Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981 43 Frá ráðstefnu um ljóð og ljóðgagnrýni Bðkmenntlr frjálshytígju, en úrræði frjáls- hygKjumanna taldi hann algjöra vitleysu. Á ráðstefnu í Biskops Arnö um ljóð og ljóðgagnrýni voru Norð- menn fámennir. Að vísu voru tveir norskir gagnrýnendur mættir, Camilla Carlsson og Leif Stavik. En frá Noregi kom aðeins eitt skáld, Arvid Torgeir Lie. Ég veit ekki hvort Arvid Torgeir Lie er dæmigerður fyrir norsk skáld samtímans, hef satt að segja litla trú á því. Eitt ljóða hans nefnist Gran og minnir ekki svo lítið á ljóð Tarjei Vesaas um snjóinn og greniskóginn. Það get- ur verið gaman að velta fyrir sér hve margt er líkt með máli Lies og íslensku, en ljóðið Gran er þannig í heild sinni: Biskops Arnö eftir JÓHANN HJÁLMARSSON og lögfræðingar. Nefna má nokkra sem Islendingar kannast við: rit- höfundana Olof Lagercrantz og P.C. Jersild, félagsfræðinginn Jo- achim Israel, höfund Samfélags- ins sem kennd er í íslenskum skólum. Sérstaka athygli vakti Israel, áhugasamur um allt, ekki síst það sem skáldin voru að gera. Ég ræddi við hann m.a. um Biskops Arnö er afskekktur staöur. Meðal þess sem þar má njóta er friðlýst náttúra, gömul eikartré. Málaren með iðandi lífi fugla, fiska og skordýra. Vilborg Dagbjartsdóttir sem kann skil á blómum og trjám fræddi okkur Hans Mölbjerg og Marianne Lar- sen um náttúruna. Einnig sagði Vilborg að Jón Gerrekson hefði eitt sinn verið meðal biskupa í Biskops Arnö. Þessum fulltrúa Biskops Arnö drekktu landar okkar eins og kunnugt er. Norrænt samstarf getum við kallað aðgerðir íslendinga. Allt í anda vináttunnar að sjálfsögðu. Á setri Jóns Gerrekssonar Gran: ingen löyndom, inga vid, bárande krone, men ein kvass topp mot himlen. inga ringing frá klokker, men eit stutt, hardt handtrykk. Og kring henne: skit og skrik, kjas og mas. Skalhard, tagget gran, skapt for hardt veir, haggel og storm. Og gjennom ein streng vinter ber ho ei grön nál. Það kom fram í umræðum að sumir töldu ljóðið vera um konu ekki síður en grenitré. Önnur ljóð Arvids Torgeir Lie voru útkjálka- leg, sænsku gagnrýnendunum þóttu þau í anda næfískrar hefðar. Finnska skáldið Leif Salmén yrkir líka hefðbundið, módernismi hans orðinn dálítið gamall: Ég renn saman við daga lífsins faðma jörð og haf finn ský og fólk. Tvær finnskar skáldkonur, Tua Forsström og Martina von Essen, höfðu ekkert nýtt fram að færa, en ljóð þeirra voru falleg og vel að merkja kvenleg þegar best lét. Þótt fátt nýtt komi fram á ráðstefnu eins og þessari, enda varla til þess ætlast að þær breyti viðhorfum þátttakenda, má segja að hér sé gerð virðingarverð til- raun til að ræða skáldskap af fullri alvöru og freista þess að skýra og skilgreina. Ólíklegt er að slíkt væri hægt á Islandi þar sem einstrengingslegar skoðanir stjórna oft umræðum manna og skrifum. Jafnframt ráðstefnunni um Ijóð og ljóðgagnrýni var önnur ráð- stefna í Biskops Arnö. Hún fjall- aði um hvernig unnt væri að draga úr glæpum og meðal þátttakenda voru rithöfundar, félagsfræðingar Norrænt samstarf um orkumál Á FUNDI orkuráðherra Norðurlanda í Halden í Noregi, hinn 4. september sl. voru samþykktar tvær skýrslur, sem unnið hefur verið að á vegum ráðherranefndarinn- ar og verða þær gefnar út á næstunni. Önnur skýslan fjallar um nýjar og endurnýjanlegar orkulindir en hin um greiningu á orkuefnum. í skýrslunni um nýja og endur- nýjanlega orkugjafa er fjailað um hugsanlega samræmingu á lögum og efnahagslegum þáttum sem varða hugsanlega samræmingu á lögum og efnahagslegum þáttum sem varða notkun nýrra orku- gjafa. Æskilegt er talið að skipst verði á upplýsingum um mengun- arvarnir, eignarréttarmál, rekstur og fleira. Hvatt er til norræns samstarfs um rannsóknir, prófan- ir og tilraunanotkun á nýjum orkugjöfum. Þeir nýju orkugjafar sem um er fjallað í skýrslunni eru m.a. sól, vindur og sjávaralda. Auk þessa er í skýrslunni fjallað um nýtingu orku úr lífrænum efnum, t.d. mó, og orkugeymslu. í skýrslunni um norrænt sam- starf um greiningu á orkukerfum er greint frá tillögum um fjögur meginverkefni, þ.e. orkusparnað, svæðisbundið skipulag orkumála, athugun á öflun og dreifingu varma á Norðurlöndum og grein- ingu á orkukerfum á Norðurlönd- um. Norrænu orkuráðherrarnir ræddu ennfremur á fundinum ýmis mál sem tengjast öðrum sviðum orkumála á Norðurlönd- um, t.d. orkubúskap, olíu- og gasvinnslu og hvernig taka má í notkun nýja orkugjafa, einkum metanol. Ráðherrarnir samþykktu, að embættismannanefndin skyldi fyrir næsta fund leggja fram tillögu um þau form sem til greina kæmu í norrænu samstarfi um olíu- og gasvinnslu. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al'GLVSINGA- SÍMINN KK: 22480 PIONEERHfflSYSTEM SA 720 CT 720 Tæknilega fullkomin 2X65 sínuswött (8 ohm). Heildarbjögun 0,03% 20-20.000 rið við hámarks útgangsafl. TX 720L Suö/merkishlutfall 50 dB AM. Suð/merkishlutfall 75 dB FM. Næmlelki FM Mono 0,75 microvolt. FM Stereo 25 microvolt. Miðbylgja 30 microvolt. Langbylgja 45 microvolt. PL 720 Qvartz læstur á hraða. Hall mótor, Polymer Graphite tónarmur Magnetist Moving Coil hljóðdós. Tíðnisvörun 10-32000 rið. Wow og flutter minna en 0,035% (din). DT 510 Klukka/timer. getur kveikt á tækjum fyrir upptöku og afspil ef menn eru ekki heima. Þriggja mótora/þriggja hausa. SENDUST tónhaus. Sjálfleitari. Tíðnisvörun CR02 30 -17.000 rið (+ + 3dB) Wow og flutter minna en 0,04% (din). LS 757 3 hátalarar, 30 cm bassahátalari, 30 cm miðtónshátalari, 6.6 cm hátíönihátalari. Tíðnisvörun 38 - 20.000 rið. Hámarks inngangsafl 100 sínusvött SG 300 7 banda tónjafnari með Ijósdíóðu í tökkum eykur eða minnkar mögnun á 60 riöum, 150 riðum, 400 riðum, 1 kílóriði, 2,4 kflóriði 6 kflóriöum, 15 kílóriðum um 10 dB Tíðnisvörun 5 —70 kflórið + 0,-1 dB. Suð/merkishlutfall 100 dB. Skápur Hæð 113,3 cm. Breidd 48,8 cm. Dýpt 40,0 cm. Rósaviðarlíki. 5ia ára ábyrg6 ^ 11 r # %M uM MM WÆ ■ I Karnabær Glæsibæ ^f LAUGAVEGI 66 SIMI 25999 Portið Akranesi — Patróna Patreksfiröi — Epliö Isafiröi — Álfhóll Siglufirði — A. Blöndal, Ólafsfirði — Cesar Akureyri Bókav. Þ.S. Húsavík — Hornabær Hornafirði — M.M. h/f. Selfossi — Eyjabær Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.