Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 36

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 + Sonur okkar, bróöir og ástvinur, INGVAR HAUKUR SIGURÐSSON, Túngötu 37, lést þann 25 júlí. Siguróur Haukur Eiríkason, Auóur Ingvarsdóttir, Rannveig Sandra Siguróardóttir, Hulda Björg Stefánsdóttir. + Konan mín og móðir, CAMILLA BJÖRNSDÓTTIR, lézt í Borgarspítalanum sunnudaginn 26. þ.m. Axel Ólafsson, Ragnar Axelsson. + Bróöir okkar, EINAR BRYNJÓLFSSON, bifreióastjóri, lést föstudaginn 24. júlí aö Elliheimilnu Grund. Hanna Brynjólfsdóttir, Elín Bryjólfsdóttir, Bragi Brynjólfsson. + Maöurinn minn, SIGVALDI JÓNSSON, Sogavegi 102, Rvk. andaöist í Landspítalanum 25. júlí. Ragnhildur Dagbjartsdóttir. + Maöurinn mlnn og faöir, HELGI MARÍS SIGUROSSON, Stigahlíó 34, lést í Borgarspítalanum 26. þ.m. Sigþrúóur Guóbjartsdóttir, Þóróur Helgason. + Konan mín, JUDY GUÐJOHNSEN, lést 21. júlí sl. Ásgeir Guójohnsen, Sebastopol, Kaliforníu. + Útför bróöur míns JÓNS ST. JÓNSSONAR, Selvogsgötu 4, Hafnarfiröi, fer fram frá Hafnarfjaröarkirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 3. Fyrir hönd systkina minna, Ingólfur B. Jónsson. + Eiginkona mín og móöir okkar, RANNVEIG KARLSDÓTTIR, Engjaseli 13, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 29. júlí kl. 13.30. Eyjólfur Brynjólfsson og börn. + Eiginmaður minn, faöir okkar, sonur og bróðlr, INGVAR M. ÞORGEIRSSON, lést í Gautaborg þ. 9. júní. Jarðarförin hefur fariö fram. Ramona, Pia, Pater, Kriatín Jóhannadóttir, Hnóargaröi 38 og aystkini hina látna. Eiríka Guðmunds- dóttir - Minning Fa-dd 5. janúar 1909. Dáin 21. júli 1981. Þegar vegamóðar kempur hníga til foldar, vakna gjarnan blendnar tilfinningar með ástvinum. Saman við hryggð og eftirsjá blandast þakklæti fyrir líkn dauðans eftir andstreymi og þjáningar. Ætt- ingjar og vinir Eiríku Guðmunds- dóttur eru þakklátir fyrir, að henni varð að síðustu ósk sinni, en hún var sú að fá að deyja með reisn áður en sjúkdómum tókst að lama andlegt þrek hennar. í minn- ingum okkar verður hún því ávallt styrk og stælt — eigin herra og húsbóndi, sem engum tókst að knýja til undanláts nema kallinu, sem við hljótum öll að svara. En eftirsjáin mun lengi búa með okkur. Eiríka eða Eia frænka, eins og hún var oftast kölluð hér á bæ, var gerð úr svo mörgum ólíkum þáttum, að persónuleiki hennar var óvenju sterkur og eftirminn- anlegur. Hún var í senn mikilúð- leg og mild, róttæk og íhaldsöm, hvatvís og sáttfús. Hún var dæmi- gerður fulltrúi hins íslenzka aðals, öguð af striti æskuáranna og sómdi sér hvarvetna með höfð- ingjum. Eiríka var fædd að Merkinesi í Höfnum 5. janúar 1909, dóttir hjónanna Þórunnar Kristjáns- dóttur og Guðmundar Eiríksson- ar. Kornung fluttist hún með foreldrum sínum til Norðfjarðar, þar sem faðir hennar stundaði útgerð um skeið. Síðan fluttist fjölskyldan til Hafnarfjarðar og þar bjó Eiríka nánast óslitið til dauðadags. Hún var næstelzt af 14 systkinum og hafði vart slitið barnsskónum, þegar hún þurfti að ieggja heimilinu lið við tekjuöflun eins og önnur systkini hennar. Faðirinn var heilsutæpur og því oft þröngt í búi, en það segja þeir sem til þekktu, að heimili þeirra Guðmundar og Þórunnar hafi verið unaðsreitur, þar sem glað- værð, hlýja og höfðingslund hafi mótað öll mannleg samskipti. Að ógleymdri tónlistinni. öll var fjöl- skyldan afar söngvin og hvert tækifæri notað til að syngja marg- raddað við munnhörpuleik bróður- ins Guðna. Og systurnar æfðu sig í danskúnstinni á þröngu stofu- gólfinu og trölluðu undir, því að þá voru ekki til útvarpstæki eða grammófónar. Snemma bar á því að Eiríka hefði fagra söngrödd og hún leitaði sér tilsagnar á því Faöir okkar, GÍSLI STYFF, Skálagarói 3, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mlövlkudaginn 29. júlí, kl. 15. Fyrir hönd fósturbarna og barnabarna, Þórunn Styff Gísladóttir, Óli Svan Styff. + Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afl, SVEINN KR. JÓNSSON, fyrrvarandi varkstjóri frá Flatayri, Stórholti 29, Raykjavík, er lést þriöjudaglnn 21. júlí sl. í Landspítalanum veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag 28. júlí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélögin. Þóray Guómundsdóttir, Jóna Svainsdóttir, Siguróur Jóelsson, Jón G. Svainsson, Elfnborg J. Pálmadóttir, Unnur Svainsdóttir, Guómundur R. Ingvason og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu JÓNÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á lyfjadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfiröi. Guómundur Björnsson, Kristfn Benjamínsdóttir, Hafsteinn Björnsson, Ragnheiöur Pálsdóttir og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR HÚNFJÖRD. Ásbjörg Húnfjörö, Gair Guönason, Ólöf Húnfjöró, Siguröur Óskarsson, Emilía Húnfjörö, Björn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Lokað eftir hádegi á morgun vegna útfarar Rannveigar Karlsdóttur. JÖFUR HE Nýbýlavegi 2, Kópavogi. sviði, síðar meir, hér heima og erlendis. Söng hún opinberlega, m.a. í útvarp og á skemmtunum og samkomum. Fjölskyldan var ætíð hjartans mál Eiu frænku. Sá arfur sem hún og systkini hennar hlutu frá foreldrahúsum batt þau óvenju sterkum tryggðaböndum. Faðir þeirra andaðist á miðjum aldri, og eftir það var rausnarkonan Þór- unn móðir þeirra að sjálfsögðu höfuð ættarinnar. Eftir hennar dag árið 1966 tók Eiríka sjálfkrafa við því hlutverki hennar, en þær mæðgurnar höfðu lengi átt heimili saman. Systkinabörnin litu nán- ast á Eiríku sem ömmu sína eftir lát Þórunnar og leituðu til hennar með margs konar erindi á meðan henni entist heilsa. Og þegar tók að harðna á dalnum hjá henni, endurguldu þau henni ástríkið með aðdáanlegri ræktarsemi. Ei- ríka varð því aldrei einstæðingur í lífinu, þótt hún giftist ekki og ætti ekki börn. Raunar var sagt, að hana hefði ekki skort biðlana, en enginn þeirra hefði uppfyllt þær kröfur, sem hún gerði til manns- efnis, og því get ég vel trúað. Það eru tæp 10 ár frá því að fundum okkar Eiríku bar fyrst saman. Hún var þá farin að kenna heilsubrests og hafði látið flest veraldarvafstur á hilluna. Á þess- um árum taldi ég að kvennabar- áttan væri nýhafin og því kom mér mjög á óvart að þessi smá- vaxna, glaðværa kona hafði gert flest það, sem ég hélt að konur hefðu yfirleitt aldrei gert. Hún hafði staðið við uppskipun, sungið á böllum, verið í fararbroddi í kröfugöngum, rekið veitingahús, farið til söngnáms erlendis, keypt sér hús, verið höfuð heillar ættar, tekið virkan þátt í stjórnmálabar- áttu, farið í mál við Tóbakseinka- sölu rikisins og staðið á eigin fótum fjárhagslega frá unga aldri. Samt er hún mér ekki minnsstæð- ust fyrir það sem hún gerði, heldur fyrir það sem hún var. Hún veitti mér ótal gleðistundir á frumbýlingsárum mínum í Hafn- arfirði og margháttaða aðstoð. Fram til hinztu stundar gat ég sótt til hennar geðbót og styrk og börnunum okkar Björns var hún sem bezta amma. Það var furðuleg tilviljun að litla stúlkan, sem hún bauð fyrst manna velkomna af fæðingadeildinni og fylgdist með daglega fyrstu árin, skyldi verða til þess að styðja hana út af heimili sínu i síðasta sinn. Síðustu árin bjuggu þær saman Eiríka og Kristín systir hennar, og þriðja systirin, Jóhanna, bjó á næstu hæð. Alltaf var jafn- skemmtilegt að hitta þær systur, hvort sem maður sótti þær heim eða fann á förnum vegi, glæsilegar og skartbúnar eins og dætrum hins íslenzka aðals ber að vera. Þá var venjulega brugðið á glens, því að systkinunum hafði öllum hlotn- ast frábær kímnigáfa í vöggugjöf. Og þó að Eiríka væri ögn stórlynd á stundum, var hún blessunarlega laus við allan hátíðleika og gat gcrt miskunnarlaust grín að sjálfri sér. Dillandi hláturinn mun okkur seint úr minni líða. Og nú þegar hún er öll þökkum við henni samfylgdina af heilum hug og biðjum guð að blessa systkinin, systkinabörnin og alla hina, sem hún umvafði með ástúð og hlýju. Guðrún Egilson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.