Morgunblaðið - 20.09.1981, Side 27
MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
67
A sveitavegum
með Willie Nelson
Austurbæjarbíó:
HONEYSUCKLE ROSE
Bandarísk Irá 1980. Warner
Bros.
Leikstjóri: Jerry Schat7.ber«.
Framleiðandi: Sidney Pollack
og Gene Taft. Handrit: Carol
Sobielski. William D. Wittliíí
ok Joahn Bender. hyjíjít á sojfu
eftir Gosta Steven ok Gustav
Molander. Tónlist eftir Willie
Nelson. Kris Kristofferson.
Leon Russell o.íl. Flutt af
Willie Nelson and Family.
Emmylou Harris. Ilank Coc-
hran o.fl. Tekin oj? sýnd í Dolby
stereo.
Honeysuckle Rose er eitt af
afkvæmum kántrítónlistar- og
fatatískunnar sem tröllriðið hef-
ur Vesturheimi síðustu árin. Hér
hefur þessarar sveiflu einnig
gætt í talsverðum mæli; einn
vinsælasti skemmtistaður borg-
arinnar er innréttaður í vest-
Það var tæpast byrjað að sýna
The Electric Horseman, þegar
taka hófst á Honeysuckle Rose
(síðan hefur Willie leikið í
myndunum Thieves, með James
Caan og Barbarossa ásamt Gary
Busey). Söj?uþráður er spunninn
í kringum goðsögnina Willie
Nelson, tónlist hans og líf. Hér
flytur hann mörg af sínum bestu
lögum og frumsamdi auk þess
nokkur fyrir myndina, þ.á m. hið
geysivinsæla On the Road
Again. sem tilnefnt var til
Oscarsverðlaunanna í ár. Nokkr-
ir góðir gestir troða upp í
myndinni; Johnny Gimble, Hank
Cochran og Emmylou Harris. En
á bak við hinn rauðhærða, sjó-
aða Texasbúa stendur harðsnúið
lið: hljómsveit hans, Family,
sem skipuð er sögufrægum
mannskap úr kántrítónlistar-
heiminum, eins og trommaran-
um Paul English.
rastíl og þar gjarnan flutt amer-
ískt dreifbýlisrokk. Þá hefur
hljómplötusala með þessari teg-
und tónlistar aukist mjög og
fleira mætti tína til.
í stórum hluta Bandaríkjanna
er litið á Willie Nelson sem
einskonar jjuð og á tónlist hans
sem trúarbrögð. Hann er einn af
þeim fáu sem stærstan þátt eiga
í því að gera þessa tónlist jafn
vinsæla í dag og raun ber vitni.
Hann hefur réttilega verið
nefndur konungur kántrítónlist-
arinnar, en reyndar segir það
ekki allt því Willie syngur hvers
kyns tónlist (í sumar tók hann
upp plötu með vini sínum Ray
Charles) af snilli og með sterk-
um, persónulegum einkennum.
Það hlaut að koma að því fyrr
en síðar að þessum rauðhærða
kjarnakarli byðist hlutverk í
kvikmynd og það fyrsta hlaut
hann strax í upphafsmynd
kántrítískunnar, The Electric
Horseman. Þar kom berlega í
ljós að karl er lítið slakari
leikari en söngvari, enda staðið á
sviði í blíðu og stríðu frá ungl-
ingsárum. Hann myndast einkar
vel (fótógenískur), það stafar
innri hlýju af manninum sem er
einkar afslappaður og viðfeldinn
framan við myndavélina.
í hinum glænýju og sérlega
vönduðu hljómburðartækjum
Austurbæjarbíós, sem að öðrum
ólöstuðum hljóta að teljast þau
bestu hérlendis, er Honeysuckle
Rose sannkallaður tónlistarvið-
burður. En utan sviðsins fer því
miður margt í handaskolum. I
fyrsta lagi er söguþráðurinn of
veikur, er í rauninni illa gerður
kántríslagari um ástir, einmana-
leika, framhjáhald, trúnað og
traust. Willie og mjög góðir
aukaleikarar eins og Dyan Cann-
on og gamli, góði Slim Pickens
(hver man ekki eftir karli er
hann reið atómbombunni í Dr.
Strangelove, Kubricks?) eru oft í
vandræðum með að koma frá sér
illsegjanlegum setningum, sem
oft verða smástirninu Amy Irv-
ing ofviða, enda fær hún nokkr-
um sinnum ósegjanlegar setn-
ingar, grey kvölin. Þá hlýtur hún
líka að teljast of ung og falleg til
að falla fyrir hinum roskna
söngvara, sem ber þess greinileg
merki að vera vel sjóaður í henni
veröld.
En textinn er ekki aðalatriðið
í Honeysuckle Rose, heldur hin
drífandi, sprelllifandi tónlist
Willie Nelsons, eins besta dæg-
ursöngvara okkar tíma, og fjöl-
skyldu hans.
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
1x2
3. leikvika — leikir 12. sept. 1981
Vinningsröð: XX1 — X1X — 1X1 — 121
1. vinningur: 12 réttir — kr. 76.745,00 — 43592(6/iu*
2. vinningur: 11 réttir — kr. 2.055,00
3040 4808 28197 13588+ 43591+
4456+ 11161 43584+ 13590+
Úr 2. leikviku: 26408 (Siglufjörður) (1/11)
Kærufrestur er til 5. október kl. 12 á hádegi. Kæiur skulu vera skriflegar
Kærueyðublöö fást hjá umboösmönnum og á aöalskrifstofunní i Reykjavík.
Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (-f) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
'Sumargleð in
Bessi, Ómar, Ragnar, Magnús,
Þorgeir, og Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar í hasastuði.
Stórkostleg fjöl-
skylduhátíð
Súlnasal,
Hótel Sögu,
í dag kl. 3—6
Allra síðasta skemmtun Sumargleðinn-
ar að sinni — svo verður farið í fríið
Stórglæsilegt bingó
Ferðavinningur frá Feröamiö
stööinni og glæsilegt Raleigh
reiðhjól frá Fálkanum. Dregiö
(í veröur í hinu glæsilega gjafa
jhappdrætti Sumargleöinnar.
Vinningar:
Suzuki bifreið frá Sveini Egilssyni.
Grundíg myndsegulbandstækin
frá NESCO, því fylgir ókeypis
aögangur aö videobanka NESCO í
heilt ár.
Finni Frík og Prins Póló vaða um
sviðið af miklu fjöri.
Nú er tækifæri
fyrir alla fjöl-
skylduna aö sjá
Sumargleöina
AKAI-hljómtækjasamstæöa
NESCO
frá
inn-
3 AKAI steró-útvörp meö
byggöu kassettutæki.
Frá Feröamiöstöðinni:
ferö til Benidorm fyrir 2, aö
verömæti 12 þús. kr.
Hverjir veröa þeir heppnu? Vinn-
íngsnúmer verða birt í Mbl.
dagana 22., 23., 24. og 25. sept.
Miöaveröi
stillt í hóf
Aögöngumiöa-
sala í dag frá kl.
13 í anddyri
Súlnasalar, húsið
opnar kl. 14.
Ath. Nokkrir miöar voru seldir af misskilningi á
Sumargleöina á sunnudagskvöld. Þeir miöar gilda í
dag kl. 3 (mismunur endurgreiddur) eöa veröa
endurgreiddir eftir kl. 13. í dag.
^HIutaöeigandi eru vinsamlegast beönir afsökunar.