Morgunblaðið - 10.09.1981, Side 2

Morgunblaðið - 10.09.1981, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Sækja um frekari hækkun á benzíni 4,40 krónur renna beint til ríkisins SÁ MIKLI dráttur sem vard á því. art ríkisstjórnin tæki ákvoróun um aó heimila olíufcloKunum hækkun á henzínverói. hefur haft þaö í fór með sér. aó nú þejjar aðeins er vika liðin frá því benzínverð ha kkaði lÍKKur ný beiðni olíufé- laganna um hækkun fyrir Verð- latísráði. Það var 30. júlí sl., að olíufélögin Dali og fleiri snillingar KLAUSTURIIÓLAR halda sitt 85da listmunauppboð í kvöld að Ilótel Soku klukkan 8.30. I>ar verða 95 verk í boði eftir martta kunnustu listamenn þjóðarinnar otí einn útlendint; — ckki minni kall en Salvador Dali. Það er litÓKrafía af Picasso (49x65), sem Klausturhólar eru með í umboðs- sölu. Allar verða myndirnar til sýnis milli klukkan 13 ok 19 í dau á Ilótel Söfíu. Að frátöldum Dali má nefna „Úr vatnsgróðri" (55x46) — vatnslita- mynd eftir Ásgrím, „Hlöðutún" (23x17,5) eftir Snorra Arinbjarnar frá 1920, „Tveir trúðar" (25,5x30) svartkrítarmynd eftir Mugf?, og „Skip“ (11,5x17,5) blýantsteikningu Kjarvals frá Flensbort; 1906. sendu til Verðlagsstofnunar beiðni um að hækka benzínverð úr 6,85 krónum í 8,35 krónur, og var sú beiðni miðuð við þær benzínbirgðir, sem þá voru til í landinu, og miðað við áætlað gengissig upp á 3,57% á mánuði. Verðlagsráð skar þessa beiðni olíufélaganna niður í 7,85 krónur, sem ríkisstjórnin sam- þykkti á endanum, en í millitíðinni höfðu benzínbirgðirnar klárast og nýjar komnar til landsins, auk jtess, að gengi íslenzku krónunnar var fellt um 5%. Það virðist því, sem hið nýja benzínverð sé miðað við ansi skekktar forsendur. Á meðan hækkunarbeiðni olíufé- laganna lá óafgreidd í liðlega mánaðartíma, varð mikið út- streymi fjár úr innkaupajöfnun- arsjóði olíufélaganna, sem nú er neikvæður um 15,5 milljónir króna, en segja má að það sé raunveruleg skuld neytenda, sem kemur til borgunar síðar. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér renna 56% benzínverðsins beint í ríkiskassann í formi tolla og skatta, eða 4,40 krónur af 7,85 krónum. Innkaupsverð benzíns er 2,22 krónur af hverjum lítra, dreif- ingarkostnaður 86 aurar, tillag til innkaupajöfnunarreiknings 27 aur- ar og verðjöfnunargjald er 10 aurar af hverjum lítra. Sem fyrr segir eru opinberu gjöldin 4,40 krónur. Þar af er vegagjald 1,70 krónur, söluskattur 1,49 krónur og tollur 1,08 krónur, en þetta eru þrír stærstu liðirnir. Veiðum í Elliðaánum lauk klukkan 21 í ga-rkveldi. Veiðin í ánum hefur verið með tregara móti. eins «»g víðast hvar. en þó höfðu 1069 fiskar komið á land á hádcgi. I>á höfðu 2376 laxar gengið i gegnum teljarann. en það eru færri fiskar en oft áður. A myndinni má sjá veiðimann með morgunafiann og að baki honum fylgjast tveir aðrir með. Iljá þeim stcndur Magnús Sigurðsson. vciðivörður. I.iosm. Mhl. RAX (l.jósm. ÓI.K. MnxnúsMin) Nokkur ókyrrð var í bátalæginu í Elliðavogi síðdegis í gær og slitnaði þá einn hátur upp. en náðist án þess að hann skemmdist. Hetur fór en lögreglan taldi útlit fyrir á tímahili, en hátarnir þarna eru illa varðir fyrir misjöfnum haustveðrum. Ártún í Grýtubakkahreppi: Fjárhús og hlaða brunnu (■rrnivik. 9 soptemhor. ELDUR kom upp í fjárhúsi og hlöðu á ba-num Artúni í Grýtu- hakkahreppi í kvöld. en ekki er ljóst hve mikið tjónið hefur orðið. Eldsins varð vart um klukkan 20 og kom hingað slokkvibíll frá Akureyri. til aðstoðar slökkvilið- inu á Grenivík. Um klukkan 22.30 var slökkvi- starfi að mestu lokið, en mikill eldur var að Ártúni um tíma og sáust eldtungurnar allt til Greni- víkur, sem er í um 6 kílómetra fjarlægð, þrátt fyrir slydduél af norðaustan. Húsin að Ártúni eru 6 eða 7 ára gömul, en þar er myndarbýli. Talið er að einhverjar skepnur hafi verið í fjárhúsinu þegar eldurinn kom upp, en ekki er ljóst hvort tekist hefur að bjarga þeim. Fréttaritari Viðbótarsamningur undirritaður í gær: 50 þúsund tunnur af síld seldar Rússum „SAMNINGAR um fyrirframsölu á 50 þúsund tunnum af saltaðri Suðurlandssíld voru undirritaðir í Moskvu í gær. Gunnar Flóvenz undirritaði samninginn fyrir hönd Síldarútvegsnefndár við hina sovézku kaupendur, V/Pro- dintorg. Með þessum samningi er húið að semja um sölu á 150 þúsund tunnum af saltsíld til Rússlands í ár, cn i fyrra voru seldar þangað 160 þúsund tunn- ur. í samningnum, sem undir-' ritaður var í í Moskvu í gær, var samið um sama verð og í samningi þeim, sem gerður var á milli aðilanna úm mánaðamótin júlí/ ágúst. Einnig var nú samið um sömu tegundir og þá, en síldin verður á haust og vetrarvertíð 1981. Þessa dagana standa yfir við- ræður í Moskvu um framkvæmd viðskiptasamnings Islendinga og Sovétmanna, en 5 ára ramma- samningur var undirritaður í fyrra. Einnig er rætt um olíu- viðskipti landanna á næsta ári. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, hefur gengið erfiðlega til þessa að fá Rússa til að samþykkja viðbótarkaup á freðfiski, en margir mánuðir eru liðnir síðan lokið var við að framleiða upp í samninga á ákveðnum tegundum fyrir þetta ár. Varðandi samningaviðræður um kaup Rússa á lagmeti þá munu þau mál vera í biðstöðu. Prjónakomim sagt upp á Raufarhöfn HART er í ári hjá prjónaiðnaó- inum. Prjónastofan Utskálar á Raufarhöfn hf. hefur nú þegar sagt upp starfsliði sínu, átta kunum. — Það var ekki um annað að ræða, sagði Guðmund- ur Lúðvíksson framkvæmda- stjóri Útskála, uppsagnafrest- Valur Arnþórsson um fjárfestingar KEA: „Fjárfestum eins og við mögulega getum“ Miklar fjárfestingar KEA í sjávarútvegsfyrir- tækjum í Hrísey, Grímsey, á Dalvík og víðar _VID IIÖFUM. eftir því sem við höfum mogulcga getað. verið að fjárfesta í úrvinnslugrcinum I grundvallaratvinnuvegunum. Við höfum fjárfest mikið í sjávarút- vegsfyrirtækjum í Eyjafirði. svo sem á Davík. í Ilrísey og Grímsey.” sagði Valur Arnþórsson, stjórnar- formaður SIS og kaupfélagsstjóri á Akureyri m.a. í viðtali við Mbl. í gær. en hann var spurður, hvort Kaupfélag Eyfirðinga og nágrennis hefði fjárfest mikið að undanfornu. Aðspurður um, hvort SÍS væri stór hluthafi í eignum KEA á Akureyri sagði hann að svo væri ekki. „Það á ekkert í eignum Kaupfé- lags Eyfirðinga, en hins vegar eigum við þrjár verksmiðjur sameiginlega og allar nokkjrn veginn til helm- inga. Það eru Efnaverksmiðjan Sjöfn, Kaffibrennsla Akureyrar og Plasteinangrunin h.f.,“ sagði hann. Þá sagði Valur að stærsta fjár- festing KEA að undanförnu hefði verið í Mjóikurstöðinni sem vígð hefði verið fyrir ári. Þá hefði KEA tekið að sér sameiginlega skipaafgr- eiðslu fyrir Sambandsskip, Ríkisskip og Hafskip nýverið og keypt til þeirrar starfsemi vöruskemmu og togarabryggju. Þá tók KEA að sér rekstur matvörubúðar nýverið og sagði Valur um það mál: „Hér lagði einn kaupmaður niður starfsemi og bað okkur að yfirtaka búðina og var það gert þannig, að við keyptum af honum áhöldin, innréttingar og vörubirgðir, en leigjum af honum húsið og rekum þar matvöruverzlun. Kaupfélag verkamanna hefur einnig hætt starfsemi sinni hér á Akureyri og hefur það beðið um félagslega sameiningu við KEA. Það hefur ekki verið gengið frá neinu í því sam- bandi. Við fjárfestum mikið í sjávarút- vegsfyrirtækum og höfum, eftir því sem við höfum mögulega getað, verið að fjárfesta í úrvinnslugreinum grundvallaratvinnuveganna,“ sagði hann að lokum. urinn er tveir mánuðir, og ég hef ekki verkefni lengur en til 10. október. Við stoppuðum nú sex vikur í sumar. eins og fleiri, og byrjuðum aftur í lok ágúst. en það hefur ekkert ræst úr. Við seljum hverja flík, sem við látum frá okkur, með 10% af- slætti vegna erfiðleika stóru söluaðilanna, sem segjast tapa 20% á hverri seldri flík vegna óhágstæðs gengis. Það hefur nú oft áður verið verkefnaskortur í augsýn hjá okkur, en alltaf verið bjartara yfir þessu og meira líf. Ég er vondaufur núna um að þetta lagist. Samt er glæta, það bíða allir eftir því til hverra aðgerða stjórnvöld hyggjast grípa og á meðan reyna menn að gefast ekki alveg upp, en þetta hleður upp á sig. Það eru átta konur sem vinna í Útskálum núna, og það er nú býsna stórt prósent af verkakon- um á staðnum miðað við höfða- tölu, sagði Guðmundur Lúðvíks- son. Björn Grétar ólafsson Fórst í vinnuslysi MAÐURINN sem fórst í vinnu- slysi á Keflavíkurflugvelli á þriðjudag, hét Björn Grétar Ólafsson, til heimilis að Kirkju- braut 8 í Innri Njarðvík. Björn heitinn var fæddur 23. janúar 1934 og var því 47 ára að aldri þegar hann lést. Hann lætur eftir sig konu og þrjá syni. Opinn fundur sjálfstæðisfélaga á mánudag: Húsnæðismál - Eignaréttur Sjálfstæðisfélögin i Rcykjavík efna til opins fundar i Valhöll mánudaginn 14. septcmber nk. klukkan 20.30. Fundarefni vcrð- ur: Húsna-ðismál — Eignaréttur. Frummælendur verða Davíð Oddson og Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúar og Gunnar S. Björnsson, formaður Meistara- sambands byggingarmanna. Á fundinum verður rætt um þróun húsnæðismála í Reykjavík undanfarið og stefnu vinstri flokk- anna annars vegar og sjálfstæð- ismanna hins vegar í þessum málaflokki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.