Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 48

Morgunblaðið - 28.07.1981, Síða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 tr0iM«tlbli>l>í®> Rjúkamli MORGUNKAFFI ox nybökud biwió frá kL ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1981 Heyskaparhorfur í Mývatnssveit: Fullsprottið og beðið þurrksins SPRETTAN hefur mjóvr tekið viö sér síðustu dajía <>k má heita að nú sé fullsprottið ok menn xeti hafið slátt strax og þurrkur kemur næst, savcði Kristján Þórhallsson, frétta- ritari Mbl. í Mývatnssveit, er hann var spurður um heyskaparhorfur eftir hiýindakaflann siðustu daxa. Kristján sagði að nokkrir bændur hefðu verið byrjaðir slátt, en í síðustu viku birti mjög upp og verulega hlýnaði. Heitast var sl. föstudag, en nokkur dumbungur hefur þó verið og því ekki þurrkur og voru t.d. skúrir í gær. Sagði Kristján að það hlyti að vera steindauð jörð, sem ekki hefði tekið við sér í hlýindunum undanfarið. Kísiliðjan stöðvaði framleiðslu sína í gær, en ákveðið var í vor að hlé yrði gert á rekstri hennar i mánaðartíma, m.a. vegna útlits fyrir minni sölu. Sagði Kristján að sá tími hefði nú verið styttur niður í hálfan mánuð og myndi verksmiðj- an verða gangsett á ný hinn 10. ágúst. Þorvaldur Skúlason: ÆtK ég hafi ekki málað 10 til 15 sjálfsmyndir — og auðvitað þá mynd, sem nú er sýnd í Norræna húsinu „GUNNLAUGUR veit ekkert hvað hann er að taia um, ég hef heyrt þetta og held að það sé mjög óheppilegt að birta svona grein. Uað verða einhver leiðindi vegna þess, en þó ekki frá mér,“ sagði l>orvaldur Skúlason, listmálari, er Morgunblaðið bar undir hann grein eftir dr. Gunnlaug bórðar- son, þar sem hann dregur i efa að sjálfsmynd borvaldar, sem nú er til sýnis i Norræna húsinu sé eftir hann. í greininni segir dr. Gunn- laugur einnig að borvaldur hafi málað fleiri en eina sjálfsmynd. Auglýsend- ur athugið ATHYGLI skal vakin á því að Morgunblaðið kemur ekki út sunnudaginn 2. ágúst. Þeir sem ætla að auglýsa í blaðinu laugardaginn 1. ágúst eru vinsamlegast beðnir að skila auglýsingum fyrir kl. 6 fimmtu- daginn 30. ágúst. Morgunblaðið. gagnstætt þvi, sem Björn Th. Björnsson, listfræðingur. hefur haldið fram. „Það er ekki nokkur minnsti vafi á því að sjálfsmyndin er eftir mig, ég ætti bæði að þekkja það og vita. Það er því algjör misskilningur hjá Gunnlaugi að ég hafi ekki málað hana og ég skil ekkert í honum að sækja þetta svona stíft í blöðum. Ég veit alveg upp á hár um þessa mynd og hjá hverjum hún var. Það var norskur vinur minn, sem fékk hana strax og ég hafði málað hana, svo það fer ekkert á milli mála,“ sagði Þorvaldur. Hvað hefur þú málað margar sjálfsmyndir? „Ætli ég hafi ekki málað svona 10 til 15 sjálfsmyndir á þessum árum og myndin, sem Gunnlaugur talar um er að sjálfsögðu eftir mig eins og hin myndin. Það er því misskilning- ur hjá Birni Th. að ég hafi ekki málað nema eina sjálfsmynd. Það er varla von að hann viti hvað ég var að mála fyrir rúmum 40 árum, hann var varla byrjaður í listfræðinni þá.“ Sjá ennfremur grein dr. Gunn- laugs á Bls. 12 í blaðinu i dag. Unnið við áhorfendasvæðið við útitaflið. (Uóhbi. Ól.K.Max.) 25% kaupauki til starfs- manna við útitaflið STARFSMENN þeir, sem vinna við útitaflið i Lækjargötu, fengu nýlega boð um það frá borginni. að laun þeirra hækki um 25%, takist þeim að ljúka verkinu fyrir 18. ágúst. Þykir mönnum þetta sýna vel hve mikla áherslu stjórnendur borgarinnar leggja á taflið fyrir framan Torfuna og í sömu andrá er bent á, að næsta vor eru borgarstjórnarkosningar. Talsverðar líkur eru á, að framkvæmdum við útitaflið verði lokið fyrir fyrrnefndan dag, sem er afmælisdagur Reykjavíkur. Enn er þó engin mynd komin á hlutina og fátt sem minnir á grasi gróna brekk- una sem áður var milli Bern- höftstorfu og Lækjargötu. LjÓHn. Anna Torfadóttir. Sá kirkjulegi viðburður varð á Skálholtshátíðinni á sunnudaginn, að flutt var kaþolsk messa, sú Jyrsta á þeim stað allt frá siðaskiptum, eða i yfir 400 ár. Á myndinni má sjá kaþólska biskupinn Frehen í predikunarstólnum. Nánar segir frá Skálholts- hátíðinni á miðopnu blaðsins i dag. Iðnaðarráðherra: Trúnaðarbrot verða könnuð ÉG GERI ráð fyrir að hafa samband við ritstjóra Tímans um þessi mál, en það hafa orðið trúnaðarbrot á fleiri en einum stað og þarf að skoða þau mál, sagði Hjörleifur Guttormsson iðn- aðarráðherra er Mbl. innti hann eftir því í gær hvort iðnaðarráðu- neytið myndi kanna meint trúnað- arbrot vegna birtingar atriða úr skýrslu Coopers og Lybrand varð- andi súrálsskýrsluna svonefndu. Sagði Hjörleifur að ákveðin hætta á trúnaðarbrestum hefði verið fyrir hendi þar til ljóst var orðið hvaða atriði Alusuisse vildi halda leyndum, en hann sagði mál þessi könnuð. Skákin: Tveir í efsta sæti með 3V2 STAÐAN í úrvalsflokki á Norð- urlandamótinu i skák var sú i gærkvöldi að Guðmundur Sigur- jónsson og Ornstein voru með 3 'A vinning, en Christiansen og Schússier með 3 vinninga, en umferðinni var ekki lokið um kl. 23 i gærkvöldi. Guðmundur Sigurjónsson vann Hansen, Helgi Olafsson tapaði fyrir Christiansen og Margeir Pétursson tapaði fyrir Raaste. Jafntefli varð milli Schussler og Höi og Rantanen vann Ornstein. Um 9—12% samdrátt- ur í smásöluveltu NÚ LIGGJA fyrir upplýsingar um heildarveltu samkvæmt sölu- skattsframtölum á fyrsta ársfjórð- ungi ársins. Samkvæmt þeim töl- um, hefur smásöluvelta orðið 40% meiri i krónum en á sama tima i fyrra, en verzlunarveltan alls 44% meiri. Séu þessar tölur metnar miðað við breytingar framfærslu- vísitölu kemur fram um 9—12% samdráttur að raungildi. betta kemur fram i nýútkomnu riti bjóðhagsstofnunar „Framvinda efnahagsmála á fyrri ársheimingi 1981“. Þá segir, að í þeim þjónustu- greinum, sem þessar tölur nái yfir og helzt tengjast einkaneyzlu, sé veltubreytingin mun meiri en i verzlun og heldur í við verðbreyt- ingar að heita má. í ýmsum greinum almenns iðnaðar komi hins vegar fram minni breyting, einkum í vörugreinum, sem tengj- ast einkaneyzlu. — Tölur ríkisbókhalds um inn- heimtan söluskatts fyrstu fjóra mánuði ársins bentu til 8% sam- dráttar í veltu söluskattsskyldrar vöru og þjónustu á fyrsta ársfjórð- ungi. Innheimtutölurnar sýna hins vegar mikia breytingu á þessu í apríl og maí, en samkvæmt þeim TRÉSMIÐUR i Siglufirði klemmdist milli skúrs og vélar i gærdag þar sem unnið var við byggingarframkvæmdir og var hann þegar fluttur með sjúkra- fiugvél til Reykjavikur. bá hrap- aði línumaður frá Rarik úr mastri, a.m.k. 12 m fall, þegar dróst veltan saman um 1,5% að raungildi í apríl, en jókst um nær 13% i maí. Frá áramótum til maíioka er samdrátturinn rösklega 2% miðað við framfærsluvísitöl- una. öryggisól brast. þar sem hann var við línuvinnu skammt frá Grims- stöðum á Fjöllum, og var hann einnig fluttur með sjúkraflugvél frá GimsstOðum til Reykjavikur á laugardaginn. Þá var maður fluttur með flugvél frá Djúpavogi sl. laugardag eftir að hafa slasast illa i bílveitu í Álfta- firði. Sótti hann flugvél frá Leigu- flugi Sverris Þóroddssonar. Flugfé- lag Norðurlands annaðist sjúkra- flugið í fyrri tilvikunum, einnig flutti vél frá þeim mann frá Siglufirði til Reykjavíkur á laugar- dag, en hann slasaðist i bílveltu á Siglufjarðarvegi á föstudagskvöld, eins og frá var skýrt í Mbl. á sunnudag. Höfðu þrír menn verið áður fluttir til Reykjavíkur, en sá fjórði daginn eftir, þegar séð varð að hann þurfti á frekari læknisað- gerðum að halda. Mennirnir eru ekki taldir í lífshættu. (Ljcmm. ÓI.K.M.) Vél frá Sverri bóroddssyni kemur til Reykjavikur eftir sjúkraflug frá Djúpavogi. Mörg sjúkraflug um helgina: Hrapaði yfir 12 m úr mastri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.