Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
29
7TT ^7 ~
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10—11
FRÁ MANUDEGI
Mr UJArnPK'an'U If
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 SIMI 85811
Þessir hringdu . . .
Miðdegissagan
eintómt klám
Margir hafa hringt til Velvak-
anda og beðið um að vekja máls á
miðdegissögunni, sem nú er í
útvarpinu. Telja hana alls ekki
boðlega vegna kláms og klámyrða.
Sagan er lesin á þriðjudögum og í
dagskrárkynningu segir að hún
heiti Praxis, sé eftir Fay Weldon,
og að Dagný Kristjánsdóttir lesi
þýðingu sína.
Á þriðjudag hringdi maður, sem
hafði heyrt lestur þessarar sögu
þar sem hann var að ferðast í
bílnum sínum með fjölskyldunni,
og sagðist aldrei hafa heyrt annað
eins klám og það sem dembt var
yfir hlustendur. Hann hafði svo
farið að ræða um þetta við aldna
og unga og hver einasti, sem heyrt
hafði söguna, var alveg gáttaður á
orðbragðinu. Eitt er að gefa út
svona sögu, svo að þeir sem vilja
smjatta á slíku geti lesið það
heima hjá sér í einrúmi, eða fyrir
vini sína ef þeim liggur mikið á,
sagði hann, og hitt að demba
svona orðavali af klámi yfir út-
varpshlustendur, sem sitja í áætl-
unarbílum eða heyra annars stað-
ar í útvarpstækjum. Það hafa
alltaf verið til klámhundar, sem
hafa gaman af þessu, en í útvarpi
almenns hlustanda, er það eins-
dæmi.
Og hann bætti við: Ég fór að
spyrja hver þessi kona væri, sem
hefði valið og vildi lesa slíka sögu
og var sagt að það væri unglinga-
kennari austur á Egilsstöðum. Þá
varð ég hissa.
Dynur í eyrum
Þá hringdi fullorðin kona, M.Ó.,
sagðist alltaf hlusta á miðdegis-
sögunar. Hún væri sjúklingur og
þær styttu daginn. Nú hafði hún
opnað útvarpið sitt og fengið yfir
sig argasta klám, með því versta
orðavali af því tagi sem hún hefði
heyrt. Þetta gæti næstum verið
orðabók með klámyrðum. Sá sem
hefur ánægju af að smjatta á slíku
hlýtur að hafa sérstaka þörf fyrir
að fá afbrigðilega útrás í orðum,
sagði hún. Og hún spyr hvað
dagskrárstjóri, sem hún hefur
annars mætur á, sé að hugsa að
láta slíkt dynja yfir útvarpshlust-
endur.
Frambjóðendur til alþingis-
kosninga hafi aðsetur í héraði
í FRÉTT frá samtökunum
Valfrelsi segir að á fundi fram-
kva'mdanefndar Valfrelsis.
sem haldinn var þann 23. júli
sl.. hafi svohljóðandi ályktun
verið samþykkt: „Stefnt skal
að þvi að frambjóðendur eigi
og hafi átt heima þrjú ár eða
lengur i því kjördæmi, sem
þeir eru í framboði fyrir.“
Hér mun væntanlega vera átt
við frambjóðendur til alþingis-
kosninga og í greinargerð fund-
ar Valfrelsis segir ennfremur
að framkvæmdanefnd Valfrels-
is álíti að „heimamenn" hafi
betri aðstöðu til að þjóna um-
bjóðendum sínum, sem þannig
geti veitt fulltrúum sínum
nauðsynlegt aðhald. Fram-
kvæmdanefnd Valfrelsis skipa
Hilmar Guðjónsson, Lárus
Loftsson, Marías Sveinsson,
Smári Stefánsson og Sverrir
Runólfsson, ábyrgðarmaður.
T Bleian
Uggur
í f ólki
vegna
fíkniefna-
dreifingar
Af stað burtu í fjarlægð, gæti hann verið að segja þessi sænski strákur
á tjaldstæðinu í Laugardal, enda hefur hann aldeilis lagt land undir
fót — kominn til íslands. LjA.ni. Gu«K>n.
Svar frá frétta-
stjóra útvarps
Svar við fyrirspurn Sigurðar E.
Haraldssonar. kaupmanns, i dálk-
um Veivakanda 6.8.1981.
Sigurði E. Haraldssyni getur
tæpast verið alvara að leggja að
jöfnu atferli drukkinna ökufanta
sem stofna eigin og annrra lífi og
limum í hættu á strætum og vegum
landsins og eigenda smáverzlana í
Reykjavík sem vilja hafa opnar
búðir á laugardögum í trássi við
umdeilda reglugerð. Hegðan öku-
níðinga (innbrotsþjófa, ofbeld-
ismanna o.s.frv.) er ekki umdeild.
Reglugerðin um bann við verzlun í
höfuðborginni á laugardögum er
umdeild.
t deilumálum ber Fréttastofu
Útvarps að láta koma fram sjón-
armið allra þeirra sem deila. Þess
vegna var talað við eiganda einnar
af nokkrum smáverzlunum í
Reykjavík sem höfðu opið á laugar-
degi með þeim afleiðingum að
lögreglumenn komu á staðinn. önn-
ur sjónarmið höfðu áður komið
fram í útvarpsfréttum í sumar.
Margrét Indriðadóttir,
fréttastjóri Útvarps.
A.J. kom að máli við Vel-
vakanda, og sagði að það mál,
sem nú væri mest um rætt,
væri fíkniefnasmygl íslenzkra
ungmenna, sm virðist fara
hraðvaxandi eftir fréttum að
dæma. Hann sagði að þetta
hefði verið rætt í heita pottin-
um í sundlaugunum þá um
morguninn og hefðu menn af
þessu miklar áhyggjur. Fannst
jafnvel blöðin ekki taka nægi-
lega hart á þessu í skrifum
sínum, og almenningur ekki
gera nóg af því að lýsa van-
þóknun sinni.
— Það væri örmurlegur
stimpill, sem íslenzk ung-
menni hafa sett á þjóðina
erlendis og þá einkum á Norð-
urlöndum, sagði hann, þar
sem ótrúlega margir virðast
vera í smygli og sölu. Það er
ljóta sendingin, sem frændur
okkar hafa á undanförnum
árum fengið frá okkur.
Hann sagði að í umræðum
um þetta kæmi greinilega
fram, að nú væri fólk orðið
hrætt við þetta. Það færi
fiðringur um aðstandendur
ungmenna, þegar vitað væri
að fíkniefni væru svona mikið
á ferðinni þar sem þau eru á
ferð og þeir vita ekkert um
þetta eða þekkja það þótt þeir
sjái eða finni af því lyktina.
Tími væri kominn til að taka
þetta mál fastari tökum.
Veitiö ungbarninu loft meö réttri bleiutegund.
Allar bleiur meö plasti utan um eru eins og
gróöurhús.
T-bleian er einungis meö plasti aö neöan, en
ekki á hliöum og meö henni notist laglegu
t-buxurnar, sem eru úr taui og veita því lofti
um barnið.
Eingöngu t-bleiurnar veita barninu nóg loft.
Barnarassar þurfa á miklu lofti aö halda til aö
líöa vel.
Versllð hjá
fagmanninum
Þú kemur meö filmurnar til okkar í dag
og sækir myndirnar kl. 16 á morgun.
Góö ráð í kaupbæti
$0**90 SVOGúVtöT ríS/: KV5NSAM
'bEtf 6AYtm, Míóltm Qöyi>0% AN ÝE&
s\(/la bÓLo^Arr/ r/L og \
yoWAVÓT fi® yWVA Yí?/W/9
oMW m r/i^\L\\is
V£fo£OrtAtf£W$
OwVEtfNIG \
yiEiskmj x)
\AKI ór-
VÓK WtfiUV
lá VTOA/O/ £KK/
vm tmr- \
SIG6A V/QGÁ £ iwtm