Morgunblaðið - 10.09.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981
29
Guðjón B. Baldvinsson:
Hvernig á að
byggja yfir aldraða?
Húsaskjól er ein af frumþörfum
mannsins. Ekki bara á barnsaldri
og manndómsárum heldur líka
þegar aldur færist yfir og kannski
ekki síst þá. Þrátt fyrir allt góðæri
og ágætan kaupmátt undir hvaða
ríkisstjórn sem er eða hefur verið
þá er til eldra fólk, sem býr í
ófullnægjandi húsnæði. En það er
líka til eldra fólk, sem býr í
stórum og góðum íbúðum, sem
byggðar voru yfir fjölskyldu á
sínum tíma. Nú eru gömlu hjónin
orðin ein eftir eða kannski bara
annað þeirra. Viðhald og þrif eru
erfið, fasteignagjöld veruleg upp-
hæð, fjárhagurinn leyfir ekki að
búa „svona stórt".
Á að veita þessu fólki viðeigandi
aðstoð? Og þá með hvaða hætti?
Ætli nokkur telji óeðlilegt að
„hannaðar" séu íbúðir með „sér-
þarfir" aldraðra fyrir augum?
Hvað um staðsetningu þeirra og
fjármögnun? Er ekki vaknaður
góður skilningur á því að vafa-
samt sé að draga fólk í dilka eftir
aldri, atvinnu eða stétt? E.t.v. ekki
nægilegur en þó nokkuð margir
hafa látið í ljósi þá skoðun að
eðlilegt sé að íbúðir þeirra öldruðu
séu innanum eða samanvið íbúðir
annarra. Þ.e. ekki sé byggt sér-
hverfi fyrir eldra fólk.
Staðsetningu íbúða yrði þá
þannig hagað að þær yrðu í
Kommúnistasamtökin og Alþýðuflokkurinn:
Viðræður um sam-
eru ekki hafnar
euungu
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing frá
Kommúnistasamtökunum vegna
umræðna. sem orðið hafa undan-
farið um hugsanlega sameiningu
samtakanna og Alþýðuflokksins:
Að gefnu tilefni vill stjórn
Kommúnistasamtakanna taka
fram eftirfarandi:
Kommúnistasamtökin eru
marx-lenínísk og byltingarsinnuð
samtök sem hafna sovéska kerfinu
sem sósíalisma og líta á Alþýðu-
flokkinn og Alþýðubandalagið
sem borgaralega umbótaflokka.
Samtökin hafa ekki talið sér
kleift aö vinna innan íslensku
stjórnmálaflokkanna, bæði vegna
stefnu þeirra og skipulags.
í sumar báðu þeir Vilmundur
Gylfason og Jón Baldvin Hanni-
balsson um óformlegan fund með
Ara Trausta Guðmundssyni, ein-
um talsmanni Kommúnistasam-
takanna. Þar lýstu þeir tillögum
nefndar um breytingar á skipulagi
Alþýðuflokksins og gáfu til kynna
að þær gætu opnað kommúnistum
leið til þess að starfa í flokksfélagi
innan Alþýðuflokksins. Hér var
hvorki um formlegt tilboð að ræða
eða beiðni og fylgdu ekki fleiri
fundir í kjölfarið.
Ari Trausti Guðmundsson taldi
hugmyndirnar umræðu verðar
innan sinna samtaka og sagðist
myndu taka málið upp við fyrsta
hentuga tækifæri. Skipulegar um-
ræður Kommúnistasamtakanna
eru ekki hafnar, og niðurstöður
því engar til. Fyrr en þær eru
ljósar er ekki tilefni til funda með
einum eða öðrum úr Alþýðuflokki
um inngöngu Kommúnistasam-
takanna í flokkinn. Ekki er heldur
ástæða til að gefa sér niðurstöður
umræðna kommúnista fyrirfram
eða álíta viðræður um sameiningu
Kommúnistasamtakanna og Ál-
þýðuflokksins hafnar.
Fundir þeir með Kommúnista-
samtökunum sem Jón Baldvin
Hannibalsson nefndi í útvarpsvið-
tali 5. sept. sl. voru tveir opnir
umræðufundir haustið 1980. Var
Jóni boðið þangað ásamt tals-
mönnum annarra flokka og ein-
staklingum. Að sjálfsögðu eru
engin tengsl milli þessara funda
og máls þess sem fjölmiðlar gera
sér nú mat úr, nema hvað þar kom
í ljós að Alþýðuflokkur og Komm-
únistasamtökin eiga sér fáein
sameiginleg stefnumið, ekki síður
en aðrir flokkar, t.d. Alþýðu-
bandalagið og Kommúnistasam-
tökin.
Kommúnistasamtökin líta á
samvinnu við aðra flokka eða
starf innan þeirra sem taktískt
vandamál og munu ákvarða af-
stöðu sína varðandi Alþýðuflokk-
inn í tíma.
Stjórn Kommúnistasamtakanna
pr. Arnór Sighvatsson,
Ari Trausti Guðmundsson.
íbúðahverfi ásamt venjulegum
íbúðarhúsum einstaklinga, en þess
gætt að bílaumferð um hverfið
yrði mjög takmörkuð, skammt að
sækja til matvöruverslana og á
biðstöð almenningsvagna. Dag-
vistarheimili í nágrenni og félags-
leg aðstaða, í því sambandi skal
einkum minnt á aðstöðu til fönd-
urs og starfsaðstöðu er hentaði
þessum aldursflokki.
Fjármögnun má hugsa sér t.d.
með þessum hætti: eðlilegt fram-
lag einstaklinga þeirra er fyrst
flyttu inn í hús þessi eða íbúðir.
Færi það að sjálfsögðu eftir getu,
en sennilega ekki hærra en 20—
25%' byggingarkostnaðar frá
þeim, sem seldu íbúðir. Lífeyris-
sjóðir og sveitarfélög legðu síðan
fram það sem á vantaði.
Eignaraðild yrði þeirra lífeyr-
issjóða og sveitarfélaga, sem legöu
fram byggingarkostnaðinn, og
þessar íbúðir eða hús yrðu aldrei
til sölu á frjálsum markaði, heldur
til ráðstöfunar handa þeim sem
hefðu náð eftirlaunaaldri — eða
nytu örorkulífeyris — og þörf
hefðu fyrir íbúðir, verndaðar með
ofangreindum hætti.
Framlag einstaklinga yrði
endurgreitt samkv. gildandi bygg-
ingarvísitölu á hverjum tíma og
eftir mati endurbóta að frádreg-
inni fyrningu, allt miðað við
eignarhlutfall. Stjórn svona bygg-
ingarfyrirtækis má hugsa sér að
yrði skipuð af þeim aðilum, sem
fjármagna fyrirtækið, þ.e. full-
trúum sveitarfélags, lífeyrissjóða
og félagssamtaka aldraðra. Um-
ræður um mál þetta ættu að fara
fram milli þeirra aðila, sem hér
hafa verið nefndir án þess að
stjórnmálaflokkar berjist um á
hæl og hnakka við að eigna sér
framtakið. Eldra fólk ver atkvæð-
um sínum nefnilega eftir geðþótta
sinum til hinna ýmsu flokka.
Guðjón B. Baldvinsson
Fyrirlestrar
fluttir í kvöld
ARNE Thorsteinsson þjóðminja-
vörður Færeyja og Jóan Pauli
Joensen safnvörður flytja í kvöld
fyrirlestra um færeyska menning-
arsögu. Fyrirlestrarnir hefjast
klukkan 20.30 í Norræna húsinu
og verða fluttir á dönsku. I Mbl. í
gær misritaðist að fyrirlestrarnir
hefðu átt að vera í gærkvöldi.
Fyrstu göngur í
Grafarlönd og
Herðubreiðarlindir
7. septrmher. Mývatnssveit.
IIÉR hefur verið kalt undan-
farna daga og na'turfrost. í dag
hefur gengið á með slydduéljum.
f gærmorgun var grátt alvcg
niður í byggð. Farið var i fyrstu
göngur á bílum í gær í Grafar-
lönd og Ilerðubreiðarlindir.
Frekar var tafsamt með leiðinni
suður með Jökulsá vegna dimm-
viðris og þæfingsfæri af völdum
snjós. Þó mættum við tveimur
bílum sem voru að koma úr Öskju
og höfðu gist yfir nóttina í Dreka-
gili og töldu þeir snjóinn heldur
fara vaxandi suður. Er á daginn
leið birti til svo leitarveður varð
allgott. Alls fundust 63 kindur á
þessum leitarsvæðum, þar af var
ein ær frá Brú á Jökuldal.
Komið var með þetta fé hingað
til byggða í gærkvöldi. Fyrstu
göngur fara nú að hefjast í önnur
leitarsvæði hér. Fimmtudaginn
10. sept. verður farið í Austuraf-
rétt og réttað í Reykjahlíðarrétt
laugardaginn 12. sept.
Kristján
m móttökumælir. P'ötuspilari.
^ _______________________________________________________
I U m '
• LM. MW
og FM bylgjur.
mDOLBY
fyrir betri
upptokur.
# Útgangsorka
2x20 SINUS Wött ______
v/4 Ohm. »■ . ......
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó samstæöa
meö hátalara, í,,silfur“ '
eöa ,,brons“ útliti.
Breidd 390 mm Hæð 746 mm / 373 mm. Dýpt 330 mm
/
/A'
#/
áfíL. HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
^f LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
SHARP CP-1H/HB: • Rafeinda A1ETAL
Hatalarar, bassa og diskant styrkmæiir stming fyrir metai
25 Watta í „silfur" eöa kassettur
„brons“ útliti. Allt settið, verö kr.:
Breidd 220 mrn Hæð 373 mm Dýp, J8 3 mm 6.320.00.
IITSALA- LEIKFÖNG
Útsölustaðir: Karnabær Glæsibæ —
Fataval Keflavík — Portið Akranesi —
Eplið Isafirði— Álfhóll Siglufirði —
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði —
Eyjabær Vestmannaeyjum — M M h/f. Selfossi.
40% afsláttur í 4 daga. Notið þetta einstæða
tækifæri til aö gleðja yngstu kynslóðina.
Aðeins þessa viku.
Leikfangaver,
Klapparstíg 40, sími 12631.