Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
Rannveig E. Hermanns-
dóttir — Minning
Fædd 12. nóvember 1916.
Dáin 29. júlí 1981.
í dag 7. ágúst kveðjum við
Rannveigu Hermannsdóttur.
Nú þegar leiðir skiljast að sinni,
vil ég minnast hénnar með nokkr-
um kveðjuorðum.
Hér á Isafirði var hennar
starfsaefi, fyrst sem húsmóðir,
síðar önnur störf jafnhliða.
Ég minnist þess hve æðrulaus
og styrk hún var er maður hennar
Jón Jónsson frá Hvanná veiktist
og varð upp frá því óvinnufær.
Dæturnar fjórar voru þá allar
ungar. Það varð því hennar hlut-
verk að vera bæði húsmóðir og
húsbóndi. Hún fór að vinna á
Skattstofu Isafjarðar, síðar Skatt-
stofu Vestfjarðaumdæmis.
Dætrum sínum var hún mikil
móðir, veitti þeim gott uppeldi og
gaf þeim fordæmi með störfum
sínum og allri framkomu.
Rannveig rækti heimili sitt af
umhyggju og myndarskap. Hún
var vel sjálfmenntuð, fylgdist
mikið með þjóðmálum og hafði
ákveðnar skoðanir á hvaða máli
sem var. Hún vann mikið að
félagsmálum hér í bæ. Sérstaklega
vil ég minnast hennar fyrir störf í
Kvenféiaginu Ósk hér á ísafirði.
Hún var í félaginu um árabil, sat í
stjórn þess og var formaður árin
1972 til 1977. Það var í kvenfélag-
inu sem annarstaðar, störfin voru
unnin af samviskusemi og rétt-
sýni. Það var gaman að starfa með
Rannveigu og á stjórnarfundum
heima hjá henni var jafnan glatt á
hjaila og frambornar heimalagað-
ar veitingar. Ég minnist hennar
sem mikilhæfrar mannkosta konu
sem nú skulu færðar þakkir fyrir
öll hennar störf í Kvenfélaginu
Ósk.
Hún hafði átt við mikil veikindi
að stríða undanfarin ár. Ef til vill
hefur þá best komið í ljós sálar-
styrkur hennar. Rannveig var
mikil trúkona og var vel undirbúin
fyrir skilin við þennan heim. Guð
blessi Rannveigu Hermannsdótt-
ur.
Dætrum hennar og öðrum ást-
vinum sendi ég samúðarkveðjur.
Jónína Jakobsdóttir
í dag, föstudaginn 7. ágúst,
verður jarðsungin frá Isafjarðar-
kirkju Rannveig Elísabet Her-
mannsdóttir, Kleppsvegi 134.
Lengst af bjó hún á Isafirði, að
Austurvegi 12. Hún andaðist í
Landakotsspítala 29. júlí síðastlið-
inn eftir erfiða baráttu við illvíg-
an sjúkdóm, sem hún barðist við
hátt á annað ár.
Rannveig var fædd í Málmey í
Skagafirði 12. nóvember 1916,
dóttir hjónanna Hermanns Jóns-
sonar og Elínar Lárusdóttur, sem
lengst af bjuggu að Ysta-Mó í
Fljótum, en þar ólst hún upp. Árið
1939 giftist hún Jóni Jónssyni frá
Hvanná og settust þau að á
ísafirði, en þar starfaði Jón hjá
Kaupfélagi ísfirðinga við bókhald.
Rannveig og Jón eignuðust fjórar
dætur, Kristínu, Elínu, Nönnu og
Gunnþórunni.
Barnabörnin eru 10 og barna-
barnabörnin 2. Er Rannveig var
ekki orðin fertug veiktist Jón og
varð hann eftir það að dveljast á
sjúkrahúsum eða undir læknis-
hendi, en hann lést 1963, aðeins
52ja ára að aldri. Það hefur verið
mikið átak fyrir Rannveigu, þegar
fyrirvinnan veikist að fara að
vinna utan heimilis til að sjá fyrir
fjölskyldu sinni, sjúkum eigin-
manni og dætrunum fjórum á
aldrinum 8—14 ára. í fyrstu vann
hún við ýmis störf en síðar á
skattstofu Vestfjarðaumdæmis.
Þótt Rannveig þyrfti að vinna
langan vinnudag oft á tíðum, þá
átti hún alltaf tíma fyrir dætur
sínar og síðar fyrir barnabörnin,
þegar þau komu, enda var amma
Rannveig oft þeirra styrkasta
stoð.
Rannveig starfaði mikið að fé-
lagsmálum á ísafirði þau 40 ár,
sem hún bjó þar. Árið 1979 flutti
hún til Reykjavíkur og starfaði
hjá Skattstofu Reykjavíkur meðan
heilsan entist.
Að endingu vil ég þakka tengda-
móður minni, Rannveigu, fyrir
allt gott og elskulegt, fjölskyldu
minni til handa og votta ég henni
nú að leiðarlokum þakklæti mitt
og virðingu.
Öllum ættingjum votta ég mína
dýpstu samúð. Megi góður Guð
styrkja ykkur öll.
Valdimar Ólafsson
Kveðjuorð:
Sveinn Jónsson
á Egilsstöðum
Sveinn Jónsson Óðalsbóndi á
Egilsstöðum, andaðist sunnudag-
inn 26. júlí, þá 88 ára að aldri. Um
Svein væri margt hægt að segja
sem aðrir munu skrá og ég tel mig
ekki færan um. Sveinn var stór-
brotinn maður eins og öll íslenska
þjóðin veit. Það er óhætt að segja
að hann hafi verið héraðshöfðingi.
Sveinn var fyrst og fremst for-
ystumaður bændastéttarinnar á
Islandi. Hann hefði sómt sér vel
sem landbúnaðarráðherra. öll
hans verk, er hann hefur unnið á
Egilsstöðum sýna og sanna það.
En það var fleira er Sveinn tók
sér fyrir hendur. Hann var mikill
félagsmaður og var kosinn til að
gegna mörgum trúnaðarstörfum
fyrir sveit sína. Með Svein er
fallinn í valinn mesti bændahöfð-
ingi þessa lands og verður skarð
hans vandfyllt. Sveinn var ekki
einn í lífsbaráttunni hann átti sér
við hlið hina glæsilegu og velgefnu
konu sem að óhætt er að segja að
sé kvennskörungur og í alla staði
virðuleg kona. Það var hans gæfa.
Hún stóð við hlið mannsins síns í
blíðu og stríðu hún heitir Sigríður
Fanney Jónsdóttir og lifir hún
mann sinn. Þau hjón eignuðust
þrjú börn, Jón Egil, Inga Már og
Ásdísi. Þau Fanney og Sveinn
ráku hótel í mörg ár eins og
kunnugt er og hin elskulega dóttir
þeirra Dísa hefur nú tekið við. Það
er henni til mikils sóma hve hún
reyndist foreldrum sínum vel, ekki
hvað síst á efri árum þeirra eins
og reyndar öll þeirra börn. Ég tel
það hafa verið mér sjálfum ómet-
anlegt að hafa kynnst Sveini og
hans góðu konu, Fanneyju. Ég var
nánast heimagangur hjá þeim í
áratugi og kynni mín af þeim voru
mjög náin.
Um leið og ég kveð vin minn
Svein Jónsson á Egilsstöðum,
votta ég konu hans og börnum og
öllum aðstandendum samúð mína.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Guð blessi minningu Sveins á
Egilsstöðum. Sveinn var jarðsett-
ur í heimagrafreit laugardaginn 1.
ágúst 1981.
Jóhann Þórólfsson.
SUMIR VERSLA DÝRT
AÐRIR VERSLA
[ Tomatarl.fl. 'Agúrkur Nautahakk l.fl. Ný fersk Bláber
7 *V50 1C.80 CC.00 71.50
^ J pr kg. pr.kg. pr.kg. jLI.
Leyft verö 41 »00 Leyft verð 25 «00 Leyft verö 81*35 Leyft verö 25 *50
Grillkol 2Vi kg. I Stór safaríkur kryddaður og tílbúinn á grillið
ÍjO.50l Nauta-Hamborgari Q-^0
A^'oo ÍÁ Izrr I amhaframnarfar-^vefð 9()()
65.00 */2 kp Lambaframpartar
—-————— rw^r »! /■ niðursagaðir
2 stk. eldhusrullur I íyQl í
* QO kaffi aðeins / /.jU
?4M
5.45
pr.stk.
Leyft verö
31.75
Bananar
.90
Leyft verö
pr.kg.
12.60
4 rúllurWCpappír
^ cn 1.90 ^ iet*
/ #Z?U pr.stk. )tfbd°er
Nautagrillteinn 1 Q
Leyft verö 28.00
.80
pr.stk.
AUSTURSTRÆTI 17 STARMÝRI 2