Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
49
Ef hún tæki opinberlega þátt í mann-
réttindabaráttunni þýddi það aðeins
það eitt, að endi væri bundinn á
starfsferil hennar — öðru sinni.
(Sjá: Hugrekki)
Oldin er orðin
önnur fyrir inn-
flytjendurna
Oberg og Schwarz hafa þó
engar áhyggjur af samtökum á
borö við þessi, telja þau einangr-
uö og fámenn og skorta sterkan
foringja. „Enn sem komiö er er
enginn Enoch Powell í Svíþjóö —
enginn sem hefur jafn sterka
stööu gagnvart fjölmiölunum og
fjármagninu og hann,“ segja þeir.
— BIRGIT LOFGREN
A sjötta og sjöunda ára-
tugnum voru miklir upp-
gangstímar í Svíþjóð, at-
vinnuvegirnir blómguðust,
mikíl eftirspurn var eftir
vinnuafli og innflytjendum
til landsins var tekið
tveimur höndum. Nú eru
tímarnir aðrir. Hin alþjóö-
lega efnahagskreppa hef-
ur ekki farið hjá garði í
Svíþjóð fremur en annars
staðar og á því mega nú
innflytjendurnir kenna.
Hópar alls kyns kynþátta-
hatara hafa að undanförnu
runnið upp eins og fíflar í
túni og sagt er, að stuðn-
ingur við þá aukist stöð-
ugt.
„Útlendingahatur hefur veriö
meira áberandi aö undanförnu,“
segir Kjell Oberg, fyrrverandi
formaöur saenska innflytjenda-
ráösins. „Þó held ég ekki, aö viö
höfum breyst eitthvaö. Viö höfum
alltaf veriö svona, bara ekki látiö
það í Ijós fyrr.“
í Svíþjóö búa 8,3 milljónir
manna og þar af eru innflytjendur
eöa börn þeirra 1,1 milljón. „Viö-
mót almennings, þ.e. hinna inn-
fæddu, er aö breytast og þaö
hreint ekki á betri veg,“ segir
Fotis Costulas, félagi í samtökum
Grikkja, sem eru einn stærsti
innflytjendahópurinn í Svíþjóö, og
David Schwarz, Pólverji meö
sænskan borgararétt, segist sjá
hliöstæöur meö ástandinu í Sví-
þjóö og í Bretlandi þar sem til
óeirða kom á þessu sumri.
„Hliöstæöurnar," segir hann,
„eru t.d. tilhneiging innflytjend-
anna til aö safnast saman í
ákveönum hverfum, gettóum, at-
vinnuleysiö og vaxandi tortryggni
í garö lögreglunnar. Þetta ástand
er eins og tímasprengja, sem
getur sprungið þá og þegar.“
Atvinnuleysi í Svíþjóö er 2,2%
fyrir alla þjóöina en meðal innflytj-
enda er þaö 4%. Auk þess eru
þeir aö jafnaöi launalægri, eöa
sem nam 7—8% árið 1978. Inn-
flytjendur eru einnig ofarlega á
blaöi í tölum yfir hvers kyns afbrot
og glæpi. 1979 voru þeir 77%
þeirra, sem dæmdir voru fyrir
fjárhættuspil, 34% dæmdra
nauögara og 27% þeirra sem
fengu dóm fyrir vændi eöa fyrir aö
stuöla aö því.
Þaö var fyrst seint á árinu 1979
aö verulega fór aö bera á kyn-
þáttahatri og andúö t garö inn-
flytjendanna og þá skaut upp
kollinum félagsskapur, sem kallar
sig „Höldum Svíþjóö sænskri". í
Svíþjóö er einnig nýnasistaflokkur
og í viötali viö forystumenn
hans, sögöu þau, aö
flokknum yxi hjónin
Veru og Assar Oredsson,
stööugt ásmegin eftir
því sem félögunum
fjölgaöi. Félagatalan
er aö vísu leyndarmál)|
en giskaö er á aö
þeir séu um 10.000
talsins.
/A,
/
/
V x
\
\
\
JIRINA SIKLOVA
Hundelt má heita alla tíö síöan
hún fagnaði „vorinu ! Prag“ og
var rekin úr Kommúnista-
flokknum fyrir tiltækiö.
aöstoöa þá, sem ekki áttu í önnur
hús aö venda.
Jirina Siklova var handtekin í
maí sl. ásamt mörgum öörum
baráttumönnum fyrir mannréttind-
um í Tékkóslóvakíu. Enn er ekkert
vitaö um lagalegar útlistanir
stjórnvalda á sakargiftunum gegn
henni, en þau hljóta aö líta mál
hennar mjög alvarlegum augum. í
Rude Pravo, hinum Rauöa sann-
leika tékkneska kommúnista-
flokksins, var hún t.d. nýlega
sökuö um “ofsalegt hatur á sósíal-
ismanum" og jafnframt sögö hafa
haft samstarf viö „leiguþý á vegum
leyniþjónusta heimsveldissinna".
Áróöurinn í tékkneskum fjöl-
miölum gegn Jirinu Siklovu bendir
til þess, aö hún megi eiga von á
enn harðari dómi en Rudolf Batt-
ek, og þaö er augljóst hvaö fyrir
yfirvöldunum vakir. Þau vilja
hræöa fólk frá því aö leggja
mannréttindabaráttunnl liö og ein-
angra meö því andófsmennina enn
betur en hingaö til.
— EVA CZERWONKA
Keramikföndur
Verðum með á boðstólnum í vetur steinleir,
jarðleir, postulínsleir og pípuleir. Einnig fjölbreytt
úrval glerunga og oxyda. Ókeypis efnissýnishorn
eru afhent á staðnum. Opiö 1 til 6.
Glit h/f
Höfðabakka 9.
HÚ$GAGNA
SYNING
IDAG
Mikiö úrval af ítölskum
sófasettum, sófaborð-
um, boröstofuhúsgögn-
um, kommóðum og
skattholum.