Morgunblaðið - 10.09.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 10.09.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 13 Einn af flugstjórum Flugleiöa i hátiöarbúningi Nigeriumanna, Skúli Brynjólfur Steinþórsson. * Biðröö pilagríma við Flugleiðavél i Jedda. Unga fólkið byrjar fljótt að vinna, þvi fyrst og fremst er litið á þat sem starfskraft. Kristinn ræðir við Adamu sem leigði vélar Flugleiða i pilagrimaflugið. Nokkrar af flugfreyjum Flugleiða með fulla vél af pílagrimum. Frá vinstri: Halldóra, Vigdís, Jóhanna og Þóra. Matseld i búðum pilagrimanna, en eins og sjá má eru konurnar allar upp á gamla móðinn i þeim efnum. Kabab sem allt ferðalagið snýst i kring um. Tjaldbúðir pilagrima á Arafat-fjallinu. eftirlitinu til að teygja lopann og sýna vald sitt með því að láta vélarnar bíða fullskipaðar ferþeg- um svo klukkustundum skiptir í hitasvækjunni, en í slíkum tilfell- um hefur reynzt vel að eiga sopa af bjór eða einhverju slíku sem undirstrikar að forboðnu ávext- irnir þykja beztir. Eigendurnir vilja í farangursgeymsluna Þegar 250 pílagrímar eru komn- ir í röð við Flugleiðavélina í Jedda með allt sitt hafurtask væri nær- tækast að opna markað því slíkur er farangurinn og reyndar fer nú það orð af að ýmsir séu frekar í innkaupaleiðangri til Jedda en leit að hinu heilaga. Þetta blessaða fólk kann ekki á maskinur eins og flugvélar, stiga og slíkan óþarfa og komið hefur fyrir þegar farangurinn fer á færibandinu inn í vörgeymslu vélarinnar að eig- endur farangursins henda sér með, ætla ekki að láta taka frá sér aleiguna, afrakstur ferðarinnar og meira að segja hefur það komið fyrir að ungabarn reifað var komið inn í vörugeymslu flugvél- arinnar vegna asans í aröbunum við að lesta vélarnar og rífa af fólkinu pakka sem það vill taka með sér inn í vélarnar. Þetta fátæka Afríkufólk ber flest með sér góðan þokka, það er vingjarn- legt og þakklátt og það var hrikalegt að sjá hvernig arabarnir hrintu því og öskruðu á það. Þegar flugfreyjurnar voru hins vegar að kenna þessu fólki að nota salernin og toga það ofan af vöskum eða fyrirbyggja að það gerði sín stykki á gólfin, þá var eins og þær væru að fást við ungabörn, voru blíðar og þolinmóðar þótt einstaka orð á íslenzku hryti af annarri breidd- argráðu. En pílagrímaflug eru viðskipti og fólk er ekki eins alls staðar í heiminum. Alsírbúar eru snyrti- legt fólk til dæmis og sama er að segja um Indónesa, en blessaðir negrarnir eru af öðru sauðahúsi og ekki sanngjarnt að segja neitt annað þótt þeir séu ugglaust ekki síðri manneskjur en hver annar og víst er að það er ekki magnið af hverjum og einum sem skiptir máli, heldur gæðin. Það er staðreynd að pílagrím- aflugið er þekking sem segja má að sé eins konar útflutningsvara frá Islandi og sama er að segja um margs konar verkefni sem Islend- ingar annazt í flugi víða um heim. Þetta eru ef til vill ekki óskaverk- efni miðað við allt og allt, en verkefni sem nýta vélar og skila tekjum og til þess er leikurinn gerður. Islendingar þykja traustir að semja við á þessum vettvangi og það var skemmtilegt að sjá heimamenn í þessum viðskiptum á hverjum stað dást að íslenzku starfsmönnunum fyrir hæfni og vinarþel í garð fólks sem fremur er vant þótta þeirra sem telja sig æðri í mannvirðingum samfélags- ins. Útræði Það var oft spaugilegt að sjá pílagrímana sitja með jafnvel sjónvörp í fanginu, útvörp, koppa og kirnur og það vinsælasta voru gríðarstórir, rósóttir kaffibrúsar. Þeir voru á heimleið úr helgri för með sitthvað til gagns og gamans og um nokkurt árabil hafa Flug- leiðir brugðið sér á þessa vertíð eins og þeir vertíðarmenn víða af íslandi sem fóru frá sínum heima- byggðum um tíma til sjós í verstöðvum þar sem vinnu var að fá, en þótt vinna flugliðanna sé ekki svo ýkja strembin er biðin nær undantekningalaust löng í hita og enn meiri hita og við allt annan og verri aðbúnað en fólk er vant og slíkt er þreytandi. Margt gerist líka til og í nokkr- um tilfellum hafa konur í hópi pílagríma fætt börn um borð í flugvélum, en barnsburður í píla- grímaför þykir mikið hamingju- merki og þar fyrir utan hefur viðkomandi fjölskylda slegið tvær flugur í einu höggi, eignast tvo helgifara út á einn í þeirri miklu törn sem pílagrímaflutningarnir eru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.