Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 37

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 37 Kveðjuorð: Hafliði Guðmunds- son frá Siglufirði Fæddur 14. febrúar 1921. Dáinn 16. maí 1981. Aldrei er góðs manns of oft getið. Þann 16. mai síðastliðinn hringdi Þuríður Helgadóttir systir mín frá Akureyri og tilkynnti mér að elskulegur eiginmaður hennar Hafliði, hefði látist í flugvél á suðurleið til lækninga. Voru þessi tíðindi mikið áfall, því enda þótt Hafliði hefði átt við heilsuleysi að stríða undanfarin ár stóðu vonir til þess bjartara fram- undan. Hann hafði nýlokið löngu og gifturíku æfistarfi sem sérstak- lega mikilhæfur kennari við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar um 30 ára skeið, elskaður og virtur af sínum mörgu nemendum og sam- kennurum. Enda kom það fram við kveðjuathöfnina frá Siglu- fjarðarkirkju, þar sem nemendur allir nærstaddir ásamt ótal öðrum stóðu heiðursvörð við hinstu kveðju þar. En Hafliði var jarð- settur frá Fossvogskapeliu hér í Reykjavík 21. maí sl. Var þar einnig mjög fjölmennt og sr. Emil Björnsson mágur hans flutti sér- staklega fallega æfiminningu hans. Þura og Hafliði höfðu svona orðað það, að þau myndu e.t.v. breyta til og flytja hingað suður með haustinu. En eins og svo oft vill verða ráðum við ekki alltaf því sem við stefnum að. Milli okkar fjölskyldna voru ákaflega sterk ættar og vináttu- bönd. Ég beið í 10 löng ár eftir litlu systur og mikil var gieðin þegar ég hélt á henni í fyrsta sinn og mér fannst ég eiga hana ein. Við erum báðar fæddar á Lauga- bóli í Ögursveit, dætur Helga Jónssonar frá Snæfjöllum og Dag- bjartar Kolbeinsdóttur frá ögri, fósturdóttur Þuríðar í ögri, og þaðan er nafn systur minnar komið. Þura var oft hjá okkur Samúel manni mínum á ísafirði. En ungar að árum fóru þær, hún og Anna systir Samúels, til síldar- bæjarins Siglufjarðar og þar sett- ust þær báðar að. Hafliði og Þura hittust þar fljótlega og tókust með þeim sterkar ástir. Eftir 3ja ára trúlofun gengu þau í farsælt hjónaband 22. sept. 1943 og þær ljúfu minningar ásamt hand- leiðslu guðs umvefja Þuru nú á þessum erfiðu tímamótum. Hafliði Guðmundsson gleymist engum, sem honum hefur kynnst. Hann var glæsimenni í sjón og raun. Svo listrænn og fjölhæfur var hann að ekki er hægt að lýsa því nógu rétt né vel. Hann var bæði laga- og ljóðasmiður, ákaflega vel hag- mæltur, enda ekki langt að sækja þar sem Páll Árdal skáld og kennari var móðurafi hans. Haf- liði söng með karlakór Siglufjarð- ar. Hann hafði yndislega söngrödd og spilaði svo vel á gítar og söng með að unun var á að hlýða. Dýravinur var hann svo mikill, að ég hef ekki kynnst öðrum eins, og sýnir það hans eðlislægu umhyggu fyrir því sem svo margir láta sig litlu skipta. Við vorum oft gestir á víxl á heimilum okkar. Éinnig ferðuð- umst við saman og voru það ógleymanlegar yndisstundir, hvort sem við vorum í veiðikofa í Langadal við ísafjarðardjúp eða á heiðum uppi og akandi norður Strandir og önnur annes. Mig langar að láta fylgja eina af fallegu vísunum frá Hafliða, sem hann skrifaði í gestabók okkar Samúels 30.7.’65. Ljómadi nóI í SÍKlufirÖi sunnanblærinn lék i högum. Vissum bæöi aÖ ekkert yröi unaösleKra á næstu döjcum. En fullyröinK«r okkar flestra eru stundum litilsviröi. bað fundum bæöi best hér vestra i birkihliö viö ly^na firöi. Þótt landið hér sé flestu fe^ra ok firri okkur ys ok þvarKÍ. l>að verður aldrei yndisleKra en aftanstundin heima á Bjari^ (H.G.) Hafliði teiknaði og málaði mjög failega. Ég held að við ættingjar og vinir Þuru og hans geymum öll vináttu hans í ljóðum og litum ásamt öllu ljúfu minningunum um samverustundir okkar. Þegar við Samúel fórum okkar fyrstu ferð til Siglufjarðar voru Þura og Hafliði á heimili Theodóru Páls- dóttur Árdal móður hans, og er hún okkur ógleymanlegur pers- ónuleiki, svo elskuleg, hjartahlý og gestrisin, hafsjór af fróðleik, söngelsk og kunni kynstrin öll utan að. Húsið dunaði af söng og gleði. Já, þá var nú líf og fjör á Siglufirði og fólkið var svo gott, allt eins og góðir vinir okkar. Því miður var Guðmundur Haf- liðason, faðir Hafliða, þá dáinn langt um aldur fram, svo við Samúel kynntumst honum aldrei. En allir, sem hafa á hann minnst, ljúka upp einum munni um að hann hafi verið glæsimenni, ljúf- menni, söngelskur og svo hjálp- samur og góður öllum, ekki síst þeim er minnst höfðu. Þau hjónin, Guðmundur og Theodóra, og þeirra glæsilegi barnahópur settu mikinn svip á- Siglufjörð. Hafliði varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Síð- an hóf hann nám í lyfjafræði við Háskóla íslands. Svo lá leiðin til Svíþjóðar, en vegna óviðráðan- legra aðstæðna hætti hann námi þar og kom heim til íslands aftur 1945. Þura dvaldi þá hjá okkur á Bjargi og þar fæddist einkasonur- inn, Guðmundur Hafliðason, og kom pabbi hans mátulega til að gleðjast með okkur. Við hjónin höfðum eignast yngstu dóttur okkar aðeins mánuði fyrr, svo það var regluleg hátíð á Bjargi. Guðmundur hefur reynst for- eldrum sínum góður sonur frá fyrstu tíð, og hefur hann erft mannkosti foreldra sinna í ríkum mæli. Hann er starfandi tann- læknir hér í borg, kvæntur Auði Ingvadóttur sellóleikara. Hafliði hélt svo til Siglufjarðar og tók fljótlega til við kennslu. Strax og heilsan leyfði fór Þura með litla soninn til eiginmannsins á Siglufirði og þar áttu þau fallegt heimili til síðustu stundar samlífs þeirra. Hér verður staðar numið þó að margt mætti fleira segja. Ég bið algóðan guð, sem öllu ræður, að helga og blessa minningu þessa mæta manns og veita eftirlifandi eiginkonu, syni, tengdadóttur og öðrum nákomnum styrk í þeirra miklu sorg. wAldrei er svo bjart yfir öölinKsmanni aö ekki kcíí syrt eins svipleKa ok nú. En aldrei er svo svart yfir sorKarranni aö eÍKÍ Keti birt fyrir eilífa trú.“ (Matth. Jochumss.) Kagnhildur Helgadóttir, Keilufelli 26, Reykjavik. Litur er ekki lengur lúxus Bræöraborgarstig1-Sími 20080- (Gengiöinn frá Vesturgötu) UMBOÐSMENN: Skagaradíó. Akranesi - Jón B. Hauksson, Bolungarvík Straumur h/f., Isafirði - Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Hallbjörn Björnsson, Skagaströnd - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Hilmar Jóhannesson, Ólafsfirði - K.E.A., Akureyri - K.Þ.H., Húsavík K.N.Þ. Þórshöfn - Sigurjón Arnason, Vopnafirði - Rafsjá, Neskaupstað Rafeind s/f., Egilsstöðum - Éiríkur Ólafsson, Fáskrúðsfirði Radíóþjónustan, Höfn - Hornafirði - Neisti h/f., Vestmannaeyjum Mosfell, Hellu - Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.