Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 22

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Samgöngubylting fólgin í aukinni hag- kvæmni og öryggi Rætt við dr. Þorgeir Pálsson um þróun flugmála á næstu árum Þegar mannfólkið fór að flytja sig á milli staða í vélknúnum farartækjum hófst sú sam- göngubylting sem enn sér ekki fyrir endann á. Hröð tækniþróun leiddi smám saman til þess að ferðalög urðu almenn og þegar frá leið til mestu þjóðflutninga mannkynssögunar. Ekki ómerkasti þátturinn í þessari byltingu var, að nú rættist draumur sem fylgt hafði mannkyn- inu frá örófi alda — draumurinn um að sigrast á þyngdarlögmálinu og fljúga vængjum þönd- um. Og þróunin hélt áfram. Flugvélar urðu stærri og stærri og fljótari og fljótari í förum, unz svo var komið að viö vorum farin að sveifla okkur á milli heimsálfa á svipstundu — — Það er fátt sem bendir til þess að ný tæknibylting í gerð flugvéla og loftfara sé framundan á næstunni. Víst má hugsa sér allskyns ný eða endurbætt loftför, svo sem einhvers konar sambland af flugvélum og geimförum sem gætu flutt fólk á milli heimsálfa með örskotshraða og minni flug- vélar til daglegrar notkunar ein- staklinga, líkt og bifreiðir eru not- aðar nú á tímum. Ekkert slíkt mun þó gerast á næstu áratugum, því að áherzlan verður lögð á að gera núverandi flugsamgöngu- kerfi hagkvæmari í rekstri, áreið- anlegri og þægilegri fyrir farþeg- ann. Þróunin í gerð flugvéla beinist að því að gera rekstur þeirra hag- kvæmari með ýmislegum endur- bótum á hreyflum, vængjum og skrokkum og síðast en ekki sízt, hvers konar tækjabúnaði sem notaður er við stjórn flugsins. Þessi þróun mun stuðla að því að þáttur flugsamgangna haldi áfram að vaxa þrátt fyrir hækk- andi verð á eldsneyti með því að flugvélarnar verða sparneytnari og komast leiðar sinnar með meira öryggi en áður. Farþeginn verður hinsvegar ekki beint var við þessar breyt- ingar, nema hvað flugvélar verða hljóðlátari og þægilegri og minna verður um seinkanir og tafir af völdum veðurs. Ekki er við því að búast að flughraðinn aukist þótt menn gæli við þá hugmynd að geta einhvern tíma hannað hljóðfráar og langfleygar farþegaþotur sem verði samkeppnisfærar. Það eru ekki sízt siglingatæki og sjáifvirk sjórnkerfi í flugvélunum sjálfum og á jörðu niðri sem munu hafa gífurleg áhrif á flugsam- göngur framtíðarinnar. Tölvubylt- ingin hófst fyrir meira en áratug í flugsamgöngum, t.d. með notkun tölva við flugumferðarstjórn. Eft- ir að örtölvur komu til sögunnar hefur tölvuvæðing flugvélanna sjálfra hafizt og má að sumu leyti segja að örasta þróunin í flug- tækni sé einmitt á þessu sviði. Þessi þróun skiptir okkur íslend- inga miklu máli vegna þess að hún mun gera flugsamgöngur mun óháðari veðurskilyrðum en þær hafa verið til þessa. — Hver er munurinn á þeim siglingatækjum sem væntanleg eru og þeim sem nú eru í notkun? — Við erum þegar farin að not- færa okkur þessa tækni í utan- landsflugi. Þannig er nú liðinn áratugur síðan DC-8 flugvélar I^jftleiða voru búnar mjög full- komnum staðarákvörðunar- og leiðsögutækjum sem fljúga vélinni á sjálfvirkan háttyfir hafið. Síðan komu svokölluð Omega-staðar- ákvörðunartæki til sögunnar en jafnvel hraðar en hljóðið. En hvað er framund- an? Hvernig munum við ferðast um aldamót sem reyndar eru ekki svo langt framundan? Er ný bylting í aðsigi. Verða flugvélar almennings- eign? Koma eldflaugar í staðinn fyrir farþega- þotur nútímans, þannig að maður gengur inn í hylki og lætur svo skjóta sér yfir heimshöfin? Orar? Kannski — en hugsunin á bak við þá er varla óraunhæfari en samgöngur nútimans hefðu þótt um síðustu aldamót. Dr. þorgeir Pálsson, flugverkfræðingur, sem kennir kerfis- verkfræði við Háskóla íslands, féllst á að svara nokkrum spurningum um líklega þróun í samgöngumálum okkar. t.d. De Havilland Dash-7 sem er meðal annars notuð í innanlands- flugi í Noregi og á Grænlandi. Þessar vélar hefja sig fullhlaðnar á loft og lenda á innan við 800 metra löngum brautum. Þær eru hljóðlátar og geta komið inn til lendingar eftir mun brattari að- flugsferli en nú tíðkast. Á næstu árum munu fleiri flugvélar með slíkum eiginleikum koma til sög- unnar og fullkomnari stjórntækni mun auka enn á flughæfni þeirra, t.d. í ókyrrð sem háir mjög flugi yfir fjöllóttu og vindasömu landi. En þessi tækni kostar mikla pen- inga og endurnýjun flugflotans ‘f t. r s* \ Dr. Þorgeir Pálsson. þau gegna sama hlutverki í út- hafsflugi og nýjasta þota Flug- leiða er búin tölvukerfi sem reikn- ar út hagstæðasta feril á áfanga- stað. Hinsvegar er þetta aðeins upphafið á þróun sem mun hafa enn meiri áhrif á innanlandsflugið þótt erfitt sé að segja til um það á þessu stigi hve hröð þróunin verð- ur hér á landi vegna þess hve hún er háð fjárveitingum til flugmála. — Hvers konar áhrif mundi þessi nýja tækni hafa á innan- landsflugið? — Það er Ijóst að innan nokk- urra ára ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu frá tæknilegu sjónar- miði að fljúga aðflug með mikilli nákvæmni inn á flugvelli nánast hvar sem er á landinu. Auk þeirra kerfa sem notuð eru við fiugleið- sögu nú mun bætast við ýmis ný tækni sem að hluta til er þegar fyrir hendi hérlendis, eins og Loran-C-kerfið. Þá koma til sög- unnar nýtt gervihnattakerfi, sem nú er á þróunarstigi og örbylgju- lendingarkerfi, sem munu taka við af þeim blindlendingartækjum sem nú eru í notkun. Þessi leið- sögutækni og nýjar tegundir flugvéla með aukna flughæfni munu til að mynda gera það kleift að fljúga inn á Akureyrarflugvöll við mun erfiðari veðurskilyrði en nú gerist. f’lugsamgöngur innan- lands verða því miklu áreiðaniegri en þær eru nú og minna verður um það að fólk þurfi að bíða dögum saman eftir því að flugskilyrði batni. Hvað um nýjar flugvélar í inn- anlandsflugi? — Flugvélarnar sem notaðar verða til innanlandsflugs í fram- tíðinni munu hafa miklu meiri flughæfni en Fokker Friendship. Þannig munu þær geta athafnað sig á miklu styttri flugbrautum en nú eru nauðsynlegar. Slíkar vélar hafa þegar verið teknar í notkun, Tilraunaflugvél af Booing YC-14-garð, aom gaatl orftfö fyrlrrennari innanlandsflugvéla framtíöarinnar. Notar atuttar flugbrautir og þolir mikinn hliðarvind. InnanlandaflugvðUur rétt við miðborg Chicago. Líkan aö flugvelli ofan á flugstöðvarbyggingu mað bílageymalum o.fl. í miöborg Houaton í Taxaa. getur ekki orðið nema reksturinn standi undir fjárfestingu í nýjum flugvélum og búnaði. Því miður er útlitið í þessu efni ekki bjart eins og ástandið er nú. — Hvað með flugvellina? Mun þessi nýja tækni ekki gera það að verkum að unnt verður að fljúga til langtum fleiri staða hér innan- lands en nú er gert? — Jú, en forsenda þess að við getum nýtt okkur þessa nýju tækni er sú að stórátak verði gert í flugvallamálum. Það eru ekki að- De Havilland Dash 7-flugvélar aru þagar ( notkun til flugs á stuttum flugleiöum austan- og vestanhafs. Myndin er tekin á flugsýningu á Reykjavikurflugvelli. verða að forarpyttum í hláku. Gerðar hafa verið vandaðar áætl- anir um hvernig staðið skuli að þessum málum, en vegna fjár- skorts hefur lítið orðið úr fram- kvæmdum. — Hvað með Reykjavíkurflug- völl? Er kominn tími til að leggja hann niður, m.a. af öryggisástæð- um? — Nei, það er alls ekki þörf á því. Þróunin er einmitt í þá átt að þessi flugvöllur á að geta orðið miklu öruggari í framtíðinni, um leið og flugið á að geta valdið miklu minna ónæði en verið hefur. Með þessari nýju tækni á sá möguleiki m.a. að vera fyrir hendi að stytta flugbrautir og ætla þessu athafnasvæði langtum minna rúm en það tekur nú. Að mínu mati skýtur skökku við þeg- ar umræðan hér er farin að snúast um það að miklu leyti að leggja Reykjavíkurflugvöll niður á sama tíma og það þykir mjög eftirsókn- arvert erlendis að koma upp flug- völlum í grennd við miðborgir. í þessu sambandi nægir að benda á stórborgir eins og Montreal, Chic- ago og Innsbruck þar sem innan- landsflug og flug á skemmri flug- leiðum er rekið frá völlum sem eru örstutt frá miðborginni. Víða er verið að kanna möguleika á slík- um innanlandsvöllum í grennd við miðborgir og ég held að við íslend- ingar ættum ekki að leggja niður þennan flugvöll sem hefur öll skil- yrði til að geta verið mjög góður innanlandsvöllur um langa fram- tíð. Að sjálfsögðu þarf ýmislegt að gera til að laga hann betur að um- hverfinu og það er vel hægt. Bent hefur verið á það að hætta af flugvöllum í grennd við þéttbýli og borgir sé mikil og í því sam- bandi hefur verið bent á Nation- al-flugvöllinn í Washington þar sem mikið slys varð nýlega. Slíkur samanburður er fráleitur því að umferðarþunginn þar og stærð flugvéla sem þar fara um er allt annars eðlis en á Reykjavíkur- flugvelli. — Á.R. eins flugvélar og tækjabúnaður í þeim sem skipta máli í þessu sam- bandi. Það þarf að búa flugvellina nauðsynlegum öryggistækjum og setja á þá varanlegt slitlag, en þetta er forsenda þess að við Is- lendingar getum nýtt okkur þá tækni sem nágrannar okkar á Grænlandi og í Noregi eru þegar farnir að nota. Það er tilgangs- laust að fjárfesta í dýrum tækjum ef ekki er hægt að nýta þau nægi- lega vel af því að Ijósabúnað vant- ar á flugvellina og flugbrautirnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.