Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 1

Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 1
Sunnudagur 9. ágúst 1981 Bls. 33—64 Fatnaður úr íslensku ullinni hefur átt vaxandi vinsældum að fagna i Evrópu og N-Ameríku. Söluaukning hefur verið stöðug undanfarin ár og gert er ráð fyrir að í ár verði aukning á sölu ullarfatnaðar 20—30% íslenskur ullarfatnadur er tískuvara erlendis Islenskur ullarfatnaður hefur vakið mikla athygli á erlendum mörkuðum á undanförnum árum og fara vinsældir hans vaxandi. Það sem einkum hefur verið talið íslenskum ullarfatnaði til gildis er auðvitað hráefnið sjálft, íslenska ullin. Hún sker sig úr annarri ull að því leyti, að hún sameinar eiginleika margra annarra ullartegunda. Vinnsla ullarinnar er líka sérstæð, einkum á vélprjónuðum fatnaði, en við gerð slíks fatnaðar er notuð hin svokallaða ýfingaraðferð, sem gefur fatnaðinum fallega og mjúka áferð. Fleira undirstrikar sérstæði íslenska ullarfatnaðarins eins og hönnun og litaval. Við hönnun er tekið mið af þjóðlegri hefð í munsturgerð og flíkurnar hafa nær eingöngu verið framleiddar í náttúrulegum litum, það er að segja íslensku sauðalitunum. Þegar verið er að ræða um hinar auknu vinsældir, sem íslenskur ullarfatnaður nýtur á erlendum mörkuðum, má einnig nefna hagnýtt gildi vörunnar. íslenskur ullarfatnaður er léttur og hlýr en oftast er hlýr klæðnaður settur í samband við þungan og fyrirferðarmikinn fatnað. Hann tekur vel á móti raka, án þess að hann verði blautur viðkomu. Þetta kemur sér vel, til dæmis ef menn svitna, þá tekur ullin á móti rakanum oglíkaminn helst þurr. Auk þess þá slitnar ullin seint og hægt er að halda ullarflíkum sem nýjum með burstun. Þessir þættir og fleiri til gera það aðverkum, að íslenskar ullarflíkur sig úr svipaðri vöru erlendis og gera markaðsöflun og sölu auðveldari. íslenska lopapeysan er bæði sérstæö og falleg. Opnaði hún markað fyrir íslenskar ullarvörur Lopapeysan er frá Hildu hf. Ljósm. Maria Guðmundsdóttir Hér er blandað saman vélprjónuöum og ofnum fatnaði á skemmtilegan hátt. Fatnaðurinn er frá Álafoss. Mestallur íslenski ullarfatnaðurinn er í náttúrulegum litum, það er að segja sauðalitunum. Fatnaðurinn er frá Alafoss. Ljósm. Maria Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.