Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.09.1981, Blaðsíða 4
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981 Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Enn er slegið upp veizlu i Pottarími. Nú er það auðvitað haustveizla. Á borðum er lamhakjot. hvað annað. Ykkur finnst kannski nÓK að gert i lambakjötsmálum, en i sann- leika sa>ft þá held ég mikið upp á lambakjöt. Okkur berast margar uppskriftir erlendis frá í alls konar blöðum. Þar má að sjálfsögðu finna margvís- legar kjötuppskriftir. En vegna þess að í þessum nágrannalönd- um okkar er lítið um gott lambakjöt. eru lamhakjöts- uppskriftir ekki áberandi þar. Það er ekki sizt vegna þess hve lítið er til af góðum lambakjöts- uppskriftum hér, sem ég tek lambakjöt svo oft fyrir. Mér finnst nefnilega brýn ástæða til að klappa lambakjötið upp og leyfa þvi að njóta sin eins og það á skilið. Sem sagt, það er einn einu sinni lambakjöt á borðum. í forrétt er boðið upp á gott sjávarsalat. Auk þess sem það er fyrirtaks forréttur, er það Ijómandi léttur aðalréttur, t.d. með góðu heimabökuðu brauði, eða sem miðnætursnarl. Það er fleira salat en oliusósusal- at... í eftirrétt sting ég upp á góðum eplarétti, þó við njótum vist ekki íslenzkrar uppskeru þar. En ég þarf vist varla að minna á hvað rifsber og bláber eru goð í alls kyns eftirrétti. Uppskriftirnar eru ætlaðar fyrir sex. Góða skemmtun. Sjávarsalat í þetta salat er hægt að nota ýmsar tegundir sjávardýra og í þeim hlutföllum sem ykkur hentar. Við vonum að fiskbúð- irnar taki sig til og bjóði upp á ókunnuglegar og fáséðar teg- undir, ekki satt? Ég sting upp á rækjum, hörpudiski og lúðu. Þið getið notað fleiri tegundir ef ykkur sýnist svo. En það er ekki sízt sósan sem skiptir máli og gefur salatinu bragð. Með rækju hér á ég vjð úthafsrækju, sem mér finnst afar miklu betri heldur en litlu skelflettu krílin. Þið uppskerið ríkulega fyrirhöfnina að skel- fletta úthafsrækuna. Skelina getið þið svo fryst aftur og soðið Haust- máltíð I síðar. Soðið er fyrirtak í sósur, súpur og fiskrétti, þar sem þarf gott soð. Hörpudiskurinn fæst hrár, svo þið sjóðið hann fyrst. Setið hann frosinn í pott og sjóðið án vatns við hægan hita. Úr fiskin- um kemur mikið soð, svo meiri vökva þarf ekki. Látið síðan soðið sjóða niður og notið í salatið. Ég hef ekki nefnt krækling. Því miður hefur enginn séð ástæðu til að safna honum og selja, svo við verðum að hafa fyrir því sjálf. Það er þó engin fyrirhöfn, heldur einskær ánægja, að komast svolítið út og safna í soðið í leiðinni. Ef þið hafið tök á, þá er það ferðalag sem borgar sig. Soðinn krækling er hægt að frysta og nota svo í margvíslega rétti, t.d. gott sjávarsalat. Punkturinn yfir i-ið eru svo sölin. Nú undanfarið hafa feng- izt söl í Náttúrulækningabúð- inni. Það er sjálfsagt að minna á þessa hollu og góðu fæðu. Ég veit um mörg bðrn sem borða söl rétt eins og sælgæti, enda vön við sölin. Ef þið náið ekki í söl, er þó engin ástæða til að hverfa frá salatgerðinni. En uppskrift- in er svona ... en þið látið hana auðvitað ekki binda ykkur. 500 gr bökuð eða soðin stór lúða, köld (annar fiskur kemur vel til greina). 300 gr óskelflett úthafsrækja 300 gr frystur hörpudiskur + knippi steinselja 1 tsk. sítrónusafi salt og pipar eftir smekk 1. Bakið fiskinn og kælið. Ef ykkur sýnist svo, getið þið auð- vitað einnig soðið hann, en mér finnst hann þá ekki verða eins bragðmikill. Bakið hann aðeins svo lengi, að hann rét nái að hlaupa saman en ekki að þorna. Skelflettið rækjurnar. 2. Látið frystan hörpudiskinn í pott ásamt sítrónusafanum og stönglunum af steinseljunni. Látið hann sjóða loklaust á hægum hita. Eftir stuttan tíma flýtur mikill vökvi úr fiskinum. Látið fiskinn malla áfram þar til hann er soðinn i gegn, en gætið þess að láta hann alls ekki þorna. Takið fiskinn úr pottin- um og látið soðið sjóða niður þar til aðeins er um 1—2 msk. eftir. Það notið þið í sósuna. Takið steinseljustönglana frá og hend- ið þeim, þeir hafa gegnt sínu hlutverki. 3. Sósa: Soðið af hörpudiskinum (1—2 msk) 5 msk. ólífuolía eða önnur góð matarolia 2—3 msk. sitrónusafi (bragðið ykkur áfram) blöðin af + steinseljuknippinu 1—2 fínsöxuð hvitlauksrif 1—2 t$k. timajan I tsk. oregano I tsk. basil 6 ólifur 4 tómatar Framandi menning í framandi landi Hefur þú áhuga á aö búa eitt ár í framandi landi? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast lifnaöarháttum annarra þjóöa? • Viltu veröa víösýnni? • Viltu veröa skiptinemi? Ef svariö er já, haföu samband viö: dílfS Umsóknarfrestur er frá 7. sept. til 2. okt. Hverfisgötu 39. — P.O. Box 753-121 Reykjavík. Sími 25450 — Opiö daglega milli kl. 15—18. á íslandi Kennsla hefst fyrst í október. Byrjenda- og fram- haldsflokkar. Innritun í síma 72154 frá kl. 1—5 daglega. BfiLLETSKOLI 5IGRÍÐRR óRmflnn ^SKÚLAGÖTU 32-34 Oóö W kaupmenn- verslunarstjórar AVEXTIR IKUNNAR Epli rauö — Epli græn — Appelsinur — Sítrónur Greipaldin — Greipaldin rautt — Vínber græn Vínber blá — Perur — Melónur — Vatnsmelónur Plómur — Ananas — Avocado — Kókoshnetur Bananar. EGGERT KRISTJAIMSSOINi HF Sundagörðum 4, simi 85300 E4 4. Blandið vökvanum saman. Bætið kryddinu í. Saxið ólífurn- ar smátt og bætið þeim í sósuna. Blandið sósunni saman við fisk- metið. 5. Afhýðið tómatana með því að bregða þeim augnablik í sjóðandi vatn. Ykkur finnst þetta e.t.v. óþarfa fyrirhöfn, en árangurinn verður mun betri. Skerið þá í litla bita og blandið saman við salatið. Nú má salatið gjarnan standa í +—1 sólarhring í kæliskápnum. Á þeim tíma dregur fiskurinn í sig sósuna og salatið verður ljúfara á bragðið. Þið sjáið því að þetta er af- bragðsmatur í fleiri en einum skilningi... Það er töluvert mikið mál að halda veizlu, svo við verðum að hafa biðlund þangað til um næstu helgi eftir framhaldinu. Leiðrétting Það urðu nokkuð hrapaleg mistök í uppskriftinni að þeirri stórgóðu rifsberjaköku, sem ég var með í síðasta þætti. Hveiti- skammturinn var alltof lítill. í staðinn fyrir + dl átti að vera 4+ dl. Glöggir lesendur hafa vænt- anlega séð, að það gat varla staðist að búa til pæabotn úr svo litlu hveiti á móti eggjarauðun- um og smjörinu. Og fyrst ég er á annað borð að nefna þessa upp- skrift, dettur mér í hug að saman við svona kökubotn er fyrirtak að bæta t.d. um + dl af möluðum heslihnetum og draga þá frá samsvarandi magn af hveiti. Þaó stendur í lögum þaó stendur hér að þeir eigi aó hafa vit fyrir mér. Þeir slefa út ræðum, þeir jarma í kór, þeir segja að ég verói slæmur af FRÆBBBLARNIR Ný 4-laga plata. FÁLKINN Suöurlartdsbraut 8, aími 84670 Laugavagi 24, sími 18670 Austurveri, sími 33360

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.