Morgunblaðið - 03.01.1982, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.1982, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 Spegill, spegill, herm þú hver... eftir Keld Jorgensen Ekki verður annað sagt en að Vita Andersen sé vel kynnt fyrir íslenskum lesendum. Meirihluti verka hennar hefur þegar verið gefinn út á íslensku eða sýndur á íslensku leiksviði. Ljóðabókin „I klóm öryggisins" kom út hér á landi árið 1980 (Lystræninginn) og smásagnasafnið „Haltu kjafti og vertu sæt“ 1981 (Lystræning- inn) og um þessar mundir er verið að sýna í Alþýðuleikhúsinu verk hennar, „Elskaðu mig“. Vita Andersen skrifar aðallega um konur. Hún er þó ekki fulltrúi fyrir þær kvennabókmenntir sem eiga rætur að rekja til kvenrétt- indahreyfingarinnar. Söguhetjur hennar eru að jafnaði í þeirri að- stöðu að vera einangraðar frá um- hverfinu, eiga erfitt með að tjá sig og iðulega láta þær bugast og. fremja sjálfsmorð eða grípa tii annarra örþrifaráða. Hér er um að ræða hina kven- legu sjálfshrifningu, sem þó er ekki alltaf sjúkleg, heldur sett fram sem veikleiki í persónuleika kvennanna. Konurnar eru í ör- væntingarfullri leit að eigin gildi og þar eð þær finna það ekki, finna sig ekki, reyna þær að sækja sjálfsvissu í umhverfi sitt, með því Danski rithöfundurinn Vita Andersen kemur hingad til lands næstkomandi fimmtu- dag á vegum Norræna húss- ins, Alþýðuleikhússins, Fé- lags dönskukennara, bóka- útgáfunnar Lystræningjans og fleiri adila. Klukkan hálf- fjögur á laugardag verður dagskrá í Norræna húsinu þar sem leikarar úr Alþýðu- leikhúsinu munu lesa úr verkum skáldkonunnar og ennfremur mun hún sjálf lesa úr verkum sínum. Eftir sýningu á leikriti hennar, „Elskaðu mig“, í Alþýðu- að „spegla" sig í því. Þess vegna eyða þær dögum og vikum í að snyrta sig, spegla sig, vigta sig, kaupa föt, og svo framvegis. Þær spegla sig einnig í karl- mönnunum, í augum þeirra, og leitast við að vera eins og þær halda að körlunum finnist konur eiga að vera. Með því að vera það sem karlarnir girnast reyna þær að öðlast brothætt jafnvægi, en VITA ANDERSEN það tekst ekki heldur. Vita And- ersen gefur engin óyggjandi svör við þeirri spurningu, hvers vegna konu tekst aldrei að losna úr þess- ari vonlausu aðstöðu sinni. Eitt af því, sem hún bendir þó á í því sambandi, er að konurnar hafi ekki í uppvexti sínum notið þeirr- ar ástar og þess öryggis seni til hefði þurft svo þær gætu öðlast sjálfsöryggi. Þess vegna heppnast leikhúsinu á sunnudags- kvöltL verða umræður um verkið með þátttöku höfund- arins og aðstandenda sýn- ingarinnar, en þessari fyrstu heimsókn Vitu hingað til lands lýkur á mánudag. Keld Joörgensen, höfundur með- fylgjandi greinar, er kennari við Kennaraháskólann og stundar jafnframt nám í ís- iensku við Háskóla íslands. I lok nóvember sl. hélt hann námskeið á vegum Félags dönskukennara í Norræna húsinu um verk Vitu Ander- sen. Vitu Andersen ekkert hjá þeim. Þær skortir ein- faldlega eitthvað sem öllu máli skiptir. Og þess vegna eiga þær erfitt með að ná sambandi við um- hverfið, þess vegna láta þær bug- ast. Þær verða innhverfar, dreym- ir dagdrauma, og spegla sig. I smásögunni „Athuganir" orðar Anna þetta svo: „Hvers vegna er mér ekki nóg að upplifa allt í hug- anum?“ Karlarnir tala, að- hafast og gera kröfur Söguhetjurnar ná ekki saman og það er athyglisvert að það er einatt málið sjálft og samræðurn- ar sem þær ráða ekki við. Um þetta fjallar ljóðið „Venjulegt samtal" í „í klóm öryggisins". Málið, orðin, þrengja sér á milli tilfinninga kvennanna og um- hverfisins og spilla tengslunum þar á milli. Málið, sem að öðru jöfnu ætti að tengja tilfinningar þeirra við það sem þær aðhafast, hið huglæga við hið hlutlæga, er sett fram sem uppspretta mistaka í verkum Vitu Andersen. Titill smásagnasafnsins, „Haltu kjafti og vertu sæt“ vísar einmitt til þessa. Rétt eins og kvenréttindahreyf- ingin hefur gert, getur maður spurt, hvort til sé sérstakt kvennamál, kvenlegur tján- ingarmáti, kvenleg fagurfræði. Hvort sem svo er eða ekki í raun, þá neyðast konurnar í verkum Vitu Andersen til að nota mál karlmannanna, ef þær vilja tjá sig á annað borð. Það eru annars karl- arnir sem tala, aðhafast og gera kröfur til kvennanna. Og fyrir utan raddir karlmannanna eru líka til staðar aðrar raddir, raddir auglýsinganna, vikublaðanna og afþreyingarbókmenntanna, sem Um verk dönsku skáldkonunnar Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍDSDÓTTIR Um áramót þykir gjarnan við- eigandi að staldra við og hug- leiða liðið ár og íhuga komandi tíma. Þetta á jafnt við um mat- armál eins og önnur mál. Það er einkum tvennt sem er mér ofarlega í huga. I fyrsta lagi má óska sér betra hráefnis. I öðru lagi að verzlunareigendur- og stjórar sjái sóma sinn í því að uppfræða starfsfólk sitt um þær vörur sem það er að selja. Það má kannski alltaf óska þess, að það sem til er verði betra, ekki satt, en varðandi hrá- efni í mat eru þó alveg ákveðin atriði sem hægt er að benda á. Lífið er saltfiskur sagði okkar ágætasti rithöfundur eitt sinn. Þetta á Víst varla við lengur, a.m.k. ekki í eiginlegri endur), oft vatnsmikið svo það rýrnar óhóflega í matreiðslunni, en síðan þurrt vegna þess að eðlilega fitu skortir. Það óskar sér enginn svona landbúnaðaraf- urða ... Eftir slátrun þarf kjötið að hanga, svo það verði meyrt og gott. Það er misjafnt hversu lengi kjöt þarf að hanga. Al- mennt gildir að því minni dýr, þeim mun skemur þurfa þau að hanga. Gamla aðferðin var að láta kjötið hanga uppi; og til þess þarf bæði gott pláss og stundum drjúgan tíma. Og núna þegar tíminn er peningar, í og skömm. Hakk ætti helzt aldr- ei að kaupa frosið. Það er við- kvæm vara sem þránar og skemmist fljótt. Auk þess getur þá verið að þið kaupið tvífryst kjöt, þ.e. að kjötstykki eru þídd, hökkuð og hakkið siðan fryst. Afar slæm meðferð ... Þegar við stöndum fyrir fram- an kjötdiskinn og veljum okkur bita, er um ýmsar kjöttegundir að velja og ýmsa bita af skepn- unni. Þó undrast ég oft hvað úr- valið af bitunum er lítið. Það þarf ekki annað en að sjá erlend- ar uppskriftir, til að uppgötva hversu margs við förum á mis. Aramótahugleiding ur eldhúsinu merkingu. En fiskurinn skiptir okkur miklu máli. Fiskur er til- tölulega ódýrt hráefni og hann er hollur, ef hann er ekki kaf- færður í feiti og olíusósu. Hann er því sjálfskipaður til að vera aðaluppistaðan í fæði okkar. Við gerum okkur líka grein fyrir því, að það eru fleiri tegundir en þorskur og ýsa sem sveima í kringum landið. Það er óskandi, að það komi að því, að-fleiri teg- undir bætist í borð fiskkaup- manna. Kjöt og kjöt er ekki endilega sama varan. Þar kemur margt til. Skepnurnar þurfa að vera vel og skynsamlega aldar. Við kær- um okkur ekki um, að farið sé með íslenzkar skepnur eins og bræður og systur þeirra í útlönd- um, þar sem þær eru víða aldar á vaxtarhormónum og fúkka- lyfjum, svo þær skili sem fyrst ágóða. Og ekki mega skepnurnar vera of feitar. Kjötið verður Ijóst, bragðdauft (lyfin gefa nefnilega ekki bragð, þó þau sitji eftir í kjötinu og setjist í neyt- þessu tilviki kostnaður, hafa verið fundnar upp aðferðir til að meyra kjöt á annan hátt. Raf- magnsstuð er m.a. aotað. Um gæðamun þori ég ekki að full- yrða, en sjaldnast eru svona flýtisaðferðir til að auka gæðin, nema síður sé. En góðir kjöt- kaupmenn eiga að vita, hvernig vörur þeirra eru verkaðar, og því skuluð þið reyna að spyrjast fyrir í búðunum. Sumt kjöt er selt fryst, annað ekki. Það þarf víst varla lengur að minna á, að frysting er geymsluaðferð, en bætir kjötið ekki á neinn hátt, heldur þvert á móti. Því er æskilegast að fá ófryst og vel hangið kjöt. Nauta- kjöt er oftast hægt að fá ófryst. Kjúklinga- og annað hænsfogla- kjöt má ekki, já það er bannað með lögum að selja það ófrosið. Þetta er gert til að koma í veg fyrir bakteríusmit. Bakteríu- fróðir menn eru hins vegar alls ekki sammála um þetta atriði. Að ýmissa áliti er frysting vindhögg í bakteríubaráttunni og gerir ekkert nema að rýra gæði kjötsins. Lambakjötið er oftast fryst eins og kunnugt er. Látið stærri stykki alltaf þiðna og jafna sig í nokkra daga áður en það er matreitt, því það fær ekki að hanga áður en það er fryst. Frysting strax eftir slátr- un er svo sannarlega bæði synd Það er heilmikil kúnst að hluta heila skrokka, þannig að sem minnst fari til spillis og sem mest fáist af heilum stykkjum. Það er nokkuð misjafnt hvernig farið er að í hinum ýmsu lönd- um. Þannig skera Frakkar 20 nafngreind stykki úr sínum nautaskrokkum, Bandaríkja- menn 16, og Englendingar 14. Úr lambaskrokkum skera Frakkar 12 stykki, Bandaríkjamenn 10 og Englendingar 12, svo dæmi séu nefnd. Það er því fleira til en læri, hryggur, kótelettur og hakk ... Vissulega hefur úrvalið af stykkjunum aukist, en betur má ef duga skal. Einnig mættu kaupmenn vera liðlegri að út- vega sérstök stykki, sem við- skiptavinurinn hefur hug á. Það þykir víða erlendis alveg sjálf- sagt, að hægt sé að panta ákveð- in kjötstykki í búð, og þetta er auðvitað eðlileg þjónusta. Orðið þjónusta leiöir hugann að seinna atriðinu sem ég nefndi í upphafi, þ.e. uppfræðslu af- greiðslufólksins. Ég hirði ekki um að rekja grátbroslegar sögur um fáfræði og vanþekkingu af- greiðslufólks á vörum sínum. Fáfræðin kemur yfirleitt ann- aðhvort fram í því að það viður- kennir afsakandi þekkingar- skort sinn, sem er heiðarleg og skynsamleg framkoma, eða það sem verra er, segir viðskiptavin- um sínum einhverja endemis vitleysu, til að láta það þó eitthvað heita. Þó að afgreiðslu- fólk eigi vissulega að geta krafið yfirmenn sína um upplýsingar, þá er skyldan þó fyrst og fremst og einkum og sérílagi yfirmann- anna. Þeirra er ábyrgðin. Upp- lýsið starfsfólk ykkar um þær vörur sem standa í hillunum, hverjar eru þær, geymsla, með- ferð og matreiðsla þeirra, eftir því sem á við. Það er til lítils að bjóða upp á framandi og spenn- andi vörur, oft ekki sérlega ódýrar, ef enginn getur frætt forvitna um til hvers þær eru og hvernig bezt sé að nota þær. Einkum er þetta oft gremju- legt um innflutt grænmeti og ávexti. Það er grátlegt að horfa á matinn grotna niður í búðar- borðinu af því enginn í búðinni er klár á hvað á að gera við þetta. Viðskiptavinir eiga heimt- ingu á umbótum. Álagning er m.a. miðuð við rýrnun. Nei, verzlunarstjórar- og eigendur, látið þetta ekki ganga svona lengur. Fræðið starfsfólk ykkar, útbúið handa því lesefni, sem það getur alltaf haft við hend- ina, það er engin skömm að muna ekki allt utanbókar. Þjón- usta við viðskiptavini er ekki að- eins að hafa opið á hentugum tímum, og senda vörur heim, heldur einnig að þeir fái auð- veldlega vitneskju um það sem þeir eru að kaupa ... Nóg er hugsað og mál að linni. Þeir sem sjá um meðferð, dreif- ingu og sölu matvæla ættu að hugsa sinn gang. Það er hægt að gera fleira en að halda svokall- aðar vörukynningar á misþörf- um vörum. Hugleiðið varanlegar aðgerðir. Það er kannski óvíst að þessum málum verði kippt skjótlega í lag, fremur en efna- hagsmálunum. Altént getum við þó horft fram til bjartari daga í orðsins fyllstu merkingu, því dagurinn lengist nú um hænufet hvern dag fram á vor, ekki satt lljartanlcga gleðilegt og farsælt ár og sjóðist ykkur sem bezt og o v mest! I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.