Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 Ók stórslasaðri stúlkunni í slysadeild ALVARLEGT umferdarslys varð á Vesturlandsvegi til móLs við Korp- úlfsstaði um klukkan 7 á nýársdags- morgun. Ekið var á 19 ára stulku, sem þar var á gangi, en ekki var Economist: Þeir sem hafa reynt vísitölubindingu - vilja losna út úr henni í NÝÍITKOMNU tölublaði af hinu virta brezka vikuriti, Economist, segir að þrjú Evrópulönd, sem reynt hafi að draga úr áhrifum verðbólgu með víð- tækri vísitölubindingu vildu gjarnan komast út úr því kerfi. N'efnir blaðið þessi þrjú ríki og segir þau vera Belgíu, Ítalíu og ísland. Blaðið segir ennfremur, að engin ríkisstjórn hafi áhuga á að láta verð- bólguna æða áfram meðan reynt sé að svæfa áhrif hennar með vísitölu- bindingu. Ijóst hvert ferð hennar var heitið. Ökumaður bifreiðarinnar var á leið til Reykjavíkur. Ökumaðurinn tók stórslasaða stúlkuna, þar sem hún lá í blóði sínu, og kom henni fyrir í bifreið- inni og ók henni í slysadeild. Stúlkan reyndist alvarlega slösuð, mjaðmagrindarbrotin, fótbrotin, sködduð á höfði og meðvitundar- laus og sýndi maðurinn með þessu mikið ábyrgðarleysi. Ökumaður- inn er grunaður um ölvun við akstur. ^_____________ Nýkrónan rýrn- aði um 31% NÝKRÓNAN rýrnaði um 31% á sínu fyrsta ári, en ekki 45%, eins og sagði í baksíðufrétt Mbl. á gamlársdag. Þetta þýðir, að hver króna hefur fallið úr 100 aurum í 69 aura. Morgunblaðið biðst afsök- unar á þessum mistökum. Haraldur Pétursson fv. safnhúsvörður látinn HARALDUR l'étursson, fyrrverandi húsvörður Safnahússins í Reykjavík, lézt á sjúkradeild Hrafnistu á ný- ársnótt, 86 ára að aldri. Haraldur fæddist að Arnarstöð- um í Hraungerðishreppi, Árnes- sýslu, 15. ágúst 1895. Foreldrar hans voru Pétur Guðmundsson, kennari á Eyrarbakka, og Ólöf Jónsdóttir frá Uppsölum í Flóa. Haraldur var bóndi í Borgarholti í Biskupstungum 1922—23 og síðan í Stekkholti í sömu sveit 1923—25. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og stundaði þar ýmis störf, unz hann gerðist húsvörður Safna- hússins 1936. Því starfi gegndi hann í þrjá áratugi, til ársloka 1965. Haraldur var kjörinn yfirskoð- unarmaður ríkisreikninga 1965 og endurkjörinn til þessa starfs til ársins 1978. Auk þessa gegndi hann ýmsum öðrum trúnaðar- störfum. Hann var gjaldkeri Verkamannafél. Dagsbrúnar í þrjú ár og ritari Fulltrúaráðs verkalýðsfél. í Reykjavík um skeið. Þá sat hann í stjórn Vinnu- miðlunarskrifstofunnar i Reykja- vík frá stofnun hennar 1935 til 1951, þar af sem formaður fjögur siðustu árin. Hann sat í niðurjöfn- unarnefnd Reykjavíkur frá 1947 til 1962 og síðan í framtalsnefnd 1963 til 1966. Þá var hann í lýð- veldiskoMÚnganefnd ( Reykjnvík 1944 ag ( uadirbiíningMMfnd Reykjavíkursýningarinnar 1949. Um langt árabil vann Haraldur að ýmsum fræðistörfum í tóm- stundum sinum. Hann tók m.a. saman ritið Kjósarmenn, ævi- skrár, sem kom út 1961, og Ljós- mæðratal 1762—1953. Hann var kjörinn heiðursfélagi Ljósmæðra- félags íslands 1979. Eftirlifandi konu sinni, Mar- gréti Þormóðsdóttur, kvæntist Haraldur 1924. Þau eiga þrjú börn á lífi. Ruddaleg árás á 63 ára konu ÞKÍK piltar réðust á aðfaranótt ný- ársdags á 63 ára gamla konu í Hléskógum í Breiðholti. Piltarnir voru handteknir á föstudagskvöldið og var verið að yfirheyra þá í gær. Konan var að fara frá dóttur sinni um kl. 02.30 þegar þrír piltar gengu í veg fyrir bifreið hennar. Einn þeirra var blóðugur í andliti. Konan stöðvaði bifreiðina og báðu piltarnir hana um að aka sér í slysadeild. Konunni leist ekki meira en svo á þá, að hún færðist undan þeirri bón þeirra, en benti þeim á að hringja á bíl heiman frá dóttur sinni. Að sögn konunnar, vissi hur ekki fyrr en hurð bifreiðarinnai var svipt upp og tekið var harka- lega um trefil hennar, svo henni lá við köfnun. Þá var hurðinni hinum megin svipt upp og konunni kippt út úr bilnum og í götuna. Gler- augu hennar brotnuðu og sprakk fyrir á vö-r. Þegar konan hrópaði á hjálp hlupu piltarnir í burtu. Konan kærði árásina til Rann- sóknarlögreglu ríkisins, en gat ekki gefio nákvæma lýsingu á pilt- unum. Hins vegar voro þeir hand- teknir á föstudagskvöldið eftir lýsingu þriggja stúlkna, sem sáu þá um svipað leyti í nágrenninu og var einn blóðugur í andliti. Málfríður Einarsdóttir tekur við verðlaunuMMi ér Kristjánssonar. RfltMt varpsins úr hendi Jónasar Ljósm. OI.K.Majj. 82ja ára rithöfundur hreppti útvarpsyerðlaunin MÁLFRÍÐUR Einarsdóttir er frumlegasti rithöfundurinn á íslandi um þessar mundir, sagði einn dómnefndarmanna í stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, Hjörtur Pálsson, við blaðamann Mbl., þegar formaður sjóðsins, Jónas Kristjánsson, hafði afhent Málfríði þessi verðlaun óskipt við hátíðlega athöfn á gamlársdag í ÞjóðminjasáThinu. Málfríður Einarsdóttir telst Spurð hvort hún ætlaði að halda þó vart til ungu rithöfundanna þótt hún hafi gefið út sína fyrstu bók 1977, þá 78 ára gömul. Síðan hafa komið út eftir hana fjórar bækur, Samastaður í tilverunni, Úr sálarkyrnunni, Auðnuleys- ingi og tötrughypja og nú fyrir jólin Bréf til Steinunnar, þegar hún er 82ja ára gömul. — Ég var að vonast til þess að hún Stein- unn (Sigurðardóttir, skáldkona) yrði komin heim frá Svíþjóð fyrir þessa athöfn, sagði Mál- fríður við fréttamann Mbl. áfram að skrifa Steinunni í bók, kvaðst hún ekki vita það. En hún væri þegar búin að boða tvær bækur til viðbótar, framhald af Auðnuleysingi og tötrughypja, sem hún á þegar í ófullkomnu handriti, og Ljóðmæli. Ljóðin flest gömul og hafa birst smám saman í tímaritum. í skipulagsskrá sjóðsins er minnst á að tilgangurinn sé að veita íslenskum rithöfundum styrki til ritstarfa eða undirbún- ings undir þau, einkum með utanförum, þótt það ákvæði beri fremur að skilja sem tilmæli en fyrirmæli, eins og formaður sjóðsstjórnar sagði. Málfríður sagðist nú ekki treysta sér leng- ur í ferðalög, sjónin væri orðin svo léleg, en hún mundi halda áfram að skrifa. Verðlaunaféð, sem eru nú 40 þúsund krónur, breyttu ekki miklu um það, því hún lifi á ellilaununum sínum. — En það veitir mér mikla ánægju, sagði hún. Oftast hefur verðlaununum verið skipt á einn og allt upp í 4 rithöfunda, en að eindreginni ósk Rithöfundasam- bands Islands var nú ákveðið að styrkurinn skuli falla óskiptur í hlut eins rithöfundar. Eðvarð Sigurðsson hættir formennsku í Dagsbrún „ÉG HEF mjög eindregið lýst því yfir að ég vilji láta af formennsku í Dagsbrún, en ég hef verið formaður þar síðan 1961,“ sagði Eðvarð Sig- urðsson, formaður Dagsbrúnar, í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann kvað ekki Ijóst hver tæki við formennsku af honum, þar sem ekki væri búið að stilla upp til stjórnar en líklegustu formannsefni taldi Eð- varð vera þá Guðmund J. Guð- mundsson, varaformann Dagsbrún- ar, og Halldór Björnsson, ritara Dagsbrúnar. Stjórnarkjör verður í Dagsbrún í janúar. Eðvarð tók við formennsku af Hannesi Stephensen, sem gegndi því starfi frá 1953—1961, en þar áður var Sigurður Guðnason formaður frá 1942. Morgunblaðið innti þá Guð- mund J. Guðmundsson og Halldór Björnsson eftir því hvort þeir gæfu kost á sér til formannskjörs Dagsbrúnar. Guðmundur sagðist vera að hugleiða málið, það væri uppstillingarnefndar og síðan Helgey lestar loðnumjöl SiglufirAi, 2. januar. HÉR FÓRU áramótin vel fram, en lítið veður var til útiathafna. Fyrsta vöru- flutningaskip ársins, llelgey, hóf að lesta loðnumjöl hér í dag. Farþegar, sem fóru um hádegið á gamlárskvöld frá Reykjavík í bíl, komu um sexleytið með snjóruðn- ingstæki á undan sér frá Siglufirði. — m.j. trúnaðarmannaráðs að ákveða uppstillingu, en hann kvaðst hafa verið varaformaður þann tíma sem Eðvarð hefði gegnt for- mennsku sl. 20 ár. Halldór kvaðst ekki gefa kost á sér til formennsku þar sem hann teldi eðlilegra að varaformaður tæki við for- mennsku, en hins vegar kvaðst hann ekki telja útilokað, að hann myndi færa sig til innan stjórnar- innar úr starfi ritara. Látiiu eftir slys Fasteignagjöld á Seltjarnarnesi: 23—30% lægri en í Reykjavík og Kópavogi em 23—3»% FASTEIGNAGJÖLD lægri á SeKjarnarnesi ea í i byggðum, segir Magne I forseti bæjarstjórnar .SeltjarnarDerw, í grein í nýútkomnu töluMaði af SeKirningi, biaði sjáifstæðÍHmaana. Seltirnmgar greiða 779 nkr. eða 77 þúsund gkr. lægri upphæð I fast- eignagjöM af 15« fm íbúð eða bési en Reykvíkingar eða Kópavogshúnr. Magnús Erlendsson segir m.a.: „Hjón eða einstaklingur, sem á ca. 150 fermetra íbúð eða hús á Sel- tjarnarnesi, greiddi á yfirstand- andi ári í fasteignagjöld 2334 krónur. Hefðu þessir sömu aðilar átt búsetu eða fasteign í Kópavogi eða Reykjavík, hefði þeim börið að greiða fyrir sömu stærð af íbúð eða húsi 3104 krónur. Munurinn er hvorki meira né minna en 770 nýkrónur, eða 77.000 gamalla króna," segir Magnús Erlendsson. PH/niMNN, mm Mm f ^dumborð f í I SwmWMMi þaou 14. aMtwtUðÍBi, léut ( liorg- að kvöMi 31. donem ber. Hann hét Anton Sigurðsson, til heimilis að Unufelli 31 í Reykja- vik. Hann var fæddur 10. 1964. marz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.