Morgunblaðið - 03.01.1982, Page 1
32 SÍÐUR
1. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bandaríkin:
Utanríkisþjónustan
endurskipulögð?
I'alm Springs, Kaliforníu, 2. janúar. AP.
HAFT ER EFTIR heimildum innan Hvíta hússins, að Reagan
Bandaríkjaforseti muni tilkynna um „allvíðtækar breytingar“ á
utanríkisþjónustunni, bæði hvað varðar skipan hennar og fram-
kvæmd. T.d. er búist við, að embætti öryggismálaráðgjafans verði
gert valdameira en nú er og að Richard V. Allen muni ekki gegna
því áfram.
Háttsettur embættismaður í
Hvíta húsinu, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sagði, að ráðgjaf-
ar Reagans hefðu mestan auga-
stað á William P. Clark í embætti
öryggismálaráðgjafa en hann
gegnir nú starfi aðstoðarutanrík-
isráðherra. Allen, sem áður gegndi
embættinu, var vikið frá um
stundarsakir a.m.k. vegna rann-
sóknar á meintri mútuþægni þeg-
ar í ljós kom, að hann hafði tekið
við 1000 dollurum frá japönskum
kaupsýslumanni sem greiðslu
fyrir viðtal við Nancy Reagan for-
setafrú.
Alexander Haig utanríkisráð-
herra var í dag á fundi með Reag-
an í Palm Springs og var umræðu-
efnið m.a. heimsókn Helmut
Schmidts kanslara Vestur-Þýska-
lands til Washington í næstu viku,
uppstokkunin á utanríkisþjónust-
unni og ástandið í Póllandi.
Útgöngubanni í
S-Kóreu aflétt
Seoul, 2. janúar. AP.
(’HUN Doo-hwan forseti Suður
Kóreu færði löndum sínum stóra ný-
ársgjöf er hann felldi úr gildi út-
göngubann að næturlagi er verið
hafði í gildi í landinu frá lokum
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Þing landsins lagði nýverið til
að útgöngubannið yrði fellt úr
gildi við fyrsta tækifæri. Utgöngu-
bann frá miðnætti til klukkan
fjögur að morgni verður þó áfram
í héruðum næst landamærunum
við Norður-Kóreu.
Skálmöld í Ghana
í kjölfar byltingar
Abidjan, 2. janúar .AP.
SKÁLMÖLD ríkir í Ghana í kjölfar
stjómarbyltingar hersins á gamlárs-
dag, samkvæmt fregnum sem borist
hafa frá Accra og eru hermenn sagð-
ir fara ránshendi um verzlanir og
heimili. Fjöldi félaga í flokki Hilla
Limann fyrrum forseta hefur verið
hnepptur í varðhald og ekki vitað
hvar hann sjálfur er niðurkominn.
Að sögn fróðra þóttu líkur benda til
þess í dag að herinn stæði ekki allur
á bak við Kawlings, sem er 34 ára
liðsforingi, og hefðu skothvellir
kveðið við í Accra undanfarna daga.
Ástandið í landinu er annars
óljóst þar sem landamæri þess og
allar samgönguleiðir eru lokaðar.
Búist var þó við að leiðtogi bylt-
ingarinnar, Jerry J. Rawlings,
ávarpaði þjóðina í útvarpi í dag í
fyrsta skipti frá því hann steypti
stjórn Limanns af stóli.
Rawlings stýrði einnig stjórn-
arbyltingu hersins er herstjórn
Akuffo hershöfðingja var steypt í
júní 1979, en eftir kosningar fékk
hann Limann völdin. Að sögn
Rawlings var ákveðið að láta til
skarar skríða gegn stjórninni nú
til að útrýma spillingu í Ghana.
Byltingin á gamlársdag er
fimmta stjórnarbylting hersins í
Ghana frá því landið varð fyrst
afrískra blökkumannaríkja til að
hljóta sjálfstæði fyrir 25 árum.
Friðsælt var um áramólin á höfuðborgarsvæðinu svo sem annars staðar á landinu. I stillunni á gamlárskvöld leiftraði
himinninn er þúsundum flugelda var skotið upp og blys tendruð. Ljósmyndari Morgunblaðsins, Kristján E. Einars-
son, náði þessari stemmningsmynd á síðustu mínútum ársins.
Shehu myrtur
á flokksfundi?
Ikdgrad, 2. janúar. AP.
JÚGÓSLAVNESKT vikurit hefur
eftir óstaðfestum heimildum, að
Mehmet Shehu forsætisráðherra
Albaníu hafi að öllum líkindum
verið ráðinn af dögum á fundi
helztu ráðamanna Albaníu í Tirana
17. desember er hann gerði tilraun
til að myrða Enver Hoxha forseta.
Útvarpið í Tirana skýrði frá
dauða Shehu 18. desember og
sagði hann hafa stytt sér aldur „í
þunglyndiskasti". Shehu var 69
ára er hann lézt. Hann varð for-
sætisráðherra 1954 og talið að
þeir Hoxha hafi jafnan verið
nánir samstarfsmenn.
„Pólland án fangelsa,
Pólland án ofsókna“
- sagði í nýárskveðju formanns Samstöðu í Varsjá, sem fer huldu höfði
2. janúar, AP.
„HLÝÐIÐ Á rödd samviskunnar. Minnist þess, að þið eruð menn og
Pólverjar en ekki bara viljalaus verkfæri í höndum kúgaranna,"
segir í dreifibréfi frá Zbigniew Bujak, forntanni Samstöðu í Varsjá,
sem komst hjá handtöku í kjölfar herlaganna og fer nú huldu höfði.
í fréttum frá Varsjá segir, að Jaruzelski hershöfðingi hafi sett á
laggirnar nefndir til að leggja á ráðin um framtíðarfyrirkomulag
þjóðfélagsmála í Póllandi og í gær, föstudag, tilkynnti hin opinbera
fréttastofa landsins um ýmis sérréttindi til handa þeim, sem vinna
erfið verk og áhættusöm. Einnig var tilkynnt um aukna kjötskömmt-
un.
Bujak, sem nú er í felum, segir í
dreifibréfinu, að það sé „nýárs-
kveðja til allra Pólverja og vina
þeirra erlendis“. Hann ávarpar
fjölskyldur þeirra, sem hafa verið
handteknir, sérstaklega og segir:
„Þjáningar okkar munu leiða til
Póllands án fangelsa og nauðung-
arbúða, til Póllands án lögreglu-
ofsókna og stöðugs ótta.“ Einnig
segir hann, að Samstaða starfi
enn þrátt fyrir að flestir forystu-
menn hennar hafi verið handtekn-
ir.
Eftir háttsettum mönnum inn-
an kaþólsku kirkjunnar er haft, að
í Póllandi séu nú 50 nauðungar-
búðir og að hinir handteknu fái
ekkert samband að hafa við fjöl-
skyldur sínar eða aðra. Sömu
heimildir segja, að helmingur
starfsliðsins við málgagn komm-
únistaflokksins hafi verið rekinn
úr starfi og að opinberum starfs-
mönnum sé gert að undirrita holl-
ustuyfirlýsingu við stjórnvöldin
eða missa starfið ella.
Tilkynnt hefur verið í Varsjá, að
tvær milljónir verkamanna, sem
erfiðustu verkin vinna, muni
framvegis njóta ýmissa sérrétt-
inda umfram aðra, t.d. verður eft-
irlaunaaldur þeirra lækkaður og
launin hækkuð. Litið er á þessar
ráðstafanir sem tilraun til að
auka framleiðni í landinu, sem nú
er sögð vera í algjöru lágmarki.
Jaruzelski hershöfðingi hefur
skipað þrjár nefndir til að gera
tillögur um framtíðarfyrirkomu-
lag mála i Póllandi og er haft eftir
heimildum, að ein þeirra hafi þeg-
ar lagt til, að Sameinaði pólski
verkamannaflokkurinn, þ.e.
kommúnistaflokkurinn, verði
lagður niður og í hans stað stofn-
aður nýr með þátttöku kirkjunnar
og verkalýðsfélaga.
I nýársboðskap Margaret
Thatchers, forsætisráðherra
Bretlands, sagði hún, að Vestur-
lönd myndu standa saman í Pól-
landsmálinu. Hún sagði, að Rúss-
ar reyndu að reka fleyg á milli
Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra í Vestur-Evrópu en
það mætti aldrei gerast.