Morgunblaðið - 10.09.1981, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981
Móöir okkar,
ÓLÍNA EYJÓLFSDÓTTIR,
Stórholti 12, Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 8. sept.
Börn hinnar látnu.
Maðurinn minn.
ASMUNDURHANNESSON,
Birkivöllum 2, Selfossi,
lést 8. sept. í Sjúkrahúsi Selfoss.
Elín Jónsdóttir.
t
Faöir okkar,
ODDURJÓNSSON,
Fagradal,
lést á Hrafnistu 28. ágúst.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey, aö ósk hins látna.
Síguröur Oddsson,
Hólmfríöur Oddsdóttir,
Halldóra Oddsdóttir,
Jón Oddsson,
barnabörn, barnabarnabörn.
t
Móöir okkar og fósturmóöir,
KARÓLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
vefnaöarkona,
Asvallagötu 10 A,
veröur jarösungin frá Neskirkju föstudaginn 11. sept. kl. 13.30.
Jóhannes Einarsson,
Guómundur Einarsson,
Guörún Þóröardóttir.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur okkar og tengdamóöur,
HENDRIKKU OLAFSDOTTUR FINSEN,
Laugarbraut 3, Akranesi,
sem andaöist 4. þessa mánaöar, verður gerö frá Akraneskirkju
laugardaginn 12. september kl. 13.30.
Jón Sigmundsson,
Garóar S. Jónsson,
Kristín H. Jónsdóttir, Höröur A. Sumarliöason,
Ólafur I. Jónsson, Helga Guömundsdóttir.
t
Móöir okkar,
OLGA D. SVEINSSON,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. þ.m. kl.
15.00.
Blóm eru afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
aö láta góögeröarstofnanir njóta þess.
Sigrún Sveinsson-Mir, Sveinn Torfi Sveinsson.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐLAUG JÓHANNESDÓTTIR
dömuklæöskerí,
Ljósheimum 22,
sem andaöist 3. sept. í Borgarspítalanum, veröur jarösungin frá
Fossvogskirkju 11. sept. kl. 16.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Hjartavernd.
Vióar Hjálmtýsson, Frióa Einarsdóttir,
Reynir Gunnar Hjálmtýsson, Anna Charlesdóttir,
Jensina Hjálmtýsdóttir, Jón Þ. Einarsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda vináttu
og samúö viö andlát og útför
SVEINS GUÐMUNDSSONAR
frá Vestmannaeyjum.
Unnur Pálsdóttir,
Ásdís Sveinsdóttir, Aöalheióur Sveinsdóttir.
Garðar Sveinsson, Lára Agústsdóttir,
Lilja Sveinsdóttir, Hjörtur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hildur Hjaltadóttir
Ijósmóðir - Minning
Fædd 22. júlí 1909.
Dáin 29. september 1981.
í dag verður minningarathöfn í
Dómkirkjunni í Reykjavík um
tengdamóður mína, Hildi Hjalta-
dóttur.
Hún fæddist að Folafæti, Súða-
víkurhreppi þann 22. júlí 1909.
Foreldrar hennar voru þau Hjalti
Einarsson Hálfdánarsonar í
Hvítanesi og Sigurborg Þórðar-
dóttir Sigurðssonar í Hestfjarð-
arkoti og áttu þau fimm önnur
börn.
Hildur missti móður sína árs-
gömul og fór þá í fóstur að Skarði
í Ögurhreppi til föðursystkina
sinna, Helga Guðjóns Einarssonar
og Ólafar Svanhildar Einarsdótt-
ur. Helgi Guðjón var orðinn
ekkjumaður og ólst Hildur upp
með dætrum hans tveim og fleiri
fóstursystkinum.
Hildur átti bjartar minningar
frá brenskuárum sínum á því
myndarheimili sem Skarð var.
Þegar Hildur óx úr grasi var hún
hvött til að afla sér menntunar og
fór þá fyrst í Húsmæðraskólann á
Blönduósi, sem þótti góður undir-
búningur fyrir lífsstarf kvenna í
þá daga. Ari seinna, 1929, fór hún
svo til Reykjavíkur, þar sem hún
dvaldi fyrst við hússtörf á heimili
frænda síns, Jóns biskups Helga-
sonar, og fjölskyldu hans í Tjarn-
argötunni, en settist síðan í
Ljósmæðraskóla Islands, þaðan
sem hún lauk prófi 1932.
Á þessum árum unnu ljós-
mæðranemar alla daga, án þess að
fá frí, en Hildur valdist til þess
ásamt öðrum nema að ganga á
fund Guðmundar Thoroddsens
yfirlæknis og fara fram á að
nemarnir fengju einn frídag í
viku. Var því ljúfmannlega tekið
og þótti mikil bót að. Að námi
loknu fór Hildur aftur vestur, þar
sem hún hóf ljósmóðurstörf.
Árið 1935 giftist Hildur Samúel
Guðmundssyni bónda á Hrafna-
björgum í Laugardal, Ögurhreppi.
Börn þeirra urðu átta talsins og
eru þau þessi:
Sigurjón, bóndi, f. 1936, Helgi
Guðjón, verkfræðingur, f. 1937,
kvæntur Helgu Pálmadóttur, Guð-
mundur Sigurður, húsasmiður, f.
1941, kvæntur Guðrúnu Jóhannes-
dóttur, Sigurbjörn, húsasmiður, f.
1943, kvæntur Önnu Lise Michel-
sen, Ólöf Svana, deildarstjóri, f.
1944, Hjalti Sigurvin, vélsmiður, f.
1945, kvæntur Ásdísi Ragnars-
dóttur, Hrafnhildur, húsmóðir, f.
1947, gift Jósef Vernharðssyni, og
Ásdís, húsmóðir, f. 1950, gift
Össuri Sig. Stefánssyni.
Strax á fyrstu búskaparárum
sinum réðust ungu hjónin í að
byKííja sér nýtt hús. Var það úr
steinsteypu og þótti í mikið ráðist
einkum þar sem torfbær var fyrir
á jörðinni. Sagði tengdamóðir mín
mér, að það hefði verið Vilmundur
Jónsson, síðar landlæknir, sem
hvatti þau óspart til að hefjast
handa og sækja um byggingalán,
sem þau fengu eflaust fyrir hans
góðu orð og stóð það að drjúgum
hluta undir framkvæmdum, en
árslaun ljósmóðurinnar munu
hafa dugað fyrir afborgunum af
láninu. Á því má sjá að ekki hafa
launin fyrir hin erfiðu störf ljós-
móður í dreifðri vestfirskri byggð
verið ýkja há í þá daga, en Hildur
+ '
Jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
RAGNARS GRÍMSSONAR,
Rjúpufelli 44, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. sept. kl. 10.30.
Björg Aöalsteinsdóttir,
Agústa Ragnarsdóttir,
Guðbjörg Osk Ragnarsdóttir,
Viktoría Eyrún Ragnarsdóttir, Högni Högnason,
Sigríóur Ragnarsdóttir, Sigurþór Sigurþórsson,
Lílja Ester Ragnarsdóttir, Andrés Einarsson,
Jón Birgir Ragnarsson, Helga Reynaldsdóttir,
Þorgerður Eínarsdóttir, Helgi Jónatansson
og barnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
útför eiginmanns míns og fööur okkar,
ÓLAFS ÞORSTEINSSONAR,
Smáragrund 9, Sauöárkróki.
Kristín Jóhannsdóttir og börn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
JÓNÍNU KRISTÍNU BENEDIKTSDÓTTUR,
Fríðarstööum, Hverageröi.
María Jóhannsdóttir, Óskar Valdórsson,
Sigríöur Jóhannsdóttir, Björn Sigurösson,
Alfheiöur Jóhannsdóttir, Sæmundur Jónsson,
Ármann Jóhannsson, Jóhanna Sólmundsdóttír,
. barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu, viö andlát og útför
EINARS B. JÚLÍUSSONAR,
Bakkatúni 24, Akranesi.
Sérstaklega þökkum viö öllum starfsfélögum hans.
Ragnheiöur
Erna Einarsdóttir,
Gunnar Júlíusson,
Guömundur Júlíusson,
Júlíus Júlíusson,
Fríða Júlíusdóttir,
Valur Júlíusson
og barnabörn.
Björnsdóttir,
Guöbjartur Björgvinsson,
Anna Daníelsdóttir,
Björg Benediktsdóttir,
Jónína Þorsteinsdóttir,
Erling Klemens,
talaði aldrei um það, heldur hvílík
búbót hefði að þeim verið.
Mörg voru börnin, sem Hildur
tók á móti á 30 ára ljósmóðurferli.
Þurfti hún oft að hafa hraðan á, er
hún geystist af stað til hjálpar
sængurkonum, ýmist á hestbaki, á
sjó eða fótgangandi, með töskuna
sína yfir fjöll og firnindi í mis-
jöfnum veðrum.
Jafnframt fjölgaði hjá henni
sjálfri. Ekki náðist í ljósmóður
nema þrisvar sinnum, til að að-
stoða við hennar eigin fæðingar og
lét Hildur' Hjaltadóttir sig ekki
muna um að taka sjálf á móti
fimm af átta börnum sínum með
aðstoð manns síns, en er næstelsta
barnið, Helgi, fæddist, var faðir-
inn á leið að sækja ljósmóður og
tók hún því á móti honum að öllu
leyti sjálf.
Samúel og Hildur voru mjög
samhent við að byggja upp jörðina
sína. Breyttu þau þýfi í tún með
frumstæðum verkfærum eins og
þá gerðist. Erfitt var um aðföng
og voru allar landbúnaðarafurðir
unnar heima. Á sumrum fékkst
silungur úr Laugadalsvatni og var
hann óspart nýttur.
Allan fatnað á barnahópinn
vann Hildur einnig heima, t.d.
allan prjónafatnað, en hún kom
sér snemma upp prjónavél. Allt
þetta var að sjálfsögðu unnið
jafnframt ljósmóðurstörfum í
tveim hreppum. Mér, nútímakon-
unni, er gjörsamlega fyrirmunað
að skilja hvernig konum eins og
tengdamóður minni entist sólar-
hringurinn til þess að afkasta öllu
því, sem hún gerði, enda gat hún
aldrei lagt niður þá rótgrónu
venju sína að fara á fætur kl. 5 eða
6 að morgni. Það gerði hún fyrr á
árum til þess að geta unnið svo
sem eins og tvær stundir í næði
áður en börnin vöknuðu.
Hildur átti um skeið við mikil
veikindi að stríða og þurfti hún að
yfirgefa heimilið til þess að ganga
undir skurðaðgerð. Hún fékk fulla
lækningu á sjúkdómi sínum, en
það má nærri geta að þetta
erfiðleikatímabil var henni og
ekki síður manni hennar mikil
reynsla.
Eftir þetta gakk lífið á Hrafna-
björgum aftur sinn vanagang til
ársins 1958, er húsbóndinn féll frá
langt um aldur fram. Eins og oft
vill verða, urðu vinir og vanda-
menn til að rétta hjálparhönd
bæði í veikindum Hildar og einnig
er hún missti mann sinn. Aldrei
fannst henni hún fá því góða fólki
fullþakkað.
Tveim árum eftir að Hildur
varð ekkja, brá hún búi og fluttist
til ísafjarðar þar sem hún varð
matráðskona á sjúkrahúsinu. Bjó
hún þá í húsi Sigríðar systur
sinnar og manns hennar Ingi-
mundar Guðmundssonar, sem
studdu hana með ráðum og dáð.
Mörgum árum áður höfðu þau
hjón tekið í fóstur Hrafnhildi,
næstyngsta barn Hildar og ólu
þau hana upp sem sína einkadótt-
ur.
Þegar börnin voru uppkomin og
flest komin á Suðurlandið, fluttist
Hildur til Reykjavíkur og vann þá
hjá prjónastofunni Framtíðinni,
sem Sláturfélag Surðurlands rak.
En er hún var lögð niður, útveg-
uðu stjórnendur Framtíðarinnar
elstu konunum starf i öðrum
deildum fyrirtækisins, svo Hildur
starfaði hjá Sláturfélagi Suður-
lands þar til hún lét af störfum 70
ára að aldri.