Morgunblaðið - 10.09.1981, Page 42

Morgunblaðið - 10.09.1981, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1981 Norðmenn sigruðu Englendinga 2—1 Oxló. 0. s4*pt<‘mh<*r. Frá Jan Erik I.auro. íróttaritara Mhl. NORÐMENN brutu blað í knattspyrnusöKunni er þeir sij?r- uðu Enxlöndinxa í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. ok »?erðu þar með út um möKuleika heimsmeistar- anna fyrrverandi á að komast i úrslitakeppnina á Spáni á næsta ári. SÍKraði norska liðið 2—1 ok voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Leikurinn fór fram á Ulleval-leikvaniíinum í Osló, þar sem Ólafur Noreifskonuniíur var meðal áhorfenda. Englendingar höfðu frumkvæði framan af og skoruðu fyrsta mark leiksins á 15. mínútu, en þar var Bryan Robson að verki. Roger Albertsen, er leikur með Winter- lag í Belgíu skoraði jöfnunar- markið á 35. mínútu og sigur- markið skoraði Hallvar Thoresen, leikmaður með PSV Eindhoven í Hollandi og fyrirliði norska liðs- ins, á 40. mínútu. Heiðurinn af fyrra marki norska liðsins á Tom Lund. Krækti hann í hornspyrnu og skaut föstu skoti að markinu er hann fékk knöttinn úr spyrnunni, en knötturinn kom við Albertsen og breytti um stefnu á leið í markið. Thoresen skoraði sitt mark eftir góða fyrirgjöf Arne Larsen Okland, sem er atvinnu- maður hjá Bayern Leverkusen. Norðmenn léku með fimm „út- lendinga", en framan af var leikur norska liðsins fálmkenndur, eins og leikmenn bæru of mikla virð- ingu fyrir ensku stjörnunum. Þáttaskil urðu hinsvegar eftir að jöfnunarmarkið var skorað. Vörð- ust Norðmenn vel í seinni hálfleik, en þá aítu Englendingar fleiri marktækifæri. Enskir áhorfendur gengu ber- serksgang við tap sinna manna og stofnuðu til slagsmála. Þeir höfðu valdið ólátum og tjóni í Osló fyrir leikinn. Englendingar hafa nú sjö stig úr jafn mörgum leikjum og eiga aðeins einn leik eftir, meðan Rúmenar hafa sex stig og þrjá leiki til góða, Ungverjar fimm stig og fjóra leiki til góða, og Sviss- lendingar fjögur stig og þrjá leiki til góða. Norðmenn hafa hlotið sex stig í riðlinum og eiga einum leik ólokið. Danir töpuðu 2-1 fyrir Júgóslavíu Danir urðu að þola ósigur á heimavclli í Kaupmannahofn fyrir Júgóslövum.og eru mögu- lcikar Dana á aframhaldi í kcppninni úr sögunni. Unnu Júgóslavar 2—1 cftir að staðan í hálflcik var 0—0. Mörk gcstanna skoruðu Zlatko Vujovic og Vla- dimir Pctrovic. Höfðu Júgóslavar töglin og hagldirnar allan icik- inn. og eru þeir nú efstir í fimmta riðli. Gerðust leikmenn grófir í lcik sínum undir lokin og var mikið um hókanir. Áhorfcnd- ur að leiknum voru tæplega 18 þúsund. Tékkar unnu Wales 2—0 í Prag. Staðan í hálfleik var 1 —0. Fyrra mark Tékka kom er Stev- enson spyrnti i eigið mark á 26. mínútu. og hið síðara skoraði Verner Licka á 67. mínútu. Walcs hefur enn íorystu í þriðja riðli. hafa níu stig úr sex leikjum. Tékkar hafa hlotið átta stig í fimm leikjum. Skotar sigruðu Svía 2—0 á llampden Park í Glasgow að viðstöddum 75 þúsund áhorfcnd- um eftir að hafa haft yfir 10 í hálflcik. Fyrsta mark Skota skor- aði Joe Jordan mcð skalla á 20. mínútu eftir aukaspyrnu Johns Robertson. Robertson skoraði svo seinna markið úr vítaspyrnu á 81. mínútu. Robertson var pottur- inn og pannan í öllum lcik Skota. Hollcndingar og írar gcrðu jafntcfli í öðrum riðli helms- meistarakeppninnar að viðstödd- um ta plcga 50 þúsund áhorfcnd- um á lcikvangi Feyenoord í Rott- erdam. Staðan í hálfleik var 1 — 1. Kees van K<M>ten skoraði fyrsta mark leiksins og náði forystu fyrir Holland á 11. mín- útu eftir langa fyrirgjöf Frank Thijssen. Mike Rohinson jafuaði fyrir íra. Arnold Muhrcn náði forystu fyrir Ilollendinga úr vít- aspyrnu á 61. mínútu. en lokaorð- ið átti Frank Stapleton á 72. mínútu. Belgir unnu Frakka 2—0 i öðrum riðli keppninnar eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1 —0 á Hcysel-leikvanginum í Brussel. Czerniatinski skoraði fyrra mark Belga á 21. mínútu. og Vanden- hergh hið síðara á 83. mínútu. Belgir eru öruggir með sæti i úrslitum heimsmeistarakeppn- innar á næsta ári. • Lárus Guðmundsson skorar fyrsta markið. Lárus lÍKKur á jorðinni eftir að hafa skotið. Markvörðurinn kom engum vörnum við. • Knötturinn stefnir beint í samskeytin eftir hörku skalla Atla Eðvaldssonar. Greina má kollinn á Atla á milli leikmannanna á myndinni. Ljósm. RAX Tvö falleg mörk Lárusar og Atla færðu íslandi sigur „þEGAR MAÐUR fær svona góð marktækifæri hugsar maður bara um það eitt að vera ákveðinn, og nýta tækifærið til fullnustu," sagði Víkingurinn ungi Lárus Guðmundsson sem skoraði fyrsta mark íslenska landsliðsins i knattspyrnu er liðið vann góðan sigur á landsliði Tyrkja 2—0, í gærkvöldi á Laugardalsvelli. Það var á 20. mínútu sem Lárus fékk góðan stungubolta inn á milli varnarmanna Tyrkja. frá Pétri Ormslev. Lárus brunaði upp og skoraði fallcga. Var þetta vel gert hjá Lárusi sem var að skora sitt þriðja mark í sínum fjórða landsleik. Síðara markið skoraði svo Atli Eðvaldsson með hörkuskalla i síðari hálfleik. Leikur liðanna var i undankeppni heimsmeistarakeppninnar og hefur ísland nú hlotið fjögur stig i sinum riðli, skorað sex mörk en fengið á sig 12. Góð barátta var í íslenska liðinu i gærkvöldi og olli hún sigri liðsins. Veður til að leika knattspyrnu var slæmt, mikill kuldi og sterkur vindur. Tyrkir beittu öllum brögðum Tyrkir léku undan sterkum vindi í fyrri hálfleik. En þrátt fyrir það tókst þeim ekki að skapa sér verulega hættuleg marktæki- færi. Vörn íslenska liðsins var mjög traust. Þá greip Guðmundur Baldursson markvörður ávallt vel inn í leikinn á réttum augnablik- um. Tyrkir áttu nokkur góð skot að marki cn flest fóru þau vel vfir. íslenska liðinu gekk vel í fyrri hálfleik og lék þá oft skemmtilega saman. Sér í lagi voru framiínu- mennirnir hættulegir. Varnar- menn Tyrkja léku nokkuð gróft og beittu öllum brögðum til að stöðva hina eldfljótu og leiknu fram- herja, Lárus Guðmundsson og nafnanna Pétur Ormslev og Pét- ursson. Eins og áður var greint skoraði Lárus fyrsta markið á 20. mínútu. Á 35. mínútu fékk Lárus svo góða sendingu frá Pétri og komst í gegn. Brunaði upp og var að komast í gott færi þegar einn varnarmaður Tyrkja sá þá einu leið til aö stöðva Lárus að kasta sér á hann og draga hann niður. Mjög ljótt brot. En afspyrnu- slakur dómari leiksins gaf Tyrkj- anum aðeins gula spjaldið fyrir brotið. Hvað eftir annað skall hurð nærri hælum við mark Tyrkja en ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik. Atli skorar meÖ skalla Mikil barátta var í síðari hálf- leiknum. En íslenska liðinu gekk ekki vel að leika undan sterkum vindinum. Samleikur liðsins var dálítið gloppóttur og miðjuspilið ekki eins sterkt og í fyrri hálf- leiknum. Annað mark íslenska liðsins kom á 65. mínútu. Pétur Ormslev tók innkast svo til við endalínu. Kastaði vel fyrir mark- ið. Sigurður Lárusson náði að skalla aftur fyrir sig inn í mark- ísland - Tyrkland teiginn. Þar stökk Atli Eðvaldsson hæst upp og sendi knöttinn upp í samskeyti marksins með föstum skalla. Vel gert. Lið Tyrkja var öllu öflugra í síðari hálfleik gegn vindinum. Lék oft vel saman úti á vellinum en er nær markinu dró rann allt út í sandinn. Eina hættulega marktækifæri Tyrkja í síðari hálfleik kom á 85. mínútu. Tyrkir áttu góðan skalla að ís- lenska markinu, en Guðmundur Baldursson varði vel í horn. Skömmu síðar komst Pétur Pét- ursson einn í gegn um vörn Tyrkja, en enn sem fyrr notaði varnarmaðurinn hendurnar gróf- lega til að stöðva Pétur. Dómarinn lét það afskiptalaust. Liðin Islenska liðið barðist vel í leikn- um. í fyrri hálfleik náði liðið vel saman. Sér í lagi framlínumenn- irnir þrír sem áttu góðan leik. Þeir Pétur Pétursson, Lárus Guð- mundsson og Pétur Ormslev. Atli og Magnús áttu sæmilega spretti en hurfu þess á milli í leiknum. Varnarleikurinn var mjög traust- ur. Örn Óskarsson lék mjög vel. Fastur fyrir og gaf aldrei eftir. Marteinn og Sævar léku vel á miðjunni aftur. Þá var Guðmund- ur öruggur í markinu. Lið Tyrkja lék á köflum vel saman en gekk afar illa að skapa sér marktæki- færi. Leikmenn Tyrkja voru nokk- uð grófir í brotum sínum. í STUTTU MÁLI: Landsleikur ísland — Tyrkland 2—0 (1—0) Mörk íslands: Lárus Guðmunds- son á 20. mínútu og Atli Eðvalds- son á 65. mínútu. ÁHORFENDUR: 4292. DÓMARI: Var frá írlandi og var hann afspyrnuslakur, og dæmdi leikinn mjög illa. Tveir Tyrkir fengu að sjá gula spjaldið. þr Ingolfur setti Islandsmet INGÓLFUR Gi.ssurarson frá Akranesi setti í gærkvöldi nýtt íslandsmet í 100 mctra fjórsundi á Evrópumcistaramótinu í Split í Júgóslavíu. Ingólfur synti vega- lengdina á 1:56:17 mín. Guðrún Fema synti 100 metra bringu- sund á 1:18:07 mínútum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.