Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 26
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 Umsjón: Séra Karl Sigurbjörnsson Séra Audur Eir Vilhjálmsdóttir A U DROTTINSDEGI Biblíulestur í dymbilviku 1982: Pálmasunnudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur 4. apríl Lúk. 19,20-40 5. apríl Jóh. 12,1-16 6. apríl Fil. 2,1-5 apríl Sálm. 116,12-19 Skírdagur Föstud. langi Laugardagur 8. apríl Lúk. 22,14-20 9. apríl Jóh. 19,16-37 10. apríl Jóh. 19,38-42 Lútherskir fríkirkju- söfnuðir á íslandi Fyrsti söfnuður utan þjóðkirkjunnar á Islandi var FríkirkjusöfnuAurinn á ReyAarfirði, stofnaður 1881 vegna óánægju með veitingu Hólmaprestakalls. Kirkja var reist á Eskifirði 1884 og sr. Lárus llalldórsson ráðinn safnað- arprestur. Söfnuður þessi var formlega lagður niður 1942. „Utanþjóðkirkjusöfnuður í Vallaness- og Þingmúlasóknum" var stofnaður 1893, og reist kirkja á Ketilsstöðum, sem enn stendur. Upp úr aldamótum voru víðtækar prestakallasamsteypur, sem ollu mikilli óánægju víða, og voru stofnaðir fríkirkjusöfnuðir, svo sem í Gaulverja- bæ, Fróðárhreppi, Fáskrúðsfirði og Bolungarvík. Allir urðu þessir söfn- uðir skammlífir. „Hinn evangeliski lútherski Frikirkjusöfnuður i Kcykjavík" var stofnað- ur 1899, reisti Fríkirkjuna 1904 og telur nú 5.777 meðlimi (1. des. 1980). Prestur er sr. Kristján Róbertsson. Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði var stofnaður 1913 og taldi 1676 meðlimi árið 1980. Prestur hans er sr. Bernharður Guðmundsson. Oháði Fríkirkjusöfnuðurinn klofnaði út úr Fríkirkjunni í Reykjavík vegna prestskosninga 1949. Hann telur nú 1247 meðlimi (1980) og er prestur hans sr. Emil Björnsson. Allir þessir söfnuðir byggja á grundvelli þjóðkirkjunnar hvað trú og siði snertir. Hvað er fríkirkju- hreyfingin? Séra Kristján Róberts- son er prestur Fríkirkjunn- ar í Reykjavík. Hann hefur starfað sem fríkirkjuprest- ur í Ameríku og við hugs- um gott til að fræðast hjá honum um þá fríkirkju- hugsjón, sem hlýtur að hafa knúið fram stofnun fríkirkju á íslandi. En er þessi fríkirkjuhugsjón enn vakandi? Er einhver raunverulegur munur á frí- kirkju og þjóðkirkju á ís- landi? Séra Kristján svar- ar: ★ Fríkirkjan í Reykjavík var stofnuð árið 1899. 1. des. 1981 voru 5.666 manns í söfnuðinum. ★ Fríkirkjan í Hafnarfirði var stofnuö árið 1913. 1.727 manns voru í söfn- uðinum 1. des. 1981. ★ Óháði söfnuðurinn var stofnaður árið 1950. í honum voru 1.204 1. des. 1981. Séra Kristján Róbertsson til Reykjavíkur og gaf út blaðið Fríkirkjuna. Kenn- ingarmunur milli þjóð- kirkjunnar og fríkirkjunn- ar var lítill sem enginn. Séra Lárus vildi hafa kirkjuna frjálsa. Hann klæddist ekki hempu held- ur venjulegum jakkafötum. Hann var prestur Fríkirkj- unnar í Reykjavík í þrjú ár. Fólk var kannski ekki reiðubúið til að meðtaka þetta breytta form og það kann að hafa verið þess vegna, sem séra Lárus var ekki lengur prestur Frí- kirkjunnar. Eftir hann kom séra Ólafur Ólafsson til preststarfa þar og þá aðlagaðist Fríkirkjan alveg háttum þjóðkirkjunnar. Er einhver munur á trúar- legri stefnuskrá Fríkirkjunn- ar og þjóðkirkjunnar? Trúarleg stefnuskrá Frí- kirkjunnar er ekki eins fastmótuð og stefnuskrá þjóðkirkjunnar. Heilög ritning er lögð til grund- vallar, trúarjátningar eru hafðar til leiðbeiningar. Að þessu leyti ber Fríkirkjan keim af ýmsum erlendum kirkjum, sem leggja áherslu á innilegt trúarlíf. Eru lög Fríkirkjusafnaðar- ins frjálslegri en þjóðkirkj- unnar? Fríkirkjusöfnuðurinn getur sjálfur breytt lögum sínum, það er í höndum safnaðarins. Fríkirkju- prestur hefur raunverulegt biskupsvald, ef söfnuður- inn samþykkir það, þótt hann yrði aldrei kallaður biskup. Hann er forstöðu- maður safnaðarins, hann gæti vígt starfsfólk kirkj- unnar, t.d. safnaðarsystur og djákna. Hann gæti líka vígt eftirmann sinn í starfi. Hvað um messuform og safnaðarstarf? Messuformið er það sama og í þjóðkirkjunni. Við tókum upp nýju hand- bókina strax, enda hafði ég haft svipað form í mörg ár. Mér varð það ljóst í starfi mínu sem fríkirkjuprestur erlendis, að aldrei er hægt að reka fríkirkju með góð- um árangri eins og þjóð- kirkju. Starfið verður að byggjast á þátttöku leik- manna. Ég tel, að safnað- arstarfsfólk þyrfti fyrst og fremst að vera einlægt og áhugasamt trúfólk, sem framgengi í trú sinni í störfum sínum, ég tel það miklu mikilvægara en sér- staka menntun á öðrum sviðum. Nú er Fríkirkjusöfnuður- inn í Reykjavík orðinn mjög dreifður. Skapar það ekki erfiðleika í safnaðarstarf- inu? Söfnuðurinn nær yfir allt Stór-Reykjavíkursvæð- ið og safnaðarfólk býr jafn- vel úti á landi. Það er vit- anlega erfitt að hafa per- sónulegt samband við allt þetta fólk. Við þurfum fleira starfsfólk, fleiri sjálfboðaliða til að byggja upp starf, þar sem prestur- inn yrði skipuleggjandinn, en þyrfti ekki að reyna að vera allt í öllu. Sá eini raunverulegi frí- kirkjumaður, sem við höf- um átt, var stofnandi Frí- kirkjunnar í Reykjavík, séra Lárus Halldórsson. Hann varð fyrst fríkirkju- prestur á Austfjörðum. Hann hafði áður verið í andstöðu við þjóðkirkjuna. Fríkirkjusöfnuðurinn á Austfjörðum hafði klofnað út úr þjóðkirkjunni vegna óánægju með prestkosn- ingar. Séra Lárus tók við þessum söfnuði og mótaði hann og hefur sjálfsagt verið undir áhrifum frá séra Jóni Bjarnasyni frí- kirkjupresti í Vesturheimi. Seinna fluttist séra Lárus Kon ungurinn guðspjall: Lúk. 19, 29—40 Pálmasunnudagur dregur nafn sitt af pálmagreinunum, sem mannfjöldinn veifaði og breiddi á götuna þar sem Jesús fór um er hann hélt innreið sína í borgina helgu. Þannig hylltu borgarbúar „konunginn sem kemur í nafni Drottins". En hrifning lýðsins stóð ekki lengi. Pálmagreinar urðu krepptir hnefar, hyllingaróp og lofsöngvar urðu fordæmingar og haturs öskur. Múgurinn krafðist dauðadóms yfir þeim, sem skömmu áður hafði hylltur verið sem konungur. Þeir höfðu sungið um konunginn „sem kemur í nafni Drottins", þ.e. með vald og í myndugleika Drottins allsherjar. En hvers vegna lét hann svo handtaka sig, án allrar mótspyrnu? Hann lét fulltrúa valdsins ákæra sig, hæða og húðstrýkja. Hvar var þá konungdóm hans að sjá, hvar sást þá vald og myndug- leiki Drottins? Hvað var þetta annað en blekking allt saman, já hreinasta móðgun við heil- brigða skynsemi? „Burt með hann!“ „Krossfestu hann!“ Síðan var hann leiddur út til aftöku, þessi „konungur", krýndur kórónu af þyrnum. Og sem hann sat á sínum háa trón, — sem var blóðugur kross, milli tveggja ræningja —, þá blasti yfirskrift dómarans við allra augum, þar sem ákæru- atriðin voru skráð: „Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga." Auðvitað var þetta sett í háð- ungarskyni, og margir hlógu dátt að þessum konungi og valdi hans er hann engdist af kvöl og dauðans angist á kross- inum. Og síðan hefur margur hætt og smáð og hneykslast að boðskap krossins — boðskapn- um um Guðsson, konung kon- unganna, sem varð maður og gekk götu mannsins allt í dauða. Hann var ekki krossfestur vegna þess að hann biði ósigur, yfirbugaður af ofurefli hins illa, heldur af því að hann bar sannleikanum vitni. Sannleik- anum um Guð og manninn. Sannleikanum um Guð, sem elskar manninn en hatar synd- ina, sannleikanum um Guð sem fyrirgefur, endurleysir, frið- þægir og frelsar frá dauðanum og valdi hins illa, til þess að þú verðir hans eigin eign í lífi og dauða og ekkert megni að skilja þig frá honum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.