Morgunblaðið - 10.09.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.09.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Klukkan hálf fjöRur um nóttina var fluRáhófnin ræst. Ilin kolsvarta nótt Afríku var svartari cn allt sem er svart. en það var ekki til setunnar hoðið, næsta vél Flugleiða írá Nigeríu til Jedda í Saudi-Arabíu skyldi af stað. eftir eina klukku stund. að ná í einn farminn enn af hólpnum píIaRrímum í síðari lotu piIasrímafluKsins með þúsundir NíReríumanna til horjíarinnar helRU, Mekka. I>etta var ferð númer 23 af 35 fcrðum sem farnar voru í einni beit í nætur or dajja liðlesa þrjár vikur. Að leggja ósköp á sig vegna Guðs síns Pílagrímaflugið er sérstakur kapítuli í flugsöjíunni, því oft minnir þetta flug fremur á eripa- Pílagrímaflug Flugleiða girðingum og er það ófögur sjón að koma þar inn, fnykur og allt á rúi og stúi. Sumir týnast og mörg dæmi eru um það að pílagrímar eru hreinlega hnepptir í þræla- hald af arabískum landeigendum. Vegabréfaskoðun í Arabíu er ákaflega ströng, hvort sem menn eru að fara inn í landið eða út úr því og það er alls ekki borðliggj- andi að sá sem hefur glatað vegabréfi sínu fái að fara úr landi. íslenzka flugfólkið hefur t.d. orðið vitni að því að gamalt fólk hefur verið skilið eftir í reiðileysi í Jedda vegabréfslaust. Það má telj- ast heppið að fá jafnvel eftir nokkra mánuði bráðabirgðaveg- abréf til að fara úr landi, en þá getur verið ennþá erfiðara að fá ferð til síns heimalands og margt af þessu fólki deyr drottni sínum í útlandinu úr hungri og vesaldómi. Það á enga möguleika. Jedda er merkileg borg, iðandi kvika viðskiptalífs sem um aldir hefur streymt með sama stíl. Þar gnæfir forneskjan yfir öllu, en Að lifa mestu hamingju sem jörðin getur látið í té Andlit úr hópi pilagríma. Rúnirnar eru munstur ákveðinna ættbálka, rist á ungabörn þannig að menn bera það ævilangt. flutninga en farþegaflutninga. Það fer að vísu mikið eftir því hvaða fólk er á ferðinni, en því er ekki að leyna að Nígeríumennirnir búa við talsvert önnur skilyrði en norrænir menn eiga að venjast og hreinlætisvitund þeirra á ekki djúpa hefð i fasi þeirra og fram- komu. Þeir spræna þar sem þeim dettur í hug og ganga örna sinna, og það þarf því stranga gæzlu um borð í flugvél ef ekki á að fara illa. Segja má að flugfre.vjurnar séu fyrst og fremst salernisverðir og kennarar þegar þetta annars ró- lynda og ágæta fólk er að leggja einhver ósköp á sig vegna Guðs síns. Þetta fólk kemur úr litlum þorpum þar sem það býr í strákof- um, stundar búskap í minni mæli en tómstundabændur á íslandi og hefur allt sitt lífsviðurværi af þessu lítilræði, oft æði stórar fjölskyldur. Það sækir vatn í vatnsból í flestum tilvikum, skolplagnir eru óþekkt fyrirbrigði eins og flest það sem hinn vest- ræni heimur býr við. Sammerkt er það að fólkið lifir sínu lífi, á sína drauma, gleði og tár. Þorri þess býr við harðræði, en samt virðist það eiga hamingju eins og hver annar. Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn er sá lífsstíll sem mestu ræður og menn fæðast og deyja inn í þá röð sem valdskipting samfélagsins hefur þróað í ald- anna rás. Þetta er vinnusamt fólk, en ekki til átaka, það hefur ekki þrek í slíkt af eðlislægum ástæðum, lifir í afmörkuðum heimi þröngsýni og fátæktar. Það unir við sitt en maður kemst skjótt að raun um að við getum ékki tekið afstöðu fyrir það, ekki einu sinni hugsað til þess, því bakgrunnurinn er svo allt annar. Okkar sannleikur getur að þeirra mati verið hin argasta synd. Hýbýli úr pappa- kössum og plastpokum A leiðinni á flugvöllinn ókum við fram á heimamenn með hafurtask sitt á leið á markaðinn, í myrkrinu. Við veginn var fjöldi vistarvera fólks sem bjó í pappa- kössum eða nokkrum plastpokum hnýttum saman. Þannig er þessi heimur og menn þrauka við það að lifa af. Það var auðséð að flugliðar Flugleiða nutu mikiljar virðingar á flugvellinum, enda þekktir fyrir lipurð við það fólk sem þarf að vinna með, úr hvaða átt sem það kemur og þessarar álfu fólk er óvant því að óviðkomandi fólk komi fram við það eins og mann- eskjur. Annars er það athygli vert hve Islendingar hafa áunnið sér merkilegan sess í flugsögu jarðar, þessarar aldar ævintýri. Það eru ugglaust fá lönd sem íslenskir flugmenn hafa ekki komið til og það er merkilegt að í þeim harða viðskiptaheimi sem flugið er, skuli íslendingar hafa unnið sér sess bæði í farþegaflugi og vöruflutn- ingaflugi. Þannig hefur tíminn gefið íslenskum flugmönnum háa einkunn fyrir öryggi og dugnað og íslenzkum flugfreyjum ekki lakari einkunn fyrir dugnað og Ijúfa framkomu í erfiðu starfi svo orð fer af. Hlýtur það að vera hag- stætt fyrir íslenzkan flugrekstur því flugfreyjur eru andlit hvers félags, helzti tengiliður við farþeg- ana. Skyndilega birti af degi og við vorum komin í 10 km hæð. Stefn- an var á Jedda. Og svo kemur að veizlunni Það var spjallað um heima og geima i flugstjórnarklefanum. Strákarnir rifjuðu upp nokkra góða og ekki stóð á kaffinu hjá stelpunum. Það var farið að spjalla um ferð pílagrímanna og Múhammeð spámanns. Ekki ætla ég að fja.Ha um hinar ýmsu reglur Koransins sem fylgismenn Mú- hammeðs færðu í letur skömmu eftir dauða hans árið 632. En eins og önnur höfuðtrúarbrögð skiptist Islam í margar greinar með tím- anum, þar sem hver grein hefur sína stefnu, en talið er að um áttundi hluti jarðarbúa séu Mú- hammeðstrúar eða milli 300 og 400 milljónir manna, liðlega 30 þjóða. En hvaða stefnu sem Mú- hammeðstrúarmenn fylgja er þeim öllum skylt að gera för sína til hinnar helgu borgar, Mekka, að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Þessi „fimmta stoð“ Islams hefur framar öllu öðru orðið tengiliður milli múselmanna hinnu ýmsu landa heims og engir aðrir en múselmenn mega taka þátt í Mekkaför né stíga fæti í borgina. Þegar pílagrímar hvaðanæva að nálgast hina helgu borg, finnst þeim þeir vera meðlimir einnar stórrar fjölskyldu. Þeir klæðast allir samskonar skikkju, hvítri og saumlausri, gæta kynferðislegs bindindis, skera hvorki hár sitt né skegg, gera engu dýri né jurt mein og munur þjóðernis, litar og stétt- ar hverfur að því er sagt er. Allir eru bræður. En það nægir ekki að koma til borgarinnar, taka verður þátt í helgiiðkunum og eru þrjár helztar. Um leið og pílagrímur kemur til Mekka skal hann hlaupa sjö sinnum umhverfis Kaba, þrisvar hratt og fjórum sinnum hægt og í hvert skipti sem hann fer framhjá svarta loftsteininum sem allt snýst um, á hann að nema staðar og kyssa hann eða snerta á annan hátt ef allt er í fári vegna þrengsla. Önnur athöfn sem boðin er, er hin svonefnda „litla píla- grímsför" þar sem menn skulu sjö sinnum spássera eftir dal einum milli hálsa hans, Safa og Marwa til minningar um það er Hagar leitaði vatns handa syni sínum Ismael og þá er komið að „miklu pílagrímsgöngunni" með því að halda á Arafatsléttu á Náðarfjalli og standa þar frá hádegi til sólarlags fyrir „augliti Guðs“ og er þetta hámark helgiathafnarinnar sem enginn má sleppa, því ella er för hans hjóm eitt. En þá er loksins komið að veizlunni og brottförin af Arafatsléttu er með miklum fögnuði. Hátíð er haldin næturlangt undir berum himni, fórnardýri er slátrað og síðan tekur við þriggja daga veizla. Þegar pílagrímur hefur þannig eftir kúnstarinnar reglum fullnað skyldu sína fyrir heimferð og öðlast sæmdarheitið hadsji eða helgifari, hefur hann lifað mestu hamingju sem getur hlotnast í lífinu. Ekki komast allir aftur heim En ekki er nú víst að allt sé eins einfalt og af er látið og ekki koma allir aftur. Þetta er erfið ferð og margt getur komið til. Pílagrím- urinn ferðast í hópferðabifreiðum til Mekka þar sem slegið er upp tjöldum á meðan dvalið er í hinni helgu borg í nokkrar vikur. Síðan er fólki aftur smalað til Jedda þar sem það er svo gott sem geymt í nútíminn hrópar á breytingar, byggingar og tækni og arabar hafa lagt kapp á að nýta olíuauð- inn í upbyggingu borga og bæja. Þeir auðugu ráða ferðinni og þeir eru þannig stemmdir af ef Kádilj- ákurinn þeirra verður benzínlaus þá skilja þeir hann eftir fyrir utan veg, vilja ekki eiga svona bíl sem verður benzínlaus, því það er miklu þægilegra að kaupa nýjan í næstu borg. Slatti af snjóplógum í snjóleysinu Hann gefur góða mynd af auð- legðinni i landinu, nýi flugvöllur- inn í Jedda. Hann er að vísu ekki notaður, því það var engin þörf fyrir hann í viðbót við annan nýjan völl. Mannvirkin standa auð og allar brautir, biðstæði flugvél- anna úr marmara og til þess að kóróna allt er stór bygging sem hýsir fjölda snjóplóga. Þessi flugvöllur var nefnilega pantaður frá Bandaríkjunum og eitt stykki flugvöllur með öllu frá Bandaríkj- unum þýðir 15 snjóplóga þótt það hafi reyndar ekki snjóað í Arabíu að minnsta kosti síðustu árþús- undin. Það má segja að hjá starfsliði Flugleiða í Jedda sé dvölin ein allsherjar næturvakt, því það gef- ast ekki margar kríurnar á milli þess sem hlaupið er í kampinn til þess að ræsa út liðlega 250 píla- gríma í nætu vél og vissara er að láta heldur of marga en of fáa búa sig til ferðar. Stundum þurfa strákarnir að fara eins og hrossa- brestir um búðirnar til þess að smala fólkinu og að auki eru alls kyns reddingar, sem væru lítið mál hér heima en eru mikið mál þar í landi. Stundum eiga ara- bísku hermennirnir í flugvallar-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.