Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 7

Morgunblaðið - 08.04.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 7 HUGVEKJA eftir séra Ólaf Skúlason dómprófast Fast á hæla pálmasunnudags fylgir föstudagurinn langi. Það er eins og ómurinn af fagnaðar- ópum syngjandi mannfjölda um þann blessaða fulltrúa, sem ber nafn Drottins, sé varla fyllilega horfinn, þegar í stað fagnaðar- bylgjunnar kveður við hatur- söskrið um krossfestingu, kross- festingu. Finnst mörgum ótrú- legt að samræma þetta tvennt. Sjá þá í þeirri þverstöðu sama fylgja orðræðum. Margar eru kenningarnar, þær koma og fara, skipta mönnum í andstæða hópa um sinn, svo að hörð orð falla og vinslit geta orðið, en þegar tímar líða og meiri ró hef- ur færzt yfir, þá er það viður- kennt, að þær eru aðeins kenn- ingar, umbúðirnar, en sannleik- urinn er ekki heftur af þeim eða einskorðaður við þær. Bók- menntir kristninnar eru fullar lykli til skilnings á því, að kær- leikur Guðs er svo djúpur, að enginn fær kafað til botns, og ráðsályktanir hans svo víð- feðma, að þar sézt aldrei loka- þáttur. Að kærleiki hans birtist líka í fórn. Myrkur krossins og birta upp- risunnar verður að fylgja hvort öðru, eins og til þess að undir- strika andstæður, svo að hvoru tveggja fái sem skýrast að koma Birta upprisunnar í myrkum krossi fólkið, sem breytir jafnauðveld- lega um afstöðu eins og við skiptum um flík. En ekki þarf það að hafa verið svo slæmt. Þótt öll Jerúsalem hafi komið í móti Jesú og sami mannfjöldi safnazt um hásæti Pilatusar, þá er þar ekki endilega átt við hvern einasta mann í borginni helgu. Stór hópur fylgdi Jesú og tók í móti honum við borgar- mörkin. Stór hópur fór líka að fyrirmælum prestanna um að þjarma svo að Pílatusi, að hann vissi ekkert í hvorn fótinn hann ætti að stíga. Ekki víst þar hafi verið þeir sömu á ferð. En full- víst, að leiðtogar voru aðrir. Hylltur af hollvinum, sem báru dýrlegar vonir í brjósti. Dæmdur af hatursmönnum, sem létu öfundina blinda sig. Og þar mitt í milli hinn venjulegi maður, sem fylgir straumnum og nemur helzt þau hljóð, sem hæst fara. Krossdauði Krists er mörgum erfið lexía á trúarbrautinni. Það er svo auðvelt að hrífast af hon- um, þegar hungraður fær sig saddan, lamaður fær þrótt, sorg- bitinn er huggaður, og jafnvel látinn fær að lifa. Það er líka auðvelt að skilja hann, þegar reiðin svellur honum í brjósti og hörð orð falla honum af vörum. Sá sem veit um háleita köllun sína, hlýtur á stundum að finna til óþolinmæði. Og væri Jesús sá verðugi leiðtogi, sem við kepp- umst við þessa dagana að benda fermingarbörnunum á, ef hann hefði aðeins átt það skapferli, sem minnti á milda sólina? Hitt hlýtur líka að vera fast í huga, þegar við sjáum hann síðustu daga jarðneskrar tiiveru, að þá svarar hann ekki af þótta, hann lætur dynja á sér háðsglósur án þess að þær breyti viðmóti hans, hann lætur ekki ruglaðan lysti- semda lýð skipa sér fyrir um sýningu á kraftaverkum. Síðustu stundirnar berst hann ekki og hefur ekki uppi neinar varnir. Hann er lambiö, sem leitt er, og það finnst enginn mótþrói, að- eins hryggð vegna fólksins. Enginn getur skýrt fyrir öðr- um þátt krossins í kristinni trú, svo að sannfæring hljóti að af „skýringum" á því, hvers vegna krossinn hlaut að bíða Jesú. Það er margt viturlega sagt og af djúpum trúarlegum innblæstri. Þangað er hægt að leita um hjálp og þiggja þá að- stoð, sem getur komið að gagni. Og þó verður það að viðurkenn- ast, að þarna er allt þeim sömu takmörkum háð og kenningar aðrar, hvort þær eru með nýjum blæ eða fornum. Þar er aðeins að finna hugsanir manna um það, sem enginn fær skýrt, túlkanir manna á því, sem enginn getur þann veg flutt öðrum, að það hljóti að nægja til trúar. Kross- inn hlýtur að virðast okkur í dag jafn mikil þverstæða og hneyksl- unarhella og fyrst, þegar hann var hafinn á loft í frásögnum af ævi og dauða Jesú Krists. Krossinn er þverstæða og kemur á skjön við allt, sem við getum hugsað okkur, af því að við mundum öll hafa farið allt öðru vísi að, hefðum við mátt þar um fja.Ha. og einhverju ráða. Að ég ekki tali um það, ef þarna hefði verið teflt um örlög okkar eigin barns. Þá hefðum við sízt látið kross koma við sögu. I aug- um mannsins er hann andstæða kærleikans, þverstæða, mótsögn, af því að kærleikurinn verndar, hlúir að og bjargar, jafnvel þótt hann krefjist fórnar. Og er ekki þarna einmitt komið að kjarna málsins? Tvennt getur fengið okkur til að sjá krossinn og sætta okkur við hann, þrátt fyrir sársauka. Annað er það, að við getum aldrei sett okkur í spor Guðs og hugsað hans hugsanir og ráðið hans ráðum. Gagnvart Guði eigum við aðeins auðmýkt í skilningsvana trausti. Hitt atriðið, sem hjálpar bezt, þegar krossinn er þungur og heftir, er að líta í framhaldi hans hina opnu gröf. Ef krossinn á Golgata hefði staðið sem lokatákn jarðvistar Jesú, væri örvinglan okkar án mildandi friðarmöguleika. En fast fylgir páskamorgunn föstu- deginum langa, svo að þar eru aðeins fáar stundir í milli. Og hin tóma gröf upprisunnar gerir krossinn að nokkurs konar lykli, þótt þverstæða hans hverfi ekki, í ljós. Og aðeins þegar upprisan fylgir í næstu andrá krossfest- ingarinnar er hægt að höfða til trúar. Ekki þannig að frekar sé hægt að skýra upprisuna en krossfestinguna á þann veg, að þar hljóti allt að vera augljóst, heldur vegna hins, að það er unnt að höfða til viðurkenningar á því, að um framhald var að ræða, að Guð sá öllum lengra eins og hann gerir ávallt. Og þegar einn segir öðrum frá því, að kærleikur Guðs felist í því, að hann gefur okkur með sér eilíft líf og ætlast ekki til annars af okkur í staðinn en vermandi trú- ar, þá er hægt að höfða til gleði, þakkarkenndar, sem færir af sér frið, enda þótt kennisetningar og lærðar hugmyndir hrökkvi ætið skammt. Enginn skýrir krossinn svo fyrir öðrum, að þar hljóti að kvikna af trú. En þakklætið fyrir kærleika, sem krossinn vissulega sýnir og tóma gröfin staðfestir, snertir þá strengi, sem síðan geta ómað af trúarvissu. Við get- um aldrei sannað fyrir öðrum nauðsyn þess, að Jesús hlaut að vera negldur á kross, það veit Guð einn, en þegar trúin í ríku- legu þakklæti mótar hug til holl- ustu við Guð, þá verður krossinn, upplýstur af birtunni frá uppris- unni, ekki sama þverstæðan og áður, ekki sama hneykslunar- hellan, ekki sama spurningar- merkið, heldur enn ein hvatning til okkar um það, að fela Guði allt, þótt við getum ekki skilið það, sem gerist. Og munu margir spyrja sig, hvort hin tóma gröf færði okkur sama máttuga boðskapinn, ef ekki hvíldi yfir henni skugginn af krossinum? Svo elskaði Guð, að hann gaf, sagði Jóhannes forðum. Sú gjöf er ævinlega jafnfersk og dýr- mæt. í syninum gaf Guð sjálfan sig og gefur enn. Eina andsvarið, sem við getum veitt er trú, þótt oft hljótum við líka að biðja um hjálp í vantrú okkar. Og svo er Guðs gjöf stór, að hún tak- markast ekki af veröld og ævi, sem talin er í árum, heldur nær og til himna, sem við tengjum eilífð. Gagnvart slíku er aðeins eitt til: Þakklætið. AA-samtökin: Bílastillingu Birgis, Skeifunni 11, sem sá um alla þjónustu, stillingu og umsjón með bifreiö okkar er við ókum á í Tommarallinu og færöi okkur 1. sætiö. Bílastilling Birgis átti ekki minnstan þátt í því. Biggi og Hafsteinn. tMOHROER Höggdeyfar Mikilvægir fyrir bílinn þinn og öryggi fjölskyldu þinnar. Ný sending komin ifflmnaust kf Siðumúla Simi 82722 VARAHLUTIR AUKAHLUTIR VERKFÆRI Afmælisfundur á föstudaginn langa AA-SAMTÖKIN á íslandi gangast fyrir afmælisfundi á morgun, lostu- daginn langa. íslenzku AA-samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa 1954 og er afmælis AA þvi minnst a föstudcginum langa ár hvert. Kund- urinn verður í Háskólabíói og hefst hann kl. 21. í dag eru á annað hundrað AA- deildir hérlendis. Hver um sig heldur a.m.k. einn fund í viku hverri, en eins og kunnugt er eru samtökin byggð upp með það að markmiði að auðvclda alkóhólist- um að vera „óvirkir", eins og þeir nefna það. Fundurinn á morgun er öllum opinn en á honum koma fram ýmsir félagar, einnig gestir frá Al-Anon, sem eru samtök að- standenda alkóhólista og Al- Ateen-samtökunum, en það eru samtök ungmenna, sem eiga að- standendur sem eru alkóhólistar. EF ÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (íLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.