Morgunblaðið - 03.01.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982
9
Texti: Jakob F.
Ásgeirsson
Myndir: Ólafur K.
Magnússon
og keppti á kappmótum. Og þegar
ég eltist gekk ég mikið um fjöll og
fyrnindi og fór í Iangar jöklaferðir
með vinum mínum. Við vorum oft
lengi á ferðum, kannski mánuð í
senn. Þetta voru ævintýri. Stund-
um fór ég einn og hafði með mér
byssu og skaut fugl til matar. í
eitt skipti hafði ég með mér burð-
armann. Ég hef alltaf ráðlagt ung-
um mönnum sem ætla útá lista-
brautina, að hrista duglega upp í
skrokknum á sér. Iþróttaiðkun og
göngur um óbyggðir eru gott ráð
til þess. Þið þurfið þess seinna
með, hef ég sagt við þá þessa
drengi, sulturinn verður ykkur
léttbærari.
Það var verkfall í Reykjavík.
Ekki neina vinnu að fá og allar
horfur á að verkfallið drægist á
langinn. Þá setti ég málaradótið
mitt í poka og fór gangandi suður
með sjó og kynnti mér mótíf. Ég
var sautján vetra þá. Ég gekk til
Njarðvíkur og fékk að sofa hjá
skyldfólki og kynnti mér starf sjó-
mannsins alla daga og lagðist
þreyttur til svefns á kvöldum. Ég
gekk til Keflavíkur og Grindavík-
ur og fleiri staða og hafði sama
háttinn á. Menn tóku mér vel á
þessu ferðalagi, þó það hafi ekki
þótt nein viska í þá daga að gerast
málari. En ég átti mér félaga í
Ég vissi að Munchen var góð og
mikil listaborg og einhvern veginn
beit ég þetta í mig, að þangað
skyldi ég. Ég ætlaði mér líka að
læra grafík og þá var Miinchen
upplagður staður. Grafík var köll-
uð svartlist í þá daga, hún var þá
mestan part gerð í svörtu og hvítu.
Þeir voru víst einhverjir að stofna
grafíklistafélag á dögunum, eins
og íslenskir listamenn hefðu
aldrei snert á grafík fyrr en nú á
seinni árum, en ég get sýnt þér hér
í stofu minni nokkur grafík verk
frá því fyrir 1930.
Þegar ég kom til Hamborgar að
haustlagi, var þar fyrir Björn
Franzson við nám í eðlisfræðum.
Hann var raunar einmitt um það
leyti að flytja sig suður til Múnch-
enar og urðum við samferða og
gerðumst síðan góðir vinir. Hann
hjálpaði mér mikið ungum og
óreyndum í ókunnu landi. En á
leiðinni suður lögðum við lykkju á
leið okkar og skoðuðum minn-
ingarsýningu Alberts Dúrers. Hún
hafði sterk áhrif á mig sú sýning.
Það opnaðist raunar strax nýr
heimur fyrir manni í listinni, þeg-
ar ég kom á þýska grundu. Þá
byrjaði maður að taka út þroska
sinn sem listamaður. Ég fór á öll
söfn og skoðaði allar sýningar sem
ég átti kost á. í fyrsta sinn hafði
maður heimslistina fyrir.augun-
um.
í Múnchen bjó ég jafnan ein-
samall. Herbergið kostaði þá
30—40 mörk á mánuði og fylgdi
morgunkaffi, sem tíðast var nú
ekki nema rúgkaffi og brauðlingur.
kvæntur dóttur Björnstene
Björnson. Olav var aðalteiknari
við hið mikla grínblað Þjóðverja
Simplesissus. Velmetnir menn
báðir tveir. Þeir voru mér góðir og
útveguðu mér aðstöðu í skólanum.
Þar vann ég með þýskum lista-
manni sem Ertd hét. Hann var
orðinn þroskaður listamaður og
lærði ég margt af honum. Ég var
jafnan í skólanum frá því snemma
á morgnum þar til seint á kvöld-
um.
Það var hörð lífsbaráttan í þá
daga, en það þýddi ekki að berja
sér. Ég hafði tekið þessa ákvörðun
sjálfur og vildi ekki láta aðra líða
fyrir hana. En oft var maður nú
fátækur og lítill í Múnchen. Einn
sumardaginn fyrsta á þessum ár-
um, ligg ég uppá herbergi. Ég
hafði ekki etið máltíð í nokkra
daga og hafði það skítt. Mitt í því
sem ég vorkenni sjálfum mér kall-
ar húsmóðir mín að pósturinn sé
kominn með ábyrgðarbréf til mín.
Ég spratt á fætur og fram og
niður og opnaði bréfið í dauðans
ofboði. Allt í einu stóð ég með 100
mörk í höndunum og kveðju frá
Einari Jónssyni. Hann sagði að
þau hjónin sendu jafnan einhverj-
um fátækum listamanni peninga á
sumardaginn fyrsta, því einu sinni
hefði hann sjálfur fengið gjöf og
óvænta á þeim degi, þegar hann
var við nám. Maður kættist nú al-
deilis við þetta og ég bauð sveltifé-
laga mínum, Birni Franzsyni, út
að borða.
Ég kom ævinlega heim á sumr-
um, meðan ég dvaldi við nám er-
Heimkoma 1981.
þessari baráttu. Jón Engilberts
var einn æskuvina minna. Eitt
sinn leigðum við okkur herbergi
og geymdum þar litakassana
okkar og eftir vinnu á kvöldum
fórum við þangað og máluðum
framá nótt. Þá var nú sumarbirt-
an aldeilis notuð og oft var maður
svefnlítill við erfiðisvinnu í þá
daga. En maður varð að leggja
eitthvað á sig til að komast áfram.
Við Jón Engilberts teiknuðum
saman frá því við vorum ungir
drengir. Þá fannst mönnum það
hreinasti óþarfi að hraustir strák-
ar væru að fást við slíkt. En við
létum okkur ekki.
I>ýskalandsár
Fyrstu sýninguna mína hélt ég í
Goodtemplarahúsinu haustið
1927. Þá hafði ég afráðið að halda
til Múnchen til náms í málaralist.
Ég sýndi einar 20—30 myndir,
mest teikningar og seldi þrjár, en
fékk gott umtal í blöðum. Ég hélt
því bjartsýnn út. Þá voru nú engir
styrkirnir, en mér hafði loks tek-
ist að öngla saman fyrir farareyri,
svo seldi ég nú þrjár myndir á
sýningunni og einnig naut ég
stuðnings góðra manna. Ég átti
því fyrir farinu með Goðafossi til
Hamborgar og var með 300 mörk í
vasanum þegar þangað kom. Það
ætlaði ég að láta duga mér yfir
veturinn.
Ég hafði lært þýsku á kvöldskól-
um í þrjá vetur, því ég var alltaf
ákveðinn í að fara til Þýskalands.
Björn Franzson fann upp þetta
orð yfir brauðstykki, sem við köll-
um uppá dönsku rundstykki.
Brauðlingur finnst mér ólíkt betra
orð en rúnnstykki. Einn brauð-
lingur og súpudiskur dugði okkur
Birni báðum í góða máltíð. Björn
var besti sveltifélagi minn í
Þýskalandi. Við fórum aldrei á
bak við hvorn annan. Þegar annar
átti aura, áttu báðir aura.
Fyrsta veturinn minn í Múnch-
en sótti ég tíma í einkaskóla. Ann-
an á daginn og hinn á kvöldin.
Heiman, eldri maður af gyðinga-
ættum og ákaflega velviljaður,
kenndi mér á daginn, en á kvöld-
um sótti ég tíma hjá Hirts nokkr-
um, sem var all þekktur portrett-
málari í þann tíð. Haustið næsta
tók ég svo próf inná listaháskól-
ann í Múnchen. Það sóttu 120 um
að fá að þreyta prófið, 70 fengu að
taka það og 34 stóðust það. Þá var
maður nú spenntur. En þegar mér
var tilkynnnt að ég hefði komist
inná skólann, fórum við Björn út
og fengum okkur góðan bjór. Dýr-
legur dagur þegar það var. Prófið
hafði staðið í 5 daga. Við teiknuð-
um andlitsteikningar frá 9—12
fyrir hádegi og módelteikningar
frá 2—5. Ég teiknaði 28 myndir á
þessum fimm dögum og svo lagði
maður fram fjölda eldri verka.
Plg var fyrsti íslendingurinn
sem tók inntökuprófið í listahá-
skólann í Múnchen. Þar kenndi
mér prófessor að nafni Adolf
Schinnen og einnig Olavc Gul-
brandson, norskur maður og
lendis. Þá vann ég mér inn pen-
inga til næsta veturs og hélt sýn-
ingu á haustum. Maður seldi jafn-
an allt sem maður átti úti í Þýska-
■landi þegar voraði og kom blá-
snauður heim. Maður vann eins og
sleggja mestan part sumarsins, en
tók sér svo tveggja og þriggja
vikna frí, að undirbúa sýninguna.
Þá leigði maður sér stundum
herbergi á Þingvöllum og málaði
þar í sumarkyrrðinni. Þar kynnt-
ist ég Kjarval og gerðumst við
góðir vinir. Mér þótti gott að tala
við Kjarval, meðan við vorum
tveir einir. Þá talaði hann vitur-
lega, enda stórgáfaður maður, en
það breyttist þegar þriðji maður-
inn kom í hópinn. Margur fimm-
kallinn fór á milli okkar Kjarvals.
Hann átti oftlega ekki fyrir mat í
þá daga. Listin var svo takmörkuð
út á meðal fólksins.
Kaþólskur
velgjörðarmaður
Elsta myndin sem Eggert Guð-
mundsson á eftir sjálfan sig, er
lítil Kristsmynd máluð á tekk-
spjald sem Eggert keypti á sínum
tíma af Þórarni B. Þorlákssyni.
— Séra Friðrik Friðriksson,
vinur minn og ungdómsfræðari
lagði mér margt í þessa mynd. Svo
munaði minnstu að ég yrði kaþ-
ólskur útá hana. Mólenberg, hinn
kaþólski biskup á íslandi í þá tíð,
sá þessa mynd og var mjög hrifinn
af henni og var vel til mín alla tíð
SJÁ NÆSTU SÍÐU
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIOBÆR - HÁALEITISBRAUT 58 60
SÍMAR 353008.35301
Við Hvasaleiti
Glæsilegt raðhús á 2 hæðum
meö innbyggðum bilskúr. Fal-
lega ræktuð lóð.
Við Selbraut —
Seltjarnarnesi
Glæsilegt raöhús á 2 hæöum,
með innbyggðum tvöföldum
bilskúr.
Við Birkigrund — Kóp.
Raðhús á 3 hæðum að mestu
fullfrágengiö. Bílskúrsréttur.
Við Langholtsveg
3ja herb. sér hæð ásamt nýjum
bílskúr. Mikiö endurnýjuð.
Við Þykkvabæ
140 fm einbýlishús á einni hæö
ásamt 40 fm bílskúr. Ræktuö
Fasteignaviöskipti
Agnar Ólafsson,
Arnar Sigurösson,
Hafþór Ingi Jónsson hdl.
EIGNASALAIM
REYKJAVÍK
I ngólfsstræti 8
2—3JA HERB. RAÐHÚS
á góöum stað í Mosfellssveit.
Þetta er nýtt hús og að mestu
frágengið. Allt sér. Frág. sér
lóð. til afh. fljótlega.
ÁLFASKEIÐ
M/B.PLÖTU
2ja herb. ca. 55 fm íbúð í fjöl-
býlish. Snyrtileg eign, suöur
svalir. Bílskúrsplata.
V/MIÐBORGINA
2ja herb. lítil nýstandsett ris-
íbúð. Til afh. nú þegar.
V/MIÐBORGINA
4ra herb. íbúð á 2. hæð í stein-
húsi. Ibúðin er nýstandsett. Til
afh. fljótlega.
NEDRA BREIÐHOLT
4RA HERB. í SKIPTUM
F. 3JA HERB.
Góð 4ra herb. íbúð í Neðra
Breiðholti. íb. er m. sér þvotta-
herb. innaf eldhúsi og s.svölum.
Fæst eing. i skiptum f. góða 3ja
herb. íbúð m. sér þvottaherb.,
gjarnan í Neðra Breiöholti eða
Hólahverfi. Laus fljótlega.
HVERAGERÐI
Einbýlishús á einni hæð á góð-
um stað í Hveragerði. Skiptist í
3 sv.herb. og saml. stofur m.m.
Stór bilskúr. Stór ræktuð lóð.
Sala eða skipti á eign i Reykja-
vík.
EIGIMASALAIM
REYKJAVlK
Ingólfsstræti 8
Sími 19540 og 19191
Magnús Einarsson, Eggert Elíasson.
r
Allir þurfa híbýli
★ í smíðum
raðhús — einbýlishús — sökkl-
ar m. plötu á Seltjarnarnesi, í
Selási og Garðabæ. Glæsilegar
teikningar.
★ Sólheimar — skipti
Glæsileg 4ra herb. íbúö í skipt-
um fyrir 3ja herb. íbúð á Stóra-
gerðis-svæðinu.
★ Verslunar- og
iðnaðarpláss
í vesturborginni hentar vel fyrir
heildsölu eða iönað fermetrar
alls 370.
★Iðnaðarhúsnæði
óskast
Höfum kaupendur að iðnaðar-
húsnæði frá 150 ferm. upp í
2000 ferm.
★ Raöhús Snælandshverfi
140 fm á tveimur hæðum. Suð-
ur svalir. Verð 900 þús.
★ Einbýli Garðabæ
ca. 140 fm. Stofa með arni og 4
svefnherb., eldhús, bað og
gestasnyrting. Tvöfaldur bíl-
skúr. Fallegt hús.
★íbúðir óskast
Vegna mikillar eftirspurnar höf-
um við fjársterka kaupendur að
öllum stærðum íbúða.
★ Óskum eftir
4ra til 5 herb. íbúð í Gaukshól-
um eða Dúfnahólum. Öruggur
kaupandi. Losun eftir sam-
komulagi.
Solustjóri:
Hjörleifur
Hringsson,
heimasími 45625.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38 Simi 26277
Gísli Ólafsson.
Lögm.
Jón Ólafsson.
FASTEIGNA
HÖLLIN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐBÆR - HÁALEITISBRAUT 58,-60
SÍMAR-353008.35301
Einbylishus
Nökkvavogur
Einbýlishús, hæö, ris og kjallari (finnskt timburhús). A
hæöinni er 3 samliggjandi stofur, 2 svefnherb., eld-
hús og baö. í risi eru 4 svefnherb., eldhús og baö. í
kjallara er þvottahús, geymslur o.fl. Laust fljötlega.
Fasteignaviðskipti
Agnar Ólafsson
Arnar Sigurðsson
Hafþór Ingi Jónsson hdl.