Morgunblaðið - 08.04.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.04.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 19 Garðabær: JC afhenti límmiða með símanúmerum ljósin og lögðum okkur, en önnur var þó alltaf á vakt. í Heklunni var sætafyrirkomu- lagið þannig að það voru tvær sætaraðir öðrum megin en þrjár hinum megin. Aftast voru tvö sal- erni og þar fyrir framan öðrum megin var borð og sæti fyrir þern- una. Mig minnir að ég hafi setið þar, þegar þetta gerðist. Sem ég sit þarna við borðið kemur ófrísk kona og fer inn á klósett. Skömmu síðar heyri ég einhvern hávaða. Ég hélt fyrst að það væri verið að þíða vængina, því hljóðið hafði minnt mig á skarkalann sem því fylgdi. En svo heyri ég eitthvað skrýtið frá klósettinu, svo ég geng þangað og þegar ég opna dyrnar með nokkrum bægslagangi, þá sat konan þarna inni með nýfætt barn sitt á hnjánum. Það hafði orðið fjölgun í farþegarýminu. Ég snaraðist fram og sagði frá þessu og það ætlaði enginn að trúa mér í fyrstu. Þrír norskir her- menn voru í vélinni og hafði einn þeirra verið viðstaddur nokkrar fæðingar og hann skildi á milli með mér. Flugmaðurinn Iækkaði flugið niður í 5000 fet til að barnið hlyti ekki skaða af þunnu loftinu, því þetta var fyrir daga þrýstijöfnun- ar í farþegarými. Það má segja að allt Atlants- hafið hafi staðið á öndinni þegar þetta gerðist, það er að segja, allar nærstaddar flugvélar sem heyrðu af þessu. Þetta tókst allt saman vel og við komum konunni og barninu fyrir í káetu fyrir aftan flugstjórnarklefann. Þetta var norsk kona tuttugu og níu ára gömul, að eiga sitt fyrsta barn, sem var níu marka stelpa. Ég man að ég var alltaf að klípa barnið, því eg var svo hrædd um það í þunna loftinu. En sú stutta lét þetta ekkert á sig fá. Við fréttum af mæðgunum í Noregi > nokkru síðar, en síðan rofnuðu öll tengsl. Þetta er víst nánast einsdæmi, og í nokkur ár á eftir var það skylda að allar verðandi flugfreyjur væru viðstaddar fæðingu uppi á Land- spítala." „Þetta var góður tími“ „Annað slagið komu auðvitað upp einhverjar bilanir og iðulega lentum við í slæmu veðri, en allt tókst þetta þó giftusamlega. Ég man í því sambandi til dæmis eftir ferð frá Kaupmannahöfn og heim. Þegar við fórum frá Prestwick sagði einn farþeganna að hann færi ekki þessa ferð, nema af því að kapteinn Moore flygi vélinni. Við fengum voðalega slæmt veður hér og það var jú ekki hægt að fljúga fyrir ofan veðrið, út af þunna loftinu, eins og gert er nú. Þannig að það gekk mikið á og gubbupokarnir voru á lofti. Þegar við ætluðum að fara að lenda hér í Reykjavík, þá skrapp ég fram í flugstjórnarklefann og heyri þá Moore segja við aðstoðarflug- manninn að hann muni sko ekki reyna að lenda í þessu, aðstoðar- flugmaðurinn geti reynt og mér varð hugsað til farþegans sem treyst hafði á Moore. Aðstoðarflugmaðurinn lenti og það tókst alveg prýðilega þrátt fyrir óveðrið, en eftir að við vorum lent, urðum við að bíða í tuttugu mínútur eftir því að unnt væri að koma stiganum upp að vélinni! Einu sinni man ég líka eftir að við lentum í hvirfilbyl út af Flor- ida. Þá voru mest ítalir um borð og allir ruku til og veifuðu talna- bandinu. Það var líka alveg óskaplegt veður. En vélarnar stóðu þetta allt saman af sér. Þetta var góður tími. Það unnu allir saman. Félagið var eins og ein fjölskylda. Þetta voru fátæk félög og við fengum kannski laun- in í smá skömmtum þegar verst lét, en þó bjargaðist allt.“ — Myndirðu fara út í þetta aft- ur, ef þú stæðir nú í svipuðum sporum og þú gerðir haustið 1947? „Já, það held ég áreiðanlega. Mér hefur alltaf fundist svo gam- an að fljúga og það er vissulega ennþá skemmtilegra að hafa eitthvað að gera um borð.“ - SIB Listi sjálfstæðis- manna á Blönduósi ÁKVEÐINN hefur verið listi sjálfstæðismanna á Blönduósi fyrir sveitarstjórnarkosningarn- ar í vor. Er hann á þessa leið: 1. Sigurður Eymundsson, raf- veitustjóri, 2. Sigríður Friðriks- dóttir, formaður Verkalýðsfélags A-Húnavatnssýslu, 3. Jón ísberg, sýslumaður, 4. Vilhelm H. Lúð- víksson, apótekari, 5. Eggert Guðmundsson, endurskoðandi, 6. Ragnheiður Þorsteinsdóttir, hús- móðir, 7. Þuríður Hermannsdótt- ir, skrifstofumaður, 8. Kristófer Sverrisson, mjólkurfræðingur, 9. Kristján Hallbjörnsson, bókari, 10. Einar Þorláksson, fyrrv. sveitarstjóri. Til sýslunefndar Sigursveinn Guðmundsson læknir og Þuríður Hermannsdóttir, skrifstofumað- ur. LAUGARDAGINN 3. apríl af- hentu félagar í JC Görðum í Garðabæ límmiða með símanúm- erum lögreglu, slökkviliðs og leigubíls á öll heimili í bænum. Eftir þessa helgi verða þessir miðar því á öllum símum í Garða- bæ. Með miðunum fylgja upplýs- ingar um ýmis atriða er stuðlað geta að auknu öryggi á heimilinu. Fyrsta umslagið var afhent for- seta bæjarstjórnar 1. apríl og var myndin tekin við það tækifæri. Athugasemd VEGNA fyrirspurna sem beint hefir verið til mín um hvort ég sé höfundur að texta þeim, sem birt- ur er efst á bls. 256 í Frey nr. 6 — mars 1982 undir fyrirsögninni Graskögglar 1981, vil ég taka fram að ég á enga aðild að þeim þvætt- ingi. Þar sem ég tel mig verða fyrir óbeinum svívirðingum með slíkum fyrirspurnum, vil ég að þetta komi fram til að fyrirb.vggja fleiri slík- ar. Rala, 2. apríl 1982, Rögnvaldur Guðjónsson Leiðrétting UNDIR mynd, sem fylgdi frétt um Svíþjóðarkynningu á Egilsstöðum í Morgunblaðinu 7. apríl, er rangt farið með nöfn. Á myndinni eru Uhnur Guðjónsdóttir og Bragi Guðjónsson, en ekki Þór Bengts- son. Þetta leiðréttist hér með. á f rábæru verði Sérsamningur Samvinnuíerða-Landsýnar við Hertz, eina stœrstu og virtustu bílaleigu heims, opnar þér nýja og spennandi mögu- leika til íerðalags d eigin vegum. Þú ílýgur í sjálístœðu leiguflugi til Danmerkur og ekur þaðan um Norðurlöndin eða Mið- Evrópu í eina, tvœr eða þrjár vikur - og raunar lengur eí þess er óskað. Verðið er engu líkt - flug og bíll á heildar- verði sem aldrei hefur sést hérlendis áður. Þú ert þinn eigin íararstjóri, velur þér áíangastaðina fyriríram og gengur írá hótelpöntunum með aðstoð Samvinnu- íerða-Landsýnar, eða ferðast um eins og íuglinn frjáls án nokkurrar sérstakrar dagskrár. Fullkomin vegakort, vegahand- bœkur og vegamerkingar gera íerðalagið um Evrópu að leik einum og viljirðu aðeins aka aðra leiðina eru Hertz-bílaleigur á hverju strái til þess að taka við bílnum. Bíll A Ford Fiesta eða svipuð stærð Bíll B Ford Escort eða svipuð stærð Bill C Ford Taunus eða svipuð stærð BÍIID Volvo 242 eða svipuð stærð 1 vika 2 vikur 3 vikur 1 vika 2 vikur 3 vikur 1 vika 2 vikur 3 vikur 1 vika 2 vikur 3 vikur 5 í bíl 3.950 4.300 4.450 4.050 4.300 4.500 4.100 4.400 4.700 4.200 4.600 4.900 4 i bil 4.050 4.400 4.600 4.150 4.450 4.700 4.200 4.550 4.900 4.300 4.800 5.200 3 í bíl 4.200 4.550 4.900 4.300 4.650 5.000 4.350 4 800 5.300 4.500 5.100 5600 2 í bil 4.350 4.950 5.450 4.500 5.050 5.600 4.650 5.300 5.950 4.900 5.700 6.600 Barnaafsláttur; 2ja-11 ára kr. 1500; börn 12 ára og eldri greiða fullt. Innifalið í verði: Flug Keflavik-Kaupmannahöfn-Keflavík, bílaleigubíll með ótakmörkuðum kílómetrafjölda. Ekki innifalið: Tryggingar (C.D.W., P.A.I.), söluskattur, bensin og flugvallarskattur. Brottfarardagar : ll.júní 20.ógúst 2. júlí 27. ágúst 23. júlí Öll verð eru áætluð og miðast við gengi 18. janúar 1982. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.