Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 26

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Mestmegnis hjólför yfir móana nokkuð djúpu gili. Hafði hann nú rifið af sér brúna og fleytt henni niður í Jökulsá og var því gjör- samlega ófær. Við snerum við og hugðumst hitta vegavinnuflokk- inn og leita ásjár, en hann var nú allur á bak og burt og reyndar vegurinn líka, því á ný hafði heil lyngbrekka hlaupið fram og lokað honum gjörsamlega. Enn þurfti Garðar að snúa bílnum og reyndar bakka langa leið, eins og oft áður í þessari ferð, því slóðin var varla bílbreidd og oft niðurgrafin. Garðar sagði að stytzt væri til bæja að Hauksstöðum og væri það skammt ofan við brúarlausa læk- inn.- Var nú gengið frá bílnum uppi á mel, sem ekki voru miklar líkur á að á hlypi, eða að rynni burt með vatnsflaumnum og síðan haldið til bæjar. Garðar hafði þar orð fyrir okkur og baðst gistingar. Var það auðsótt og okkur mjög vel tekið. Þarna gistum við tvær næt- ur og fram að hádegi þar næsta dags og fór vel um okkur. Þar fréttum við að brúin væri farin af Hvanná sem er nokkru ofar í daln- um. Veðrið fór nú aftur batnandi og að því kom að fréttir bárust um að verið væri að gera vað á brúar- lausa lækinn sem stöðvaði ferð okkar og eins á Hvanná. Það var um hádegi á öðrum degi eftir að við komum að Hauksstöðum að hægt var að leggja af stað aftur. Kvöddum við og þökkuðum góðan beina, en ekkert fengum við að greiða fyrir. Ferðaveður var orðið gott og uppstytta, og var haldið sem leið liggur upp Jökuldalinn. Ekki var Hvanná árennileg er að var komið, vatnsmikil og mórauð, og handan árinnar var upp brattan mel að sækja, en vaðið krappt. Eftir að komist varð yfir Hvanná gekk ferðin vel. Skammt innan við Skjöldólfsstaði var haldið upp á heiðina. A Jökuldalsheiðinni var víðast aðeins um slóð að ræða, en ekki iagðan veg og var hann því seinfarinn. Þó voru þar af náttúr- unnar hendi ágætir kaflar og jafn- vel betri en lagðir vegir voru, og má þar fyrst nefna Geitasandinn, en hann var á milli Möðrudals- fjallgarðanna. Annars voru gömlu vegaverkstjórarnir ótrúlega nask- ir á að finna leiðir milli þeirra staða sem voru þurrir og sléttir og hæfir til aksturs án mannaverka." Garðar skýtur hér inn í að þeg- ar ferð þessi var farin hafi nýlega verið búið að opna þessa ieið til umferðar fyrir bíla. Þarna var yfir öræfi að fara og víða langt á milli bæja, en lengst þó milli Jökuldals og Möðrudals og svo frá Gríms- stöðum yfir Hólsfjöll til Axar- fjarðar. MAGÁLAR OG SÚR- MATIJR í MÖÐRUDAL inn tíma til að sýna okkur það markverðasta á leiðinni, þótt óvið- ráðanlegar tafir hafi verið mikl- ar.“ Garðar brosir í tilefni af þess- um ummælum og segir: „Ég reyndi að sýna farþegunum það sem ég gat, t.d. Ásbyrgi og Detti- foss, eins skemmtilega kletta í Að- aldal sem eru holir innan og það annað sem ég taldi að fólk hefði gaman af að sjá. Þetta var smá- krókur og ég gerði þetta ekki ef einhver mótmælti því. Þetta létti förina fyrir farþegana og hefur ef- laust gert hana skemmtilegri. Við reyndum þó alltaf að halda áætl- un, það skipti máli fyrir svo marga, þá sem við gistum hjá og borðuðum og svo auðvitað fyrir farþegana Iíka.“ í ÁFANGASTAÐ Á SJÖUNDA DEGI Reynir lýkur frásögn sinni svo: „Nú var haldið áfram um Keldu- hverfið og síðan yfir Reykjaheiði til Húsavíkur. Ekki var lengi tafið þar en ekið inn Aðaldalinn. Þar man ég eftir að við áðum við hraunhól sem holur var innan og hægt að ganga í hann. Svona brunahraun eins og í Aðaldalnum hafði ég aldrei séð fyrr. Næst stönzuðum við hjá Goðafossi og svo aðeins í Vaglaskógi. Svo var haldið yfir Vaðlaheiðina með öll- um sínum beygjum og krókum og loks blasti Akureyri við sjónum. Garðar áaamt konu ainni, Janafnu Karladóttur. Ljósm. Mbl.: Frié» Proppé. Þangað komum við um kvöldmat- arleytið, sjö dögum eftir að við riðum úr hlaði með pabba heima á Norðfirði." I eftirskrift bætir Reynir Zoéga við, að mörgu fieira minnisstæðu úr þessari fyrstu langferð sinni á landi megi bæta við, og að slík upprifjun gæti orðið efni í heila bók. Garðar sagði að heimferðin frá Akureyri til Eskifjarðar eftir að hann skildi við þá bræður og Ás- geir bróður sinn, hefði gengið vel. Hann sagðist ekki minnast þess að hafa verið jafn lengi eða lengur á þessari leið fyrr eða síðar. Hann kann frá ýmsu að segja í sam- bandi við ferðir sínar á þessum árum, en vill lítið úr gera og segir þetta eingöngu þann ferðamáta sem allir hafi orðið að sætta sig við. Hann segist alla tíð hafa verið heppinn bílstjóri, ekki lent í stór- slysum, eingöngu árekstrum og þá j helst í Reykjavík. Garðar hefur oft verið einn á ferð í myrkri utan alfaraleiða í ýmiskonar veðráttu. Hefur hann aldrei orðið var við neitt óvenju- legt. STÓÐ í DAG- LEGRI VEGAGERÐ Ég er ekki myrkfælinn, en reyndi samt alltaf að vera ekki einn á ferð, en það kom til af því að ef eitthvað kom fyrir gat verið erfitt að komast einn áfram. Mað- ur stóð iðulega í daglegri vega- gerð, enda skóflurnar alltaf tvær í bílnum. — Orðið var, spyrðu. Ég er ekki skyggn, ef það er það sem þú meinar, en það var farþegi eitt sinn í bílnum hjá mér sem sá mann úti á miðri brú, en ég sá ekki. Síðar sagði mér gömul kona á Egilsstöðum, að lýsingin á manninum passaði við mann sem drukknaði í þessari sömu á, skömmu áður en farþeginn sá hann. Eitt sinn lenti ég í svolitlu sem erfitt er að útskýra og ég myndi ekki þora að segja frá, nema vegna þess að ég hafði vitni að því. Friðrik Árnason var með mér í ferð til Húsavíkur og við komum við á Skjöldólfsstöðum. Okkur var boðin þar gisting og sagt að ekkert vit væri í því að halda áfram. Menn voru að koma þar úr smala- mennsku og sögðu að það væri brjálað á heiðinni og allt ófært. Ég þráaðist við, var á hraðferð og vildi reyna. Setti keðjur á og þre- falda strekkjara til vonar og vara. Við lögðum í hann og áttum von í að það myndi birta þegar kæmi norður fyrir. Það reyndist rétt vera að veðrið var brjálað og svo slæmt að þurrk- urnar höfðu ekki við. Ég varð að hafa hendina úti og þurrka af rúð- unum jafnóðum. Þegar við komum að eystri fjallgarðinum birti að- eins og framundan var stór skafl, sem búið var að moka og hjólför eftir bíl mátti vel greina. Við fór- um í þeim yfir heiðina og gegnum skaflana og komumst í Möðrudal. Ekki höfðum við hitt neinn bíl áð- ur en við lögðum í heiðina, enginn hafði farið í gegn á Skjöldólfsstöð- um meðan við vorum þar og þegar komið var í Möðrudal var okkur sagt að enginn hefði farið þar í gegn þann daginn. Þessu hefði ég ekki þorað að segja frá, nema af því að ég hafði vitni, en ekki hefur mér tekist að fá eðlilega skýringu á þessu. Garðar hóf rekstur bílaleigu ár- ið 1964 og hóf ökukennslu á sama tíma. Hann er nú svo til hættúr með bílaleiguna, var óheppinn, missti nýja bíla í tvígang, án þess að fá þá greidda hvorki af leigu- tökum né úr tryggingum. Hann heldur þó enn einum bílaleigubíln- um. „Meira fyrir konuna mína. Henni finnst að við eigum að halda honum, þykir kannski svo- lítið vænt um þennan Volkswagen sem við eigum eftir,“ segir hann. í dag kennir hann á bíl og stundar leigubílaakstur. „Fæ túra svona hingað og þangað um firð- ina, stundum lengri túra,“ segir hann sjálfur. Ég spyr um álit hans á akstursmenningunni í dag, ef nota má það orð. „Þá koma mér í huga öll þessi óskaplegu slys,“ segir hann. „Já, og sumir blessaðir unglingarnir. Það er eins og eitthvert æði grípi þá, þegar þeir eru komnir með próf. Mér dettur í hug einn sem ég kenndi nú reyndar sjálfur. Hann hefur tíðkað það að keppast við að komast á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar á sem skemmstum tíma og montað sig af því, að mér er sagt, að hafa komist á milli á fjórum mínútum. Fyrir skemmstu fór hann í gegnum Oddsskarðs- göngin á þeirri fljúgandi ferð, að þegar hann kom út úr þeim þá tókst bíllinn á loft og fór fjórar veltur og rétt áður en bíllinn kom að hengiflugi stöðvaðist hann og stráksi slapp með skrekkinn og nokkrar rispur. Ég viðurkenni að mér fannst oft gaman að keyra léttar og þurfti þess á stundum, þegar ég var til dæmis að fara með lækni á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. En að leika sér með eigin líf og annarra — það er mér óskiljanlegt. Eitt er ég viss um vegna þessarar spurningar. Ekki vildi ég vera atvinnubílstjóri í Reykjavík í dag,“ bætir hann við, en gefur ekki meira út á það. ÆTLAÐI AÐ VERÐA SJÓMAÐUR Það er ljóst að við Garðar get- um haldið áfram spjalli okkar um ævintýralegar ferðir á Austur- og Norðurlandi í langan tíma og ef- laust fyllt í bók, eins og Reynir Zoega komst að orði í niðurlagi sinnar ferðalýsingar. Við ákveðum þó að setja hér punktinn, en ég spyr Garðar í lokin, hvort hann myndi leggja út á vegina á ný, ef hann væri kominn til baka til árs- ins 1931 og væri að fá í hendur ökuskírteinið sitt. Hann hugsar sig vel og lengi um og segir síðan: „Ég veit það ekki. Þetta er eins og hvert annað lífsstarf. Ég kunni vel við mig á sjónum og ætlaði mér einhvern tíma sem unglingur að verða sjómaður. Ég var bara svo voðalega sjóveikur og losnaði aldr- ei við sjóveikina." Kvenfélagskonur á Eskifirði f skemmtiferð árið 1952. Bílstjóri f ferðinni er Jóhann Kruger, en hann má sjá f hópnum, stendur vió nsestöftustu hliðarrúöuna. Ljósm. úr safni byggöasögunefndar Eskifjaröar. En höldum ferðinni áfram: „í Möðrudal komum við klukkan tvö um nóttina og var þar vel tekið. Fengum við þar hangikjöt, magála og súrmat að borða, eða það sem nú er kallaður þorramatur, en þetta var nú seint í september. Okkur var boðin gisting, en ákveð- ið var að halda áfram, enda ærnar tafir þegar orðnar. Leið okkar lá nú yfir Hólsfjöllin og komum við að Austara-Landi í Axarfirði und- ir morgun. Þar voru menn að bú- ast í göngur. Þarna var lítið stanzað en hald- ið áfram út að brúnni á Jökulsá í Axarfirði og síðan vestur yfir hana og til Ásbyrgis, en Garðar lagði lykkju á leið sína til að sýna okkur þetta náttúruundur. Þegar ég hugsa um það núna finnst mér furðulegt hvað hann gaf sér mik- Umferðaróhöpp urðu einnig í þá daga, þó haagar vsari farið yfir, enda vegir þröngir og nánast troöningar á köflum. Þessar myndir, sem eru úr safni byggðasögunefndar Eakifjarðar, sýna björgunaraðgeröir eftir að rútubifreið með A-númeri hefur lent á hliöinni. Taliö er líklegt, að óhappið hafi átt sér stað einhvers staðar á leiðinni Eskifjöröur-Akur- eyri. Fyrstu vörubílarnir voru gjarnan nýttir til fólkaflutninga. Þá var svonefndu „boddýi" komið fyrir á palli bílsins. í boddýinu voru tré- bekkir meðfram hliðunum, sem fólkið sat á. — Úr safni byggöasögu- nefndar Eskifjaröar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.