Morgunblaðið - 03.01.1982, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.01.1982, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1982 „Hafðir p>6 qott í Sumarfrlinu, ViLmundui- f " ásí er... ... að fjaðra af sœlu TM Reo U.S. Pat Off.—all rights reserved © 1981 Los Angeles Times Syndicate Ég var of seinn. Hann var vaknað- ur! Með morgurtkaffinu HÖGNI HREKKVlSI Ætti ad lögbinda notkun reykskynjara Jóhann B.S. Jónsson skrifar: „Kæri Velvakandi! Eg lenti í því um daginn að hlutir sem ég átti í geymslu hjá vinkonu minni eyðilögðust í bruna sem varð í húsinu þar sem hún á heima. Ég fékk allt mitt að fullu bætt hjá tryggingafélagi mínu, en hún tapaði öllu sínu, þar sem henni hafði láðst að tryggja. Meira að segja eyðilögð- ust hjá henni hljómflutnings- tæki, sem hún var ekki einu sinni hálfnuð að borga afborgan- ir af. Finnst mér að verslanir sem selja svo dýrar vörur með af- borgunum ættu að brýna það fyrir viðskiptavinum sínum að tryggja munina en láta ekki nægja að setja ákvæði þar að lútandi inn í samninga. Það er nú einu sinni svo, að fólk lætur það oft undir höfuð leggjast að lesa þessar smáletruðu langlok- ur sem eru á svona pappírum. En það er sérstaklega eitt at- riði sem mig langaði til að nefna í þessu sambandi. í húsi því sem vinkona mín bjó í var enginn reykskynjari og kom því eldur- inn öllum að óvörum eins og gef- ur að skilja. Ég hef hins vegar lært mína lexíu í þessum efnum. Ég fékk bitra reynslu í stór- bruna sem varð fyrir nokkrum árum í húsi þar sem ég bjó. Tvær Jóhann B.S. Jónsson manneskjur létust af völdum eldsins. Aftur kviknaði í húsi þar sem ég bjó, en þá vaknaði ég upp við viðvörunarvæl í reyk- skynjara, sem varð til þess að mér tókst að bjarga manni út úr húsinu á síðustu stundu, en kviknað hafði í sænginni hans. Reynslan hefur sem sé kennt mér það, að reykskynjarar eru bráðnauðsynleg tæki og er eng- inn vafi í mínum huga um að það ætti að lögbinda notkun þeirra í hverjum einasta mannabústað. Finnst mér það t.d. ólíkt miklu brýnna en t.d. lögleiðing örygg- isbelta í bílum, þó að ég setji mig alls ekki upp á móti þeirri ráð- Forsíða dreifiritsins stöfun." í dreifibréfi slökkviliðsmanna í Reykjavík, sem þeir sendu sam- borgurum sínum fyrir jólin 1980 segir Rúnar Bjarnason slökkvi- liðsstjóri: „Slökkviliðsmenn í Reykjavík hafa ákveðið að beita sér fyrir eflingu heimilisbrunavarna ann- að árið í röð. Miðað við innflutn- ingá heimilisreykskynjurum má ætla að um helmingur allra heimila á landinu hafi komið sér á fót heimilisbrunavörnum og hefur það gefið góða raun. Markmið okkar er að öll heim- ili í landinu komi sér upp heimil- isbrunavörnum og um leið og ég óska yður gleðilegrar hátíðar vænti ég góðra undirtekta frá yður.“ En er nú ekki kominn tími til að stíga næsta skref og lögbinda notkun tækjanna?" Til umhugsunar Þ.S. skrifar á Akureyri í des.: „Kæri Velvakandi! Mig langar til þess að senda þér litla klausu, svona til umhugsunar. Ég las um daginn gagnrýni á nöfn á skemmtistöðum og verslunum á íslandi í dag, t.d. Broadway, Holly- wood o.fl. Ég er ekki ósammála þessari gagnrýni, en mér datt í hug að önnur gömul og rótgróin nöfn væru ef til vill athugunarverð t.d. London, Hamborg, Bristol, Liver- pool, Nora Magasin (eða hvernig það var nú skrifað) o.s.frv. Fyrst ég er byrjuð langar mig til að bæta því við, að mér finnst ljótt að sjá á forsíðu dagblaðs: „Háttsett- asti maðurinn" og eitthvað hlýtur nú að vera bogið við setninguna: „Flugstjórinn rauk upp til að hindra að boli stangaði ekki í stjórntækin." Virðingarfyllst og með jóla- kveðju." GJAFAMYNDATOKUR ÞARF AÐ PANTA í SÍMA 85811 Verið velkomin, hittumst heil á nýja árinu Þökkum viöskiptin á ánnu, sem er að liða og óskum ykkur öllum farsæls komandi árs I tilefm ars aldraðra 1982 bjóðum viö ykkur sem verðið 70 ára á árinu eða eldri í myndatöku til okkar, ykkur að kostnaöarlausu — án nokkurra skuldbindinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.