Morgunblaðið - 04.04.1982, Blaðsíða 32
80
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982
Sparisjóðsútibúið í Garðinum:
Þriðja útibúið á
landinu sem spari
sjóðir fá að opna
(iarói, I. april.
SL. MÁNUDAG opnaði sparisjóó-
urinn í Keflavík útibú í litlu ein-
býlishúsi sem stendur miðsvæðis í
þorpinu. Er þetta annað útibúið
sem sparisjóðurinn opnar en útibú-
ið í Njarðvík er Hmm ára um þess-
ar mundir. Var það fyrsta útibúið
sem sparisjóðir landsins fengu að
opna, en útibúið í Garðinum er hið
þriðja yfir landið.
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um ánægju heimamanna
með útibúið. Þetta er slíkt hags-
munamál fyrir byggðarlagið að
með ólíkindum er hve illa hefir
gengið að fá jákvætt svar við
beiðninni. Það var ekki fyrr en
hreppsnefndin hafði ítrekað sent
áskoranir til Seðlabankans, und-
irskriftalisti hafði verið sendur
með 300 áskorunum, verkalýðs-
félagið hafði sent bréf fyrir utan
það að Sparisjóðurinn hafði
margítrekað umsóknir sínar um
útibú en umsókn var fyrst send í
mars 1976.
Sparisjóðurinn er til húsa að
Sunnubraut 4, en húsið gengur
undir nafninu Skálholt. Hafa
verið gerðar á því gagngerar
breytingar og er áætlaður heild-
arkostnaður við útibúið nú um
1,1 milljón. Framkvæmdum við
húsið er að mestu lokið en eftir
er að laga umhverfið en áætlað
er að það verði gert í sumar.
Ekki er annað að sjá en að vel
hafi verið vandað til við innrétt-
ingu hússins sem er mjög aðlað-
andi og snyrtileg. En skipuleggj-
andi þess verks var Gunnar
Magnússon arkitekt. Verkið var
nánast unnið eingöngu af heima-
mönnum. Helztu verktakar voru
Tréborg sf., Bragi Guðmundsson
og Húsabygging hf., Sigurður
Ingvarsson lagði raflagnir, Jón-
as Guðmundsson pípulagnir,
Hafsteinn Sigurvinsson vann
múrverk, Tryggvi Einarsson og
Sigurður Jónsson unnu jarð-
vinnu, Hjörleifur Matthíasson
málningarvinnu. Þá eru í húsinu
myndskreytingar eftir Eirík
Smith listmálara og Heimi
Stígsson ljósmyndara.
Sparisjóðurinn í Keflavík
verður 75 ára á þessu ári, en
hann var stofnaður 7. nóvember
1907 og voru aöalhvatamenn að
stofnun sjóðsins Þorgrímur
Þórðarson læknir í Keflavík og
Kristinn Daníelsson prestur að
Utskálum. Allt fram til ársins
1955 var starfsemin rekin á
heimilum sparisjóðsstjóranna
en þá var byggt yfir sparisjóðinn
að Suðurgötu 6 og jókst starf-
semin til muna upp frá því.
Sparisjóðsstjórar hafa verið
tveir frá 1974, en þeir eru Páll
Jónsson og Tómas Tómasson.
Aðstoðarsparisjóðsstjóri er
Geirmundur Kristinsson og
Magnús Haraldsson skrifstofu-
stjóri. Stjórn sparisjóðsins skipa
Marteinn Árnason, Finnbogi
Björnsson og Jón H. Jónsson.
í hófi sem haldið var í tilefni
opnunarinnar flutti formaður
stjórnar sparisjóðsins, Marteinn
Árnason, ræðu, þar sem hann
rakti sögu Garðmanna í þágu
sjóðsins frá upphafi en eins og
fram hefir komið þá voru
Garðmenn m.a. hvatamenn að
stofnun hans. Þá opnaði sveita-
sjóður fyrsta reikninginn í nýja
útibúinu. Þá var í tilefni opnun-
arinnar Knattspyrnufélaginu
Víði afhentar 30 þúsund krónur
til starfsemi yngri flokkanna í
knattspyrnu og Björgunarsveit-
inni gefnar 20 þúsund kr. til
tækjakaupa. Þá bauð formaður
gestum að þiggja veitingar í
samkomuhúsinu þar sem Finn-
bogi Björnsson stjórnarmaður í
sparisjóðnum sagði frá aðdrag-
anda að opnum útibúsins.
Fyrr um daginn hafði aðal-
fundur sparisjóðsins verið hald-
inn í Samkomuhúsinu. Þar kom
m.a. fram að heildarútlán voru í
fyrra 101,3 millj. en heildarinn-
lán 132,5 millj. og hafði aukning
innlána orðið um 73,6%.
Nýja útibúið verður opið virka
daga frá kl. 9.15-12.30 og
13.30—15.30. Móttaka spari-
sjóðsstjóra verður eftir hádegi á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þrjár starfsstúlkur verða í úti-
búinu: Guðný Björnsdóttir,
Margrét Lilja Valdimarsdóttir
og Guðrún Aradóttir.
Arnór.
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Himini
Riccione
Cattolica
Cesenatico
Adriatic Riviera ot
Emilla - Romagna (Itarly )
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adríatico
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
Bellaría - Igea Marína
Cervia - Mllano Marittima
Ravenna e le Sue Maríne
líf og fjör allan sólarhringinn
Rimini - einn vinsælasti sumarleyfisstaöur
Evrópu - hefur á skömmum tíma unnið hug
og hjörtu íslendinga á öllum aldri. Vinsældir
þessa óviöjafnanlega baðstaðar byggjast
öðru fremurá bví margfræga lífi og fjöri sem
þar er stöðugt að finna, gnægð af spennandi
ævintýrum fyrir böm og fullorðna ásamt
fullkominni hvíldar- og sólbaðsaðstöðu
sem alla heillar.
Margbreytilegt mannlíf í aðlaðandi umhverfi
er það fyrsta sem vekur athygli þeirra á
Rimini. Veitingastaðir, diskótek,
skemmtistaðir og næturklúbbar skipta
þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu
fólki.
Endalaus ævintýri íyrir
böm og fulloróna
Vegna sérstöðu sinnar meðal sólbaðsstaða
Adríahafsins laðar Rimini árlega að sér fjölda
listamanna hvaðanæva að. Leiksýningar,
hljómleikar og hvers kyns skemmtilegar
uppákomur eru því daglegir viðburðir - jafn-
vel þegar þeirra er síst von
Sérlega ódýrirog góðirveitingastaðir
ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum
fullkomna ánægjulega dvöl bína á Rimini.
Þaulreyndir fararstjórar eru ætíð til taks
og benda fúslega á alla bá fjölmörgu mögu-
leika sem gefast til að njóta lífsins í
ógleymanlegu umhverfi.
• Tivolí
• Skemmtigarðar
• Sædýrasöfn
• Leikvellir
• Hjólaskautavellir
• Tennisvellir
• Mini-golf
• Hestaleigur
• Co-cars kappakstursbrautir
• Rennibrautasundlaugar
Heillandi
skoöunarferöir
Róm - 2ja daga ferðir
Feneyjar - „Hin sökkvandi borg
Flórenz - listaverkaborgin fræga
San Marinó - ,,frimerkja-dvergrikið
o.fl.o.fl