Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 37

Morgunblaðið - 04.04.1982, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. APRÍL 1982 85 Þórður Indriðason Keisbakka — Minning Þórður Indriðason var fæddur að Munaðarnesi í Arneshreppi Strandasýslu, 16. apríl 1935. Hann var sonur hjónanna Hansínu Jónsdóttur og Indriða Þórðarson, sem bjuggu þá á hluta jarðarinn- ar. Þau byggðu síðan nýbýli þar, sem þau nefndu Pagrahvamm. Þar var Þórður bernskuárin og mótaðist af því umhverfi og mannlífi sem þar var. Árið 1951 urðu þáttaskil í lífi fjölskyldunn- ar. Þá fluttu þau að Keisbakka á Skógarströnd og þar var heimili Þórðar alla tíð síðan. Ekki höfðu þau búið lengi á Keisbakka er þau hófust handa við byggingar og ræktun jarðarinnar. Þar reis stórt og myndarlegt íbúðarhús, sem ásamt öðru ber hagleik þeirra gott vitni, en Þórður var óvenjulega verklaginn maður og verkhygginn og þeir feðgar báðir. Árið 1968 kom að Keisbakka Arína Guð- mundsdóttir, ættuð frá Súganda- firði, ásamt börnum sínum frá fyrra hjónabandi, Andrési og Rut. Þórður og Arína gengu síðan í hjónaband og tóku við búi á Keisbakka. Þau eignuðust saman þrjú börn, Þóreyju, Önnu og Þórð. Arína er mikil mannkostakona og börnin öll bráðefnileg. Þórður inn- réttaði aðra íbúð fyrir þau á efri hæð hússins en foreldrar hans bjuggu á neðri hæðinni uns Indr- iði lést. Síðan hefur Hansína verið á heimili Arínu og Þórðar og lifir þar son sinn í hárri elli. Búið stækkaði og blómgaðist hjá þeim og varð arðsamara með hverju ári sem leið. Þórður hafði glöggt auga til að velja lífgripi og hafði gaman af sauðfjárrækt og náði þar árangri jafnt og þétt. Hann bætti líka hús jarðarinnar með atorku og eljusemi, ræktaði og keypti vélar til að auðvelda störfin á öllum sviðum. En þó var mest um vert hve jákvæð áhrif hann hafði á samferðamennina. Þórður var mikill íþróttamaður frá barnæsku og hafði mikinn áhuga á þeim málum alla tið. Hann náði líka miklum árangri í frjálsum íþróttum og þekktu hann margir í sambandi við það frá þeim tíma. Þeir eru ófáir verð- launapeningarnir sem hann vann til á því sviði. Þórði voru falin margvísleg störf í þágu samfélags- ins, svo sem vænta mátti, ég ætla ekki að telja þau öll upp hér, en það var allstaðar sama sagan, allt var unnið af alúð og drengskap. I fyrravetur dró skyndilega ský fyrir sólu í lífi þessa fólks. Þá veiktist Þórður af illkynjuðum sjúkdómi. Allt var gert sem hægt var til að komast fyrir sjúkdóm- inn og í sumar vonuðumst við öll eftir að það hefði tekist. Sjálfur lét hann ekki buga sig heldur réðst í það stórvirki að reisa myndar- legt verkfærahús. En enginn kemst undan örlögum sínum. Þeg- ar leið á haustið tók sjúkdómurinn sig upp á ný og sigraði að lokum. Þórður andaðist á Land- spítalanum 9. febrúar sl. Ég vil votta aðstandendum Þórðar innilega samúð í þeirra djúpu sorg. Daníel Jónsson, Dröngum • CITROÉNA CX-REFLEX • CITROÉN* CX-FAMILIALE • CITROENA GSA PALLAS • CITROÉN* VISA II CLUB Viö sýnum fjórar mismunandi tegundir af hinum glæsilegu CITROÉN^ bílum. Aldrei áöur höfum viö getaö boöiö eins hagkvæm verö og skilmála. Missiö því ekki af þessu einstæöa tækifæri. Gtobusp Sýningin er opin sunnudaginn 4. apríl kl. 14.00 til 19.00 — Innkeyrsla aö norðanverðu. KOMIÐ — CITROÉN^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.