Morgunblaðið - 20.09.1981, Page 7
VESTUR-ÞÝSKALAND
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
47
Ekki endalaust hægt
að ná samkomulagi
EFTIR 12 ára samstarf stjórnarflokkanna tveggja í Vestur-Þýskalandi
er skoðanamunur þeirra alltaf að koma betur og betur í ljós. En
stjórnarslit eru þó ekki alveg á næstu grösum. Fólk er að jafna sig eftir
heitar deilur um f járlagaírumvarpið fyrir árið 1982 en sósíaldemókrat-
ar létu þar augljóslega í minni pokann fyrir frjálsum demókrötum.
Willy Brandt, formaður Sósíal-
demókrataflokksins, var enn sár
yfir ósigrinum þegar hann sagði í
ræðu á flokksfundi 6. september
að hann gæti ekki lofað að sam-
steypustjórnin myndi sitja út
kjörtímabilið. Hann sagði að sam-
komulagið um fjárlögin hefði
gengið mjög nærri sjálfsvirðingu
sósíaldemókrata. Tveimur dögum
seinna bað flokksforystan flokks-
menn um að vera ekki of harðorða
í garð frjálsra demókrata. Aðeins
minniháttar uppsteyt varð í þing-
flokknum þegar uppkast að fjár-
lagafrumvarpinu var lagt fyrir
hann í þinginu 8. september (17
þingmenn greiddu atkvæði gegn
því) en endanlegt álit þingflokks-
ins liggur ekki fyrir.
Þingmenn frjálsra demókrata
samþykktu frumvarpið einróma
engum að óvörum og fram-
kvæmdastjóri flokksins, Gunter
Verheugen, hefur að undanförnu
sagt að samsteypustjórn hans geti
frekar ráðið bug á vandanum sem
steðjar að þjóðinni en samsteypu-
stjórn flokksins með kristilegum
demókrötum. Samningsviðræð-
urnar um fjárlögin sýndu að
efnahagsstefna frjálsra demó-
krata á margt sameiginlegt meö
stefnu Kristilega demókrata-
flokksins sem er í stjórnarand-
stöðu.
Frjálsir demókratar eru farnir
að álíta sig verndarengla mark-
aðskerfisins og verndara frjáls-
hyggjunnar gegn tilraunum til að
auka ríkisafskipti. Þeir neituðu að
hafa áform sósíaldemókrata um
nýjar ríkisfjárfestingar sem gætu
aukið atvinnu í landinu í fjárlaga-
frumvarpinu og þeir hafa rétt til
að fara fram á lækkun atvinnu-
leysisbóta. Flokkurinn mun samt
væntanlega sitja áfram í sam-
steypustjórninni. Hann óttast að
hann muni tapa verulega í næstu
kosningum ef hann gengur á bak
oröa sinna í kosningabaráttunni
og skiptir um samstarfsflokk.
Hann telur einnig að sjálfstæði
hans sé betur borgið í samstarfi
við sósíaldemókrata en kristilega
demókrata. Frjálsi demókrata-
flokkurinn er í dag augljós gagn-
stæða við Sósíaldemókrataflokk-
inn sem virðist vera að færast
lengra í vinstri átt.
Formaður frjálsra demókrata,
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra, sem er iaginn að sigia
milli skers og báru, er sammála
Brandt um að samkomulagi séu
takmörk sett. Flokkarnir gætu
fjarlægst hvor annan svo mjög að
samstarf væri ekki lengur fram-
kvæmanlegt. Fjárlögin eru enn
óafgreidd. Þingnefndir eiga eftir
að taka uppkastið að frumvarpinu
fyrir og þingið þarf að samþykkja
það en stjórnarandstaðan hefur
meirihluta í annarri þingdeild-
inni.
Vandasamara verður að finna
lausn á deilum um kjarnorkueld-
flaugar. Friðarbaráttan er alltaf
að eflast í Vestur-Þýskalandi og
þótt báðir stjórnarflokkarnir hafi
Genscher og Schmidt líta hlutina ekki alltaf sömu augum.
fallist á samþykkt Atlantshafs-
bandalagsins síðan í desember
1979 um staðsetningu meðal-
drægra kjarnorkueldflauga í
Vestur-Evrópu er hættan á að
sósíaldemókratar skipti um skoð-
un fyrir flokksfundinn í apríl
alltaf að aukast. Helmut Schmidt,
kanslari, hefur hótað að segja af
sér ef það gerist. Það er óhugsandi
að flokkur Genschers myndi halda
áfram samstarfi við flokk sem
hefur fjarlægt hornstein stefnu
stjórnarinnar í utanríkis- og varn-
armálum. Sumum leiðtogum sós-
íaldemókrata er svo umhugað um
að halda friðarsinnum innan vé-
banda flokksins að þeir hafa
byrjað að gagnrýna Ronald Reag-
an, forseta Bandaríkjanna, opin-
berlega.
Egon Bahr, sérfræðingur
flokksins í afvopnunarmálum, sem
hefur rætt vopnatakmarkanir við
formann austur-þýska kommún-
istaflokksins að undanförnu,
sagði: „Bandaríkin taka ákvörðun
í eigin hagsmunaskyni og við
verðum að gera slíkt hið sama.“
Búast má við fleiru í svipuðum tón
þegar nær dregur þingi Sósíal-
demókrataflokksins í apríl.
Heimild: Economist
Viö
bjóöum
ykkur á
mmm
Margt er
sér til gamans
gert
A sýningunni verða m.a.
sýndir 2 nýir bílar en þeir
eru að sjálfsögðu frá Fíat-
verksmiðjunum og heita:
Teiknari á staönum. Bói
teiknar portrett og
skopmyndir.
PANDA
Sparneytni fjölskyldubíll
inn, sem er ótrúlega rúm
góður og framhjóladrifinn
\ kynning — allir fá að
smakka á hinu Ijúffenga
Soda Stream
FIAT
131 SUPER
\
Lúxusbíll á lágu verði. \ <2^
Gjörbreytt útlit, ný véla- \
stærð, mjög sparneytinn, \%
ýmsir aukahlutir. \ -
Auk þess verða á sýningunni \
Fiat Ritmo • Fiat 127 special
_ Fiat 227 Fiorino (sendibíll)
& Fiat X 1/9 • Polonez og 125 P.
j FÍAT EINKAUMBOOÁ ISLANOI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SMIDJUVEGI 4, KÓPAVOGI. SlMI 77200.
PDLONEZ
POLOffi.