Morgunblaðið - 10.09.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981
Heimsmeistaramót unglinga:
Góð frammistaða
Jóhanns
Hjartarsonar
Jóhann Hjartarson stóð sig
með stakri prýði í nýafstöðnu
heimsmeistaramóti unglinga
sem fram fór í Mexíkó. Hann
hlaut 8'A vinning og hafnaði í
4. -6. sæti ásamt Salov frá
Sovétríkjunum og Corral frá
Spáni. Því má bæta við að
Jóhann fékk hagstæðustu stiga-
töluna og því hlaut hann 4.
sætið.
Júgóslavinn Cvitan sigraði í
mótinu með því að leggja Hjort
frá Ástralíu að velli í síðustu
umferð, meðan skæðasti keppi-
nautur hans, Sovétmaðurinn
Ehlvest, varð að láta sér lynda
jafntefli gegn Corral frá Spáni.
Lokastaðan varð annars þessi:
1. Cvitan 10 'k v. 2. Ehlvest 10 v.
3. Short 9‘/í v. 4.—6. Jóhann,
Salov og Corral 8'/í v. .
Frammistöðu Jóhannes er ein-
hver sú besta sem Islendingur
hefur náð á heimsmeistaramóti
unglinga undir 20 ára aldri. Ekki
skyggir þar á að Jóhann tefldi
við 5 efstu menn mótsins og
gerði jafntefli við þá alla nema
Corral, sem hann tapaði fyrir.
Það var og eina tapskák Jóhanns
í mótinu.
Þar sem þegar hafa birst tvær
skákir Jóhanns úr þessu móti,
sér ofanritaður ekki ástæðu til
þess að bæta þar um betur. Þess
í stað koma hér tvær stuttar og
bráðskemmtilegar skákir, sem
báðar eru dæmigerðar fyrir við-
ureignir ungra og djarfra skák-
manna.
Ilvítt: O. Cvitan.
Svart: N. Short.
Drottningarindversk vörn.
I. d i - Rffi. 2. c4 - efi. 3. Rf3
- bfi. 4. a.3
Leikur Petrosjans, sem ávallt
nýtur hylli gegn hinni traustu
uppbyggingu þessarar varnar.
- c5
Vafalaust er þetta skarpasta
framhaldið eins og á daginn
kemur.
5. d5 - Bafi.
Leikið til þess að trufla liðs
skipan. Til dæmis eftir 6. e3 —
exd5, 7. cxd5 — Bxfl.
6. Dc2 — exd5. 7. cxd5 — Bb7.
Ef 7. - Rxd5? 8. De4+ - Re7,
9. Dxa8 og vinnur.
8. e4 — De7.
Short vill undir öllum kring-
umstæðum vinna peð, en það
reynist glæfralegt peðsrán.
9. Bd3 - Rxd5. 10. 0-0 - Rc7,
II. Rc3 - I)d8.
Short leitast við að ljúka
liðsskipan með því að opna Bf8
leið til e7. Það er erfitt að benda
á betri leið, en allar þessar
tilfærslur hjá svörtum gefa hvít-
um ráðrúm til sóknar.
12. Rd5! - Refi.
Ef 12. - Rxd5, 13. cxd5 -
Bxd5, 14. Be4 — Bc6, 15. Bg5 —
Be7, 16. Bxe7 - Dxe7, 17. Bxc6
ásamt Hel og vinnur.
13. Re5 - Rcfi. 14. Í4
Valdaður riddari á miðborðinu
er á við hálft peð segir í gömlum
fræðum, en nú á hvítur tvo
valdaða riddara á miðborðinu.
- Rxe5. 15. fxe5 - Be7, 16.
I)e2!
Cvitan hótar einfaldlega að
fara til h5 með drottninguna og
brjóta niður allar varnir svarts.
Short tekur þá ákvörðun að
halda sér sem fastast, enda
erfitt um vik að skapa gagnsókn.
- hfi. 17. Dh5 - Hf8,18. Bxhfi?
Cvitan hefur teflt vel fram að
þessum leik og átti nú að leika
18. b4! (frekar en 18. Bd2) og
svartur fær ekki ráðið við sókn á
báðum vængjum. Ef hann reynir
t.d. 18. - Bg5, 19. Bb2 - Bxd5,
20. exd5 - Be3+, 21. Khl - Rf4,
22. Hxf4 - Bxf4, 23. Hfl - Bg5,
24. d6 með hótunum e6! eða Bc4.
- gxhfi. 19. Hxf7 - 11x17, 20.
Ilfl - Rg5.
Sennilega hefur Cvitan að
eftir 21. h4 kemur Kf8, sem
heldur öllu á hreinu fyrir svart-
an t.d. 22. Dxh6+ - Kg8, 23. Rf6+
— Bxf6, 24. exf6 — Re6. Eða 23.
hxg5 — Bxd5, 24. exd5 — Hxfl+,
25. Kxfl — Df8+. Hvítur reynir
því aðra leið.
21. Bc4
Vörnin sem Short á nú er
einfaldlega að leika 21. — Db8!
og eftir 22. Hxf7 - Rxf7, 23.
Rf6+ - Kd8, 24. Dxf7 - Dxe5
vinnur svartur. En nú brást
Short og lék:
- Kf8?? 22. IIxf7 - Rxf7, 23.
Iiffi.
Gefið. Hvítur hótar máti á f7,
en Rf6 valdar e8-reitinn og því
verður svartur að leika 23. — d5,
en þá kemur 24. exd6 og tjaldið
fellur. (Athugasemdir eftir Inga
R. Jóhannsson.)
Hvítt: Whitehead
Bandaríkjunum.
Svart: Tempone Argentínu.
Enski leikurinn.
1. c4 - e5, 2. Rc3 - rcfi, 3. Rf3
- Rffi, 4. e3 - Bb4, 5. Dc2 -
Bxc3.
I fljótu bragði virðist þessi
leikur óeðlilegur þar sem biskup-
inn er látinn fyrir riddarann án
sýnilegrar ástæðu. Hugmyndin
að baki leiksins er að flýta
liðsskipan.
6. Dxc3 — De7, 7. a3 — d5.
I þessari stöðu lék Karpov 7.
- a5 á móti Friðrik á Möltu
1980.
8. b4 - d4. 9. Db3 - 0-0. 10. b5
- Rb8. 11. Db4 - Defi, 12. Dc5
(?)
Mjög hæpið peðsrán.
- Rbd7, 13. Dxc7 - a5! 14.
bxafi.
Eftir 15. a4 — He8 (15. — Re8,
16. Dd8 - Ref6, 17. Dc7 jafn-
tefli). 16. Ba3 — Dg4 hefur
svartur ágæt sóknarfæri fyrir
peðið.
- Hxafi. 15. Hbl - IIa8. 16. c5
Nú verður hvítur að súpa
seyðið af glæfralegu peðsráni
sem hófst með 12. leik.
- Da2! 17. Hb2 - Dal. 18. Kdl
- Dxa3. 19. Hc2 - Da4, 20. cfi
Hvítur er nánast varnarlaus.
Til dæmis 20. Bc4 getur svartur
valið um vinningsleiðir svo sem
20. — d3 ásamt e4 eða 20. —
Ha5, 21. d3 — Hxc5 ásamt b5
- Rd5! 21. Ddfi - Rb4, 22. Rel
- bxcfi, 23. exd4 — cxd4, 24.
Dxd4 - He8. 25. Bd3 - Rxd3!
26. Dxd3.
Ef 26. Dxa4 þá Rxf2 mát.
- Bafi
og hvítur gaf. (Athugasemdir
eftir Inga R. Jóhannsson.)
Mynd þessa tók Björn Guðmundsson í Ólafsvík og er hún af Fróða SH 15. Hann er nýkominn úr
Slippstöðinni á Akureyri þar sem hann var upphaflega smíðaður. Þar var byggt yfir hann og hvalbakur
hækkaður í leiðinni. Þá var einnig aðstaða löguð um borð og báturinn búinn undir reknetaveiðar.
Ríkisvaldið reynir að fela
læknasamningana til að
halda launum almennings niðri
- segir Kristján Thorlacius í forystugrein í blaði BSRB
„RÍKISVALDIÐ reynir að fela
þessar hækkanir eins og unnt
er, til að haida launum ai-
mennings niðri“ ssegir Krist-
ján Thorlacius, formaður
Bandaiags starfsmanna ríkis
og bæja, meðal annars í
forystugrein í síðasta töluhlaði
Ásgarðs, blaðs BSRB, og á þar
einkum við nýlega samninga
við iækna. „Því miður hafa
atvinnurekendasamtökin ekki
sýnt neinn' vott fórnfýsi til
úrbóta í efnahagsmálum'" seg-
ir Kristján einnig. „Og hæst
launuðu starfshóparnir í þjóð-
félaginu hafa bæði íyrr og
síðar — læknar nú nýlega —
knúið fram meiri launahækk-
anir en nokkrir aðrir á síðustu
NEFND sú er samgönguráðu-
neytið skipaði fyrr á árinu til að
kanna og gera tillögur að breyt-
ingum á ákvæðum hjörgunarlaga
um björgunarlaun og upphæð
björgunarlauna á sjó, hefur kom-
ið saman til fyrsta fundar, en
hann var haldinn á fimmtudag-
inn í síðustu viku. Þar voru
málin reifuð og kynnt, en síðan
mun ætlunin að nefndin hraði
störfum sínum. að því er Jónas
Ilaraldsson hjá Landssamhandi
ísl. útvegsmanna sagði i samtali
við Morgunhlaðið í gær. en hann
er cinn nefndarmanna, tilnefnd-
ur af LÍÚ.
Formaður nefndarinnar er
Kristinn Gunnarsson í samgöngu-
ráðuneytinu, en aðrir nefndar-
menn eru þeir Ólafur Walter
Stefánsson frá dómsmálaráðu-
neytinu, Guðmundur Hallvarðs-
son formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, Ingólfur Falsson for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
Vestfjarða-
mót í skák
VESTFJARÐAMÓT í skák
verður haldið dagana 11. til 13.
septemher í Bolungavík.
Teflt verður í opnum flokki,
unglingaflokki og barnaflokki.
Fyrsta umferð hefst klukkan 13
á föstudag.
árum.“ Þá samninga segir
formaður BSRB að ríkið vilji
fela til að geta betur haldið
launum almennings niðri.
í forystugrein Ásgarðs nefnir
formaður BSRB allmörg atriði,
sem hann segir að samtökin
hljóti að leggja megináherslu á
við næstu samningsgerð, og eru
þessi atriði helst:
• Haldið verði áfram að rétta
hlut hinna lægst launuðu.
• Samið verði um launahækkun
er dugi til að ná sama kaup-
mætti og eftir samningana
1977.
• Niðurstaða þeirra kjararann-
sókna, sem nú fer fram, verði
grundvöllur samræmingar
sambands íslands, Gunnar Felix-
son frá tryggingafélögunum, Þór-
hallur Hálfdanarson frá sjóslysa-
nefnd og Jónas Haraldsson sem
áður er nefndur.
Magnetics með
hljómleika í
Árseli í kvöld
HLJÓMSVEITIN Magnetics
heldur sína fyrstu hljómleika í
Félagsmiðstöðinni í Árseli í
kvöld, fimmtudag, og hefjast
hljómleikarnir klukkan 21.
Auk þessarar tveggja manna
hljómsveitar Jakobs Magnússonar
kemur Bubbi Morthens fram á
hljómleikunum. Hljómsveitin hef-
ur ýmsa aukahluti sér til aðstoðar
og hefur verið talað um „sjón-
varps- og rafgeymasýningu" í því
sambandi. Forstöðumaður hússins
minnir á, að pottablóm eru vel
þegin sem fyrr.
Leiðrétting
VILLA slæddist í frétt Mbl. í gær
um afhjúpun minnismerkis um
Mugg á Bíldudal. Hið rétta er að á
myndinni voru Eiríkur Thor-
steinsson og Guðmundur Elíasson
myndhöggvari. Mbl. biðst velvirð-
ingar á mistökunum.
launa og lagfæringar á launa-
flokkum.
• Tryggt verði með sérstökum
samningsákvæðum, að um-
saminn kaupmáttur haldist
samningstímabilið.
í greininni segir Kristján
Thorlacius enn fremur: „Það er
mikið áhyggjuefni, þegar gengið
er til samningaviðræðna við
ríkisvaldið, hversu oft það hefur
verið endurtekið, að rifta samn-
ingum með löggjöf eftir að þeir
hafa verið undirritaðir.
Óneitanlega skýtur það skökku
við, að setja þurfi fram kröfu sem
eitt af aðalatriðum væntanlegs
samnings að trygg ákvæði verði
sett í hann til að koma í veg fyrir
samningsrof ríkisvaldsins. Samt
verður ekki hjá þessu komist í
sambandi við vísitöluákvæði
samninga."
í lok greinarinnar segir for-
maður BSRB síðan: „Enginn get-
ur með sanngirni ætlast til þess,
að láglaunafólk stígi nú fram og
hreinlega bjóði fram fórnir, þeg-
ar þeir sem betur mega sín,
atvinnurekendur og aðrir, hamra
á kröfum sínum og ná þeim í
flestum tilfellum fram.“
Kuldajakkar
Vinsælu dönsku kulda-
jakkarnir aftur fáan-
legir.
VE RZLUNIN
GEísiPP
Nefnd karaiar breyting-
ar á björgunarlögum