Morgunblaðið - 20.09.1981, Page 1
Sunnudagur
20. september
Bls. 41—72
l.josm. KAX.
LÍFSHLAUP KJARVALS
Myndir þær sem Jóhannes
Kjarval málaði sér til dundurs á
veggi vinnustofu sinnar að Aust-
urstræti 12 og hafa verið til
sýnis að Kjarvalsstöðum undan-
farnar vikur má segja að slegið
hafi í gegn hjá fróðum sem
ófróðum.
Nær daglega hefur verið fjall-
að um þær í einhverju dag-
blaðanna og því hefur undir-
ritaður farið seint af stað með
umfjöllun um listaverkin, því að
hann vildi fá sem gleggsta heild-
armynd yfir hvað aðrir hefðu til
málanna að leggja. Sýningunni
lýkur á þriðjudag og fer því hver
að verða síðastur að nálgast
verkið í bili, því að sjálfsagt gera
Myndlist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
menn ráð fyrir því að myndin
verði um allan aldur í eigu
íslendinga.
Sagt hefur verið, að Kjarval
hafi málað þessar myndir á
veggi vinnustofu sinnar á fjórða
áratuginum er hann átti hvorki
fyrir litum, bleki né pappír og
má það vel vera rétt en hins
vegar skal einnig bent á það, að
Kjarval var mestur „artísti"
íslenzkra málara um sína daga
og þeir taka iðulega up á því að
mála á hvað sem fyrir er ef sá
gállinn er á þeim. T.d. hefur
Kjarval málað á alla mögulega
hluti svo sem kunnugt er, jafnvel
grjót, en ein slík egglaga mynd
er einmitt í eigu Kjarvalsstaða
og hefur oft verið til sýnis.
Menn hafa dáðst að viðgerð-
inni og hve vel hún hefur
heppnast, sem mun alveg rétt en
SjÁ NÆSTU SÍÐU
LjÓ8m.:
OI.K.Mhk.