Morgunblaðið - 08.04.1982, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 08.04.1982, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 35 Fjölskylduskemmt- un Lúðrasveitarinnar í Eyjum Nú er að rísa í Eyjum minnis- varði um hið góðkunna tónskáld Oddgeir Kristjánsson. Verki þessu miðar vel og er áætlað að það verði tilbúið fyrir 17. júní nk. Verður þetta fyrsta útileiksvið sinnar tegundar á íslandi. Þetta minnismerki kostar að sjálfsögðu mikið fé og hafa margir þegar lagt hönd á plóginn. Nú ætlar Lúðra- sveit Vestmannaeyja að fara af stað með fjölskylduskemmtun, og verður öllum ágóðanum varið til þessa verkefnis. Verður þessi fjöl- skylduskemmtun á laugardaginn fyrir páska í Samkomuhúsinu bæði kl. 5 sd. og kl. 8.30 um kvöld- ið. Munu þarna koma fram auk Lúðrasveitarinnar, sex syngjandi systur úr Eyjum og hinir frábæru snillingar Graham Smith á fiðlu og Jónas Þórir á orgel. Þá mun hinn landsfrægi Ási í Bæ verða kynnir. Væntir Lúðrasveitin þess að sem allra flestir komi og hlýði á þessa snillinga. Valgarður Gunnars- son í Nýlistasafninu Valgarður Gunnarsson opnar sýningu í Nýlistasafninu Vatns- stíg 3b föstudaginn 9. apríl kl. 16. Sýningin verður opin kl. 16—22 virka daga og kl. 14—22 um helg- ar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 18. apríl. Valgarður Gunnarsson útskrif- aðist úr Myndlista- og handíða- skóla íslands árið 1979. Stundaði framhaldsnám við State Univers- ity of New York og Empire State College árin 1979—1981. Þetta er fyrsta einkasýning Valgarðs, en hann hefir áður tekið þátt í tveimur samsýningum. Sýnd eru olíumálverk máluð á striga. Tréskurður í * Asmundarsal Sýning skurðli.starskóla Hannesar Flosasonar hófst í Ásmundarsal í gær, miðvikudag. Sýningin stendur til miðvikudagskvölds, 14. apríl, og er opin daglega frá klukkan 14 til 22 en lokað er páskadag. Á sýningunni munu nemendur skólans sýna tré- skurð. I sýningarskrá segir svo m.a.: „Á sýningu þessari eru verk eftir þátttakendur á námskeiðum síð- ustu tíu ára, þó mest eftir núver- andi nemendur. Hönnun flestra verkanna er eftir Hannes Flosa- son, en nokkur eru hönnuð af þátt- takendum sjálfum eða eru eftir- gerðir gamalla skurðverka. Sýn- endur eiga að baki sér mjög mis- langan námsferil í skurðlist, frá nokkrum mánuðum til sjö ára. Skurðlistarskólinn er myndaður af óslitinni röð kvöldnámskeiða, þar sem byrjendur og lengra komnir eru saman eitt kvöld í viku í litlum hópum og njóta einstakl- ingsbundinnar tilsagnar eftir þörfum hvers og eins. Stysti þátt- tökutími er tveir mánuðir, en þátttakendur geta haldið plássum sínum eins lengi og þeir óska.“ V estmannaeyjar: í minningu Oddgeirs Kristjánssonar Á skírdag 8. apríl nk. verður opnuð málverkasýning í AKOG- ES, er sýning þessi helguð minn- ingu Oddgeirs Kristjánssonar, tónskálds, og sett upp í samvinnu Guðna Hermansen listmálara og AKOGES. Alls sýnir Guðni 36 olíumálverk flest unnin á þessu og seinasta ári, en nú eru þrjú ár lið- in frá því Guðni sýndi seinast og er sýning þessi sölusýning. Aðgangseyrir verður 10,00 kr. og rennur hann óskiptur til bygg- ingar minnisvarða um Oddgeir Kristjánsson, sem nú er unnið að. I sambandi við sýningu þessa efna AKOGES-félagar til happ- drættis og verður vinningurinn stórt málverk eftir Guðna Her- mansen (130x70) Alls verða gefnir út 3.000 miðar og verð hvers miða 25,00 kr. Verða miðar seldir á sýn- ingunni og víðar og mun allur ágóði af happdrætti þessu renna óskiptur til byggingar minnis- varðans um Oddgeir Kristjánsson. í beinum tengslum við mál- verkasýninguna verða á efri hæð AKOGES sýndar litskyggnur, sem Oddgeir Kristjánsson tók, en hann var slyngur áhugaljósmyndari og fagurkeri mikill eins og fram kom m.a. í skrúðgarði þeirra hjóna að Heiðarvegi 31, aðgangur að þess- ari sýningu verður ókeypis. Sem fyrr segir verður mál- verkasýning þessi opnuð á skírdag kl. 2 e.h. og verður opið til kl. 22 og verður þessi opnunartími alla há- tíðisdagana, en virka daga verður opið frá kl. 4 e.h. til kl. 22, en sýningunni lýkur sunnudaginn 18. apríl. Dregið verður í happdrættinu 1. maí og vinningsnúmer birt í Lög- birtingablaðinu og bæjarblöðum. Er það von þeirra sem að þess- ari sýningu standa að hún verði vel sótt og á þann hátt sýni Eyja- menn og gestir minningu Oddgeirs verðugan sóma og styðji um leið byggingu glæsilegs minnisvarða um tónskáldið Oddgeir Krist- jánsson. Norræn rádstefna um öryggi og afvopnun Nenu-ndasamband norska varnarmálaháskólans gengst fyrir fimm daga ráðstefnu hér í Reykjavík 15. til 19. apríl. Við- fangsefni þátttakenda í ráðstefn- unni verður að fjalla um örygg- ismál á norðursvæði NATO í Evr- ópu, afvopnunarmál og vígbúnað- areftirlit. Nemendasambandið býður til þátttöku ca. 10 manns frá hverju þessara landa: Noregi, Danmörku og íslandi, en auk þeirra koma fimm menn frá herstjórn NATO fyrir norðursvæðið, sem hefur að- setur í Kolsás, rétt við Osló, og tveir til fjórir frá Finnlandi og Svíþjóð. Ráðstefnustjóri er frú Grethe Værnö, þingmaður fyrir Osló. Ólafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, flytur ávarp við upphaf ráðstefnunnar. Þrír íslendingar flytja fyrir- lestra á ráðstefnunni, þeir Björn Bjarnason, blaðamaður (örygg- ismál íslands), Gunnar Gunnars- son, starfsmaður Öryggismála- nefndar (viðræður um kjarnorku- afvopnun), og Haraldur Ólafsson, dósent (starf Sameinuðu þjóðanna að afvopnun). Meðal annarra fyrirlesara má nefna Sir Anthony Farrar- Hockley, yfirhershöfðingja í stjórnstöð NATO í Kolsás (varnir Norður-Evrópu), Paul H. Speer, flotaforingja hjá Atlantshafsher- stjórninni (varnir Norður- Atlantshafs), R. F. Marriott, flotaforingja og yfirmann Varn- arliðsins á íslandi (varnir ís- lands), Ib Faurby, frkv.stj. dönsku örygKÍs- og afvopnunarnefndar- innar, og Sverre Logaard frá frið- arrannsóknastofunni SIPRI í Stokkhólmi. Ráðstefnan verður haldin í Hót- el Sögu, og um undirbúning henn- ar af Islands hálfu sér Upplýs- ingaskrifstofa Atlantshafsbanda- lagsins í Reykjavík. (FrétUtilkynninK-) Musica Antiqua í Háteigskirkju Musica Antiqua nefnist röð tónleika þar sem flutt er músík frá endurreisnar- og barokktím- anum. Þriðjudaginn 13. apríl næstkomandi verða þriðju og síð- ustu tónleikar vetrarins. Flutt verður barokktónlist; kantötur og tríósónötur eftir Schutz, Tele- mann, Hándel o.fl. Flytjendur á þessum tónleikum eru Signý Sæmundsdóttir söngur, Camilla Söderberg blokkflautur, Michael Shelton fiðla, Helga Ing- ólfsdóttir sembal og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir viola da gamba. Tónleikar Musica Antiqua hafa fram að þessu verið haldnir á sal Menntaskólans í Reykjavík en að þessu sinni verða þeir i Háteigs- kirkju og hefjast kl. 20.30. Skrugga frumsýnir „Nóttina lönguM Leikfélagið Skrugga í Austur- Barðastrandarsýslu frumsýnir á annan páskadag, i félagsheimilinu Vogalandi, Króksfjarðarnesi, leik- ritið „Nóttin langa“ eftir Jóhannes Steinsson. Leikstjóri Evert Ing- ólfsson. Jói á annan í páskum hjá LR Að vanda liggja leiksýningar LR niðri yfir helgidagana, en hefj- ast á ný annan dag páska. Þá verð- ur leikrit Kjartans Ragnarssonar JÓI á fjölunum. Það er Jóhann Sigurðarson sem leikur Jóa. Hanna María Karls- dóttir leikur systur hans, Lóu, og Sigurður Karlsson Dóra, mann hennar. Guðmundur Pálsson leik- ur pabbann, Þorsteinn Gunnars- son Bjarna, bróður Jóa, og Elfa Gísladóttir Maggí, konu Bjarna. Þá leikur Jón Hjartarson brúðuna Súperman, vin Jóa í raun. Höfundurinn er sjálfur leik- stjóri en leikmynd gerði Steinþór Sigurðsson. Þess má geta, að strax eftir páska hefjast æfingar á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson hjá Leikfélaginu. Nefnist það Skilnaður og verður sýnt á Lista- hátíð í júní. PRISMA BESJi 'x? HJALPARKOKKURINN KENWOOD chef Verð kr.3.216.- (Gengi 2.4/82) með þeytara, hrærara, hnoðara, grænmetis- og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál. KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er ávallt fyrirliggjandi úrval auka- hluta, svo sem, hakkavél, grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöfluafhýðari, dósahnífur ofl. Eldhússtörfin verða leikur einn með KENWOOD CHEF RAFTÆKJADEILD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.