Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 28

Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 FYlgstu með þessu ! ^arna slær HÚN EIGINMANN sinn með SKAFTPOTTI.” ásí er... ... að finna fyrir vor- komu á vetrarmorgni. TM R«g. U.S. Pat Off.—all rights reserved c 1981 Los Anoetes Tlmes Syndlcate Ég er báinn að beita báðum ormunum og hvað er þá til bragðs að taka? HÖGNI HREKKVÍSI ” EEK//" Dagstund með, kríunni á Garðaholti á Álf tanesi Sigurður Þorkelsson skrifar eftirfarandi hugleiðingu og lætur fylgja skemmtilega teikningu. sem hann hefur gert: Enn er þó nokkrar kríur eftir í varplöndum með unga sína, mis vel fleyga, en flestar hafa þó yfirgefið varpstöðvarnar með afkvæmi sín. Þegar íbúnum fækkar, fara dýr og fuglar, sem á ránum lifa, að sækja í byggðina af meira kappi. Bröndóttur köttur rýfur heimilis- friðinn og læðist um eins og hlébarði, berjandi rófunni og hverfur mér svo bak við stein, en kríurnar steypa sér niður að hon- um. Ég gerist forvitinn og fer að gæta að, hvað dvelji kisu. Stekkur hún þá undan steininum, þegar ég nálgast og stekkur í hendingskasti yfir holtið. Hafði lagst í leyni til þess að reyna á þolinmæði þeirra eldri og varkárni þeirra yngri. Hættan læðist ekki bara um á jörðu niðri, hún kemur líka svíf- andi hljóðalaust á vængjum breið- um. — Það er strekkingur, og kríurnar, sem sitja á jörðu niðri, snúa nefinu upp í vindinn, og þær sem á flugi eru, flögra líka upp í vindinn. Skugga ber á neðst í holtinu. Eins og óvinaflugvél, sem flýgur rétt við jörðu til þess að vera undir radargeislunum, þræðir svartbakurinn á sterkum vængjum móti vindi mishæðirnar í landslag- inu og á örskotsstund er allt afstaðið. Það verður einum færra í hópnum, sem heldur suður á bóg- inn. En það vinnast líka orrustur og varnarsigrar yfir kríubyggðinni. Rennileg krían fylgir fast á eftir óvininum og gerir sig líklega til þess að reka nefið í hann. Svart- bakurinn tekur sveiflu í loftinu til þess að forðast árásina, en í hita eltingaleiksins uggði hann ekki að sér. Fjögurra strengja raflína var í flugstefnunni, vængur snart streng og þessi stóri fugl snérist í loftinu og hlunkaðist til jarðar. Skömmu seinna flögraði hann niður að Garðakirkju. Hávaðinn í kríunni fékk mig til þess að líta upp. Ég sá smyril hækka ört flugið, en í kringum hann höfðu hnappast sjö kríur. Hátt í lofti tók svo smyrillinn stefnu á Hafnarfjörð og kríurnar fylgdu fast á eftir svo lengi sem ég mátti sjá. — Smyrill er óvinur, sem er til alls vís og öruggast að stugga sem lengst í burt. Af frásagnarbrotum þessum má sjá, að ekki er síður þörf á því í kríubyggð að vera á varðbergi og halda vöku sinni en í mannheim- um. En það er líka stund milli stríða, þegar sjórinn er gjöfull — færð björg í bú og sólað sig á steini og ungviðinu kennd flugtökin. Ekki er síður forvitnilegt að sjá, hvernig hreiðurstæðin eru misvalin. Sum hjónin velja sér bústað á mjúkri mosaþembu, önnur á gróðurlausum melnum. Fast við veginn við Garðaholtið teygir sig klapparhorn upp úr umhverfinu, og þar höfðu kríuhjón kosið að slá sér niður, og þarna áveðurs á klöppinni fast við umferð bíla og manna komu þau upp tveimur ungum. Þetta minnir óneitanlega á, að víða sýnist manni skilyrði ekki fýsileg til búsetu, en eitthvað er það, sem dregur og heldur í og veitir þá lífsfyllingu, sem þarf og vandlýst er í orðum. Krían kemur í þarann nokkrum dögum áður en hún fer upp á land, sagði mér bóndi á nesinu, sem einnig er í grásleppu. Já, krían er eitthvað árvisst og sjálfsagt, finnst okkur, en víða erum við að þrengja að varpstöðvum hennar. Of seint sjáum við, að sleppa hefði mátt úr einni raðhúsalengju og skilja eftir hektara lands svo að krían, þessi perla loftsins, haldi áfram að vera eitthvað sjálfsagt og árvisst í lífi okkar. — Krían er jákvæður fugl, jákvæð eins og sólin. Sigurður Þorkelsson - .. j K8*0 .1 j ■ f: Að aka slaufur og Þjónustu í símamálum Austfirðinga stórkostlega ábótavant Þjónustu í símamálum Austfirð- inga er stórkostlega ábótavant. Það er til skammar og svívirðingar, hvernig Póstur og Sími á Austur- landi þjónar viðskiptavinum sínum. Til dæmis hvernig þessi þjónusta fer nú síminnkandi á Reyðarfirði og Eskifirði, en símstöðvarnar þar eru lokaðar frá kl. 17 alla virka daga og alls ekkert opnar á laugardögum og sunnudögum. 1 dag er ekki hægt að semda símskeyti sem greiða á á númeri nema hringja í 06 í Reykja- vík, þetta er stór afturför frá handvirku afgreiðslunni, að minnsta kosti á Reyðarfirði þar sem hún var til sérstakrar fyrirmyndar alla daga áður fyrr. Hér áður voru þrjár og fjórar stúlkur við simaafgreiðslu, en nú er aðeins ein og þremur af fjórum vönum símakonum hefur verið sagt upp, þetta gæti ráðherra lagað, ef hann vaknaði til að fylgjast með þeim málum er undir hann heyra. Benda má á það að farmenn og síldarsjómenn, svo og aðrir sjófar- endur sem koma á þessa staði, þurfa að leita til einkaaðila til að fá brýnustu þjónustu í þessum efnum Þessu verður að kippa í lag strax, þetta er algerlega óþolandi ástand. Forráðamenn þjóðarinnar ættu ekki að minnast á landflótta frá landinu á meðan þeir standa að því að auka verðbólguna og stórminnka alla þjónustu frá því sem áður var. Ég efast ekki um að sveitarstjórnir á þessu svæði sem ég nefndi eru sammála mér í þessum efnum. Ég vil bæta því við að ég skora á ráðherra þann sem þessi mál heyra undir, að sjá um að endurráöin verði símastúlka, sem búin er að starfa í tæp 17 ár á símstöðinni á Reyðar- firði og er nú atvinnulaus. Hér er um að ræða Önnu Pálsdóttur. Full ástæða er til að endurráða hana enda segja allir sem til þekkja að algjört lágmark sé að hafðar séu tvær símastúlkur. Hún er bæði lipur og góður starfskraftur. Jóhann Þórólfsson. Bilstjón, sem skrifaði um um- ferðarþætti i dálka Velvakanda, hafði fleira að segja um það mál. Hann segir: Ekki er öllum ljóst hvernig á að aka um slaufur og rampa við brýrnar á Vesturlandsvegi. Ég veit dæmi þess að nýorðinn bíleig- andi fór alla leið inn á Höfða- bakka til að komast í Bifreiða- eftirlitið. Til allrar hamingju er nú lokið við gerð hinna miklu umferðar- mannvirkja í Kópavogi, í bili a.m.k. Meðan á gerð þeirra stóð voru umferðarleiðir bæði síbreyti- legar og mjög ruglingslegar. Vandfundinn mun vera sá bíl- stjóri, sem ekki einhvern tíma villtist í Kópavogi á þeim árum, ef heimamenn eru undanskildir. Enn í dag væri vel þeginn umferðar- þáttur er sýndi uppdrátt af þess- um mannvirkjum og útskýrði um- ferð um þau. Það er greinilegt að nóg efni væri í nokkra slíka fræðsluþætti. Rétt væri að hafa þá stutta og taka fyrir ákveðið takmarkað efni eða svæði á hverjum. Ekki þyrfti að einskorða þættina við Reykja- vík og nágrenni. Úti á landi eru einnig einstefnugötur og lokaðar götur. Við megum ekki gleyma því að á hverju ári taka hundruðir ung- menna ökupróf. Einnig má minna á að fólk utan af landi á oft erfitt með að rata um Reykjavík. Ég hef jafnvel heyrt getið um utanborg- arfólk, sem þorir ekki að aka í borginni. Þættir þessir, ef á kæm-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.