Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 1
112SIÐUR
Stórhríð
og frost í
New York
New Vork, 7. apríl. AP.
STÓRFJÚK og staðfóst frost hafa
verið í norðaustur- og miðvestur-
ríkjuni Bandaríkjanna síðustu
dagana og þykja það mikil undur
og stórmerki á þessum tima árs.
Umferð hefur víða tafist eða
stöðvast alveg vegna snjókom-
unnar, sem var 25—30 sm í New
York-borg, og bætti ekki úr skák
að í mikla skafla dró vegna veður-
hæðarinnar.
Stórhríðin, sem gekk allt frá
Ohio austur og norður um til
Nýja Englands, olli gífurlegum
vandræðum í Boston og New
York og mátti heita, að sam-
göngur legðust alveg niður um
stundarsakir. Skólahaldi var af-
lýst og vinna lagðist niður í
verksmiðjum og á skrifstofum.
einnig voru flugvellir lokaðir
nokkra hríð. Veðurstofan
bandaríska segir, að í New York
hafi aðeins tvisvar áður snjóað í
apríl á þessari öld, 1975 og 1915,
en þá rétt aðeins grámað á jörð.
í Pennsylvaníu er veðrinu
kennt um dauða tveggja manna,
sem fórust með lítilli flugvél, og
í Virginíu, þar sem fárveður
geisaði, rifnuðu tré upp með
rótum, gluggarúður brotnuðu
og 32.000 heimili og fyrirtæki
urðu rafmagnslaus. I norðaust-
urhéruðunum voru helstu þjóð-
brautir ófærar vegna skaflanna,
sem sumir voru allt að fimm
metra djúpir, og varð fólk að
skilja bíla sína eftir um allar
jarðir.
í Kaliforníu er það ekki frost-
ið heldur flóð, sem valda búsifj-
um, og hafa hundruð manna
misst þar heimili sín, einkum
húsvagna, sem vatnselgurinn
hefur hrifið með sér.
Ljósmynd Mbl.: Kagnar Axelsson
Haig reynir að miðla málum
í London og Buenos Aires
Washington, l<ondon, 7. apríl. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
fékk Alexander Haig utanríkisráð-
herra það hlutverk í dag, aö taka á
sig ferð til Lundúna og Buenos Aires
til þess að reyna að miðla málum i
Falklandseyjadeilu Argentínumanna
og Breta. Francis Pym utanríkisráð-
herra Breta sagði i þinginu i gærdag,
að Bretar myndu láta einskis ófreist-
að til að finna friðsamlega lausn á
deilunni, „en ef þær tilraunir okkar
misheppnast, þá vita argentínsk
stjómvöld hvers er að vænta,“ sagði
Pym.
Búist var við að Haig héldi til
Lundúna í kvöld og ræddi þar við
Pym, áður en hann héldi til við-
ræðna við yfirvöld í Buenos Aires.
Bandarískir embættismenn reyndu
að gera lítið úr þessum þreifingum
Haigs, sögðu hér aðeins um könn-
unarviðræður að ræða, en aðrar
heimildir herma, að friðarumleit-
anir séu komnar á skrið á bak við
tjöldin.
Argentínskir og brezkir ráða-
menn auðsýndu sáttfýsi í dag, og
sendiherra Argentínu hjá SÞ gaf í
skyn, að Argentínumenn gætu
hugsanlega fallist á að hverfa með
Viðbrögð vegna innrásarinnar í Falklandseyjar:
Bandamenn Breta með aðgerðir
en Sovétmenn segjast hlutlausir
París, Bonn, Otlawa og víóar, 7. apríl. AP.
FRANSKA stjórnin ákvað i dag að banna sölu vopna og varahluta í þau til
Argentínu en Vestur-Þjóðverjar og Hollendingar hafa þegar gripið til sams
konar refsiaðgerða vegna innrásarinnar í Falklandseyjar. Sovéska stjórnin
lýsti því yfir i dag, að hún væri hlutlaus í deilu Argentínumanna og Breta og
væri hlynnt friðsamlegri lausn. Afstöðu Sovétmanna hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu og ekki síst í Argentinu því að herstjórarnir þar hafa talið
sig eiga hauka í horni þar sem eru ráðamennirnir í Kreml.
Pierre Beregovoy, forseti franska
herráðsins, sagði eftir ríkisstjórn-
arfund í dag, að vopnasölubannið
tæki einkum til flugvéla og loft-
varnarflauga, sem Argentínumenn
hefðu verið búnir að festa kaup á í
Frakklandi. Hollendingar og
Vestur-Þjóðverjar hafa einnig
bannað vopnasölu til Argentínu og
í dag birti vestur-þýska stjórnin
mjög harðorða yfirlýsingu þar sem
innrás Argentínumanna er for-
dæmd og sagt, að þýska þjóðin
stæði „einhuga með Bretum í þessu
máli“.
Sovéska utanríkisráðuneytið gaf
um það yfirlýsingu í dag, vegna
fyrirspurnar frá AP-fréttastof-
unni, að rússneska stjórnin væri
hlutlaus í deilunni og vildi, að hún
yrði leyst með samningum. Síðar í
dag gerðist það, sem á sér fá for-
dæmi, að hringt var frá utanríkis-
ráðuneytinu í AP í Moskvu og kom-
ið á framfæri skömmóttri yfirlýs-
ingu um Breta og stirðni þeirra í
samningaviðræðunum við Argent-
ínumenn. Innrás Argentínumanna
var þó á engan hátt varin né gefið í
skyn stuðningur við þá.
Sveit sérþjálfaðra sjóliðsmanna við æfingar um
Hermes, þar sem það er i leið til Falklandseyja.
borð í flugmóði»'t-‘-.p
her sinn á brott frá Falklandseyj-
um, ef það væri liður í stærra sam-
komulagi um yfirráð á eyjunum.
Bretar gera það að skilyrði að arg-
entínski herinn hverfi frá Falk-
landseyjum áður en reynt verði að
finna lausn á deilu þeirra og Arg-
entínumanna um yfirráð á Falk-
landseyjum.
Eftir ríkisstjórnarfund í Lund-
únum í morgun, var blaðamönnum
tjáð að stjórn Thatcher hefði ýmsa
fyrirvara á hugmyndum um „Hong
Kong-lausn“ á Falklandseyjadeil-
unni, þar sem Argentínumenn
fengju yfirráð yfir eyjunum, en
endurleigðu þær Bretum. Brezk
blöð sögðu Pym utanríkisráðherra
kappkosta að semja um lausn deil-
unnar eftir diplómatískum leiðum,
og koma Argentínuher burtu þaðan
án þess að grípa þurfi til vopna.
Utanríkisráðherra Argentínu sagð-
ist bjartsýnn á að friðsamleg lausn
deilunnar næðist, og háttsettir
diplómatar í Buenos Aires kváðu
sáttalíkur miklar.
Tundurspillir og þrjár freigátur
voru gerðar klárar í dag fyrir sigl-
ingu til Falklandseyja til viðbótar
flotanum, sem sigldi á mánudag.
Jafnframt var skriðdrekasveit og
ýmis þungavopn sett um borð í
flutningaskip, sem sett hefur verið
undir stjórn flotans. Þá sagði Tim-
es, að allt að fjórir kjarnorkuknún-
ir kafbátar, „Superb", „Scepter",
„Spartan" og „Splendid“, væru á
leiðinni til Falklandseyja.
í kauphöllinni í Lundúnum eru
góðar líkur taldar á friðsamlegri
lausn Falklandseyjadeilunnar, og
sú hræðsla sem greip um sig í gær
virðist hjá liðin. Hækkuðu verðbréf
í verði í dag, og einnig hækkaði
pundið gagnvart dollara.