Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 95 TYRKLAND: er hann undir miklum þrýstingi frá Vestur-Evrópu um að herinn afsali sér völdunum hið snarasta. Þeir, sem þekkja og skilja hinn tyrkneska karakter, vita, að slíkur þrýstingur, hvaðan sem hann kemur, hvort sem hann er frá vel- þenkjandi og góðviljuðum vinum eða andstæðingum, er aðeins lík- legur til að kalla fram gagnstæð viðbrögð. Hótanir um að draga úr aðstoð við Tyrkland eða reka það úr ýms- um Evrópustofnunum, enda þótt það særi þjóðerniskennd Tyrkja, sem telja sig afdráttarlaust til Evrópu, eru til þess eins fallnar, að almenningsálitið fylkir sér að baki herforingjastjórninni, þó ekki væri nema vegna stolts og tryggðar. Tyrkir eru um margt óvenjulegt fólk. Undir þrýstingi eru þeir hugrakkir, rólegir og þrjózkir Þeir hneigjast til að sjá hlutina — rétt eins og herforingjarnir — í svörtu eða hvítu. Annaðhvort ertu vinur þeirra eða óvinur. Það er ekki gefinn kostur á neinu þar á milli. Blaðamenn búa við bágar aðstæður Meðan á Kóreustríðinu stóð á sínum tíma, voru tyrkn- eskir hermenn nánast þeir einu sem ekki létu bugast í grimmdarlegum yfirheyrslum Kínverja. Það er líklega vitlegra en ekki fyrir evrópska stjórnmála- menn og fleiri að hafa þetta í huga, þegar þeir hugsa sér aðgerð- ir gegn Tyrkjum á einn eða annan veg. En burtséð frá gremju vegna utanaðkomandi afskipta, er einnig annar þáttur í afstöðu flestra Tyrkja til hersins. Frá dögum Kemal Atatúrks hefur herinn not- ið sérstakrar stöðu meðal þjóðar- Turgut Ozal Kenan Evren innar. Tyrkir eru ekki aðeins ánægðir með her sinn, þeim stend- ur ekki beygur af honum, þeim þykir hreinlega vænt um hann. Tyrkneski herinn er nátengdur þjóðarsálinni og enginn yfirstétt- arbragur á honum. Þúsundir hryðjuverkamanna og pólitískra fanga frá vinstri og hægri myndu skiljanlega ekki vera dús við þessa fullyrðingu. Staðhæfingar Amnesty Int. um pyntingar eru trúlega flestar rétt- ar. En það skyldi náttúrlega haft í huga, að pyntingum er víðar beitt en í Tyrklandi og herstjórnin hef- ur sýnt lit á því að láta kanna ásakanir af þessu tagi, og það aft- ur leitt til að ýmsir fangaverðir og lögreglumenn hafa fengið dóma fyrir harðræði við fanga. Það er meira en hægt er að segja um fyrri stjórnir í Tyrklandi, fangar hafa einnig verið beittir pynting- um meðan lýðræði var við lýði. Það er jákvæður þáttur í fram- vindu mála og á sinn þátt í að fólk er ánægt með stjórnina, að stór- mikill bati hefur orðið í efnahags- lífi landsins. Verðbólgan er komin úr rösklega hundrað prósentum niður í 40 prósent. Útflutningur hefur aukizt og framleiðslan inn- anlands. Biðraðir við verzlanir eru úr sögunni og enginn vöruskortur lengur. Til að létta byrðar lág- launafólks hefur skattstiga verið breytt því til hagsbóta. Mikið af þessum batamerkjum má þakka Turgut Ozal, sem áður hefur verið minnzt á í greinum um Tyrkland. Hann er einn af fáum aðilum, sem átti sæti í fyrrverandi ríkisstjórn. Hann reyndi að koma efnahagsráðstöfunum í fram- kvæmd í stjórnartíð Demirels, en hafði ekki erindi sem erfiði. Það hefur aftur á móti gengið betur núna, kannski vegna þess að hann hefur fengið aukið vald, sem hann hafði ekki í tíð lýðræðis- stjórnar Demirels. Demirel, sem var forsætisráð- herra skamma hríð fyrir valda- tökuna, hefur horfið úr sviðsljós- inu. Flestir fyrrverandi stjórn- málamenn hafa stillt í hóf gagn- rýni á núverandi valdhafa, að minnsta kosti opinberlega. Bulent Ecevit, sömuleiðis fyrrverandi forsætisráðherra, hefur verið at- kvæðameiri og þegar orðið að gjalda fyrir það með tveggja mán- aða fangelsissetu. Einnig var bönnuð útgáfa stjórnmálarits, sem hann stóð að. Þetta eru engir sældartímar fyrir blaðamenn. Þó svo að heiti, að ekki sé ritskoðun, er ljóst, að engir kæmust upp með að skrifa neitt það sem ekki hugn- ast herforingjunum. Hver sú frétt sem ekki fellur í kramið hjá þeim, kallar á mjög strengilega viðvör- un, og er þá vel sioppið. En tyrkn- eskir blaðamenn eru ýmsu vanir. Þegar lýðræðið blómstraði með hryðjuverkum og efnahagsöng- þveiti, voru blaðamönnum einnig settar skorður í skrifum sínum og iðulega fangelsaðir, ef þeir fóru óvirðulegum orðum um valdhafa. Áhrif á ferðamannastraum eða ekki? Tyrkland er ekki ferða- mannaland í neinum stórum stíl, þótt það sæki heim margir gestir. Það hefur enga við- líka möguleika og t.d. Grikkir að bjóða ferðamönnum upp á í leyf- um sínum. Þó eru þar góðar strendur, Miðjarðarhafsmegin, stórkostlegar fornminjar, lands- lagsfegurð í Anatólíu er víða hrikaleg og óviðjafnanleg. Istan- bul er væntanlega sá staður sem flestir koma til, oft eru það ferða- menn í skemmtiferðum í öðrum löndum náiægum, sem fara í dags- ferðir eða svo til Istanbul. í grein Peter Hopkirks í Times segir, að ferðamenn hafi ekki orð- ið fyrir neinum truflunum vegna ástandsins sem var í landinu fyrir herforingjabyltinguna. Hann seg- ist hafa ferðazt um landið þvert og endilangt og dvalið í helztu borg- um sumarið 1980 og aldrei séð neina ókyrrð. Sjálf kom ég í fyrsta skipti til Tyrklands haustið 1979, þá var hryðjuverkaaldan í al- gleymi, þótt ár liði unz herinn kæmi til skjalanna. í Istanbul fannst mér hvarvetna mega sjá merki þess að fólk væri óttaslegið, og afar lítil umferð var á kvöldin. Einu sinni spásséraði líkfylgd framhjá hótelinu mínu, þar héldu fjórir menn á kistu á öxlum sér með jarðneskar leifar prófessors, sem hafði verið skotinn daginn áð- ur þarna í grenndinni. Hann var að vísu talinn vinstrisinnaður, en það var þó ekki víst. Vissara þótti að skjóta hann. Eitt kvöldið var ég að koma flugleiðis frá Izmir og í grennd við flugvöllinn úði allt og grúði af lögreglumönnum með vélbyssur og útbúnað sem ég kann ekki að nefna. Allir bílar frá flugvellinum voru stöðvaðir. Ástæðan var sú, að kortéri áður höfðu hryðjuverkamenn komið ak- andi að flugvallarveginum, lágu þar í leyni og skutu eins og þeir lífsins lifandi gátu á bíla sem fóru framhjá, og var þá ekki endilega verið að kanna hvort í þeim sætu hægri- eða vinstrimenn. Fjórir höfðu verið drepnir þarna á ör- stuttum tíma. Við þetta ástand bjó fólk og það vissi enginn hver yrði skotinn næst. í ljósi slíkra staðreynda og fleiri sem blasa við þegar menn kynna sér málefni Tyrklands, ættu menn svo að vega og meta herforingjastjórnina og gerðir hennar. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir DAGSKRÁ Húsið opnad kl. 19.00 MATSEÐILL Fordrykkur: BENIDORM Sólargeisli Logandi lambageiri VALENCIA Desert: COUPE Tutti frutti BENIDORM FERÐAKYNNING Ný kvikmynd frá Hvítu ströndinni Costa Blanca. Kynnir med myndinni er Jómnn Tómasdóttir leidsögumadur. .... „ FERDABINGÓ Julius Brjqnsson stjórnar spennandi bingót og vinningar em ad sjálísögðu BENIDORM íerdavinningar. PÓRSCABARETT Hinn sívinsœli cabarett þeirra Þórcaíémanna. Alltal eitthvad nýtt úr þjóðmálunum..! DANS Hljómsveitin GALDRAKARLAR skemmta gestum til kl. 01.00. Kynnir kvöldsins er Pétur Hjálmarsson. MIÐASALA Miðasala og borðpantanir í Pórscalé í síma 23333 írá kl. 16.00—19.00 Húsið opnað kl. 19 OO VERD AÐGÖNGUMIDA150 KR. Sunnudaginn 4. apríl Bferða MIDSTODIN AÐALSTRÆTI 9'S. 28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.