Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 11
HVAB ER AÐ GERAST UHIHELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 43
Alþýðuleikhúsið:
Stjórnl eysingi
ferst og Sterkari
en Supermann
ÆRSLALEIKURINN Stjórnleysingi ferst af
slysförum verður endurfrumsýndur í Alþýðu-
leikhúsinu um miðnæturskeiðið á laugardag,
en þá verður 50. sýning á þessum gamanleik
eftir meistara hláturleikjanna, Dario Fo. Sýn-
ingin hefst kl. 23.30.
Þráinn Karlsson, sem fer með stærsta
hlutverk leiksins, Dárann, mun í vetur
veita lið Norðlendingum hjá Leikfélagi
Akureyrar. Hann tekur sér því sérstaklega
ferð á hendur til að létta skammdegis-
drunganum af borgarbúum. Aðrir sem
taka þátt í gamninu eru leikararnir: Arnar
Jónsson, Bjarni Ingvarsson, Viðar Egg-
ertsson, Björn Karlsson og Elísabet B.
Þórisdóttir. Leikstjón hafði með höndum
Lárus Ýmir Óskarsson, Þórunn S. Þor-
grímsdóttir gerði leikmynd og búninga og
Silja Aðalsteinsdóttir snaraði verkinu á
íslensku. Örfáar sýningar eru eftir.
10. sýning á Sterkari en Supermann
verður í dag kl. 15. Supermann verður
sýndur aftur á sama tíma á sunnudag.
Þar segir frá móður með tvö börn, og er
annað fatlað. Þau eru nýflutt í nýtt hverfi
og við fylgjumst með hvernig þau spjara
sig við ókunnar aðstæður innan um ókunn-
ugt fólk. Supermann er tilvalin sýning
fyrir unglinga og einnig alla þá sem vilja
kynnast málefnum þeirra sem „minna
mega sín“.
Með hlutverkin í leiknum fara: Sigfús
Már Pétursson, Guðlaug María Bjarna-
dóttir, Margrét Ólafsdóttir, Björn Karls-
son, Thomas Ahrens og Viðar Eggertsson.
Þýðinguna gerði Magnús Kjartansson,
Gretar Reynisson gerði umbúnað og Jór-
unn Sigurðardóttir og Thomas Ahrens
leikstýrðu.
Leikfélag Reykjavíkur:
Aukasýning á
Barn í garðinum
Á FÖSTUDAGSKVÖLD verður hið nýja leik-
rit Kjartans Ragnarssonar, Jói, sýnt í 17. sinn
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Uppselt hefur
verið á allar sýningar til þessa, og svo er
einnig á fostudagskvöldið.
Á laugardagskvöld verður aukasýning á
bandaríska verðlaunaleikritinu Barn í
garðinum vegna mikillar eftirspurnar, en í
síðustu viku var ráðgert að hafa síðustu
sýningu á leikritinu. Margir urðu þá frá að
hverfa, og er fólki því bent á að missa ekki
af þessu síðasta tækifæri að sjá sýning-
una. Höfundurinn, Sam Shepard, sem er
íslenskum kvikmyndahúsagestum kunnur
fyrir afburða leik í tveimur myndum, sem
sýndar voru hér á síðastliðnu ári. Sýning
Leikfélags Reykjavíkur á Barn í garðinum
vakti athygli fyrir dirfsku og nýstárleika,
þegar hún var frumsýnd í vor.
Á laugardagskvöld er einnig miðnætur-
sýning í Austurbæjarbíói á revíu Leikfé-
lagsins, Skornir skammtar, eftir þá Jón
Hjartarson og Þórarin Eldjárn. Á síðasta
leikári var revían sýnd 30 sinnum í Iðnó.
Nú í haust var hún flutt inn í Austurbæj-
arbíó umsamin og endurbætt að miklu
leyti í takt við atburði líðandi stundar.
Uppselt hefur verið á allar sýningar á
revíunni fram að þessu, en í Austurbæj-
arbíói hefjast sýningarnar kl. 23.30 og er
miðasala í bíóinu.
Á sunnudagskvöld er sýning á leikritinu
Rommí, en þau Sigríður Hagalín og Gísli
Halldórsson hafa nú leikið þetta leikrit
alls 107 sinnum. Að vanda er löngu uppselt
á sýninguna á sunnudagskvöld.
Þjóðleikhúsið:
Dans á rósum
frumsýnt,
^Hótel Paradís og
Astarsaga aldarinnar
FYRSTA LEIKRIT Steinunnar Jóhannes-
dóttur leikkonu verður frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu nú í kvöld og heitir verkið Dans á
rósum.
Leikurinn gerist á Akureyri á nokkrum
dögum kringum 17. júní þegar bærinn
fyllist af stúdentum, bæði nýútskrifuðum
og svo þeim eldri sem koma saman til þess
að halda upp á stúdentsafmæli. Aðalper-
sónan, Ásta Harðardóttir, á tíu ára stúd-
entsafmæli og kemur á heimili foreldra
sinna í bænum, en þar býr ennfremur
unglingsdóttir hennar sem hefur til þessa
alist upp hjá afa sínum og ömmu, því Ásta
fór suður til náms og hefur starfað þar
síðan. Verður þessi heimsókn afdrifarík
fyrir Ástu, því aðstæðurnar knýja hana til
þess að gera upp hug sinn og átta sig á
sjálfri sér og sambandi sínu við þá sem
hún umgengst.
Leikstjóri er Lárus Ýmir Óskarsson, en
þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni hans
fyrir Þjóðleikhúsið, leikmynd og búninga
gerir Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, lýs-
ingu annast Ingvar Björnsson, en tónlistin
er samin og flutt af Manuelu Wiesler. —
Það er Saga Jónsdóttir sem leikur hlut-
verk Ástu Harðardóttur, en aðrir í hlut-
verkum eru Helgi Skúlason, Kristbjörg
Kjeld, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður
Skúlason, Þórhallur Sigurðsson, Steinunn
Jóhannesdóttir, Guðjón P. Pedersen og
Júlíus Hjörleifsson.
Dans á rósum verður einnig á fjölunum
á sunnudagskvöld.
Á laugardagskvöld verður sýning á
franska gamanleiknum Hótel Paradís, eft-
ir Georges Feydeau. Leikstjóri er Benedikt
Árnason, leikmynd og búningar eftir Rob-
in Don, lýsingu annast Kristinn Daníels-
son og íslenska þýðingin er eftir Sigurð
Pálsson.
Hótel það sem farsinn snýst um er hin
sóðalegasta stofnun við fáfarna hliðargötu
í París um aldamótin síðustu og reynir að
laða til sín viðskiftavini í vafasömum er-
indagerðum — einkum þá sem vilja fá að
drýgja sitt framhjáhald í friði fyrir ekta-
mökum og nágrönnum. Og á Hótel Paradís
leitar Hr. Dinglet, sem er fyrirmyndar-
smáborgari, með eiginkonu besta vinar
síns og nágranna Hr. Pyodeur. En tillits-
leysi örlaganna hagar málunum þó svo til,
að hið lítt þekkta hótel verður allt í einu
vetvangur hinna óvæntustu mannfunda.
Með aðalhlutverkin fara Róbert Arn-
finnsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Árni
Tryggvason, Bessi Bjarnason, Þóra Frið-
riksdóttir, Randver Þorláksson og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir.
Á sunnudagskvöld sýnir Þjóðleikhúsið
Ástarsögu aldarinnar á Litla sviðinu.
Leiksýningu þessari sem byggð er á ljóða-
bók Mörtu Tikkanen, Ástarsögu aldarinn-
ar, hefur verið vel tekið á Litla sviði Þjóð-
leikhússins. Kristín Bjarnadóttir, þýðandi
verksins, leikur eina hlutverkið í leiknum
þar sem við kynnumst heimilishögum
kvenrithöfundar og sambúðinni við
drykkfelldan eiginmann. — Leikstjóri er
Kristbjörg Kjeld, leikmynd og búning ger-
ir Guðrún Svava Svavarsdóttir og lýsingu
annast David Walters.
Haustskemmtanir
Fóstbrœðra
ENN Á NÝ efnir Karlakórinn Fóstbræður til
haustskemmtana fyrir styrktarfélaga sína í
félagsheimilinu að Langholtsvegi 109.
Skemmtanir þessar sem kórinn endur-
vakti sl. haust hafa haft tvennan tilgang,
að efla tengsl kórsins við styrktarfélaga
hans, en stuðningur þeirra gerir starf hans
mögulegt. í öðru lagi hafa þær reynst
drjúg tekjulind.
Fóstbræður hafa nú hafið undirbúning
að söngferð til Bandaríkjanna á næsta ári
og eru haustskemmtanirnar upphafið á
fjármögnun þeirrar ferðar.
í þetta skipti verða skemmtanirnar ein-
ungis á laugardagskvöldum og hefjast
næstkomandi laugardag, 17. október, kl.
20.30, og verða síðan næstu fjögur laugar-
dagskvöld. Húsið verður opnað kl. 20.00.
Miðar verða afhentir og tekið á móti
pöntunum daginn fyrir hverja skemmtun
og samdægurs kl. 17.00—19.00 í félags-
heimilinu, sími 85206. Borð verða ekki tek-
in frá.
Skemmtanirnar verða með svipuðu sniði
og áður þ.e. söngur, grín og gaman, og
síðan dunar dansinn.
Kynnir á skemmtunum verður einn kór-
félaga, Jón B. Gunnlaugsson, en hann
reynist litlu hafa gleymt frá árunum í
skemmtanaiðnaðinum.
Tískufatnaður á
kvöldsýningu
ANNAÐ HVERT föstudagskvöld í vetur
verður tískusýning í Blómasal Hótel Loft-
leiða, þar sem lögð verður áhersla á glæsi-
legan fatnað fyrir bæði dömur og herra.
I kvöld hefst sýningin klukkan 19.00 og
er sýningarstjórn í höndum Unnar Arn-
grímsdóttur en það eru Modelsamtökin
sem fatnaðinn sýna. Verður sýndur sam-
kvæmis- og kvöldklæðnaður. Vandaður
matseðill verður að vanda.
Kynning á starf-
semi Heimilis-
iðnaðarskólans
Heimilisiðnaðarskólinn kynnir starfsemi
sína að Kjarvalsstöðum dagana 17.—25.
október. Sýningin verður haldin í anddyrinu
og gefur þar að líta sýnishorn af verkum
nemenda, áhöldum og kennslutækjum. Dag-
lega eru kynntar tvær eða fleiri námsgreinar
og sjá kennarar skólans um þá kynningu.
Sérstökum kynningarbæklingum um skólann
verður dreift til sýningargesta. Aðgangur er
ókeypis.
Heimilisiðnaðarskólinn var stofnaður
árið 1979, en áður hafði Heimilisiðnaðarfé-
lagið, sem rekur skólann, haldið námskeið
nær óslitið frá árinu 1913. Fjöldi náms-
greina hefur aukist töluvert með tilkomu
skólans og eru þær nú 28 talsins. Aðal-
markmið skólans er að viðhalda gömlum
vinnuaðferðum og aðlaga þær nútíma
þjóðfélagi, og er lögð mikil áhersla á vand-
að handbragð og góða hönnun. Á siðasta
ári sóttu 550 manns námskeið skólans, en
þau urðu alls 60 talsins.
Skólinn starfar að Laufásvegi 2, og eru
starfandi kennarar við hann 16 talsins.
Skólastjóri er frú Sigríður Halldórsdóttir.
Á myndinni má sjá þá sem standa að kabar
ettsýningum í Þórskaffi næstu sunnudags-
kvöld. Jörundur, Júlíus og Þórhallur semja
textana, en þær Birgitte Heide, Ingibjörg og
Guðrún Pálsdætur dansana.
(Ljósm. Mbl. Emilía)
Kabarettsýningar
hefjast að nýju
í Þórskaffi
N/ESTKOMANDI sunnudagskvöld hefjast
að nýju kabarettsýningar í I*órskaffi eftir
sumarlangt hlé. Kabarettinn verður með
svipuðu sniði og síðastliðinn vetur, hefst kl.
22 og er eingöngu ætlaður matargestum. í
kabarettinum eru 6 þátttakendur auk 7
manna hljómsveitar Galdrakarla.
Kabarettinn er saminn af hópnum sem
að honum stendur, en það eru þeir Július
Brjánsson, Þórhallur Sigurðsson og Jör-
undur Guðmundsson sem semja texta og
Ingibjörg og Guðrún Pálsdætur ásamt
Birgitte Heide, sem sjá um dansana.
Galdrakarlar semja siðan tónlist við hæfi
og flytja hana.
Jörundur sagði á fundi með blaða-
mönnum í vikunni að þessar sýningar hafi
notið mikilla vinsælda í fyrra og jafnan
þurft að panta með viku fyrirvara. Sýn-
ingarnar eru um klukkustundarlangar og
verða haldnar öll sunnudagskvöld. Átriðin
eru fleiri í ár en í fyrra og sömuleiðis
styttri og verður breytt um efni eftir því
sem tilefni gefst til þar sem fjallað er um
atburði líðandi stundar.
Norrœna húsið:
Sýning á hand-
prjónuðum sjölum
í ANDDY'RI Norræna hússins hefur verið
komið upp sýningu á handprjónuðum sjölum
eftir dönsku prjónakonuna og listhönnuðinn
AASE LUND JENSEN.
Aase Lund Jensen, sem lést árið 1977,
var að góðu kunn hér á landi. I nóvember
1971 hélt hún sýningu í Norræna húsinu á
vegum þess og íslensks heimilisiðnaðar.
Jafnframt hélt hún tvö prjónanámskeið.
Aase Lund Jensen vann að því síðasta árið
sem hún lifði að gefa út bók um gömul sjöl,
þar á meðal íslensk, en lauk ekki því verki.
Danska listakonan Marianne Isager hélt
verkinu áfram, en hún erfði verkstæði
Aase Lund Jensen. Lauk hún við að prjóna
þau sjöl, sem Aase entist ekki aldur til að
ljúka við. Hefur hún haft umsjón með
þessari litlu sýningu. Áður var sýningin í
Listiðnaðarsafninu í Kaupmannahöfn, og
hingað kemur hún frá Herning. Það eru
um 30 sjöl, sem hér eru sýnd, aðallega
prjónuð eftir gömlum dönskum, færeysk-
um og íslenskum uppskriftum, en einnig
eru nýjar uppskriftir. Sýningin gefur vel
til kynna kunnáttu forfeðranna í prjóna-
skap og er hvetjandi fyrir áhugafólk að
nota þessar gömlu uppskriftir og kynnast
nýjum hugmyndum.
Sýningin í Norræna húsinu verður til 31.
október og er opin á opnunartíma hússins
kl. 9—19, nema sunnud. 12—19.
Tónlist á Torfunni
VEITINGASTAÐURINN Torfan hefur að
undanförnu verið með enskan gítarleikara,
Josep Fung, sem spilað hefur létta „dinn-
ermúsik" fyrir matargesti. Hann spilar frá
kl. átta til níu á sunnudags- og miðviku-
dagskvöldum og geta því gestir Torfunnar
kynnt sér hinn nýja sjávarréttamatseðil
hússins undir léttklassískri tónlist.