Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981 11 Gestum sýnd vélvæðinjfin í Netagerð Ingólfs. Tæknivætt verkstæði Netagerðar Ingólfs InKÓlfur Theodórsson neta- Kerðarmeistari í Vestmannaeyj- um hélt veizlu með langborðum i landnámsaldarstíl i aðalsal verkstæðis sins i Vestmannaeyj- um fyrir skömmu. Netagerð InKÓlfs er stærsta verkstæði sinnar tegundar á landinu og Ingólfur bauð ýmsum gestum til þess að kynna stækkun húss sem hann tók nýlega i notkun og nýja tækni við meðferð hinna stóru nóta sem loðnuflot- inn notar. en Ingólfur hefur sérstaklega byggða geymslu i húsi sinu fyrir 40 slikar nætur eða nær allan loðnuf lotann. „Það eru 40 ár síðan ég kom hingaö til Eyja og byrjaði neta- viðgerðir í viðbyggingu, en fyrst kom ég hingað á vegum útgerð- armanna í sambandi við rekstur netaverkstæðis, en eins og marg- ir góðir menn, sem hafa skroppið til Eyja ánetjaðist ég einni af Eyjastúlkunum og hér er ég enn,“ sagði netagerðarmeistar- inn og brosti til konu sinnar, Sigríðar Jónasdóttur frá Skuld, „nú og árangurinn má sjá hér að nokkru," hélt hann áfram og virti fyrir sér húsakynnin og yngstu börnin, tvíburadætur sem báru gestum veizluföng. Þegar Ingólfur hóf rekstur naut hann aðstoðar Björgvins Jónssonar í Úthlíð við að fá fjármagn, 200 þús. kr. fyrir 200 fm húsnæði, en nú er Ingólfur með 400 fm nótageymslu og 1800 fm vinnusali eða alls 2550 fm í 11 þúsund rúmmetra húsnæði. Vinnusalurinn fyrir nætur er 1000 fm að stærð. Ingólfur hefur tæknivætt verkstæði sitt mjög mikið og t.d. eru nú notaðar kraftblakkir til þess að færa nætur til í húsinu og tekur nú 6 menn stutta stund að koma nótum í hús miðað við heilan dag áður með 14—16 mönnum. Þá lækkar trygginga- verð á nótum mjög mikið við geymslu inni eða úr 1 Vá % af verði nótar og í 0,4% inni, en nót kostar hátt á annað hundrað milljóna gamalla króna í dag. Hjá Ingólfi Theodórssyni vinna nú 18 me'nn og hefur ávallt verið einvaia lið á verkstæði hans. Ingólfur hafði orð á því í hófinu að það væri skemmtileg tiiviljun að hann hefði verið ráðinn upphaflega til Vest- mannaeyja vegna þess að hann var með nót á sínum tíma fyrir Sighvat heitinn Bjarnason skip- stjóra og útvegsbónda og um þessar mundir væri hann að gera klára nót í skip sem væri nýlega keypt til Vestmannaeyja og ætti að heita Sighvatur Bjarnason. -á.j. Sigga i Skuld og Ingólfur Theodórsson netagerðarmeistari. Lkwmyndir Mbl. GuðlauKur SÍKurKCÍrsson. Langborð með veizluföngum i 1000 fm vinnusal Netagerðar Ingólfs. Sw^ndstr*9 jakkar gallabuxur skyrtur flauelsbuxur flannelsbuxur háskólabolir sumarbolir Laugavegi 37, Laugavegi 89 hljomplötur verð frá kr. C/R Hjjómdeilfl 'SÉ Laugavegi81 Komið og fáið mikið fyrir lítið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.