Morgunblaðið - 28.07.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ1981
47
Þeir félagar, Magnús Árnason og Birgir Þór Bragason, sem er
formaður Bifrciðaiþróttaklúbbsins.
„Ljómarallý 81
Alþjóða rallýkeppni í næsta mánuði
ALÞJÓÐA rallýkeppni fer
fram dagana 19. til 23. ágúst
næstkomandi. Blm. Mbl. hafði
samhand við Birgi Þór Braga-
son, sem er formaður Bifreiða-
íþróttaklúbbsins og Magnús
Arnason, sem sögðu þetta vera
annað skipti sem slík keppni
væri haldin hérlendis.
Gert er ráð fyrir að fimm bílar
komi erlendis frá og þá frá
Ítalíu, Noregi og e.t.v. frá Sví-
þjóð. Það verða líklegast um 12
bílar héðan, sögðu þeir félagar.
Þeir sem standa fyrir keppninni
eru Bifreiðaíþróttaklúbburinn
og Smjörlíkisgerðin, enda ber
rallýið nafnið „Ljómarallý 81“.
Næturstopp í rallýinu verður á
Sauðárkróki, á Húsavík og í
Reykjavík. Kostnaðurinn við
rallýið í fyrra nam sem svarar
70.000 og er óvíst hver hann
verður nú.
Yfirlýsing þjóðleikhússráðs:
Ber fyllsta traust
tO hljóðmeistarans
Hinn 19. júni sl. barst þjóðleik-
húsráði bréf frá Sigurði Eggerts-
syni, hljóðmeistara, þar sem hann
óskar eftir „leiðréttingu“ á sam-
þykkt ráðsins frá 18. júni 1981,
þ.e. þeim hluta samþykktarinnar
þar sem segir: „Til að eyða tor-
tryggni hefur orðið fullt sam-
komulag um að fjarlægja hljóð-
nema þann, sem nýlega var tengd-
ur segulbandi i skrifstofu þjóð-
leikhússtjóra og annan, hljóð-
nema á Litla sviðinu, sem tengdur
hefur verið tækjum i herbergi
hljóðmanns, þannig að engin sam-
töl verður framvegis hægt að taka
upp án vitundar hlutaðeigandi
aðila.“
Ástæðan fyrir því, að getið var
um hljóðnema á Litla sviðinu eru
Nýja bíó frum-
sýnir myndina
„Upprisa“
f DAG frumsýnir Nýja bió myndina
„Upprisa“ en leikstjóri er Daniel
Petrie. Tónlist er eftir Maurice
Jarre. Meða aðalhlutverk fara Ell-
en Burstyn, Sam Shcpard, Richard
Fransworth, Roberts Blossom og
Clifford David.
Edna McCauley sem á heima í Los
Angelcs kemur manni sínum á óvart
með því að gefa honum nýjan bíl í
afmælissöf, en þegar þau eru í
fyrstu bílferðinni verða þau fyrir
slysi svo eiginmaðurinn býður bana
en Edna slasast. Edna verður fyrir
reynslu meðan hún er rænulaus sem
margir skýra frá þegar þeir telja sig
vera komnir yfir „landamærin". Síð-
an vaknar Edna en er lömuð ...
eftirfarandi ummæli í greinargerð
Kristins Daníelssonar frá 15. júní
1981 þar sem segir: „Mér er kunn-
ugt um að með lítilli fyrirhöfn er
hægt að tengja mikrófóna á Litla
sviðinu við upptökutæki í hljóð-
stjórn, vegna leiksýninga þar.“
Hinn 22. júní sl. barst þjóðleik-
húsráði greinargerð frá Sigurði
Eggertssyni, svohljóðandi: „Tvær
línur liggja frá klefa hljóðmanns
niður í Þjóðleikhúskjallara (Litla
leiksviðið). Við þær er hægt að
tengja hljóðnema þegar upptökur
eiga að fara fram. Að staðaldri eru
hljóðnemar þessir geymdir í klefa
hljóðmanns. Allar frumsýningar
Litla leiksviðsins eru teknar upp til
varðveizlu. Þá eru hljóðnemar
þessir tengdir sama dag og frum-
sýning fer fram og teknir niður að
lokinni upptöku. Þó getur komið
fyrir að hljóðnemar þessir séu
tengdir daginn áður, á aðalæfingu,
til að stilla styrk upptökuunnar, og
eru þá ekki teknir niður fyrr en
eftir frumsýningu." Þessi greinar-
gerð Sigurðar er staðfest af Þorláki
Þórðarsyni leiksviðsstjóra.
Á fundi þjóðleikhúsráðs 24. júlí
1981 var gerð eftirfarandi sam-
þykkt: „Að gefnu tilefni tekur
þjóðleikhúsráð fram að í samþykkt
þjóðleikhúsráðs hinn 18. júní sl.
fólst að sjálfsögðu engin ásökun í
garð Sigurðar Eggertssonar, sem
ráðið ber fyllsta traust til.“
Á sama fundi var samþykkt að
senda ritstjóra Vísis svohljóðandi
bréf:
„í forystugrein og grein Svart-
höfða í blaði yðar 22. júní sl. er leitt
að því getum að úrsögn Þórhalls
Sigurðssonar úr þjóðleikhúsráði
stafi af flokkspólitískum sjónar-
miðum hans, sem ekki hafi náð
fram að ganga í leikhúsrekstrinum.
Þjóðleikhúsráð harmar slík skrif
og tekur fram, að aldrei hafi verið
hægt að draga störf Þórhalls í
þjóðleikhúsráði í pólitískan dilk.
Þar hefur hann starfað af stakri
samvizkusemi og trúnaði við leik-
húsið og ráðið notið góðs af mikilli
þekkingu hans á málefnum leik-
hússins."
Á fundi þjóðleikhúsráðs, þar sem
þessar samþykktir voru gerðar
sátu, auk formanns, Gylfi Þ. Gísla-
son, Margrét Guðmundsdóttir og
Þuríður Pálsdóttir.
f.h. þjóðleikhúsráðs
Haraldur Olafsson form.
Húsmæðrafélag Reykjavikur:
Hvetur neytendur til að
draga úr mjólkurkaupum
HÚSMÆÐRAFÉLAGIÐ átelur
harðlega forráðamenn Mjólkur-
samsölunnar fyrir að setja á mark-
aðinn ónýta vöru, sem engan veg-
inn er hæf til neyslu. Húsmæðrafé-
lagið hvetur neytendur til þess að
vera vel á verði hvað varðar gæði
mjólkur og draga úr innkaupum
mjólkur meðan þetta ástand rikir,
segir í yfirlýsingu frá Húsmæðra-
félagi Reykjavikur sem barst Mbl.
í gær.
Félagið lýsir stuðningi við fram-
komnar yfirlýsingar Neytendasam-
takanna varðandi það ófremdar-
ástand, sem ríkt hefur í mjólkur-
málum hér á höfuðborgarsvæðinu
að undanförnu. Einnig er Grænmet-
isverslun landbúnaðarins átalin í
yfirlýsingunni fyrir að senda á
markað kartöflur, sem vart geti
talist mannamatur. „Félagið lýsir
undrun sinni á því að ár eftir ár
skuli Grænmetisverslunin komast
upp með að bjóða vöru, sem meira
og minna er skemmd. Félagið beinir
þeirri áskorun til neytenda að skila
til baka skemmdum vörum, en láta
þær ekki hafna í ruslatunnunni. Þá
bendir Húsmæðrafélagið neytend-
um á, að í stað óætrar vöru er rétt
að beina innkaupum sínum að ýmis
konar gæðavöru, sem unnt er að fá í
öllum verslunum og nota má í stað
kartaflna."
Sigurjón Pétursson um afgreiðslutima verslana:
Ef reglugerðin stenst ekki
lög, verður henni breytt
„Verslunarráð skrifaði borg-
arráði bréf og lýsti þar þeirri
skoðun sinni að takmarkanir á
afgreiðslutima sölubúða á laug-
ardögum væri óheimil. Við feng-
um borgarlögmann til að gefa
umsögn um bréfið og komst hann
að þeirri niðurstöðu að hæpin
heimild væri fyrir lokun á laug-
ardögum og iagði til að reglu-
gerðin yrði tekin til endurskoð-
unar í borgarstjórn,“ sagði Sig-
urjón Pétursson forseti borgar-
stjórnar í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er enginn vafi í mínum
huga um það, að ef reglugerðin
stenst ekki lög, þá verður henni
breytt," sagði Sigurjón. Spurningu
Morgunblaðsins um hvort til álita
kæmi að gera afgreiðslutímann
frjálsan, þannig að verslunar-
menn og kaupmenn myndu semja
um tíma þennan sín á milli,
svaraði Sigurjón þannig: “Slík
tillaga kom upp í borgarstjórn
þegar þetta var afgreitt síðast en
hún fékk ekki nægan stuðning og
greiddi ég m.a. atkvæði á móti
þeirri tillögu. Þetta er í sjálfu sér
ekki neitt slagsmálamál í mínum
huga, með þeim hætti að ég hafi
grundvallaða skoðun á því hversu
lengi sölubúðir eiga að vera opnar.
Hins vegar minnist ég þess að það
var mikið kvartað um takmörkun-
arleysi á afgreiðslutíma sölubúða
þegar ég kom í borgarstjórn
Reykjavíkur 1970, enda voru þá
allar búðir yfir höfuð opnar til
klukkan hálf tólf á kvöldin. En ég
á alveg eins von á að tillaga um
frjálsan afgreiðslutíma komi fram
þegar reglugerðin verður tekin til
endurskoðunar í borgarstjórn, þó
ég sé ekki tilbúinn til þess nú að
úttala mig um hvaða afstöðu ég
kem til með að taka til hennar,
komi hún fram,“ sagði Sigurjón.
Sigurjón sagði að ekki væri
líklegt að endurskoðun reglugerð-
arinnar færi fram fyrr en eftir að
sumarleyfi borgarstjórnar lýkur
og hún kemur saman til reglu-
legra funda á nýjan leik. Ekki
sagði Sigurjón ástæðu til að halda
aukafund í borgarstjórn af þessu
tilefni.
Allir vilja
vatns-
þétt þök f
Kynntu þér úrvalið af Aquaseal
þakpappa. Mismunandi teg-
undir fyrir mismunandi að-
stæður.
Auk þess sérstök Aquaseal efni
fyrir sprungu- og holufyllingar
og gliúpa fleti.
HQUHSEHL
Rétt ráð gegn raka
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVÍK
SÍMI 24220