Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 1 7
DC-8-þota Loftleiða.
voru á sérstökum vildarkjörum.
Starfsemi Loftleiða grundvallað-
ist héðan í frá á Lúxemborgar-
fluginu. Miðsumars 1961 flutti fé-
lagið skrifstofur sínar á Manhatt-
an til Rockefeller-Center og var
þar í hjarta viðskiptalífs Banda-
ríkjanna. Farþegafjöldinn var nú
kominn upp í 75 þúsund árlega og
sætanýtingin var 76%. Fimm
Cloudmaster-vélar félagsins áttu
orðið fullt í fangi með að anna
eftirspurninni.
Stopover og
Rolls Royce
Svo sem fram hefur komið ein-
kenndi það starfsemi Loftleiða
hversu ráðagóðir forráðamenn fé-
lagsins voru og brugðust rétt við
hverjum vanda. Til marks um það
var „Stopover“-áætlunin sem
hrundið var af stað árið 1963.
Loftleiðir buðu þá farþegum eins
til tveggja sólarhringa dvöl á ís-
landi á leið yfir hafið. Flestir far-
þegarnir höfðu ekkert á móti því á
ferðalagi sínu að skoða sig um í
tvö dægur í sérkennilegu landi.
Þar með voru Loftleiðamenn orðn-
ir frumkvöðlar að ferðamanna-
straumnum til íslands. Hótelin í
Reykjavík önnuðu brátt ekki eftir-
spurn og Loftleiðamenn tóku sig
til og reistu sitt eigið hótel. Þeir
nýttu grunn á Reyjavíkurflugvelli,
sem var ætlaður undir nýja flug-
stöð og reistu fyrsta áfanga Hótel
Loftleiða.
Arið 1963 var enn þörf víðtækr-
ar endurnýjunar á flugflota fé-
lagsins; farþegafjöldinn var orð-
inn 80 þúsund. Ari síðar keyptu
Loftleiðir tvær Rolls Royce-
skrúfuþotur; þær vélar tóku 160
farþega í sæti. Rolls Royce-vélarn-
ar urðu alls fimm, hin síðasta
keypt til félagsins vorið 1968. Vet-
urinn 1965—’66 voru þrjár þeirra
lengdar og hin fjórða veturinn
næsta. Þá rúmuðu þær 189 far-
þega hver og voru um tíma
stærstu farþegavélar á áætlunar-
leiðum yfir Norður-Atlantshaf.
Rolls Royce-flugvélarnar voru
keyptar af Canadair Ltd. og voru
af gerðinni CL-44. Vélarnar í þess-
um flugvélum voru framleiddar af
Rolls Royce-verksmiðjunum og
segir sagan að Loftleiðamenn hafi
fengið leyfi verksmiðjanna til að
skíra þær upp. Það hafði mikið
sölulegt gildi að geta auglýst flug
yfir Atlantshaf með Rolls Royce-
vélum.
Árið 1964 náði farþegafjöldinn í
fyrsta skipti 100 þúsundum. Milli-
lendingum var nú hætt á Reykja-
víkurflugvelli og þaðan í frá var
lent í Keflavík, svo sem hæfði
þessum stóru flugvélum. Fjórum
árum síðar hafði farþegafjöldinn
tvöfaldast; árið 1968 ferðuðust um
200 þúsund manns með Loftleið-
um. Loftleiðir voru orðnir að stór-
veldi á íslenskan mælikvarða og
um 2—3% alls Atlantshafsflugs-
ins var í þeirra höndum. Það var
einhvern tímann reiknað út að
0,9% hlutdeild íslendinga í alþjóð-
að þjóðin væri 36 milljónir en ekki
200 þúsund, ef alþjóðlegt flug
skiptist jafnt með þjóðum eftir
fólksfjölda.
Cargolux og
Air Bahama
Áttundi áratugurinn rann í
garð. Enn stóðu Loftleiðamenn í
stórræðum. Fremur en að leggja
vélum sínum, sem þeir þurftu að
endurnýja, stofnuðu þeir flutn-
ingafélagið Cargolux, ásamt
sænska skipafélaginu Salinas og
Luxair. Eignaraðild hvers fyrir-
tækis var þriðjungur, en Loftleiðir
og Salinas stofnuðu með sér félag
um flugvélarnar og leigðu þær
Cargolux. Það var upphafið að
fyrirtæki sem nokkrum árum síð-
ar var hið fjórða stærsta sinnar
tegundar í heiminum. Á þessum
árum varð breyting á fargjalda-
málum í fluginu yfir Atlantshaf.
Sala Loftleiða dróst saman í suð-
urríkjum Bandaríkjanna og til að
missa ekki markaðinn þar, var
flugfélagið Air Bahama keypt.
Þau kaup voru nokkuð söguleg, því
Air Bahama var angi af hinu
geysistóra járnbrautafélagi Penn
Central, sem tekið var til gjald-
þrotaskipta og var það stærsta
jýaldþrot í sögu Bandaríkjanna.
Loftleiðir keyptu Air Bahama af
þrotabúi þessu. Air Bahama hélt
uppi áætlunarflugi milli Bahama-
eyja og Lúxemborgar og gekk
rekstur þess mjög vel fyrstu árin,
þó það hafi tekið nokkurn tíma
fyrir Loftleiðamenn að byggja
starfsemi þess upp svo þeim hent-
aði.
Árið 1970 tóku Loftleiðir í
fyrsta skipti þotur í þjónustu sína.
Þær voru af gerðinni DC-8-63 og
tóku 249 farþega í sæti.
Þremur árum síðar sameinuð-
ust gömlu keppinautarnir Flugfé-
lag Islands og Loftleiðir í nýju
fyrirtæki sem ber nafnið Flugleið-
ir. Þá var farþegafjöldi Loftleiða
kominn yfir þrjú hundruð þúsund
á ári og mörg þúsund Islendinga
höfðu atvinnu af mikilli starfsemi
Loftleiða, heima og erlendis.
Ástæða þessarar sameiningar var
aðallega hörð samkeppni milli
féiganna á Norðurlandaflugleið-
um. Þegar þau leituðu eftir ríkis-
styrk í tíð vinstri stjórnar Ólafs
Jóhannessonar, beittu stjórnvöld
sér fyrir viðræðum þeirra á milli
um sameiningu. Hinn 20sta júlí
1973 var haldinn stofnfundur
Flugleiða og hinn lsta ágúst sama ár
tóku Flugleiðir formlega við
stjórn Loftleiða og Flugfélags ís-
lands.
Nýir tímar og nýtt fyrir-
tæki. í kjölfarið kom olíukreppa
og harðari samkeppni í Atlants-
hafsfluginu en nokkru sinni. Hlut-
ur íslendinga dróst þar verulega
saman.
Lýkur hér frásögn af hugrökk-
um fljúgandi mönnum í Loftleiða-
þætti.
J.F.Á.
(Við samantekt þessa hefur m.a. verið stuðst
við eftirtaldar heimildir: (ireinar Sigurðar Magn-
ússonar í Mbl. og tímaritinu „Flug“; þætti (iuð-
mundar Sæmundssonar í tímaritinu „Klugsag-
an"; grein Agnars Kofoed-llansen í ritinu „ís-
land í dag"; Morgunblaðsgreinar á hinum ýmsu
tímamótum í flugsögunni og ýmis plögg úr fórum
Alfreðs Klíassonar.)
taF J&F8 FRlÐSfflL OG E&LLEG
Portoroz - höfn rósanna - í Júgóslaviu. Þar hefur
skarkali heimsmenningarinnar verið lokaður
úti og hrííandi náttúrufegurð og gullialleg
strönd ásamt einlœgri gestrisni heimamanna
laðar á hverju ári til sín œ íleira fólk - alls staðar
að úr heiminum.
Portoroz hefur í langan tíma verið vinsœlasti og
þekktasti baðstrandarstaður Júgóslavíu. Á
ströndinni búa víkur, vogar og litlir f irðir til
afmarkaða unaðsstaði með íallegum sandi og
lygnum sjó. í seilingarfjarlœgð eru veitingahús
og skemmtistaðir heimamanna og stutt er til
nálœgra fiskimannaþorpa eða bœja með
framandi mannlíf að degi og fjölbreytt
skemmtanalíf að kvöldi.
Dr. Medved
Samvinnuíerðir-Landsýn getur enn einu sinni
boðið farþegum sýnum umönnun Dr. Medved,
en hjá honum hafa ófáir landsmenn íengið
meina sinna bót á liðnum árum. Leirböð,
ljósaböð, nudd, vatnsnudd, sauna og sund, auk
nálarstungumeðferðar, er á meðal þess sem
þessi naf ntogaði lœknir býður gestum sínum og
ekki er lakara að hala heilsurœktarstöðina í
nœsta húsi við hótel íslensku farþeganna.
Fyrsta flokks gisting
Gististaðir Samvinnuferða-Landsýnar eru
hótelin Appolo, Neptun og Grand Palace, sem
standa þétt saman við ströndina. Allt fyrsta
flokks hótel sem íslendingum eru að góðu kunn
frá liðnum árum - hótel sem þarfnast engra
tilbúinna lýsingarorða um ágœti sitt!
Skoðunarferðir
Feneyjar: Eins dags íerð þar sem farið er
sjóleiðina yíir Adriahaíið, Markúsartorgið,
Markúsarkirkjan, Hertogahöllin og
Murano-glerverksmiðjan heimsótt. siglt á
gondólum og fleira gert til skemmtunar.
Bled: Tveggja daga ferðþar sembœðier
komið til Ítalíu og Austurríkis auk hins
undurfagra Bled-vatns, sem umlukið ar
Alpafjöllum til allra átta.
PlltVÍCe: Tveggja daga ferð til þessa
einstaka þjóðgarðs Slóveníu. sem margir telja
einhvern íegursta stað allrar Evrópu.
Postojna-Lipica: 1/2 dags ferð til hinna
víðfrœgu Postojna dropasteinshella með
viðkomu á hrossarœktarbúgarðinum Lipica.
Júní: 10 c 1i
Júli:
10.
122.
Sept.
Muniö aðildarfélagsafsláttinn,
barnaafsláttinn, SL-ferðaveltuna
og jafna ferðakostnaðinn! Sumar-
bæklingurinn og kvikmyndasýning
í afgreiðslusalnum alla daga.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899