Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 21
Léttur og frjáls sumarklmönaöur fré danska fyrirtækinu CLAIRE, og þessi módel hafa hlotiö nafnið „Elvira og Madígan". Mjög kvenleg lína, efnió er lauflétt polyester, létt jersey og bómull og svo ísaumaóir blúndukantar. Eins og alls vita getur líka sumarió veriö ékaflega misjafnt hvaö veður snertir og þé er gott aó hafa klæðnað eins og þennan. Efnið er að mestu bómull í stretch, annað hvort síðar buxur eða hnébuxur, svo og peysa og léttur jakki. Jakki og pils eða jakki og buxur með tilheyrandi röndóttri skyrtu og einlitu bindi. Þetta er finnsk framleiðsla, sem hægt er að þvo í þvottavél. Fæst í litunum dökkblétt, rautt og rjómalitað. tillit til óska hverrar konu. Auð- veldlega er þó hægt að fá „lánað- ar“ hugmyndir frá einum hóp og samræma öðrum og gefur þetta ríka möguleika á að skapa ein- staklingsbundna tískumynd hjá öllum konum, er það vilja. Þessir fjórir hópar eru: „Klass- isk borgartíska“: Fínleg og dýr efni og besta hugsanlega snið, eru einkenni þessa hóps. „Atlants- hafsblærinn": Hér er einkum höfðað til þeirra „sportlegu" og eru t.d. áhrif frá siglingum og sjó yfirráðandi. „Sveitalífið": Þægi- legur vinnufatnaður er á nærri alls staðar við, svo og rómantísk og einföld veislu- og samkvæmis- föt. „Heimsferðir”: Hér er að finna áhrif frá t.d. Japan og Kína, bæði í litum, sniði og mynstrum, án þess þó að alveg sé farið eftir frummyndum. Eðlilegir litir Litagleði í fatnaði hefur sjaldan verið eins mikil og á síðustu árum, en í sambandi við tískuna næsta vor og vetur miða fatahönnuðir við fjóra grundvallarkjarna, nefnilega vatn, eld, loft og jörð. Ut frá þessum kjörnum koma svo litirnir, sterkir, daufir, blandaðir eða hreinir. Möguleikarnir eru óteljandi, en áberandi er að lita- samsetningar eru samræmdar bæði í sterkum og veikum blæ- brigðum. Að sjálfsögðu hafa enn hvítu og svörtu litirnir sína þýð- ingu. Línurnar Línurnar í kvenfatnaðinum fara nokkuð eftir hinum fjórum áður- nefndu undirstöðuhópum og er fatnaðurinn t.d. ýmist aðskorinn í mittið, eða að mittislínan er flutt lítið eitt niður á við. Eins virðist sem fatahönnuðir gangist fyrir meiri og þægilegri vídd, sérstak- lega í tómstundaklæðnaði. Axla- línan er bein eða aðeins ávöl. Kjóla- og frakkalengd er enn mjög misjöfn, en er þó hjá flestum hönnuðum rétt fyrir neðan hné, þó voru nokkrir hönnuðir með hin áður mjög vinsælu minipils og -kjóla, en sá klæðnaður er aðeins ætlaður til notkunar yfir hásum- arið. Efni og mynstur Það sem einkennir öll efni er notuð verða í kvenfatnaðinn næsta vor og sumar er, að þau eru létt og að hönnuðir nota að mestu efni úr mörgum blöndum, þ.e.a.s. blanda efnum svo sem ull, bómull, polyester og svo framvegis saman. Léreft með bómullarblöndun er enn vinsælt, svo og denim í buxur og crepe-de-chine er fremst í flokki silkiefna, hrásilki og organza kemur aftur, auk þess leðureftirlíkingar og fínt poplin, chintz og ótal fleiri. Jersey verður einnig notað í mörgum þykktum og svo auðvitað óteljandi gerðir af knipplingum, útsaumi, þrykki, lín- ingum og annað þess háttar til skreytinga. Mikið bar á hvers konar rönd- óttum fatnaði, allt frá fíngerðum til grófra lína og auk þess fín- og stórköflótt. í sambandi við t.d. þrykk- mynstur, er verða æ vinsælli, má nefna augljós og sterk austræn áhrif, t.d. myndir af drekum og kínverskum furðudýrum. Blóma- mynstrin eru jafn ólík og þau eru mörg, annað hvort á la Gauguin, Biedermeirervendir, Provence- og Libertyblóm, svo eitthvað sé nefnt. Svo til ómögulegt er að lýsa öllum þeim fatnaði, er kvenfata- hönnuðir hafa hugsað sér að selja fataglöðum konum næsta vor og sumar, en gestir umræddrar sýn- ingar fengu svo sannarlega for- smekk af því sem vænta má, ekki síst á hinum daglegu tískusýning- um, er mikið var lagt upp úr. Hönnuðir hafa óþrjótandi hug- myndaafl og þeir kynntu allt frá örsmáum bikini til vel heitra pelsa, frá stuttbuxum og „Bermuda-shorts“ til þröngra prjónaðra buxna, frá efnalitlum sólblússum til knipplingalagðra, langermaðra samkvæmisskyrtna og svo mætti lengi telja. En eitt er víst, úr nógu verður að velja þegar konur fara að hugsa til kaupa á vor- og sumarklæðnaði næsta ár. Þetta er finnst framleiösla fré Annikki Karvinen og efniö er 100% handofin bómull. Fæst í litunum rautt, hvítt, svart og blétt. Afsakið fröken! Viltu dansa? Hjá Heiðari læra allir aö dansa alls konar skemrntilega dansa og þess- vegna verða böllin í bænum ennþá skemmtilegri. Innritun daglega nema sunnudaga frá kl. 10—12 og 1—7. Símar 39551, 24959, 20345, 74444, 38126. Kennsla hefst frá og með mánudeginum 5. október. Kennslustaðir: Reykjavík: Brautarholt 4 Tónabær Drafnarfell 4 Þróttheimar Ársel Bústaöir Seltjarnarnes: Félagsheimiliö Kópavogur: Hamraborg 1 Þinghólsskóli Garöabær: Flataskóli Hafnarfjöröur Góðtemplarahúsiö EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU ItilCftlllV 11 Vtl'l I t 9 A • flttft ««■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.