Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 1 5 Snemma ár« 1948 atóöu Loftleiöamenn tyrir hringflugi { Skymaster-vélinni Brian Moore, ameríski flugkapteinninn, og Alfreð. Heklu, fyrstu millilandaflugvél islendinga. Myndin var tekin í slíku hringflugi. skyldi haldið áfram, ellegar trygg- ingaféð nýtt í annan rekstur. Sumir eldri hluthafanna seldu hlut sinn í fyrirtækinu og nýir menn komu í þeirra stað. Það varð ofaná að halda flugrekstrinum áfram. Aður en við stiklum á stóru í þeirri sögu, skulum við fylgjast með enn einu ævintýrinu í sögu Loftleiða: Björgun Jökuls. Jökulsævintýrið Þriðjudaginn 18da september 1950 lenti bandarísk björgunar- flugvél á Vatnajökli. Þangað hafði henni verið flogið til að freista þess að sækja áhöfn Geysis. Þetta var 2ja hreyfla Douglas-vél, ný af nálinni og með skíðaútbúnað. Lendingin tókst með ágætum, en flugtakið heppnaðist ekki, þrátt fyrir fullkomnustu hjálpartæki. Varð að ráði að skilja vélina eftir á jöklinum. Bandaríski flugherinn gerði síðar ítrekaðar tilraunir til að íná vélinni, en þær misheppnuðust allar. Menn komust á þá skoðun að vélin myndi smám saman sökkva niður í jökulinn, uns hann skilaði henni aftur, annað hvort eftir eina öld eða svo að sunnanverðri jök- ulröndinni, eða eftir hálfa öld, ef hún bærist nyrðri leiðina út jökul- inn. Öll frekari áform um björgun vélarinnar voru lögð á hilluna. En tveir menn á íslandi voru annarr- ar skoðunar. Alfreð tekur nú við sögunni: „Við Kristinn Olsen töldum lík- legt að orsökin til þess að flugtak- ið misheppnaðist, hefði verið sú að ekki fékkst full orka frá hreyflun- um. Jökullinn var þarna um 6 þús- und fet yfir sjávarmáli og eins og við vitum minnkar hreyflaorka eftir því sem loftið verður þynnra. Þess vegna hugkvæmdist okkur að draga vélina niður af jöklinum og reyna svo að hefja hana til flugs. Við skýrðum stjórn Loftleiða frá hugmynd okkar og hún féllst strax á framkvæmdina og samþykkti að greiða kostnaðinn. Félagið keypti því vélina, en fékk okkur Kristni málið í hendur að öðru leyti. Við vorum því starfsmenn Loftleiða meðan á þessu stóð og fengum enga sérstaka þóknun fyrir. Ég segi frá þessu því margir héldu að við sjálfir hefðum einhvern fjár- hagslegan hagnað af þessu, en því fór fjarri. Loftleiðir fengu allan hagnað af þessu ævintýri, svo sem rétt var og skylt, eftir atvikum. Það var mikil skriffinnska í kring- um kaupin, eins og venjulega þeg- ar her á í hlut, en það hafðist á endanum. Þetta voru ekki venju- leg viðskipti, því við vorum að fal- ast eftir vél sem seljendurnir töldu einskis virði og verðlagning- in á vélinni var auðvitað í sam- ræmi við það. Flest var á huldu í sambandi við þetta fyrirtæki. Til dæmis er vet- ur konungur ekki blíður uppá Vatnajökli, en samt töldum við að vélin væri ekki mikið skemmd. Við áttum oft leið þarna yfir í áætlun- arfluginu til Austurlands og fór- um auk þess sérstakar könnunar- ferðir til að staðsetja vélina og kynna okkur örugglega allar að- stæður. Við Kristinn unnum sam- fleytt að undirbúningi björgunar- innar í heilan mánuð, og áður höfðum við varið miklum tíma til að afla margvíslegra upplýsinga. Þá höfðum við meðal annars rætt við hinn fræga ferðalang Guð- mund Jónasson og taldi hann að happadrjúgt myndi að koma jarð- ýtu uppá jökulinn til þess að nota við moksturinn frá vélinni og dráttinn á henni niður. Við sann- færðumst strax um að þetta væri heillaráð og upp frá því voru jarð- ýturnar með í öllum útreikning- um. Sunnudaginn 8da apríl 1951 töldum við okkur albúna til farar- innar. Við héldum ellefu frá Reykjavík, en tveir bættust við eystra. Við flugum austur að Klaustri með allt okkar hafurtask, nema jarðýturnar tvær: Þær voru Orlof aldraöra með Ásthildi Pétursdóttur Grikkland 29. apríl - 3 vikur 23. sept. - 3 vikur Gisting: Hótel Margi House. 1/2 íœði Skoðunarferöir m.a: Aþena, Pelopskaginn. véfréttarstaðurinn Delíi, sigling um nálœgar eyjaro.fl. Rimini 8. júlí - 3 vikur Gisting: Hótel Ambasciatori. 1/2 fœði. Skoðunarferðir m.a: Róm. Feneyjar. San Marino. Flórens o.fl. Portoroz 20. maí - 3 vikur 2. sept. - 3 vikur Gisting: Hótel Grand Palace, 1/2 fœði. Skoðunarferðir m.a: Bled, Feneyjar. Plitvice þjóðgarðurinn o.íl. Heilsugæsla: Dr Medved Muniö íslandsferóir allra þátttakendanna Samvinnuferdir - Landsýn ... _ . , .AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Orlofsferðir Samvinnuferða-Landsýnar fyrir aldraða eru engu líkar. Þœr eru skipu- lagðar í samvinnu við hinn góðkunna farar- stjóra Ásthildi Pétursdóttur og hún verður aðalfararstjóri í öllum íerðum sumarsins. Portoroz í Júgóslavíu verður enn sem fyrr í öndvegi en í sumar verður bryddað upp á nýjungum í orloísferðufn aldraðra með sér- stökum ferðum til Rimini á Ítalíu og Vouliag- meni-strandarinnar í Grikklandi. Og það verður glatt á hjalla í ferðum aldraðra í sumar. Kvöldvökurnar vinsœlu verða að sjálísögðu á dagskránni. farið er í sérstakar kvöldferðir á valda skemmtistaði og skoðunaríerðirnar út frá Portoroz. Rimini og Vouliagmeni em í senn einstaklega fjöl- breyttar og áhugaverðar. Asthildur á skrifstofunni Ásthildur Pétursdóttir verður til viðtals á skril- stofu Samvinnuferða-Landsýnar í Reykjavík nœstu íimmtudaga milli kl 2 og 5. Þar veitir hún allar nánari upplýsingar um orloísíerðirnar og ráðleggur vœntanlegum iarþegum um nauðsynlegan íerðabúnað og undirbúning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.