttarinnar hér á landi er að Laugarvatni eins og blakfólki er í fersku minni; UMFL varð íslandsmeistari í meistarafl. karla 1979 og 1980. Fyrir u.þ.b. 5 árum voru skóla- félögin ÍS og ÍMA í fararbroddi. Tafla III sýnir, að hér á landi hefur blakíþróttin náð að þróast frá því að vera einungis skóla- íþrótt tl þess að vera einnig virk íþróttagrein innan almennra íþróttafélaga. Nú eru þau íþrótta- félög í fararbroddi sem hafa náð að byggja upp starfsemi í yngri flokkum. Framtíð blakíþróttar- innar hér á landi er borgið, ef blakdeildir íþróttafélaganna vítt og breitt um landið ná að eflast. Á nýloknu ársþingi BLÍ var unglingastarfið mikið á dagskrá og komu upp háværar raddir um, að hyggilegt væri að leggja aðal- áherslu á uppbyggingarstarfið heima fyrir næstu árin og láta samskipti við útlönd bíða betri tíma. Reikningar Blaksambands Islands sýna það ljóslega, að það fjármagn, sem sambandið fær til ráðstöfunar, fer allt til landsliðs- starfseminnar. Þetta er engin ný bóla, og er Blaksambandið á sama báti og flest önnur sérsambönd ÍSÍ hvað þetta varðar. Tafla I Úrslit íslandsmóta 1981 CIJI.L SILFUR BRONZ . ÖldunKaíl. karla HK, Kópavogi Óóinn, Akureyri Skautafél. Akureyrar ÖldunKafl. kvenna Eik. Akureyri Víkinttur Rvik Súlur. Sitfluí. Muistarafl. ka„ 1. deiid Þróttur Rvik IS. Rvík Víkintfur. Rvík Mristarafl. ka„ 2. deild UMSE. Eyjafirði ÍBV. Vestm.eyj. ÍMA. Akureyri Mristarafl. kv. Vlkinxur. Rvík ÍS. Rvik Þróttur. Rvik 2. tl. ka. Þróttur. Rvík ÍMA. Akureyri IIK. Kópavojfi 2. II. kv. UBK. Kópavogi IIK. KópavoKÍ Víkintfur. Rvík 3. fl. ka. VnlsunKur. Ilúsavik Vlkinttur. Rvík Þróttur. Rvlk 3. II. kv. VoIsunKur. Ilusavík IIK. KopavoRÍ Þróttur. Rvik 1. fl. ka. IIK. Kúpavogi Þróttur. Rvík Vikinttur. Rvik 1. II. kv. IIK. Kópavoffi ÍK. Kopavojfi Tafla II 1. Kúpavojcur Dreifing verðlauna i íslandsmótum í biaki 1981 á sveitarfélög: GULL SILFUR I 3 BRONZ 1 2. Reykjavik 3 5 6 3. Akureyri ok Eyjafj. 2 2 2 , 1. Ilúsavík 2 0 0 5. Vestmannaeyjar fl 1 0 6. Sijflufjoróur 0 0 1 Tafla III Dreifing verðlauna í íslandsmótum í blaki 1981 á íþróttafélög: GULL SILFUR IIK. KópavoKÍ 3 2 BRONZ 1 2. Þróttur. Rvík 2 1 4 3. Volsunjfur. Ilúsavík 2 0 0 |. Vikimtur. Rvik 1 2 2 5.-7. UMSE. Eyjafirði 1 0 0 5.-7. Eik. Akureyri 1 0 0 5.-7. UBK. Kópavojfi I 0 0 8. ls. Rvík 0 2 0 9. IM A. Akureyri 0 1 1 10.-12. ÍBV. Vestmannaeyj. 0 1 0 10.-12. Öóinn. Akureyri 0 1 0 10.-12. ÍK. Kopavojfi 0 1 0 13.-11. Skautafélajf Akureyrar 0 0 1 13.-11 Súlur. Sijflufirói 0 0 1 íslandsmeistarar Þróttar i blaki taka þátt i Evrópukeppni i haust. íslandsmeistarar HK i 4. flokki karia 1981. Fremri röð (talið frá vinstri): Birgir Páll Hjartarson, Guðmundur Erlendsson, Magnús Bollason, Agnar Bragi Brynjólfsson, Ólafur Sigurðsson og Gunnar Guðmundsson. Aftari röð: Haukur Antonsson, Halldór A. Þorvalds- son, Snorri P. Einarsson, Einar Þór Ásgeirsson og Ævar ísberg. Á myndina vantar: Geir Borg Kjartansson, Eyþór Guðjónsson, Gunnar Einarsson, Ingva óttarsson, Þóri Jónsson og Hilmar Þór. íslandsmeistarar HK í 4. flokki kvenna 1981. Fremri röð (talið frá vinstri): Helga A. Jónsdóttir, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Auður Stefánsdóttir, Berglind Harðardóttir, Ánna Sólveig Ingvadóttir, Guðlaug Hrafnsdóttir og Þórdis Ingadóttir. Aftari röð: Jónína Kristjánsdóttir, Jónfna Erlendsdóttir, Ragnheiður Gisladóttir, Hólm- fríður Ólafsdóttir, Marta Hrafnsdóttir og Linda Lea Bogadóttir. íslandsmeistarar HK i öldungaflokki karla 1981. Fremri röð (talið frá vinstri): Albert II.N. Valdimarsson, Sigurður Steingrímsson, Július Arnarson og Páll Ólafsson. Aftari röð: Sigvaldi H. Pétursson, Skjöldur Vatnar Björnsson, Anton Bjarnason, Tómas Tómasson og Egill Thorarensen. Fylkismenn höfðu yfirburði Fylkír - A A Skallagr. £m~~\3 Reykjavikurmeistararnir úr Fylki sýndu meistaratakta i Borgarnesi um helgina þegar þeir unnu lið heimamanna með tveimur mörkum gegn engu i íslandsmóti 2. deildar. Fylkis- menn höfðu yfirburði i leiknum og sigur þeirra hefði allt eins getað orðið helmingi stærri. Leikurinn fór fram í leiðinda veðri, vindstrekkingi með skúrum. Fylkismenn skoruðu eitt mark í hvorum hálfleik. Fyrra markið skoruðu þeir um miðjan fyrri hálfleik, þá sneiddi einn leik- manna Fylkis knöttinn laglega í netið eftir aukaspyrnu. Annars var jafnræði með liðunum fram eftir fyrri hálfleik, en í þeim seinni tók Árbæjarliðið öll völd í sínar hendur, jafnframt því sem heimamenn gáfu eftir. Fylkismenn höfðu öll völd og sköpuðu sér nokkur mjög góð markfæri en tókst ekki að nýta nema eitt þeirra. Júlíus í markinu hjá heimamönnum hélt þeim á floti með snilldarmarkvörslu, en í upphlaupi um miðjan hálfleikinn tókst Fylkismönnum loks að koma knettinum framhjá honum. Fylkismenn unnu þennan leik verðskuldað og sigur þeirra gat verið mun stærri. Kræktu þeir sér nú í mikilvæg stig sem lyfti þeim úr mestu fallhættunni í bili a.m.k. Eftir á botni deildarinnar sitja 4 lið í hnapp, með sex og sjö stig hvert, Haukar, Þróttur N, Selfoss og Skallagrímur. Hjá Skallagrími voru það fastir liðir eins og venjulega. Vörnin nokkuð traust, nema hvað miðjan gaf sig illilega á köflum nú, og svo var engin árangur af sóknarað- gerðum frekar en svo oft áður. Þetta er fimmti núllleikurinn af síðustu sex leikjum hjá Borgar- nesliðinu. HBj. Jafnt á Selfossi SELFOSS og Völsungur skildu jöfn i leik sínum i 2. deild um helgina. Það var Olgeir Sigurðs- son sem náði forystu fyrir Völs- ung, en Þórarinn Ingólfsson jafn- aði metin úr vitaspyrnu. Heimi Bergssyni var brugðið illa inni i vitateig. Völsungur var mun betra liðið i leiknum en tókst ekki að knýja fram sigur. Þróttur N. sigraði Reyni ÞRÓTTUR Neskaupstað lagði lið Reynis frá Sandgerði að velli um helgina á Neskaupstað. Heima- menn sigruðu, 2—0, i leiknum. Óskar Páll Freysteinsson skoraði fyrra markið strax i upphafi leiksins. En siðara markið kom á 55. minútu. Það mark skoraði Eggert Brekkan. Mikil barátta er nú bæði á botni og toppi 2. deildar og hvert stig mjög dýr- mætt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.