Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 14

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Þeir hugrökku fljúgandi menn spori og mælti öldungis forviða: „Þetta er alveg rétt hjá yður. Vélin er væntanleg í dag og hún hefur fengið leyfi til að lenda á Kastrup." Á þeirri stundu fannst mér, að öll íslenska þjóðin stæði í allveru- legri þakkarskuld við Loftleiðir og að hinir djarfhuga forustumenn þessa unga flugfélags væru um þessar mundir að marka athygl- isvert spor í sjálfstæðisbaráttu þjóðar vorrar ... Skókassinn matsalinn og þar til ég sneri aft- ur.“ í fellibyl með ítölum Loftleiðamenn fóru margar slíkar ferðir á þessum árum til fjarlægra heimshluta. Um tíma flugu þeir töluvert með innflytj- endur frá Italíu og Frakklandi til Venesúela. Þeir flugu frá París eða Róm til Islands og héðan um New York, eða Miami til Puerto Rico eða til Caracas. í eitt skipti tóku þeir bananafarm í Puerto (þann tfma téku flugvMar turþuganu (Qðrunni. Stöðugir erfiðleikar urðu á vegi hins unga, litla og fjárvana flugfé- lags í samkeppni við ríka og vold- uga keppinauta. Loftleiðamenn leituðu margra ráða, fóru leigu- ferðir og opnuðu nýjar flugleiðir. Það var þó á þessum árum sem félaginu óx svo fiskur um hrygg að fjárfest var í skókassa til að geyma hagnaðinn. Alfreð Elíasson segir frá: „Fólki finnst gaman að sögunni, sem skeði eitt sinn þegar ég flaug í strikklotu frá París um Reykja- vík, Gander og til Suður-Ameríku. Þetta er löng leið og ég var orðinn æði framlágur þegar við stoppuð- um í Gander. Við gerðum þar stuttan stans, en fengum okkur duglega að borða. Ég settist að mat mínum og geymdi „skókass- ann“ undir borðinu. Það var pen- ingakassinn okkar og gekk hann jafnan undir nafninu „skókass- inn“. Þannig var, að á þessum upp- hafsárum millilandaflugsins, urð- um við að safna sjálfir farþegum í Jökull grafinn upp. Vift komuna til Lúxemborgar 22an maí 1955: Alfreð Elíasson, forstjóri, Kristján Alfroð EKasson og kona hans, Kristjana Milla Thorstein- Guölaugsson, stjórnarformaöur, Siguröur Magnúason, blaóafulltrúi, Kristinn Olsen, •on- flugstjóri, Siguröur Helgason, varaformaöur stjórnar, Agnar Kofoed-Hansen, flug- málastjóri, og Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráöherra. þessa miklu rútu frá Evrópu til Suður-Ameríku. Við gengum þá um, hvort sem var Róm eða París, á milli ferðaskrifstofa og söfnuð- um farþegum, seldum farseðlana sjálfir, áhöfnin, og fengum greitt í beinhörðum peningum, sem ég geymdi venjulega í „skókassa“. Nú, en ég saddi sem sé hungur mitt í flughöfninni í Gander og hélt svo út í flugvél. Þegar við vor- um komnir í flugtaksstöðu, þá mundi ég allt í einu eftir því að skókassinn hafði orðið eftir í matsalnum undir borðinu. Þar voru milli 12—15 þúsund dollarar í reiðufé, sem var mikill peningur í þá daga, svo ég sneri umsvifa- laust við. Fékk leyfi hjá flug- stjórninni til að keyra vélina aftur inn, svo vatt ég mér út og hljóp eins og fætur toguðu inní matsal- inn. Þar sátu allar gengilbeinurn- ar í kringum borð og gláptu á kassann. Ég var mjög feginn og gaf þeim ríÓegt þjórfé fyrir skil- vísina, því það var liðinn talsverð- ur tími frá því við yfirgáfum Rico og flugu með hann hingað, en þá höfðu íslendingar ekki séð ban- ana í lengri tíma. Þessir flutn- ingar Loftleiða gengu prýðilega, en það var á þeim árum sem Loft- leiðamenn urðu að hóta farþegum sínum lögreglunni til að fá þá aft- ur uppí flugvél sína, sem þeir voru nýstignir úr. Það atvikaðist svo: Þeir Alfreð og Kristinn voru á leiðinni frá New York til Puerto Rico í Karabíska hafinu. Þeir voru á Heklunni og farþegarnir voru 40 ítalir sem voru á ferðalagi suður til Caracas í Venesúela, þar sem þeir höfðu í hyggju að nema land. Gert var ráð fyrir að flugferðin suður til Puerto Rico tæki 10 klukkustundir. Veðurfræðingar í New York höfðu spáð að eftir um klukkustundarflug kæmi Heklan inní óveðursbelti, sem væri þvert á leið hennar, en fullyrt að vélin slyppi úr því eftir um hálf- tíma flug og myndi eftir það fljúga alla leiðina til Puerto Rico í einmuna blíðu. Til að byrja með gekk allt samkvæmt áætlun. Fyrsti klukkutíminn leið án þess að nokkuð bæri til tíðinda. Svo kom óveðrið, eins og ráð hafði ver- ið fyrir gert, en það reyndist strax aftaka verra en menn höfðu ætlað. Veðrahaminn jók stöðugt og á sín- um flugferli hafa þeir Álfreð Elí- asson og Kristinn Olsen aldrei lent í öðrum eins ólátum. Það var því ekki nema von að færi um suma farþegana. En flugstjórarn- ir lofuðu góðviðri eftir um hálf- tíma flug. Hálftíminn leið, en ekkert rofaði til. Flugstjórunum fór ekki að verða um sel. Vélin kastaðist til eins og skip í stórsjó og enda þótt þeir sætu tveir við stýrið og beittu öllu afli til þess að halda flugvélinni réttri, þá urðu þeir oft að láta í minni pokann fyrir veðurofsanum. Um stund héldu þeir að dagar þeirra væru taldir. Hrævareldar léku um vél- ina og högl buldu eins og skothríð á skrokk og vængjum Heklunnar. Alfreð segir: „Með réttu lagi átt- um við að fljúga með 300 mílna hraða, en reyndin var sú að við komumst ekkert áfram. Við vorum ekki framar á ferðalagi. Við vor- um stjórniausir leiksoppar veður- ofsans. Við börðumst fyrir lífi okkar, svo sem menn gera þegar komið er á fremstu nöf.“ í farþegasalnum voru ítalirnir farnir að örvænta. Þeir báðust fyrir hver í kapp við annan, full- vissir þess að fyrirheitna land þeirra væri nú allt annað en Cara- cas. En það fór nú svo að þeir Al- freð og Kristinn skiluðu Heklunni heilli út úr þessum fellibyl. Þeir stoppuðu svo í Miami til að jafna sig eftir þessi átök. ítalirnir horfðu grimmdarlega til þeirra er þeir stigu út úr vélinni og þegar átti að halda áfram ferðinni, neit- uðu þeir að fara lengra með þess- ari flugvél. Alfreð og Kristinn fullyrtu að framundan væri eitt sólskinshaf, en ítalirnir voru óbif- anlegir. Það var engu tauti við þá komandi, þar til þeir félagar hót- uðu að kalla á lögregluna, sem vit- anlega léti það verða sitt fyrsta verk að læsa alla ítalina í tukt- c húsi. Greip þá mikil skelfing um sig með ítölunum, sumir tóku að æpa, aðrir formæltu hroðalega, sumir lögðust á bæn, nokkrir grétu ákaflega. Til happs fyrir Heklumenn var prestur nokkur með í förinni, mikill fyrirtaks- maður og fyrir hans tilstilli tókst að koma vitinu fyrir ítalina. Stundarkorni síðar sátu þeir sælir suður við Karabíska haf og engir farþegar skildust innilegar við þá Alfreð og Kristin en þeir sem áður höfðu orgað hæst og beðið ákaf- legast norður í Miami. Fangar hjá herforingjum Eitt sinn var það sem flugvél Loftleiða lenti í Caracas, að her- inn hafði tekið öll völd í sínar hendur í landinu. Alfreð segir frá: „Við höfðum enga hugmynd um borgarastyrjöld í Venezuela fyrr en við lentum í Caracas. Þá voru herforingjar teknir við völdum og þeir harðbönnuðu að nokkur flugvél yfirgæfi borgina í bráð. Farþegarnir fengu að fara ferða sinna, en áhöfnin var tekin föst. Við vorum í eins konar stofufang- elsi hátt á annan sólarhring og vopnaðir verðir fylgdust með okkur. Einn okkar tók uppá því í leiðindum sínum að snyrta negl- urnar með vasahníf, hann var þá umsvifalaust færður frá okkur og hafður í sérstakri gæslu. Þegar ró tók að komast á í landinu daginn eftir, fengum við áheyrn hjá æðstu mönnum og þeir sannfærð- ust um að við værum frá Norður- pólnum og gætum ekki haft áhrif á uppreisnina. Annars höfðum við ekki yfir neinu að kvarta, nema við þurftum sjálfir að kaupa ofaní okkur matinn, enda þótt við vær- um fangar stjórnarinnar." Heklan fór semsé víða í frum- bernsku íslensks millilandaflugs. Jóhann heitinn Hannesson, guð- fræðiprófessor, sagði eitt sinn frá því að eitt það undarlegasta sem fyrir hann hefði borið í Austur- löndum, hefði verið að sjá allt í einu íslenska flugvél á Kai Tak- flugvellinum við Hong Kong. Séra Jóhann skrifaði meðal annars svo í tímaritið Flug: „Snemma morguns var ég einn góðan veðurdag á Kai Tak og sá þá íslenska flaggið á einni vélinni þarna á vellinum. Var þar komin „Hekla" alla leið frá Islandi. Eins og menn vita, er víða aðgangur bannaður að flugvöllum og mátti ég ekki komast að þessum ágæta gæðingi háloftanna til þess að klappa honum. En skemmtilegt var að sjá hann þarna heilan á húfi og gljáandi á skrokkinn inn- anum alla þá ágætu gripi aðra, sem þarna hvíldu sig og fengu fóð- ur á vellinum milli sprettanna yfir hinum fjarlægu Austurlöndum. Til hamingju Hekla!" Uppá líf og dauða Fyrsta áætlunarferð Loftleiða til Bandaríkjanna var hinn 25ta ágúst 1948. Þá hafði félagið fengið heimild til að halda uppi áætlun- arferðum til og frá Bandaríkjun- um. Loftleiðir settu á fót sölu- skrifstofu á Manhattan. Árið 1949 voru farþegar Loftleiða 14 þúsund á innanlandsleiðum, en 6 þúsund á alþjóðaleiðum. Hagurinn tók að vænkast og það leit út fyrir að hið unga flugfélag ætti bjarta framtíð bæði innanlands sem utan. Starfs- menn þess voru orðnir 54 og félag- ið átti tvær DC-4-vélar, eina DC-3 og einnig nokkrar minni vélar. En svo kom árið 1950. Loftleiðir háðu harða baráttu fyrir lífi sínu. Gjaldeyriserfiðleik- arnir voru svo miklir hjá félaginu, að það varð að ráði að leigja Heklu bandarísku flugfélagi í eitt ár. Um það leyti sem leigusamningurinn gekk úr gildi missti félagið Geysi á Vatnajökli. Geysisslysinu hafa svo oftlega verið gerð glögg skil á prenti að óþarfi er að rekja þá sögu hér. En samtímis og íslensk- ar flugvélar leituðu linnulaust að Geysi, brann Hekla á flugvellinum í Róm. Menn veltu því ákaft fyrir sér innan félagsins hvort flugi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.