Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981 45 sig vel og ekki sé ég að vöruverð sé þar hærra en almennt tíðkast — en er það ekki hálf kjánalegt að þurfa að fara í annað sveitarfélag til að verzla þegar allt er fullt a búðum hér í borginni. Væri ekki rétt að gefa verzlunina frjálsa? Viðskiptavinur Mesti fyrirburi hér á landi - en hvergi á það minnst Kæri Velvakandi. Oft er hér á landi gert mikið úr því sem skeður úti í hinum stóra heimi, en of sjaldan litið nær og gáð að því sem er að gerast hér á landi. I Morgunblaðinu 8. júlí síðastliðinn var birt smá klausa með fæðingu fyrirbura í Ameríku. Þessi fyrirburi á sjálfsagt heims- metið í dag, og er það heimsmet nýslegið. Hinn 14. október kom í heiminn 753 gr. stúlkubarn á Landspítalanum hér í Reykjavík. Það hefur aldrei verið minnst á þessa stúlku í fjölmiðlum hér á landi. Hún lifir og er alveg heilbrigð. Meira en það — hún er mesti fyrirburi sem lifað hefur hér á landi. Hún kom þremur og hálfum mánuði fyrir tímann og þurfti ekki súrefnisvél og er það mjög sjaldgæft — aðeins lág- marks súrefni og aðstoð þegar hún hvíldi sín veikbyggðu lungu. A.B. Þessir hringdu . . . Höfundurinn er Sigurður Breiðf jörð Gunnlaugur Ingólfsson hringdi útaf vísunni sem birtist í Velvak- anda 23. júli og 5151-9213 leitaði höfundar á, og upplýsti að visan væri upphaf á söguljóði i 6 erindum sem Sigurður Breiðf jörð hefði ort og héti Ijóðið „Úthýs- ing“. Sagði hann að ljóðið mætti finna i Ljóðasafni Sigurðar Breiðfjörðs I sem út kom i Reykjavik 1951. Sigurður Breiðf jörð Eigirðu kost á ilmgresi R.L. hringdi til að koma fram leiðréttingu á vísu sem farið var- með í útvarpi núna fyrir helgina. „Vísa þessi er eftir Ólínu Andrés- dóttur og er þannig: Eigiröu kost á ilmgresi úr andans nægta hlöðu. Illt er að hlanda útheyi innanum slíka töðu. Þegar farið var með vísuna í útvarpinu var fyrsta ljóðlínan hins vegar: „Eigirðu kost á ilm- heyi“. Mér fannst það eyðileggja vísuna alveg að fara svona með hana — og það held ég að öllum hljóti að finnast sem hafa brag- eyra. Þess vegna langaði mig til að koma þessari leiðréttingu á fram- færi,“ sagði R.L. Bjórinn til íslands Örn Ásmundsson hringdi og sagði að sér fyndist meira en kominn tími til að íslendingar fengju drykkjarhæfan bjór. „Það er til skammar hversu ráðamenn þjóðarinnar ganga langt í því að ráðskast með fólk í þessu efni — hér er fullorðnu fólki bannað að hafa bjór um hönd rétt eins og um smákrakka væri að ræða. Að mínu áliti er kominn tími til að endur- skoða þessi mál og fara að vilja þjóðarinnar í þessu efni en láta ekki fámenna klíku fara þar með alræðisvald." grunnskólann — byrja fyrr á haustin og hætta seinna á vorin — án þess, að því er virðist, að nemendur sem koma út úr þessum lang skóla séu betur undirbúnir undir menntaskólanám en áður. Eg held að uppbygging skólakerfisins í anda „geymslustefnunnar" sé ægi- leg mistök og með þessu sé stefnt að því að gera skólann að mannskemmandi stofnun. Þetta eru líka dýr mistök — því skólar eru dýrir í rekstri, þó ríkið borgi. I skólakerfinu ætti að miða allt að því að spara tíma, rétt eins og í hverri annari vinnu, — þar ætti að afkasta sem mestu og skapa jákvæðan vinnuanda meðal nemenda. Þannig gæti skólinn öðlast sína fyrri reisn á ný — ef þeir sem að menntakerfinu standa hefðu ráðdeild til að standa í vegi fyrir því að það sé gert að „geymslukerfi" gæti þetta orð- ið. Þrátt fyrir dýrt skólakerfi hafa nemendur síður en svo meira gagn af skólavistinni en þegar minna var til kostað. Inn í skólakerfið fer ungt og oft á tíðum stórgáfað fólk en út koma sköllóttir kerfiskall- ar, sem hugsa um það eitt að raða sér á jötu, framtakslitlir og lífsþreyttir. Nemandi Reykhólasveit: Mikil umferð ferðamanna Mióhúsum 27. júli. Nú fer senn feröamannaumferð' að ná hámarki og eins og kunn- ugt er þá hætti Gestur hf. við rekstur hótels Bjarkarlundar i fyrra. Leiiíði félagið hótelið Ferðaskrifstofu rikisins og er það nú rekið sem Edduhótel. Með miklum myndarbrag ann- ast það nú þau hjónin Hafdís Ólafsdóttir og Jón Stefán Karls- son frá Laugum í Þingeyjasýslu. Á það má minna, að vestfirskir þingmenn stefna framtíð Bjark- arlundar í tvísýnu með því að hafna bezta valkosti okkar í vega- gerð, þ.e. Kollafjarðarheiði. Það er nú mikið ágreiningsmál hér. Í gær setti prófastur okkar, séra Þórarinn Þór á Patreksfirði, séra Valdimar Hreiðarsson inn í emb- ætti við messu á Reykhólum. Séra Valdimar var kosinn lögmætri kosningu. en prestakall hans nær yfir Garpsdalskirkju, Reykhóla- kirkju, Gufudalskirkju, Múla- kirkju og Flateyjarkirkju. Séra Þórarinn Þór var prestur okkar hér í yfir 20 ár og um leið og við fögnum kosningu hins unga prests þökkum við sr. Þórarni Þór þjón- ustu hans hér. Sveinn Illjomsveitin „SmalItown“ frá Danmörku. sem hyggst leika blústón- list fyrir íslendinga næsta mánuðinn. Sveinbjörn Sváfnisson er fremstur t.v. og hinir hljómsveitarmeðlimirnir heita Fesser, Finn. Hjalmar, Jakob og Torben. Smábæjarblús á íslandi HÉR Á landi er nú stödd hljóm- sveitin „Smalltown" frá Kaup- mannahöfn. Er einn meðlimur hljómsveitarinnar íslendingur, Sveinbjörn Sváfnisson. en hinir Danir. Hyggjast þeir félagar dveljast á Islandi til ágústloka og leika fyrir landann að því er þeir sögðu blm. sem spjallaði við þá á heimili Óskars Björgvinssonar i byrjun vikunnar. Hljómsveitarmeðlimir kváðu blústónlist eiga hug sinn og hjörtu, þó að þeir sinni einnig öðrum tónlistarstefnum og er stíll þeirra í aðalatriðum mótaður eftir enskri og bandarískri „Rythm’n Blues“ tónlist. Að undanförnu hefur hljómsveitin leikið á ýmsum vinsælum dans- og djassstöðum í Kaupmannahöfn, m.a. „Vognport- en“, í „Húsinu", sem flestir Kaup- mannahafnarfarar kannast við og byggja þeir nú gott til þess að leika fyrir Islendinga. Hljómsveit- in Smalltown skipa: Sveinbjörn Sváfnisson, sem áður gat og leikur hann á bassa, Fesser og Finn, sem báðir leika á gítar, Hjalmar, trommuleikari, Jakob, munnharpa og Torben, söngvari. Kamarorghestar leika í Iðnó HLJÓMSVEITIN Kamarorghest- ar. sem skipuð er íslendingum. sem búsettir hafa verið i Kaup- mannahöfn undanfarin ár. lék fyrir fullu húsi i Iðnó sl. fimmtu- dags- og föstudagskvöld. Kamarorghestarnir hafa starf- að á danskri grund um allnokkurt skeið við þó nokkrar vinsældir, en þetta er í fyrsta sinn sem löndum þeirra hér heima gefst kostur á að sjá þá og heyra. Sviðsframkoma Kamarorghestanna er með líflegri uppákomum og á meðfylgjandi mynd eru það söngvarar hljóm- sveitarinnar, Lísa Páls og Kristj- án Pétur, sem stíga dansinn, en á bak við þau sést gítarleikarinn, Björgúlfur Egilsson. Kamarorghestarnir munu hafa í hyggju að dveljast hér á landi um einhvern tíma og ferðast um landsbyggðina. Þá mun vera væntanleg skífa frá hljómsveit- inni og ber hún nafnið „Bísar í banastuði". Söngvarar Kamarorghesta. Lísa og Kristján Pétur, fá sér snúning á sviðinu í Iðnó. Lengst t.v. er gítarleikarinn, Björgúlfur Egils- son.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.