Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 „Síðari hluta dags komum við til Vaihingen, sem voru svokallað- ar „Erholungslager" eða nánast „heilsu eða hressingarhæli" fyrir veika fanga. Búðirnar voru við þorpið Enz, um það bil 40 km frá Karlsruhe. Þegar við nálguðust og sáum umhvefi búðanna varð okkur ekki um sel. Ekki bætti úr skák að veðrið var þungbúið og umhverfið var forugt og Ijótt. Hér hittum við Sigurd Tangwa, sem hafði verið með í flutningunum frá Dautmergen og hér voru nokkrir sem höfðu verið með honum þar. Einstaka maður var hress í bragði og gaf í skyn, að búðirnar væru harla góðar. Engin vinna fyrir sjúka og auðvelt að komast í sjúkrabragga. Matar- skammturinn var eins og annars staðar. Þeir fangar sem höfðu verið hér lengst voru 2000 Gyð- ingar, þeir einu sem eftir lifðu af 32 þúsund Gyðingum úr gettóinu Random. Það var hörgull á vinnu- krafti í Þýzkalandi, þegar hér var komið sögu og varð til þess að þeir sluppu víð að lenda í gasklefunum. Þeir áttu að taka þátt í að reisa stóra neðanjarðarverksmiðju. En eftir því sem þrengdist um Þjóð- verja, var hætt við verkið. Við vorum settir í bragga í útjaðri búðanna. Braggarnir voru eins og svínastíur. Jottit settist uppgefinn á kantinn á kojunni og horfði tómlátlega fram fyrir sig. Við höfðum búizt við að komast á skárri stað en Dautmergen var, en það benti fæst til þess. Eg minnist sérstaklega viðbragða Jottits vegna þess að hann hafði verið óþreytandi að telja í okkur kjark í sárum og vondum þrengingum — alltaf hélt hann skapsmunum í jafnvægi. Það var alltaf hægt að tala við hann. Hér var engu líkara en hann hefði gefizt upp og hann settist fjarri okkur, yrti ekki á neinn. Seinna lézt hann hér úr kröm og vosbúð. Imyndunarafl mitt hrökk ekki til að gera mér í hugarlund, að aðstæðurnar í nokkrum búðum gætu verið jafn ömurlegar og hér. Fangarnir sem við hittum litu út eins og þeir væru dánir. En þeir lifðu að nafninu til. Allt var tilgangslaust, skipti engu máli. Daginn eftir vorum við sendir í baðbraggann. Við vorum klæddir í tötra, rifna og slitna, fóðraða með umbúðapappír til að hlýja okkur. Öllu var kastað í einn haug. Það átti að sótthreinsa fötin en þau voru jafn uppfull af lús, þegar þau voru síðan afhent okkur. Við hlupum berir yfir portið og vorum reknir inn í sturtuherbergið, 20— 30 í einu. Það var gerð á okkur læknisskoðun. Læknarnir við búð- irnar voru flestir pólskir Gyðingar og reyndu margir eins og þeir gátu að sýna okkur vinsemd, þótt þeir hefðu ekki mikið upp á að bjóða, þar sem þeir höfðu t.d. nánast engin lyf eða slíkt. En Gyðingarn- ir sýndu ekkki hvað sízt okkur Norðmönnunum mikla velvild. Ég var úrskurðaður veikur og fékk rauðan lappa sem merki um að ég yrði fljótlega settur í sjúkrabragg- ann. Okkur var dreift um búðirn- ar, en við lentum þó nokkrir saman sem lengi höfðum þolað saman mótlæti, Kristian, Jottit, Odd, Fritz, Paulus og ég vorum saman í bragga tvö. Þvottaher- bergið var mjög frumstætt, svo að ekki sé fastar að orði kveðið, sama má segja um klósett og eldhús. Það er varla hægt að hugsa sér það klénna. Kojurnar voru hreint afleitar, en einhvern veginn verkaði breyt- ingin úr síðustu búðum þó þannig á okkur, að við sváfum vel fyrstu næturnar. Svo vorum við fluttir í sjúkrabraggann — þegar nógu margir höfðu dáið þar, það skild- um við seinna — og fengum furðu góðar móttökur. Hér voru all- sæmilegar kojur. Alf Grinderud og ég lágum saman í koju mánuð- um saman. Hér hittum við og ýmsa sem við þekktum, og fyrst í stað fannst okkur sem líðan okkar væri bærileg. Þetta var í lok nóvember 1944. En hér voru alltof fá ullarteppi. Klósettið var úti á ganginum og þvottaherbergi fyrir endanum. Við afhentum fatadruslurnar okkar þegar við vorum lagðir inn, en héldum nærfötum og skóm ef hægt var að kalla þessar pjötlur því nafni. Við reyndum að hag- ræða okkur í rúmunum. Hér áttum við að liggja tveir sjúkl- ingar og hér lágum við lengi. Matarskammtarnir voru örlítið skárri en í bragga tvö, en stöðugt var klipið af þeim. Það segir sig sjálft að við vorum þjáðir og kvaldir af stöðugri sultartilfinningu. Og þessi tilfinn- ing vandist aldrei. Hún stóð til loka fangabúðavistar okkar. Það leiddi óhjákvæmilega til þess að hvar við lágum þarna í fletunum, vorum við alltaf að tala um mat. Læknirinn sem leit til með okkur var viðmótsgóður og einnig SS-læknirinn sem leit inn öðru hverju. Við heyrðum að það myndu koma pakkar til okkar frá Svíþjóð og Danmörku og við norsku sjúklingarnir þarna, kom- um okkur saman um að láta eftirlitsmennina standa í þeirri trú, vegna þess að það styrkti stöðu okkar. Af og til voru fangar úrskurðað- ir frískir og varpað út úr sjúkra- bragganum. Við fengum Age Skogen til að gefa í skyn, að það yrði ekki langt þangað til pakk- arnir færu að streyma að og það dugði til að við fengum að liggja þarna og við stefndum að því að fá að vera þarna að minnsta kosti fram yfir jól. Jólin nálguðust og við lágum í kojunum okkar og ákváðum, að við ætluðum ekki að halda jólin hátíð- leg á neinn hátt að þessu sinni, heldur láta jóladagana líða hjá. Allir fundu það á sér, að það myndi verða of mikið átak ef við reyndum að minnast jólanna á einn eða annan hátt. Það barst til okkar lítið af fréttum og þær sem bárust voru oft ýktar. Öðru hverju — einkum á kyrrum nóttum heyrðum við fallbyssudrunur. Og á daginn flugu orrustuvélar bandamanna yfir. Þær komu allt- af á sama tíma, það lá við borð við gætum stillt klukkuna eftir þeim. Okkur skiidist fljótlega að Þjóð- verjar hefðu ekki lengur nein tök á að veita viðnám. En við vissum, að það kom fyrir að vörður skaut í bræði sinni af byssu upp í loftið, en það hafði ekkert að segja. Flugvélarnar flugu á brott. Það var ekki veitt nein mótstaða á nokkurn handa máta. Næturnar urðu langar og kald- ar. Veturinn gekk í garð og rúmbáknið okkar var hart. Við lágum þarna, aðhöfðumst ekkert í sljóleika okkar og kröm. Margir fengu legusár. Við vöknuðum snemma og það voru kveikt ljós í búðunum árla dags. Þeir sem höfðu þrótt til þess vöfðu um sig ullarteppunum og skjögruðu fram til að þvo sér. Þurrkuðu sér síðan með skyrtunni sinni, auðvitað voru hér engin handklæði í boði. Á hverjum morgni voru einhverjir látnir þegar hreyfing komst á. Á hverjum morgni fór eftirlitsmað- ur milli rúmanna og athugaði hverjir væru lifandi. Síðan voru líkin afklædd og dröslað í burtu. Meiri var nú sú viðhöfn ekki. Svo var gerð einhvers konar hrein- gerning og síðan fengum við kaldan kaffisopa eða súpu. Þeir sem höfðu getað sparað brauð- skattinn frá kvöldinu áður neyttu þess með. Síðan var ekkert, bara að leggj- ast út af og dorma. Stöku sinnum vorum við kallaðir upp og talning fór fram. Þeir sem smám saman urðu svo veikir og sljóir hættu að reyna að komast fram á salernið, gerðu þarfir sína í koppana í herbergjunum. Það var kalt inni, en þungt og mengað loft og ógerningur að ná samkomulagi um að hleypa inn hreinu Iofti. Og hér varð lúsaplágan erfiðari og erfiðari. Á nóttinni leituðum við okkur hlýju með því að vefja okkur í teppin. Og sem við lágum þarna fóru lýsnar á kreik. Við fundum þær fara í augun á okkur, inn í nasir og eyru. Aflúsunin á morgnana sem hver fangi fram- kvæmdi fyrir sig var endalaust verk. Maður gat talið sextíu eða áttatíu lýs á sér og marði sér til dægrastyttingar. Samt hafði mað- ur á tilfinningunni að lýsnar linntu ekki látunum. Sennilega Fangar í þrælkunarvinnu { Sachsenhausen. Ií.afli úr endurminning- um Trygve Brattelis, sem sat þrjú ár í fangabúðum nazista á stríðsárunum Bratteli. Myndin var tekin við upp- haf fangavistarinnar. sveltandi manna... „Samfélag sveltandi manna. þar sem samankomnir eru menn af öllu tagi, úr ólíkum stéttum þjóðfélagsins með mismunandi bakgrunn, menntun hvaðeina — slíkt samfélag hlýtur að vera áhugavert til íhugunar. Að minnsta kosti eftir á. Eitt af því sem maður skynjaði var hversu staða manns í venjulegu samfélagi ræður litlu um það, hvernig hann hegðar sér undir þeim kringumstæðum sem hér var um að ræða. Þar sem allir svelta. ÖUum er kalt. óþrif og viðbjóður. Fólk sem maður hefði ekki búizt við neinu sérstöku af gat verið seigast og hugrakkast við þcssar aðstæður. Og menn sem höfðu gegnt mikilvægum stöðum i þjóðfélaginu, nutu virðingar fyrir að vera sómakærir og duglegir, urðu næstum hjálparvana þegar þeir lentu inni í þessu samfélagi. Og í raun er ekki hægt að draga neinar linur. Þetta samfélag sem ég hrærðist í er engu líkt. Það gctur gert sterka menn að aumustu vesalingum, og ýmsir þeir sem ekkert virtust hafa til brunns að bera, stóðu upp úr og gátu talið kjark i meðbræður sína lengur en nokkur hefði getað ætlað. Víst er slíkt samfélag athyglisvert rannsóknarefni.“ Eitthvað á þessa leið kemst norski stjórnmálamaðurinn Trygve Bratteli, fyrrv. forsætisráð- herra, að orði i nýrri bók „Fange i Natt og Taake" sem er nýkomin út í Noregi. Þar segir hann frá þriggja ára fangabúðaveru sinni i aðskiljanlegum búðum nazista. Hann var handtekinn i Kristiansund þann 10. júní 1942 og fluttur þá til Vollan í Þrándheimi. Siðan áfram til Osló þann 12. júlí 1942 og var siðan fangi á Grini í rösklega hálft ár. Þann 3. maí var hann fluttur til Þýzkalands og settur i Sachsenhausen-búðirnar og i október sama ár til NN-búðanna i Vogesene. Af 504 norskum föngum sem komu til Natzweiler Iétust 237. Sumarið 1944 voru norsku fangarnir enn sendir til nýrra búða, um hríð til Dachau og þann 21. sept. til Dautmergen. Þá var öldungis farið að þynnast hópurinn. Nokkur hópur var siðan sendur til „endurhæfingabúðanna“ í Vaihingen. Trygve Bratteli skrifaði niður hjá sér ýmsar smáathugasemdir meðan hann sat i búðunum. Hann segir i formála bókarinnar: „Eftir vangaveltur var ég ákveðinn i að lifa ekki lifinu sem fyrrverandi fangi. Og hvernig átti ég að létta af mér þessum langvarandi og ofboðslegu áhrifum, sem ég hafði orðið fyrir?“ Sumarið 1979 hófst Bratteli handa með aðstoð Randi konu sinnar og byggði þá bæði á minnismiðunum frá búöavistinni og þvi sem hann hafði skrifað niður skömmu eftir að hann kom heim til Noregs. Hér fer á eftir kafli úr bókinni þar sem segir frá veru hans i siöustu búðunum, Vaihingen. Kaflinn er lauslega þýddur, verulega styttur og viða um endursögn að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.